Morgunblaðið - 24.05.2014, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 24.05.2014, Qupperneq 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014 ✝ Jón KristjánBjarnason fæddist á Ísafirði 25. ágúst 1922. Hann lést á Land- spítalanum 8. maí 2014. Jón var sonur Bjarna Sigurðs- sonar, f. á Kvíar- bryggju, Eyr- arsveit 31. maí 1862, d. 25. ágúst 1941, og Jónu Sigríðar Jóns- dóttur, f. á Folafæti í Súðavík- urhreppi 23. október 1885, d. 9. mars 1968. Systkini hans voru Garðar, Jón Sveinbjörn, Kristín, Kristjana og Elías Bjarni, sem öll eru látin. Jón giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Guðríði Páls- dóttur, 5. október 1946. Eign- uðust þau fjögur börn sem eru: þau þrjá syni. Kristján Örn Jónsson, f. 28. janúar 1954, fyrrverandi maki Erla Fanney Óskarsdóttir, börn þeirra eru: Sesselja Ósk, f. 1975, maki Arn- ór Guðni Kristinsson og eiga þau þrjú börn, Bergvin Örn f. 1985, sambýliskona Dagný Björnsdóttir og eiga þau eitt barn. Sambýliskona Kristjáns er Ragnheiður Sveinsdóttir, barn þeirra er Rakel, f. 2000. Bjarni Jón Jónsson, f. 12. júlí 1963, maki Hafdís Hilm- arsdóttir. Börn Bjarna og Haf- dísar eru: Hilmar Daði, f. 1991, og Sigrún Dís, f. 1997. Jón stundaði framhaldsnám á Héraðsskólanum á Laugarvatni, Hann starfaði sem sölumaður á raftækjum og var síðar yf- irmaður yfir véladeild Sam- bandsins. En lengst af sínum starfsdögum ók hann leigubíl. Jón var jarðsunginn frá Ár- bæjarkirkju 16. maí 2014 og fór athöfnin fram í kyrrþey að ósk hins látna. Eiríkur Jónsson, f. 13. apríl 1947, maki Halldóra Jóna Ingi- bergsdóttir. Eirík- ur eignaðist Erlend 1969, móðir hans er Erla María Er- lendsdóttir. Maki Erlends er Elfa María Magn- úsdóttir og eiga þau þrjú börn. Börn Eiríks og Halldóru eru: Inga Birna, f. 1974, maki Birgir Kaldal Kristmannsson og eiga þau tvö börn, Guðjón, f. 1976, maki Melanie og eiga þau tvö börn og Eiríkur Ari, f. 1981. Ingunn Jónsdóttir, f. 15. maí 1948, maki Snorri Páll Kjaran. Börn Ingunnar og Snorra eru: Jón Ingvar, f. 1974, maki Pétur Hrafn Árnason, Telma, f. 1978, maki Daði Halldórsson og eiga Elsku afi minn, ég var orðin sjö ára þegar ég sá þig fyrst. Þú komst í mat til pabba og í þau sjö ár sem við höfum þekkst og verið samferða í þessu lífi hefur þú sýnt því áhuga sem ég er að gera í skól- anum og skíðunum. Og þú studdir mig á skíðum og alltaf þegar ég var með góðan árangur á mótum þá varst þú mjög glaður. Þú varst mikill dýravinur. Allt- af þegar þú komst í mat til mín þurftir þú að leggja þig af því að þú varst orðinn svo veikur. Þá lögðu Tinni og Lucy sig alltaf með þér. Elsku afi minn, ég vildi að við hefðum átt fleiri ár saman en ég er samt ánægð með þau ár sem við fengum að vera saman. Nú sefur þú í kyrrð og værð og hjá englunum þú nú ert. Umönnun og hlýju þú færð og veit ég að ánægður þú sért. Ég kveð þig nú í hinsta sinn. Ég mun hitta þig á ný þótt langt sé þangað til. Sú stund verður ánægjuleg og hlý og eftir henni bíðum við. Takk fyrir að tala fallega um mig og við mig. Rakel Arna Kristjánsdóttir. Elsku afi