Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014 ✝ RagnhildurGunnarsdóttir (Ransí) fæddist í Reykjavík 21. júní 1934. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. júní 2014. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Guðjónsson skipa- miðlari, f. í Reykja- vík 26.12. 1909, d. 22.12. 1992, og Unnur Magn- úsdóttir, f. 8.5. 1913 í Görðum, N-Dakota, d. 19.11. 1983. Systk- ini Ragnhildar eru: Unnur, f. 1938, gift Henrik Jan Sande, Bergljót, f. 1940, Hanna, f. Berglind, f. 1989, sonur hennar er Hrafn Elí, og Elísabet Eva, f. 1997. 2) Gylfi, f. 1956, kvæntur Svandísi Kristiansen, f. 1959. Börn þeirra eru Birgir, f. 1986, Bergþóra, f. 1989, og Gunnar, f. 1993. 3) Unnur, f. 1958. Börn hennar eru Kjartan, f. 1976, dóttir hans er Hrafnhildur, f. 2006, og Þórunn f. 1991. 4) Kjartan, f. 1960, kvæntur Hall- dóru Ingólfsdóttur, f. 1964. Dætur þeirra eru Hildur, f. 1989, og María, f. 1991. 5) Guð- laug Hildur, f. 1966, gift Rúnari Einarssyni, f. 1971. Börn þeirra Ragnar Sveinn, f. 1995, og Ragnhildur, f. 2001. Ransí ólst upp á Smáragötu 7 og bjó alla sína ævi í Reykjavík. Lengst af var hún heimavinn- andi og vann um árabil í Vest- urbæjarapóteki. Útför hennar fer fram frá Neskirkju í Reykjavík í dag, 8. júlí 2014, klukkan 13. 1942, sambýlis- maður Sigurður Steinþórsson, og yngstur er Magnús, f. 1945, kvæntur Sigríði Eyjólfs- dóttur. Hinn 30. október 1954 giftist Ragn- hildur Birgi Ott- óssyni, f. 6. júní 1934. Þau eign- uðust fimm börn: 1) Gunnar, f. 1955. Dætur hans eru Björg, f. 1978, Magnea Lára, f. 1981, í sambúð með Snorra Halldórssyni, f. 1980, dætur þeirra Maríanna Katrín og Stefanía Bryndís. María Hugur minn hvarflar aftur um 40 ár. Það var sólbjartur dagur og við mamma sátum úti á altani. Hún að prjóna eins og vanalega. „Er ekki sól fyrir austan, eigum við ekki að skella okkur?“ Við fór- um af stað, skelltum nokkrum kótelettum og kaffi í kassa og þeystum af stað á Austin Mini- inum. Þá var langt að keyra aust- ur í Mosfellssveit, enn lengra að komast til Þingvalla. Vegurinn var frekar mjór malarvegur og holurnar sem litli Mini-inn fann voru óteljandi. Mamma elskaði Þingvelli og sérstaklega Heiðar- sel sem var bústaður þar sem hún og fjölskylda hennar eyddu mörgum sumrum æskunnar. Við hossuðumst spenntar og glaðar í rykmekki austur í Þingvallasveit. Þegar þangað var komið var afi Gunnar nýkominn á fína Citroën- bílnum sínum. Hann spurði hvernig ferðin hefði gengið og mamma svarar að holurnar hefðu verið helst til margar. „Holur?“ hváði hann, „ég fann ekki fyrir holum. Vegurinn var bara fínn.“ Líf okkar mömmu saman var svo- lítið eins og þessi litla saga. Við tvær að taka skyndiákvarðanir. Í Austin Mini á leið út á land. Hlæj- andi og spjallandi í sólinni. Það voru margar holur á veginum en einhvern veginn tókst okkur allt- af að hossast yfir þær. Þangað til sú síðasta kom. Hún var bara of djúp og breið og mamma dreif ekki yfir. Ég er litla barnið henn- ar og var því skiljanlega oft ein með henni. Gjarnan ef við hittum nýtt fólk sagði hún: „Má ég kynna skuggann minn, hana Lau- lau.