Morgunblaðið - 24.05.2014, Qupperneq 43
að klára skólann. Þar byrjaði minn
blaðamannaferill.“ Hallgrímur var
svo í sumarafleysingum á Frétta-
stofu Útvarpsins sumarið 1997,
blaðamaður á DV frá haustinu 1997-
1998, blaðamaður á Bændablaðinu
frá 1998-2001, íþróttafréttamaður á
DV 2001-2002 og fréttastjóri Víkur-
frétta í Hafnarfirði frá 2003-2006.
Frá árinu 2006 hefur Hallgrímur ver-
ið fréttamaður á RÚV.
„Fyrir utan þessi störf hef ég unn-
ið nokkur aukastörf, meðal annars
fyrir Rauða krossinn þar sem ég
skrifaði meðal annars í blaðið Hjálp-
ina. Ég hef skrifað eina bók, Hetjurn-
ar okkar, sem kom út árið 2007 í til-
efni af 50 ára afmæli Samtaka
íþróttafréttamanna árið áður. Þar
var farið yfir sögu samtakanna og af-
rek þeirra sem kjörnir höfðu verið
íþróttamenn ársins. Það var mjög
skemmtilegt að vinna þá bók, en hún
var í raun framhald af útvarpsþáttum
sem ég hafði gert tíu árum áður fyrir
Rás eitt ásamt félaga mínum, Jóni
Heiðari Þorsteinssyni.“
Hallgrímur var félagi í Lúðrasveit
verkalýðsins frá 1990-2001 þar sem
hann spilaði á saxófón, og var vara-
formaður frá 1998-2000. Þá hefur
hann verið í stjórn Liverpoolklúbbs-
ins á Íslandi frá árinu 2001, ýmist
sem meðstjórnandi, varaformaður
eða ritari, en aðalstarfið hefur verði
að ritstýra Rauða hernum, tímariti
Liverpoolklúbbsins. „Ég er reyndar
að hætta í stjórninni í vor. Ég var út-
nefndur heiðursfélagi í Liver-
poolklúbbnum í mars síðastliðnum og
það er held ég mesta viðurkenning
sem ég hef fengið.“ Hallgrímur hefur
svo verið formaður Félags frétta-
manna frá árinu 2013.
Rauður og röndóttur
„Áhugamál mín eru helst íþróttir
og tónlist. Ég varð harður KR-ingur
af því að alast upp í Vesturbænum og
hef síðustu árin liðsinnt KR-
útvarpinu mér til óblandinnar
ánægju. Ég er einnig harður stuðn-
ingsmaður Liverpool og hef farið hátt
í 20 sinnum á Anfield, oftast sem far-
arstjóri. Það er alltaf einstakt að
koma á Anfield og það sem þær
heimsóknir hafa skilið eftir er ekki
aðeins minningin um góða stemningu
heldur líka góð kynni af frábærum
innfæddum „scouserum“ eins og íbú-
ar Liverpool eru kallaðir. Ég hef
einnig mikinn áhuga á tónlist, eink-
um poppi og djassi af eldra tagi.
Þá hef ég líka gríðarlega gaman af
að ferðast með fjölskyldunni og
skoða nýja staði, bæði hér heima og
erlendis. Síðan fer náttúrlega mikill
tími í að styðja börnin í tómstund-
unum. Báðar dæturnar æfa hand-
bolta með Haukum og sú eldri er þar
að auki á fullu í klarinettnámi í Tón-
listarskóla Hafnarfjarðar, þar sem
hún er komin á framhaldsstig í
klarinettinu.“
Fjölskylda
Kona Hallgríms er Rósa Lyng
Svavarsdóttir, f. 5.1. 1973, kennari í
Áslandsskóla. Foreldrar hennar eru
Jenný Einarsdóttir skrifstofumaður,
f. 2.10. 1953, og Svavar Geirsson
smiður, f. 31.8. 1952. Fósturfaðir
hennar er Hjalti Sæmundsson, fyrrv.
varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni, f.
11.8. 1947
Börn Hallgríms og Rósu eru Líf
Hallgrímsdóttir, f. 15.10. 1998, og Sif
Hallgrímsdóttir, f. 27.1. 2006.
Foreldrar Hallgríms eru Sigrún
Klara Hannesdóttir, prófessor í
bókasafnsfræði við HÍ og síðar
Landsbókavörður, f. 9.10. 1943, og
Indriði Hallgrímsson bókasafnsfræð-
ingur, f. 21.10. 1944, d. 27.1. 1979.
Úr frændgarði Hallgríms Indriðasonar
Hallgrímur
Indriðason
Rannveig Sveinsdóttir
húsfreyja í Skagaf.