minn, takk fyrir allar góðu minningarnar og nú er svo komið að ég kveð þig í hinsta sinn. Ég man fyrst eftir þér þar sem þú varst alltaf að gantast í okkur frændsystkinunum í hádeginu á sunnudögum. Þegar þú komst niður í matinn, nývaknaður eftir næturvakt á leigubílnum þínum, og tókst stríðsdans fyrir okkur á síðu nær- buxunum þínum sem okkur þótti frábært og alltaf var það fyndnast þegar amma gaf þér auga og þú fórst upp í fínni buxur. Enginn hefur hugsað eins vel um bílana sína og þú, elsku afi minn. Aldrei sá ég bílinn þinn öðruvísi en nýbónaðan og þrifinn. Alltaf var spennandi þegar þú bauðst mér á rúntinn þar til ég varð bílveik. Því eins öruggur bíl- stjóri og þú varst keyrðirðu alltaf frekar hratt. Ég man svo vel eftir því þegar ég var um átta ára og þú sóttir mig heim í Mosó. Þá ræddi ég við þig að mig langaði svo að labba með þér upp Hamrahlíðarfjallið. Þá ákváðum við að ganga saman fjallið eftir ferminguna mína en það varð aldrei neitt úr því en þetta situr alltaf í minningu minni því mig langaði svo upp fjallið og þú varst eini sem tók vel í þá hug- mynd. Nú ætla ég að láta verða af því þér til heiðurs og ganga upp þetta litla fjall og veit ég innst inni að þú verður með mér í þeirri göngu, elsku afi minn. Elsku afi, guð mun þig geyma. Yfir okkur muntu sveima. En eitt vil ég þó að þú vitir nú. Minn allra besti afi varst þú. Sesselja Ósk Kristjánsdóttir. Elsku afi okkar hefur kvatt þennan heim. Hlýlegur, góðhjart- aður og hjálplegur kemur upp í hugann þegar við minnumst þín á kveðjustund, elsku afi. Það var alltaf notalegt að koma í heimsókn til ykkar ömmu, þú varst alltaf glaður og kátur að sjá okkur og sí- fellt að grínast í okkur barnabörn- unum og síðar barnabarnabörn- unum. Við eigum eftir að sakna þess að heyra þig segja „Hvað segir þú Tolla/Tolli?“ Við fjölskyldan þekkjum þessa setningu svo vel þar sem við vorum öll Tolli eða Tolla hjá þér og höfðum við gam- an af því. Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir afa. Minningin um þig mun ætíð lifa í hugum okkar. Takk fyrir allt, elsku afi. Þinn dagur er liðinn, svo heiður og hlýr, nú hljótt er um ranninn þinn bjarta. En minningin hugljúfa hjá okkur býr, en hún er sú gjöf, sem er fögur og dýr. Þann gimstein við geymum í hjarta. Á veg okkar breiddir þú birtu og yl, það besta, er gæfu má veita. Og ljúft var í vanda að leita til þín, á lífinu margþætta kunnir þú skil. Og allt skildi ástin þín heita. Nú þökkum þér öll, þínir ástvinir hér, og eins við, er tengd þér vorum. Við blessum það allt, sem við með þér, þín elskaða minning, hún ljós okkur ber. Hvar eyðum við ævinnar sporum. (Höfundur óþekktur) Þín barnabörn Erlendur, Inga Birna, Guðjón og Eiríkur Ari Eiríksbörn. Elsku Jón minn, margs er að minnast þegar ég rifja upp rúm- lega 40 ára kynni okkar. Ég var bara ung sveitastelpa þegar ég hitti ykkur Gullu fyrst, var þá nýbúin að kynnast syni ykkar og varð síðan tengdadóttir ykkar til margra ára. Þó við Stjáni slitum samvistum var alltaf jafn- hlýtt á milli okkar og leit ég alltaf á ykkur Gullu sem mína