“ Lengi vel vann mamma í Vesturbæjarapóteki sem var steinsnar frá heimilinu. Ég man lyktina úr apótekinu mjög vel enda þótti mér hún með eindæm- um góð. Lykt sem var eins og ilmvatnið hennar mömmu í mörg ár. Mamma var mikil félagsvera og naut þess að vera innan um fólk. Síðustu árin fór hún reglu- lega í Múlabæ og átti þar ynd- islegar stundir á uppáhaldsstaðn- um, handavinnustofunni. Þar var setið við hannyrðir, spjallað og hlegið mikið og dátt. Mikið þótti henni gott og gaman að fara í „leikskólann“ eins og við kölluð- um Múlabæ og það er ég viss um að hláturinn hennar hafi smitað marga. Það var svo yndislegt hvað hún hló innilega og oft fylgdu gleðitár. Í gegnum árin nutum við mamma þess oft að spjalla saman. Hún dæmdi ekki það sem ég sagði og leyndarmál- in geymdi hún með sér. Hún leyfði mér að vera ég sjálf og njóta mín í eigin skinni. Hún var fordómalaus með öllu, var alltaf til í að sjá fegurðina í hverri manneskju. Hún var ekki endi- lega dugleg að hafa samband við aðra, en aðrir sóttu í að vera með henni. Allir voru velkomnir. Mamma var með mikil hannyrða- kona og afskaplega listræn í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Það var hún sem kenndi mér að meta handavinnu, virði þess að skapa og njóta. Hún var gleði- gjafinn minn, kennarinn minn og besti vinur minn. Hún kenndi mér að meta einfaldleikann í þessum fagra heimi. Að njóta þess sem að höndum ber hverju sinni og að bera virðingu fyrir náttúrunni og náunganum. Ég er mömmustelpa og hef hingað til illa þrifist án hennar. En nú er víst kominn tími til að verða full- orðin og sjá um mig sjálf. Við sjáumst í Nangijala, elsku mamma mín. Guðlaug Hildur. Við sem höfum verið svo lán- söm að eiga mömmu, alast upp með henni og hafa hana ætíð inn- an seilingar finnum óhjákvæmi- lega fyrir miklum missi þegar hún fellur frá. Mamma, sem hefur alltaf verið til staðar og er þar allt í einu ekki lengur. Ekkert er sjálfsagt og sorgin og söknuðurinn er mikill og áþreifanlegur. Í minningunni er mamma mín hláturmild með fallegt bros, fal- lega brún, með krullur, gleraugu og létt á fæti. Mjúk og með góða lykt í hálsakoti. Hún var þolinmóð við okkur systkinaskarann þótt eflaust hafi tekið á að sinna okkur öllum. Þá skipti ekki máli hvort við vorum í harki eða handbolta á ganginum inni eða bara að slást. Hún eyddi ekki púðri í skammir heldur gall í henni: „Slást úti!“ Þá hafa þau verið ófá tonnin af þvotti sem þurfti að þvo og mat sem þurfti að elda. Það kunni hún vel og bjó til besta mat í heimi. Mamma var listamaður í hönd- unum og hafði ótrúlega næmt auga fyrir litum og litasamsetn- ingum og saumaði út mörg lista- verkin. Þá prjónaði hún óhefð- bundnar, frumlegar og fallegar lopapeysur í tugatali fyrir afkom- endurna, hannaði og saumaði út glæsilega púða og heklaði ófá fal- leg rúmteppi. Hins vegar átti hún frá fyrstu tíð í miklu stríði við saumavélar og játaði sig snemma sigraða í þeirri baráttu. Mamma hafði lag á að sjá það góða í fari fólks og hallmælti fáum. Hún dró fólk ekki í dilka og hélt góðum tengslum við ættingja og vini, ekki síst þá sem höfðu farið halloka í lífinu. Hún var mikil félagsvera og vissi fátt betra en að vera með fjölskyld- unni. En lífið eins og gengur var ekki bara dans á rósum. Hún glímdi við heilsuleysi síðari hluta ævinnar og hefti það þátt- töku hennar í ýmsum samkom- um. Hún kom þó alltaf þegar hún treysti sér til og skemmti sér manna best. Síðustu árin var hún í dagvist í Múlabæ, sem hún kallaði leikskólann sinn. Þar eyddi hún dagpörtum með jafn- öldrum, við handavinnu og spjall og þar var oft mikið hleg- ið. Hún varð áttræð viku fyrir andlát sitt og tók þátt í þeirri gleði á sinn hátt þrátt fyrir að vera þrotin að heilsu og kröft- um. Mamma var sannkallað sum- arbarn enda fædd á sumarsól- stöðum. Hún unni íslenskri nátt- úru og átti mestallt sitt líf afdrep í Heiðarseli, sumarbústað fjöl- skyldunnar við Þingvallavatn, þar sem við stórfjölskyldan átt- um saman ótal indælar stundir. Hjartans þökk fyrir allt sem þú gafst mér og góða ferð í sum- arlandið, elsku mamma mín. Þín dóttir, Unnur. Elsku amma Ransí. Takk fyrir allar góðu