Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 12
SVIÐSLJÓS
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þegar sumarið gengur í garð og
mestar líkur eru á að veðurguðirnir
séu miskunnsamir Frónverjum nota
mörg ástfangin pör tækifærið og
ganga í hjónaband. Þó að veðráttan
þetta sumarið hafi ekki verið upp á
marga fiska eru þeir fulltrúar trúar-
og lífsskoðunarfélaga sem Morgun-
blaðið hefur rætt við sammála um
að þessi árstíð sé sú vinsælasta til
að ganga í hnapphelduna.
Erlend bylgja
Þeim sem láta gefa sig saman að
heiðnum sið hefur fjölgað á síðustu
árum og hefur nokkuð stór bylgja af
útlendingum komið hingað til lands
í því skyni.
„Það er orðið mjög vinsælt og ég
held að það sé jafnvel gert út á það
af einhverjum ferðaskrifstofum.
Þetta hefur alltaf fylgt okkur í
gegnum söguna. Þetta er orðið eitt-
hvað sem fólk veit af og spyrst út,“
segir Hilmar Örn Hilmarsson,
allsherjargoði Ásatrúarfélagsins.
Hann áætlar að á þriðja tug er-
lendra para komi hingað til lands í
sumar til að láta gefa sig saman að
heiðnum sið. Þau leiti í fallega,
myndræna staði til að halda athafn-
irnar og fossar hafi verið ákaflega
vinsælir. Allur gangur sé á
því hvort brúðhjónin
hafi tengingu við
ásatrúna eða ekki.
„Ég hef gefið
saman pör þar
sem önnur mann-
eskjan er múslimi,
kaþólikki eða jafnvel
sjíki. Fólk upplifur
okkur sem valkost
sem er ekki á skjön
við þess eigin
trúarlega bak-
grunn. Mér
finnst það lík-
legt,“ segir
Hilmar Örn.
Oft hjartnæmar stundir
„Þetta er vinsælasti tíminn en
það er bara þannig með landið okk-
ar að það getur brugðið til beggja
vona með veðrið. Það getur komið
fyrir að fólk sé heppnara með veðrið
um miðjan vetur en að sumri til.
Veðrið er nú samt alls ekki aðal-
málið í þessu,“ segir Guðmundur
Karl Brynjarsson, prestur í Linda-
kirkju.
Minni athafnir þar sem aðeins
nánustu aðstandendur brúð-
hjónanna eru viðstaddir og skyndi-
hjónavígslur hafa verið meira áber-
andi á þessu ári en oft áður að hans
mati.
„Það er merkilega mikið af því.
Það er jafnvel fólk sem er búið að
vera lengi í sambandi og vill ganga
frá þessu. Þá er ekkert tilstand.
Fólk mætir í kirkjuna, það er lítil
athöfn og svo er farið út að borða á
eftir. Þetta eru oft mjög hjartnæm-
ar stundir þó að það sé ekki mikið í
kringum þetta,“ segir Guðmundur,
sem hefur það þó á tilfinningunni að
yngra fólk sé meira fyrir hefð-
bundnari brúðkaup.
Velja sér oft að vera utanhúss
Athafnastjórar Siðmenntar fengu
á síðasta ári heimild til að gefa fólk
saman eftir að ný lög um trú- og
lífsskoðunarfélög tóku gildi en
höfðu fram að því haldið táknrænar
athafnir fyrir brúðhjón.
Að sögn Steinars Harðarsonar,
sem hefur verið athafnastjóri frá því
að sú þjónusta félagsins fór af stað,
segir að þeim fjölgi stöðugt sem láti
gefa sig saman borgaralega.
„Við höfum mest að gera á sumr-
in. Þeir sem gifta sig borgaralega
velja sér oft að vera utanhúss og
nota veðurblíðuna,“ segir hann.
Þannig voru allar hjónavígslur
sem Steinar stjórnaði í júní utan-
húss. Veðrið setti strik í reikninginn
um síðustu helgi en hann segir
flesta þó hafa plan B til að lenda
ekki í vonskuveðri og barningi.
„Fólk treystir ekki algerlega á veðr-
áttuna,“ segir hann.
