Morgunblaðið - 24.05.2014, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Baráttan í Reykjanesbæ einkennist
einkum af umræðum um húsnæðis-
mál og atvinnu, sem mjög hafa verið í
deiglunni á kjörtímabilinu. Þá hefur
skuldastaða bæjarfélagsins einnig
verið rædd í kosningabaráttunni og
misjafnt hvaða leiðir menn vilja fara
til að koma böndum á hana.
Mikilvægt að ljúka verkinu
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segist vera bjart-
sýnn á að niðurstöður kosninganna
verði betri en kannanir sýna, en sam-
kvæmt þeim er meirihluti Sjálfstæð-
isflokksins í hættu. „Það er mikill
kraftur í fólki og jákvæður andi. Það
er ánægjulegt að finna hversu marg-
ir taka virkan þátt í baráttunni,“ seg-
ir Árni, og bætir við að stöðugt fleiri
skilji hversu mikilvægt það sé að
ljúka þeim verkum sem hafin hafi
verið á síðasta kjörtímabili.
„Áherslan hjá okkur hefur verið á
að minna á það sem okkur hefur tek-
ist að gera á erfiðum tíma, eins og til
dæmis í skólamálum, þar sem við
höfum gjörbylt stöðunni frá því að
vera í hópi hinna verstu í samræmd-
um prófum og komist í hóp þeirra
sem standa best,“ segir Árni. Hann
bætir við að einnig hafi verið tekið vel
á í heilbrigðismálum og málefnum
fatlaðs fólks, auk þess sem umhverf-
ismál hafi færst til mikið betri vegar.
„Við höfum líka lagt áherslu á fjöl-
breytni í atvinnumálum, sem er að
skila sér,“ segir Árni. Um önnur
verkefni segir Árni einnig þörf á að
bæta bæjarbraginn, til dæmis með
því að laga Hafnargötuna, og síðan
þurfi að taka heilsugæsluna í gegn, til
að tryggja það að fólk geti fengið þar
þjónustu samdægurs eða daginn eft-
ir, en þurfi ekki að bíða í margar vik-
ur eftir sjálfsagðri þjónustu. Árni er
því bjartsýnn á að stefnumál flokks-
ins muni skila sér í kosningunum.
Þarf að laga fjármálin
Friðjón Einarsson, oddviti Sam-
fylkingarinnar, segir stöðuna góða og
að frambjóðendur finni fyrir miklum
meðbyr. „Við erum með nýjan hóp,
og mikil nýliðun er í okkar hópi.“
Friðjón segist finna fyrir miklum
krafti í baráttunni og nefnir sem
dæmi að um 200 manns hafi mætt á
kappræður milli framboðanna um
daginn.
„Helstu málefni okkar eru end-
urskipulagning á rekstri bæjarins,
fjármögnun lána og uppstokkun
nefnda,“ segir Friðjón, og segir þau
atriði nauðsynleg til þess að setja
fjölskylduna í fyrirrúm. „Við þurfum
að laga fjármálin til þess að geta að-
stoðað fjölskyldurnar,“ segir Friðjón
og bætir við að þar séu atvinnu- og
húsnæðismál mest í brennipunkti.
Þau mál ásamt rekstri sveitarfé-
lagsins verði að setja á oddinn.
Velferðarmálin mikilvægust
Trausti Björgvinsson, oddviti
Pírata í Reykjanesbæ, segir að sér
lítist vel á stöðuna. „Það er mikil já-
kvæðni í garð Pírata í Reykjanesbæ,
og það gefur manni kraft að finna
hana,“ segir Trausti. Hann segir Pí-
rata leggja mesta áherslu á velferð-
armálin, en að atvinnu- og húsnæðis-
mál hafi verið hvað heitust í barátt-
unni. Trausti segir brýnt að koma
hjólum atvinnulífsins aftur af stað.
Húsnæðismálin tengist síðan velferð-
armálunum. „Þó að það séu 2.000
íbúðir tómar hérna, þá eru margir á
götunni,“ segir Trausti. Þá séu um
900 manns sem þurfi að leita til Fjöl-
skylduhjálparinnar í hverjum einasta
mánuði eftir mataraðstoð. „Þetta
segir okkur bara að þetta er stærðar-
innar vandamál, og það virðist vera
veggur á milli bæjaryfirvalda og
þessara hjálparstofnana,“ segir
Trausti, sem telur brýnt að bærinn
styðji betur við hjálparstofnanir.