stundirnar og alla ást- ina. Takk fyrir gleðistundirnar í Heiðarseli, notalegu jólin, tölvu- leiki á Bestó, teppin, púðana, peysurnar og allt hitt. En þó að þagni hver kliður og þó að draumró og friður leggist um allt og alla, ber hjarta manns svip af sænum, sem sefur framundan bænum með öldur sem óralangt falla. Því særinn er veraldarsærinn, og sjálfur er vesturbærinn heimur sem kynslóðir hlóðu, með sálir sem syrgja og gleðjast og sálir sem hittast og kveðjast á strönd hinnar miklu móðu. (Tómas Guðmundsson) Þín Þórunn. Rannsí, eins og hún var kölluð, kynntist ég snemma á lífsferlin- um, eða við fjögurra ára aldur er ég flutti á Sóleyjargötu 33. Hún bjó á Smáragötu 7 og var garðleið á milli okkar mikið notuð. Strax tókst með okkur mikill vinskapur sem stóð ævilangt. Saman geng- um við í gegnum árin á Grænu- borg og æfingadeild Kennara- háskóla Íslands og brölluðum við mikið saman. Margar voru hug- myndir okkar á þeim árum og 10 ára var ætlun okkar að stofna bensínstöð sem átti að verða ævi- starf okkar. Ekki varð af þeim plönum og héldum við áfram námi í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar en eftir hann skildu leiðir þar sem ég fór í Menntaskólann í Reykjavík en hún í skóla á Englandi. Sam- bandið rofnaði samt aldrei og skrifuðumst við á. Seinna fór hún í skóla í Sviss. Ég var síðan send í sama skóla og hún í Englandi og kom hún og heimsótti mig þar á meðan á dvöl minni stóð. Stund- uðum við þar að borða á indversk- um stöðum þar sem mest fékkst að borða og verðlag var ódýrast, því skömmtun var í gangi í Bret- landi á þessum tíma og má segja að þar hafi hagsýni okkar frá æsku sýnt sig. Í menntaskóla stofnuðum við saumaklúbb sem Rannsí átti aðild að og lifir hann ennþá í dag. Rannsí giftist ung Birgi Ottóssyni og eignuðust þau fimm efnileg börn. Á uppeldisár- um barna okkar var mikið sam- band okkar á milli og hjálpuðum við hvor annarri ef þörf var á. Seinna á lífsleiðinni fórum við að ferðast mikið saman bæði hér- lendis og erlendis og er margs að minnast og hlýja sér við frá öllum þeim ferðum. Ég vil þakka Rannsí fyrir ævilanga trausta vináttu og minningar sem ég á frá kynnum okkar. Birgi og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur með söknuði eftir góðri vinkonu. Anna Kristjánsdóttir. Ragnhildur Gunnarsdóttir HINSTA KVEÐJA Yndislega, góða og frá- bæra amma mín sem var alltaf góð og kom fram við aðra eins og hún vildi að aðrir kæmu fram við sig. Ég á alltaf eftir að sakna hennar. Um þig minning á ég bjarta sem yljar eins og geisli er skín. Þú áttir gott og gjöfult hjarta og gleði veitti návist þín. (Höf. ók.) Ástarkveðja, nafna þín, Ragnhildur ✝ Sölvi Jónassonfæddist á Hnjótshólum, Ör- lygshöfn, Barða- strandarsýslu 11. maí 1916. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 19. júní 2014. Sölvi var sonur hjónanna Jónasar Jónssonar, f. 1875, d. 1965, og Jónu Valgerðar Jónsdóttur, f. 1878, d. 1961. Systkini Sölva voru Guðmundur, f. 1903, d. 1903, Guðjón, f. 1904, d. 1981, Krist- ín, f. 1907, d. 1970, Valgerður, f. 1910, d. 1995, Kristinn, f. 1912, d. 1974, Guðbjartur, f. 1913, d. 1958, og Lára, f. 1919, d. 1941. Eiginkona Sölva var Guðný Sigrún Jónsdóttir, f. 1908, d. 1989. