Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014
✝ Þórdís GuðrúnKristjánsdóttir
fæddist 7. mars
1920 á Gunn-
arstöðum á Langa-
nesströnd. Hún
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Lundi á Hellu
föstudaginn 20.
júní 2014. Þórdís
var dóttir
hjónanna Kristjáns
Friðriks Friðfinnssonar, fædds
í Haga í Vopnafirði, og Jak-
obínu Þórdísar Gunnlaugs-
dóttur, fæddrar á Gunn-
arsstöðum i
Skeggjastaðahreppi. Þórdís var
elst af tíu systkinum, næst var
Hrefna, f. 8. maí 1922, d. 9.
maí 2013, Ólöf Ágústa, f. 4.
feb. 1924, d. 13. des. 1992, Ol-
geir, f. 26. des. 1926, Halldóra
Helga, f. 2. júní 1928, Helga, f.
17. júní 1929, d. 24. feb. 1982,
Ruth, f. 31. ágúst, d. 3. mars
2010, Ingibjörg, f. 12. júní
1932, Þórunn Sigríður, f. 26.
okt 1933, d. 18. okt. 1998, Ing-
ólfur, f. 14. mars 1935, d. 12.
nóv. 2012.
Þórdís ólst upp á bænum
Merki í Vopnafirði. Eftir að
hafa stundað nám við Héraðs-
skólann á Eiðum eyddi hún
hluta af sumrinu með fjölskyld-
unni á Merki en fór þá til
Reykjavíkur þar sem hún starf-
aði á saumastofu.
Hún hafði aðsetur
hjá föðurbróður
sínum Sveinbirni
og konu hans Guð-
rúnu. Guðrún sú
var dóttir
hjónanna í Hella-
túni, Guðmundar
og Þórunnar, en
þau ólu upp eig-
inmann Þórdísar,
Ólaf Helga Guð-
mundsson, f. 8. ágúst 1912, d.
21. júní 1996.
Þórdís og Ólafur giftust 14.
desember 1939 og áttu þau
tvær dætur, Þórunni og Jak-
obínu. Þórunn var f. 19. sept.
1939 d. 4. sept. 1990, maki
hennar Einar Kristinsson, f. 12.
des. 1938. Jakobína er fædd 1.
sept. 1941, maki hennar Ing-
ólfur Gylfi Jónasson, f. 30. nóv.
1937, d. 2. mars 2000.
Barnabörnin eru fjögur en
elsta barnabarnið er látið,
barnabarnabörnin eru tíu og
barnabarnabarnabörnin þrjú.
Þórdís bjó í Hellatúni til árs-
ins 2000 en þá flutti hún á
Hellu ásamt dóttur sinni Jak-
obínu en flutti svo á Hjúkr-
unar- og dvalarheimilið Lund á
Hellu árið 2004 þar sem hún
bjó til dauðadags.
Útför Þórdísar fer fram frá
Oddakirkju í dag, 8. júlí 2014,
og hefst athöfnin kl. 14.
Elsku amma Dísa, nú þegar þú
hefur kvatt okkur streyma fram
margar góðar minningar.
Það var svo gott að alast upp
með ömmu Dísu í næsta húsi sem
barn. Frá ömmu Dísu fór enginn
svangur og að getað hlaupið beint
úr skólabílnum til ömmu Dísu og
fengið nýbakað með kaffinu er
hlý minning. Amma Dísa fylgdist
líka alltaf með hvernig mér gekk
í skólanum. Ef ég var að fara í
próf bað hún alltaf fyrir mér og
að mér myndi ganga vel. Því
amma Dísa var mjög trúuð og
bað mikið. Hún kenndi mér
margar bænir og kenndi mér að
fara með faðirvorið á hverju
kvöldi. Einnig er mér það ofar-
lega í huga hvað jólasveinninn
var alltaf örlátur í gamla bænum
hjá ömmu Dísu og afa Óla.
Amma Dísa hafði einstaklega
góða og hlýja nærveru og slapp-
aði ég alltaf svo vel af þegar ég
kom heim til ömmu Dísu hvort
sem það var í gamla bæinn í
Hellatúni eða herbergið hennar á
Lundi og oftar en ekki blundaði
ég því ekki var stressið í kringum
hana ömmu Dísu.