Jón Kristjánsson
kennari í Skagafirði
Lilja Jónsdóttir
símavörður, bús. á Akureyri
Björn Jónsson
alþingismaður og ráðherra
Þorbjörg Jónsdóttir
húsmóðir á Akureyri
Óðinn Valdimarsson
söngvari
Björn Björnsson
bankastj. Alþýðubankans og
aðstoðarforstj. Íslandsbanka
Hallgrímur Indriðason
smiður í Kristnesi í Eyjafirði
Indriði Hallgrímsson
bókasafnsfræðingur í Reykjavík
Helga Hannesdóttir
húsfreyja á Espihóli
Indriði Helgason
bóndi á Espihóli í Eyjafirði
Elín Júlíana Sveinsdóttir
húsmóðir á Seyðisf.
Jóhannes Sveinsson
úrsmiður á Seyðisfirði
Sigríður Jóhannesdóttir
húsmóðir á Seyðisf. og í Rvík
Hannes Jónsson
verkamaður á Seyðisfirði og í Reykjavík
Sigrún Klara Hannesdóttir
prófessor og landsbókavörður í Reykjavík
Elín Hrefna Hannesdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Þóra Árnadóttir
jarðeðlisfræðingur hjá HÍ
Sveinn Hannesson
frkvstj., Gámaþjón. og fyrrv. frkvstj. Samtaka iðnaðarins
Sigurjón Hannesson
skiph. hjá Landhelgisg.
Jóhann Sigurjónsson
fjármálastjóri Regins
og fyrrv. bæjarstjóri í
Mosfellsbæ
Sigríður Jónasdóttir
húsfreyja í Vopnaf.
Jón Hannesson
bóndi í Vopnafirði
Runólfur Hannesson
bóndi í Böðvarsdal
Gunnar Runólfsson
bóndi í Dallandi í Vopnaf.
Pálmi Gunnarsson
tónlistarmaður
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2014
103 ára
Guðrún U.J. Straumfjörð
95 ára
Ásdís Friðbertsdóttir
Sigmar Hróbjartsson
90 ára
Bergur Jónsson
Guðrún Finnbogadóttir
85 ára
Árni Jónsson
Ásthildur Tómasdóttir
Guðmundur Helgi
Halldórsson
Hallgerður Gunnarsdóttir
Kristín Sigurjónsdóttir
80 ára
Jakob Þorsteinsson
Katrín Egilsdóttir
Kristján Pétursson
Magnea Kolbrún Leósdóttir
Sigurbjörn Sveinsson
75 ára
Anna María Tómasdóttir
Elsa H. Óskarsdóttir
Leifur Jóhannesson
Þráinn Karlsson
70 ára
Árný Hulda Halldórsdóttir
Erna Sigríður Einarsdóttir
Ragnheiður Ögmundsdóttir
Sigurður Óskarsson
Stefán Jónsson
Veronica Margaret Jarosz
Þengill Oddsson
60 ára
Anna Sigríður Gísladóttir
Eiður Örn Hrafnsson
Guðmundur Baldursson
Jóhannes Arelakis
Kristín Björg Alfreðsdóttir
Margrét Oddsdóttir
Sigurbjörg Björgvinsdóttir
Stefán Ólafur Ólafsson
50 ára
Ágúst Þór Pétursson
Ellert Jóhann Hreinsson
Hildur Snjólaug Bruun
Jóhann Eiríksson
Robert Szczepan
Daszkiewicz
Wojciech Józef Turek
40 ára
Arnar Þór Björgvinsson
Ásgeir Þór Björgvinsson
Friðrik Friðriksson
Frosti Sigurgestsson
Geraldine Suson Balo
Gottskálk Gizurarson
Halldóra Benediktsdóttir
Kjartan Ríkharðsson
Kristján Baldursson
Matthías Sveinbjörnsson
Sunna Svansdóttir
Tsige Yirga Behaga
Þór Þorsteinsson
30 ára
Baldur Waage
Haraldur Guðmundsson
Helgi Torfason
Magdalena Ewa Kowolik
Ólafur Torfason
Óli Jóhann Níelsson
Sigurjón Ásgeirsson
Stella Sigurbjörg
Magnúsdóttir
Þórdís Jónsdóttir
Sunnudagur
85 ára
Jóhanna Unnur
Reimarsdóttir
María Þuríður Gísladóttir
Ráðhildur Ingvarsdóttir
Unnur Finnbogadóttir
Þorsteinn Þorgeirsson
80 ára
Ásta Ólafsdóttir
Jónas A. Aðalsteinsson
75 ára
Guðni Jóhannes Guðnason
Hafsteinn B. Halldórsson
Jarþrúður Björg
Sveinsdóttir
Lára Kristín Ingólfsdóttir
Þórdís Árnadóttir
70 ára
Jóhanna A. Ólafsdóttir
60 ára
Friðrik Hafberg
Friðrik Steingrímsson
Guðbjörg Gylfadóttir
Guðlaug Harðardóttir
Jakob Hólm
Mark Kristján Brink
Sigmar Bergvin Bjarnason
Trausti S. Friðriksson
Þóra Sigurþórsdóttir
50 ára
Ásgrímur Óli Jóhannesson
Áslaug Gunnarsdóttir
Elzbieta Jadwiga Suwala
Hafsteinn Kristinsson
Jón Skúli Skúlason
Ólafur Örn Jónsson
Smári Vignisson
40 ára
Elmar Freyr Kristjánsson
Elvar Ágúst Ólafsson
Florence Rosal Faderan
Freygerður Anna
Ólafsdóttir
Guðjón Ragnar Jónasson
Linda Pelse
Maciej Henryk Kaczynski
Margrét Þorleifsdóttir
Somporn Khiansanthia
Sólveig Ágústsdóttir
Sveinn Hinrik
Guðmundsson
30 ára
Auður Stefánsdóttir
Dayan Kigozi
Dóra Esther Einarsdóttir
Eyþór Friðriksson
Guðberg Björnsson
Guðbjörn Már Ólafsson
Heiða Millý Torfadóttir
Ísak Jarl Þórarinsson
Lilja Laufey Davíðsdóttir
Magdalena Las
Osman Saliji
Sigurður Kristinn
Sigurðsson
Taskin Ugur
Thuy Van Pham
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
Yusmila Guerra Torres
Til hamingju með daginn
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Sigrún María Kristinsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í umhverfis- og auð-
lindafræði frá Félags- og mannvísinda-
deild Háskóla Íslands.