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 1869, d. 1954, Lambeyri á Rauðasandi og 10 ára gamall að Tungumúla á Barðaströnd. Árið 1927, þá 11 ára, fer Sölvi að Bakka í Ket- ildalshreppi í Arnarfirði til Böðvars Pálssonar útvegs- bónda og eiginkonu hans Lilju Árnadóttur, þar bjó hann til ársins 1940. Á Bakka kynntist Sölvi eiginkonu sinni, Sig- rúnu. Þau gengu í hjónaband 1940 og hófu búskap í Mel- húsum og síðar í Neðribæ í Selárdal, þar bjuggu þau til ársins 1947 er þau fluttu til Bíldudals. Þau fluttu til Reykjavíkur 1957 og bjuggu þar upp frá því. Á Bíldudal stundaði Sölvi sjómennsku ásamt almennum verkamannastörfum, á sumrin vann hann við brúar- og bryggjusmíði. Eftir að Sölvi og Sigrún fluttu til Reykjavík- ur vann Sölvi við húsa- og húsgagnasmíði, lengst af hjá trésmiðjunni Meið. Útför Sölva fer fram frá Háteigskirkju í dag, 8. júlí 2014, klukkan 13. og Guðmunda Guðmundsdóttir, f. 1874, d. 1955, frá Dynjanda í Arn- arfirði. Sonur Sölva og Sigrúnar er Haukur, f. 1940, kvæntur Drífu Jónsdóttur. Fyrri eiginkona hans er Kristín Árnadóttir og eiga þau dæturnar Sig- rúnu Hrönn, Elínu Helgu og Svanhildi Hrund. Fyrir átti Sigrún dótturina Ernu Svan- hildi Tessnow, f. 1935, d. 1997, sem Sölvi ól upp sem sína eigin dóttur. Sölvi ólst upp hjá foreldrum sínum á Hnjótshólum í Örlygs- höfn, síðar fluttu þau í Kefla- vík á Barðaströnd. Sumarið 1924, er Sölvi var átta ára, var hann sendur í vist, fyrst að Lambavatni, síðan að Mig langar með fáum orðum að minnast tengdaföður míns, Sölva. Sölvi var mikið ljúfmenni, vinnu- samur og með sterka réttlætis- kennd. Hann bar mikla umhyggju fyrir afkomendum sínum og fylgdist með þeim í leik og starfi. Sölvi var mér einstaklega góður og áttum við margar góðar stund- ir saman síðustu árin. Hann var duglegur að segja frá æsku sinni og uppvexti og var mikið í mun að deila því með fjölskyldunni. Hvíl í friði, kæri Sölvi. Fyrst er að vilja veginn finna, vaka, biðja í nafni hans, meistaranna meistarans. Þreytast ekki, vinna, vinna, vísdóms æðstu köllun sinna: Leita sífellt sannleikans. (Guðm. Guðm.) Kristín. Í dag kveðjum við afa Sölva, hann var afi, langafi og langa- langafi, hann fylgdist vel með af- komendum sínum og kallaði okkur kvenfélagið sitt. Það kom til af því að í 73 ár, frá því að pabbi okkar systra fæddist, fæddust bara stelp- ur inn í fjölskylduna, við systur, dætur okkar og lítil langalangafa- dóttir. Svo bættist í lok síðasta árs lítill drengur í hópinn og fékk sá nafnið Þorsteinn Sölvi, mikið var afi stoltur af nafna sínum. Það breytti því þó ekki að við vorum áfram kvenfélagið. Afi var duglegur, ósérhlífinn, ákveðinn, með sterkar skoðanir á hlutunum. Honum var mikið í mun að sjá um sig sjálfur og bjarga sér, ekki biðja um aðstoð nema nauðsyn bæri til. Hann var handlaginn og iðinn, féll aldrei verk úr hendi, smíðaði, prjónaði og gerði við, þeir eru ófá- ir smíðagripirnir sem hann lætur eftir sig, nytjagripir sem hafa gengið á milli kynslóða. Síðustu ár varði afi miklum tíma í að rifja upp atburði úr bernsku sinni, rifjaði það upp af mikilli nákvæmni og rakti svo at- burðarásina þegar við komum í heimsókn. Honum þótti gott að fá okkur til sín, fá að segja okkur sína sögu og rifja upp gamla tíma, en af nógu var að taka. Við erum þakklátar fyrir sam- veruna og geymum hjá okkur minninguna um ljúfan mann, hvíl í friði. Þegar dags er þrotið stjá þróttur burtu flúinn. Fátt er sælla en sofna þá syfjaður og lúinn. (Rögnvaldur Björnsson) Sigrún, Elín og Svanhildur. Elsku langafi okkar, við gleym- um ekki stundunum þegar við sem litlar stelpur komum í heim- sókn til þín í Bólstaðarhlíðina, borðuðum karamellukúlurnar úr kristalskálinni, teiknuðum eftir rósettunum í dúknum á stofu- borðinu, lékum með litla hvíta bíl- inn og það var sama hvað hann ferðaðist um íbúðina, hann var alltaf kominn á staðinn sinn í hill- unni. Hlustuðum á sögurnar frá því að þú varst smápolli sem þú mundir svo vel þó þær hafi gerst snemma á seinustu öld sem virtist vera svo ótrúlega