„Það stingur mann að sjá hversu
mikil þörf það er.“
Verndum grunnþjónustuna
Gunnar Þórarinsson, oddviti
Frjáls afls, segir að bæjarbúar hafi
veitt sér og fólki sínu góðar viðtökur,
en framboðið mælist með um 10%
fylgi og mann inni. Hann segir að það
sé einkum tvennt sem bæjarbúar
hafi áhyggjur af. „Í fyrsta lagi eru
það fjármál bæjarins og skuldastaða
hans, en skuldir eru verulegar miðað
við tekjur. Í öðru lagi eru það auðvit-
að atvinnumálin. Það er mikið af fólki
hérna sem er ekki á atvinnuleysis-
skrá og er á framfæri bæjarins,“ seg-
ir Gunnar. Efling atvinnulífsins sé
því forgangsmál. „Svo höfum við lagt
áherslu á að verja grunnþjónustuna,
markmiðið er að vernda barna-
fjölskyldur og eldri borgara,“ segir
Gunnar.
Breytingar í fyrirrúmi
Guðbrandur Einarsson, oddviti
Beinnar leiðar, segir að sitt fólk finni
að það séu að eiga sér stað breyt-
ingar og sé kátt með það, en fram-
boðið mælist með einn mann inni í
könnunum. „Það er vilji að hér komi
til nýir einstaklingar og ný öfl til þess
að stjórna samfélaginu.“ Fjárhagsleg
staða sveitarfélagsins skipti þar
meginmáli, auk atvinnumálanna.
„Svo er mikil umræða um stjórn-
sýsluna almennt og það hvernig
menn ráða bæjarstjóra,“ segir Guð-
brandur og bætir við að flestir utan
Sjálfstæðisflokks séu sammála um að
reyna aðrar leiðir við val á bæj-
arstjóra. En er þá líklegt að meiri-
hluti myndist án Sjálfstæðisflokks-
ins? „Mér þykir það eðlilegt að ef
Sjálfstæðisflokkurinn tapar svona
miklu fylgi þá lýsi það vilja bæjarbúa
að aðrir reyni myndun meirihluta,“
segir Guðbrandur. Hann bendir á að
sveitarfélagið sé nú að verða um 20
ára gamalt og að allan þann tíma hafi
Sjálfstæðisflokkurinn verið við völd,
einn eða með öðrum. Nú sé komin
upp ákveðin kyrrstaða sem þurfi að
bregðast við. „Ég held að það sé bara
kominn tími til að lofta út og hleypa
öðrum að.“
Þarf að taka á útgjöldunum
„Við höfum fengið góðar viðtökur
og jákvæðar,“ segir Kristinn Jak-
obsson, oddviti Framsóknarflokks-
ins, sem segir baráttu flokks síns
hafa verið mjög jákvæða. „Við höfum
bent á að tekjurnar séu ekki vanda-
málið við rekstur bæjarins, heldur
gjöldin og höfum því bent á leiðir til
þess að spara í rekstrinum án þess að
skerða þjónustu sveitarfélagsins.“
Varðandi atvinnumálin segir Krist-
inn framkvæmdir í Helguvík vera
lykilatriði við að koma samfélaginu af
stað aftur. Hann horfir björtum aug-
um til lokasprettsins í kosningabar-
áttunni, og segir margt geta gerst á
einni viku. „Síðasta vikan getur skipt
sköpum.“
Morgunblaðið/RAX
Atvinna og
húsnæði
efst á baugi
Skuldastaða Reykjanesbæjar mikið
rædd í kosningabaráttunni hingað til
Helguvík Atvinnumál hafa verið
rædd hvað mest í kosningabar-
áttunni og eru vonir bundnar
við framkvæmdir í Helguvík.
KOSNINGABARÁTTAN
VESTMANNAEYJAR, ÁRBORG OG REYKJANESBÆR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sterkari velferðarþjónusta, húsnæð-
ismál og fjárhagsstaða sveitarfé-
lagsins eru kosningamál í Árborg. Þar
hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft
hreinan meirihluta á líðandi kjör-
tímabili. Ásta Stefánsdóttir sem verið
hefur framkvæmdastjóri sveitarfé-
lagsins stígur nú inn á hið pólitíska
svið og skipar 5. sætið á framboðslista
Sjálfstæðisflokks. Nái hún kjöri held-
ur flokkurinn meirihluta.