Sumarið er tími brúðkaupanna
Vinsælasta árstíðin til að ganga í hnapphelduna þó að erfitt sé að reiða sig á veðrið Bylgja út-
lendinga kemur til að láta gefa sig saman að heiðnum sið Þeim fjölgar sem gifta sig borgaralega
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014
„Júní, júlí og ágúst eru brúðkaupsmánuðirnir
og svo þynnist þetta bara í báðar áttir. Þetta
virðist alltaf vera svipaður fjöldi sem giftir sig
milli ára. Það er svo sem ekki allt í hvítum síð-
um kjólum. Það eru alls konar athafnir,“ segir
Sigurdís Ólafsdóttir, eigandi brúðarkjólaleig-
unnar og verslunarinnar Tveggja hjartna, sem leigir
út fatnað fyrir karla og selur brúðarkjóla.
Ekki eru miklar tískusveiflur í klæðnaði brúðhjóna
en þó verða breytingar á sniði og efnum. Eins og með
bíla þá komi nýjar árgerðir á hverju ári, segir hún.
Sami liturinn, sérstaklega á brúðarkjólunum, sé hins
vegar alltaf ríkjandi. „Það er seint sem þessi fíla-
beinslitur dettur út,“ segir Sigurdís um brúðarkjól-
ana.
Almennt er fatnaður brúðgumanna hefðbundnari en
brúðanna. Um þessar mundir er smóking með vesti
vinsælastur í karlatískunni.
„Fyrir nokkrum árum voru röndóttar buxur og síð-
jakkar vinsælastir en núna trónir smóking á toppn-
um,“ segir Sigurdís.
Breytingarnar eru hins vegar meiri í kvenfatn-
aðinum, hvort sem það er í brúðarkjólum eða öðrum
klæðum. „Blúndan kemur sterk inn þetta árið í kjólum
og jökkum við kjóla,“ segir Sigurdís.
Blúndan kemur sterk inn í brúðartískuna
EKKI MIKLAR TÍSKUSVEIFLUR Í KLÆÐNAÐI BRÚÐHJÓNA Á MILLI ÁRA
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ást Margir kjósa að láta gefa sig saman úti í náttúnni og hafa fossar verið eftirsóttir sem sviðsmynd brúðkaupa.
Marple-málið er það nýjasta í röð
þeirra sem sérstakur saksóknari hef-
ur höfðað gegn Hreiðari Má Sigurðs-
syni, fyrrverandi forstjóra Kaup-
þings, og Magnúsi Guðmundssyni,
fyrrverandi forstjóra Kaupþings í
Lúxemborg. Það snýst um fjármuni
sem Marple Holding S.A. SPF, í eigu
Skúla Þorvaldssonar, fékk frá Kaup-
þingi. Skúli og Guðný Arna Sveins-
dóttir, fyrrverandi fjármálastjóri
Kaupþings, eru einnig ákærð í mál-
inu.
Hreiðar Már og Guðný Arna eru
ákærð fyrir fjárdrátt og umboðssvik.
Magnús er ákærður fyrir hlutdeild í
fjárdrætti og umboðssvikum Hreið-
ars Más og Guðnýjar Örnu og Skúli
er ákærður fyrir hylmingu. „Sú hátt-
semi sem ákærðu, Hreiðari Má, Guð-
nýju Örnu og Magnúsi, er gefin að
sök í ákærunni miðaði öll að því að
færa fjármuni, um 8 milljarða króna,
úr sjóðum Kaupþings hf. til Marple
án þess að lögmætar viðskiptalegar
ástæður lægju þar að baki og bæta
með því fjárhagsstöðu Marple,“ segir
í ákærunni. „Í öllum tilvikum röskuðu
ákærðu fjárskiptagrundvellinum með
ólögmætri tilfærslu fjármuna frá
Kaupþingi hf. til Marple og ollu
ákærðu Kaupþingi hf. tjóni.“
Í ákærunni segir að ávinningur
hinna meintu brota hafi allur verið
færður inn á reikning Marple. „Upp-
lýst er að hluti ávinnings brotanna
var fluttur í ársbyrjun 2009 af reikn-
ingi Marple hjá Kaupþingi Lúxem-
borg inn á reikning SKLux en þaðan
hafa síðan verið færðar verulegar
fjárhæðir inn á reikninga hinna félag-
anna sem krafist er upptöku hjá.“
Slitastjórn Kaupþings gerir þá
kröfu í málinu að öll ákærðu greiði
samtals tæpa níu milljarða króna í
skaðabætur.
Átta milljarðar
færðir til Skúla
Saksóknari segir
tilfærslu fjármuna
hafa verið ólögmæta
Morgunblaðið/G.Rúnar
Kaupþing Hreiðar Már Sigurðsson
á meðan hann sagði allt leika í lyndi.
Áþreifanleg vellíðan EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda hefur um áratuga
skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni.
Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt
sem minni nota allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á lífrænt lín.