aðra for- eldra. Mér er efst í huga hvað þú varst alltaf káti, hressi karlinn sem þekktir alla í Reykjavík þeg- ar þú varst að sækja mig á Um- ferðarmiðstöðina og keyra mig á milli staða til að redda hinum ýmsu hlutum í bæjarferðum mín- um fyrstu hjúskaparárin okkar Stjána. Mér þótti þú stórmerki- legur maður. Minningin um þig er sterk þar sem þú komst hlaupandi niður stigann í Hamrahlíðinni í hádeg- inu á sunnudögum, þreyttur og lít- ið sofinn eftir akstur næturinnar, en alltaf jafnhress og gantaðist við barnabörnin. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Jón, hvíl í friði, þín, Erla Fanney. Jón Kr. Bjarnason ✝ Svanhvít Háv-arðsdóttir fæddist á Seyð- isfirði 16. sept- ember 1924. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 15. maí 2014. Svanhvít var dóttir hjónanna Hávarðar Helga- sonar sjómanns, f. 25. júlí 1893, d. 8. júlí 1988, og Þorbjargar Sigurð- ardóttur húsmóður, f. 23. apríl 1891, d. 14. október 1970. Systir Svanhvítar sammæðra var Huld Gísladóttir, f. 5. janúar 1917, d. 7. desember 1989. Uppeldisbróðir Svanhvítar er Atli Hauksson, f. 26. nóvember 1934. Hinn 16. júní 1950 giftist Svan- hvít Svavari Karlssyni, umdæm- isstjóra Pósts og síma á Austur- landi, f. 29. febrúar 1912, d. 2. desember 1971. Þá hafði hún áð- ur eignast soninn Hávarð Helgason, f. 25. maí 1946, kvænt- ur Svanhvíti Björg- ólfsdóttur, þau eiga þrjú börn og sjö barnabörn. Svanhvít og Svavar eignuðust tvö börn, Ingbjörgu Svavarsdóttur, f. 19. febrúar 1949, gift Borgþóri Jóhanns- syni, þau eiga þrjá syni og þrjú barna- börn, og Karl Svavarsson, f. 14. ágúst 1950. Svanhvít var lengst af heima- vinnandi húsmóðir en starfaði einnig hjá Seyðisfjarðarapóteki og KHB. Svanhvít var virk í starfi Slysavarnadeildarinnar Ránar og starfaði einnig í kven- félagi Seyðisfjarðar. Útför Svanhvítar verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 24. maí 2014, og hefst athöfnin kl. 14. Hún amma mín Svana var mjög góð og sérstök. Hún gaf mér gjafir og mér þótti vænt um hana og henni um mig. Mér fannst alltaf svo notalegt að fara í heimsókn til ömmu Svönu. Hún var svo þolinmóð og ég sakna hennar mjög mikið. Sofðu rótt, elsku amma Svana. Ég ætla að kveðja þig með lag- inu sem ég söng stundum fyrir þig og ég veit að þér þótti svo fallegt. Frost er úti, fuglinn minn, ég finn hvað þér er kalt. Nærðu engu í nefið þitt því nú er frosið allt? En ef þú bíður augnablik ég ætla að flýta mér, að biðja hana mömmu mína um mylsnu handa þér. (Höf. ók.) Þinn Valur Andrason. Þegar leiðir okkar Andra lágu saman fyrir tæpum 12 árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast ömmu Svönu. Reynd- ar kom þá í ljós að fjölskyldurnar tvær tengdust áður sterkum fjöl- skyldu- og vináttuböndum í gegnum langömmur okkar Andra svo það má kannski segja að örlögin hafi leitt okkur saman. Svana var kjarnakona og í mínum huga skipar hún sérstak- an virðingarsess. Hún var mikil fjölskyldukona. Fjölskyldan átti hug hennar og hjarta og hún fylgdist alltaf vel með og dekraði við hana. Það var alltaf gaman þegar við