Hreinsistöðvar og strætó
„Fólk hér í Árborg vill stöðugleika í
bæjarmálunum,“ segir Ásta. Hún seg-
ir betri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins
gefa svigrúm til verka nú. Fram-
kvæmdir séu hafnar við endurbætur á
sundhöllinni á Selfossi og stækkun á
húsi Sunnulækjarskóla sé í undirbún-
ingi. Þá eigi að bæta frárennslismál
með byggingu hreinsistöðva við Ölf-
usá. Einnig auka tíðni strætóferða
milli Selfoss og strandþorpanna, Eyr-
arbakka og Stokkseyri.
„Búsetumál aldraðra eru aðkall-
andi úrlausnarefni. Hjúkrunarrým-
um þarf að fjölga og þó þau mál séu
ekki beint á könnu sveitarfélagsins
getur það haft áhrif til aðgerða,“
segir Ásta.
Í nýjustu könnun Morgunblaðsins
mælist Framsóknarflokkurinn með
um 17,6% sem skila myndi tveimur
bæjarfulltrúum. Verði niðurstaða
kosninga sú, segir Helgi Sigurður
Haraldsson oddviti flokksins í sveit-
arfélaginu, að það mundi gefa styrk
til að mæta mikilvægum verkefnum.
Ná þurfi betri tökum á fjármálum
sveitarfélagsins og saxa á skuldir
þess sem í dag eru um 6 milljarðar
króna. Slíkt verði þó að haldast í
hendur við almenna uppbyggingu,
svo sem á sviði atvinnu- og ferða-
mála. Hátt húsnæðisverð á höfuð-
borgarsvæðinu hafi að nýju gert Sel-
foss fýsilegan kost fyrir fólk sem vill
komast í húsnæði á viðráðanlegu
verði. Hins vegar hafi þurft fleiri
íbúðir inn á markað. Búið sé að leysa
þann vanda að hluta en meira þurfi.
„Nefnt hefur verið að sveitar-
félögin þurfi hugsanlega að koma að
stofnun sérstakra leigufélaga. Ég
útiloka það ekki en vil þó bíða þar til
ríkisstjórnin hefur kynnt heildstæða
stefnu í húsnæðismálum sem verið er
að móta undir forystu Framsókn-
arflokksins,“ segir Helgi Sigurður.
Velferðarmál í víðu samhengi eru í
forgangi Samfylkingarfólks í Ár-
borg. „Fólk kallar eftir að þar sé
bætt úr, til dæmis barnafjöl-
skyldurnar,“ segir Eggert Valur
Guðmundsson sem er í efsta sæti á
lista flokksins. Hann tiltekur að
hækka þurfi endurgreiðslur til þeirra
sem nýta sér þjónustu dagforeldra
og sömuleiðis sé vilji frambjóðenda
flokksins sá að 15 þúsund króna tóm-
stundastyrkur, sem börn og ungling-
ar í sveitarfélaginu njóta, fari í 26
þúsund kr. Gera þurfi betur í
dagvistunarmálum með stækkun
leikskólanna Árbæjar og Álfheima á
Selfossi. Sömuleiðis eigi börn í
grunnskólum að fá öll námgögn
ókeypis. Jafnframt verði að svara
kalli um aðgerðir í húsnæðismálum.
Komi til þess að stofnuð verði hús-
næðisfélög geti sveitarfélagið lagt
þeim lið, til dæmis með lóðum, en frá
uppbyggingarskeiðinu fyrir hrun séu
tiltæk hundruð óbyggðra lóða í
byggðarkjörnum sveitarfélagsins.
Möguleikar í ferðaþjónustu
Í Árborg mælist Björt framtíð
með 11,8% sem er innistæða fyrir
einum bæjarfulltrúa. Stokkseyring-
urinn Viðar Helgason, leiðtogi fram-
boðsins, leggur áherslu á ferðaþjón-
ustuna. Þar séu möguleikar til
staðar, svo sem í þorpunum tveimur
við ströndina.
Þá megi margt betur gera á Sel-
fossi svo sterkur túristastaður verði
sterkari. Ferðamenn sem fara um
Suðurland mættu í ríkari mæli
stoppa og njóta þess sem Selfossbær
býður. Þar þurfi sveitarfélagið að
bregðast við með uppbyggingu og
með því að renna fleiri og sterkari
stöðum undir atvinnulíf bæjarins.
Aðgerðir í húsnæðismálum eru brýnar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Íbúar í Árborg eru nú um 7.900. Þar af búa um 6.600 á Selfossi sem
er miðjupunktur sveitarfélagsins og þjónustustaður Suðurlandsins alls.
Stöðugleiki og velferð efst á baugi í
Árborg Mál aldraðra eru aðkallandi