langur tími fyrir okkur. Æskan okkar var allt önnur en þín þar sem þú þurftir átta ára gamall að fara að vinna fyrir sjálf- um þér og vannst hart allt þitt líf til að koma þér upp góðu lífi fyrir þig og fjölskylduna. Þó að tímarn- ir hafi breyst getum við haft dugn- að þinn okkur til fyrirmyndar. Með aldrinum fækkaði heim- sóknum okkar til þín en það var alltaf jafn gott að koma og við vor- um alltaf velkomnar. Þú mundir eftir öllum afmælum og varst ein- staklega gjafmildur. Það er sárt að kveðja þig en við huggum okkur við hversu langa og viðburðaríka ævi þú lifðir, gleðjumst yfir því að hafa náð að kynnast þér og kynna þig fyrir nýjustu laufblöðunum á ættar- trénu sem þú sáðir. Við vonum innilega að þú sért kominn þangað sem þú vildir fara og sért með þeim sem þú elskaðir. Þrek er gull en gull eru líka tárin, guðleg svölun hverri þreyttri sál. Stundum þeim er þrekið brýnt og kraftur þögul höfuð féllu tár um kinn. En sama rósin sprettur aldrei aftur, þótt önnur fegri skreyti veginn þinn. (Guðmundur Guðmundsson) Hjartans kveðjur, þínar langafadætur, Kristín, Guðlaug, Hrefna Hörn, Rannveig Rögn og Kolbrá Sölva. Segja má að með Sölva Jónas- syni, sem kvaddur er í dag, hverfi síðasta tenging okkar systkina við sögu sem hófst fyrir réttum hundrað árum þegar afi okkar og amma, Böðvar Pálsson og Lilja Árnadóttir, gengu í hjónaband og stofnuðu síðar heimili á Bakka í Bakkadal í Ketildölum, Arnar- firði. Mamma sagði okkur oft frá lífinu á Bakka á fyrri hluta síðustu aldar þegar hún var að alast upp. Hún sagði okkur meðal annars frá öllu því fólki sem ólst þar upp eða dvaldi á heimilinu um lengri og skemmri tíma, ungu og gömlu fólki sem ýmist voru skyldmenni eða vandalausir. Einn þeirra sem með þessum hætti tengdust heim- ilinu á Bakka var Sölvi. Sögurnar af lífinu í Ketildölum á fyrri hluta aldarinnar voru sög- ur af góðu mannlífi, miklum sam- gangi milli bæja, samhjálp, sam- vinnu, félagslífi og skemmtunum. Á Bakka var t.d. Gerða gamla sem hafði mömmu okkar í hávegum, þarna var Teddi frændi, Rúna, Svana og Sölvi svo fáein séu nefnd. Einhvern veginn kom allur þessi mannfjöldi ekki alveg heim og saman við líf kjarnafjölskyldu í Reykjavík á seinni hluta aldarinn- ar svo okkur var þetta lengi nokk- ur ráðgáta. Ekki var ráðgátan minni þegar okkur gafst síðar færi á að skoða húsakynnin á Bakka því fermetrarnir þar voru litlu meiri en þeir sem við bjugg- um við í Reykjavík. Sölvi var einn þessara þátttak- enda í lífinu fyrir vestan og svo þegar flestir voru fluttir suður upp úr miðri öldinni voru Sölvi og Rúna eitt af því fólki sem næst stóðu afa og ömmu í Reykjavík. Í fari Sölva var traust og áreiðan- leiki það sem manni dettur fyrst í hug, einnig rík umhyggja hans fyrir fólkinu sínu og góðvild í garð samferðamanna sinna. Allt- af var Sölvi reiðubúinn til hjálpar og hann var nánast jafnvirkur þátttakandi í lífi afa okkar og ömmu í Reykjavík og hann hafði verið á Bakka. Sölvi bjó yfir kímnigáfu sem var ekki öllum ljós vegna þeirrar hæglátu framkomu sem var aðalsmerki hans. Eftir því sem við stálpuðumst og kynntumst Sölva með öðrum hætti varð okkur betur ljós sú hlið hans sem ekki blasti við öll- um, þar sem góðlátlegt grín og græskuleysi í garð annarra ein- kenndi frásagnir hans. Að leiðarlokum þökkum við Sölva fyrir öll góð kynni og send- um Hauki syni hans og fjölskyldu samúðarkveðjur. Blessuð veri minning Sölva og minningin um það mannlíf fyrir vestan sem hann í okkar huga var síðasti fulltrúi fyrir. Lilja, Bolli, Sigríður og Böðv- ar, Auðar- og Héðinsbörn. Sölvi Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.