komum saman. Sér- staklega var þó skemmtilegt þegar amma Svana rifjaði upp gamla tíma og ósjaldan sagði hún frá skemmtilegum atvikum af sjálfri sér eða öðrum. Efst í huga mér þegar komið er að kveðjustund er þakklæti fyrir allar þær ánægjustundir sem við áttum saman, alla þá ást- úð og hlýju sem amma Svana sýndi okkur Andra og börnunum okkar. Stórt skarð er höggvið í fjölskylduna og missirinn mikill en eftir stendur björt og fögur minning um góða ömmu. Við vit- um að amma Svana er á góðum stað þar sem hún getur spókað sig á háu hælunum, glæsilega sem endranær. Blessuð sé minning ömmu Svönu. Okkar dýpstu ástarþakkir öll af hjarta færum þér. Fyrir allt sem okkur varstu, yndislega samleið hér. Drottinn launar, drottinn hefur dauðann sigrað, lífið skín. Hvar sem okkar liggja leiðir, lifir hjartkær minning þín. (Höf. ók.) Svava Lárusdóttir. Svanhvít Hávarðsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KERSTIN TRYGGVASON, áður til heimilis að Nökkvavogi 26, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugar- stöðum laugardaginn 17. maí. Útför fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 26. maí kl. 13.00. Þorsteinn Tómasson, Sophie Kofoed-Hansen, Haraldur Tómasson, Inga Guðmundsdóttir, María Tómasdóttir, Hafsteinn Gunnarsson, Tumi Tómasson, Allyson Macdonald, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur, EYJÓLFUR GUÐJÓNSSON flugþjónn, áður Snorrabraut 56b, Reykjavík, lést á Hrafnistu DAS föstudaginn 9. maí. Jarðarförin fer fram mánudaginn 26. maí í Áskirkju kl. 13.00. Guðjón Eyjólfsson, Ottó Guðjónsson, Guðbjörg Sigurðardóttir, Karólína Guðjónsdóttir, Áslaug Guðjónsdóttir, Steinþór Pálsson, Gunnar Guðjónsson, Marta Svavarsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ERNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Jökulgrunni 26, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 27. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð skáta, 0701-26-003444, kt. 440169-2879. Gísli Kristjánsson, Guðrún Gísladóttir, Halldór Þórðarson, Kristján Gíslason, Ásdís Rósa Baldursdóttir, Guðmundur Torfi Gíslason, Ragnheiður K. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Okkar ástkæri GÍSLI JÓN HELGASON, Hátúni 4, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 19. maí, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 27. maí kl. 15.00. F. h. aðstandenda, Jónína Böðvarsdóttir, Hans G. Hilaríusson, Sigurður Ellert Sigurðsson, AnaIsa Rondon. ✝ Yndislegi maðurinn minn, pabbi okkar, tengdapabbi, afi, langafi og bróðir, BERGMUNDUR ÖGMUNDSSON, skipstjóri og útgerðarmaður í Ólafsvík, andaðist miðvikudaginn 21. maí á dvalar- heimilinu Jaðri í Ólafsvík. Sigríður Þóra Eggertsdóttir, Þórdís Bergmundsdóttir, Elvar Guðvin Kristinsson, Elsa S. Bergmundsdóttir, Aðalsteinn Snæbjörnsson, Bergmundur Elvarsson, Sunna Kristinsdóttir, Jóhann Ögri Elvarsson, Rut Helgadóttir, Snæbjörn Aðalsteinsson, Guðrún Magnea Magnúsdóttir, Hólmkell Leó Aðalsteinsson, Sindri Már, Darri, Patricia, Máni og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.