Margar góðar minningar eig-
um við amma Dísa síðustu árin
og alltaf var gott að enda kvöld-
vaktina á Lundi hjá ömmu og
spjalla um daginn og veginn og
hlusta á Passíusálmana þegar
þeir voru lesnir í útvarpinu.
Amma Dísa var mjög jarðbundin,
róleg og hlý kona sem fór ekki
mikið en þurfti alltaf að vita af
fólkinu sínu og að öllum liði vel og
allir væru frískir. Alltaf spurði
amma um stelpurnar mínar og ef
hún vissi að þær væru veikar
varð hún ekki róleg fyrr en þær
væru orðnar frískar.
Amma Dísa, ég mun aldrei
gleyma þér og stundunum sem
við áttum saman, að hafa verið
með þér hefur gert mig að betri
manneskju.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Hvíl í friði, elsku amma Dísa.
Hjördís Rut Albertsdóttir.
Elsku amma Dísa
Þakklæti fyllir hjarta okkar,
meira nú en áður því þú hefur
kvatt hið jarðneska líf. Þakkæti
fyrir að þú fórst í Hellatún, þakk-
læti fyrir að hugsa um Óla, þakk-
læti fyrir að vera til staðar fyrir
alla, þakklæti fyrir að veita þenn-
an frið og þessa sátt sem fylgdi
þér ávallt, þakklæti fyrir kvöld-
stundirnar með þér og Hrefnu
systur þinni á Lundi. Þakklæti
fyrir að börnin okkar fengu að
kynnast ömmu Dísu og síðast en
ekki síst þakklæti fyrir starfsfólk
Lundar þar sem þú áttir heimili
síðasta áratuginn.
Þú munt lifa í hjarta okkar um
alla tíð.
Hrefna, Ólafur og börnin.
Þórdís Guðrún
Kristjánsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Þakka þér fyrir, elsku
systir.
Halldóra Helga og
Ingibjörg Kristjánsdætur.
✝ Elín Sum-arliðadóttir
fæddist 25. nóv-
ember 1923. Hún
lést 27. júní 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Sumarliði
Guðmundsson,
fæddur í Miðhúsum
í Reykjafirði 30.
september 1888,
dáinn 11. nóvember
1959 og María Frið-
gerður Bjarnadóttir, fædd á
Eyri í Vatnsfjarðarhreppi 7.
október 1892, dáin 23. febrúar
1966. Alsystkin Elínar eru
Bjarni Hólmgeir Sumarliðason,
f. 4.2. 1921, d 25.5. 1994, Magnús
P.K. Sumarliðason, f. 12.7. 1922,
d 17.8. 2008, Björg Sum-
arliðadóttir, f. 17.6. 1925, d.
14.6. 2014, Guðjóna S. Sum-
arliðadóttir, f. 7.10. 1927, d.
15.11. 2002, Kjartan Helgi Sum-
arliðason, f. 22.9. 1929, d. 9.6.
lengst af í Skarðshlíð 12c. Börn
þeirra eru fimm: 1) Guðrún, f.
13. janúar 1950, gift Gunnari
Reyni Bæringssyni, f. 7. júlí
1949, d. 9. október 2008, eiga
þau 3 börn, 8 barnabörn og 1
barnabarnabarn, 2) Bryndís, f.
22. október 1951, gift Sigurði
Halldóri Jóhannssyni, f. 1952,
og eiga þau 3 börn og 6 barna-
börn, 3) María, f. 19. júní 1953,
gift Baldri Erni Baldurssyni, f.
1951, eiga þau 3 börn og 10
barnabörn, 4) Sigurður Líndal,
f. 8. ágúst 1954, giftur Kristínu
Hjaltalín, f. 1956, og eiga þau 3
börn og 7 barnabörn, 5) Arna
Þöll, f. 6. september 1958, gift
Jóni Í. Guðmann, f. 1958, og eiga
þau 3 börn og 4 barnabörn.
Elín og Arnfinnur fluttust til
Akureyrar árið 1948. Elín vann
lengst af við þrif í Prentsmiðju
Odds Björnssonar, einnig vann
hún á Barnaheimilinu Stekk.
Hún starfaði líka á Hótel Varð-
borg. Hún starfaði mikið við fé-
lagsstörf hjá stúkunni, einnig
með konum musterisriddara á
Akureyri.