Ritgerðin nefnist „Samleiðniferlið –
með áherslu á þátttökulýðræði, sjálf-
bærni og félagslegt jafnrétti“ (The Con-
vergence Process – A public participa-
tory pathway for societies to
sustainability and social equity).
Ritgerðin fjallar um þverfræðilega
rannsókn sem gerð var við Háskóla Ís-
lands árin 2009 til 2013 og snerist um
að skapa og prófa ferli með þátttöku
íbúa. Ferlið má nota til að færa sam-
félög í átt að sjálfbærni og félagslegu
jafnrétti innan þeirra marka sem jörðin
setur.
Rætist spár Sameinuðu þjóðanna um
að mannkynið verði fleiri en níu millj-
arðar einstaklinga árið 2050, og ef stór
hluti þess sækist eftir þeim ósjálfbæra
lífsstíl sem Vesturlandabúar lifa í dag,
blasa gríðarleg vandamál við. Jörðin
getur ekki viðhaldið slíku fjölmenni með
ósjálfbærum hætti, og vaxandi þrýst-
ingur á kerfin sem nú eru notuð til að
skipta og stýra auðlindum hennar leiðir
til sífellt meiri ójöfnuðar. Möguleg lausn
gæti falist í breytingum á skiptingu
auðlinda milli
þjóða, samfélaga
og einstaklinga;
nýjum stjórnunar-
og úthlut-
unarferlum sem
eru bæði sann-
gjarnari en þau
sem nú ríkja og rúmast jafnframt innan
líffræðilegra marka jarðarinnar.
Samleiðniferlinu er beitt á vinnu-
fundum íbúa, þar sem útfærslu af
Heimskaffi-aðferðinni (World Café) er
fylgt. Þar notast valdir þátttakendur
við markvissa kerfishugsun og teikna
myndir af orsakatengslum í fyrirfram
ákveðnu kerfi. Hugmyndin er sú að þeir
sem búa við kerfið, sem skoða á,
þekkja það sameiginlega betur en aðrir
og geta því fundið lausnir sem utanað-
komandi fá ekki séð. Með Samleiðni-
ferlinu geta íbúarnir því bent á nauð-
synlegar breytingar innan kerfisins –
til dæmis í stefnu stjórnvalda eða eigin
lifnaðarháttum – sem dregið geta úr
notkun auðlinda og fært samfélögin
nær sjálfbærni og félagslegu jafnrétti.
Markmiðið er að mismunandi samfélög
geti beitt ferlinu sjálf án íhlutunar vís-
indamanna eða annarra sérfræðinga.
Doktor í umhverfis- og
auðlindafræði
Sigrún María Kristinsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1971. Hún hefur lengst
af starfað sem blaðamaður í Kanada og á Íslandi. Árið 2004 lauk hún lista-
gráðu (Bachelor of Fine Arts, BFA) í ritlist með áherslu á ljóðagerð og smá-
söguskrif frá Háskólanum í Viktoríu í Kanada, auk BA-gráðu í enskum bók-
menntum. Árið 2009 lauk hún MA-námi í umhverfis- og auðlindafræðum frá
Háskóla Íslands. Eiginmaður Sigrúnar Maríu er Mark Andrew Zimmer mennta-
skólakennari og saman eiga þau tvo drengi.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD
FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS -
ÚRVA
L - GÆ
ÐI - Þ
JÓNU
STA
HÖFUM HAFIÐ SÖLU Á ESPRIT HEIMILISVÖRUM