Útför Elínar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 8. júlí
2014, kl. 13.30.
2012, Rúrik Sum-
arliðason, f. 1932,
Kristján Sum-
arliðason, f. 1933.
Samfeðra eru Pét-
ur G. Sum-
arliðason, f. 24.7.
1916, d. 5.9. 1981,
Björg Sum-
arliðadóttir, f. 27.5.
1917, d. 7.7. 1917.
Elín var sett í fóst-
ur 5 ára gömul að
Þúfum í Ísafjarðardjúpi. Fóstur-
foreldrar hennar voru Páll Páls-
son hreppstjóri, f. 10.9. 1891, d.
8.9. 1972 og Björg J. Andr-
ésdóttir, f. 13.2. 1893, d. 19.10.
1966. Fóstursystkinin voru Páll
Pálsson, f. 1922, d. 2008, Ást-
hildur Pálsdóttir, f. 1925, Unnur
Hermannsdóttir, f. 1919 og
Fjóla Hermannsdóttir, f. 1936.
Elín giftist 24. júní 1949 Arn-
finni Arnfinnssyni, f. 28.1. 1923,
d 28.12. 2013. Heimili þeirra var
Elsku mamma mín, það var
skrítið að rétt þegar við vorum bú-
in að jarða kerið hans pabba hinn
20. júní dreymdi mig að hann
kæmi til mín með farseðil handa
þér og þegar ég skoða farseðilinn
þá er það gamall merkimiði á
ferðatösku. Viku seinna ert þú far-
in til hans að kvöldi 27. júní, það er
greinilegt að pabbi vildi fá þig til
sín. Þú varst svo stór hluti af lífi
okkar allra. Varst alltaf að hugsa
um barnabörnin þín, hvað þú gæt-
ir nú gefið þeim, hvort heldur það
væru afmælis- eða jólagjafir eða
bara eitthvað sem þau vantaði.
Það var alveg yndislegt að ferðast
með þér, þú hafðir svo gaman af
því að vera í bíl og ég tala nú ekki
um að keyra vestur í Víkina fögru
sem ykkur pabba þótti svo vænt
um. Með nesti og gleðina sem
skein af þér, þú varst eins og lítil
stelpa, lékst á als oddi og sagðist
sko aldrei vera þreytt þótt þú vær-
ir orðin 87 ára í síðustu ferðinni.
Það er döpur tilhugsun að geta
ekki hitt þig á hverjum degi eins
og ég er búin að gera síðustu árin
og fá ekki að sjá brosið þitt og
finna hlýjuna frá þér.
Elsku besta mamma, ef til væri
keppni þar sem dæmt væri um
duglegustu, sterkustu og sjálf-
stæðustu mæðurnar myndir þú
vinna titilinn fyrirvaralaust. En
nú veit ég að þér líður betur því þú
sagðir oft við mig: Það er ekki
gaman að vera svona. Mig langar
að kveðja þig með þessu fallega
ljóði:
Við kveðjum þig og krjúpum hljótt
við kistuna þína, góða nótt
og góðan dag. Í Guðs þíns sal
þér gleðin aldrei bregðast skal.
Þín gleði ei brást, þó gengi mót,
þeim grátna fékkst þú raunabót.
Af gæðum heims var hönd þín snauð,
en hjartað fullt af kærleiks auð.
Í andans heimi okkar skín
hin engilhreina minning þín.
Við hlýtt og strítt að banaskál
þitt bros mun verma okkar sál.
Í heimi má ei hæli fást
jafn hlýtt og þína móðurást.
Þér væri Guð hvað varst þú mér,
hann vefji þig að hjarta sér.
(Þuríður Gísladóttir)
Þú ert mín móðir, mín vinkona,
minn demantur. Elsku mamma,
hvíl þú í friði, ég mun sakna þín.
Takk fyrir allt. Hinsta kveðja, þín
dóttir,
María Arnfinnsdóttir
(Maja).
Elín
Sumarliðadóttir
Sumarið 1961
kom ég tíu ára gam-
all til landsins frá út-
löndum til sumar-
dvalar og var í heimsókn á Íslandi.
Það var mikið ævintýri og margt
öðruvísi. Hjó strax eftir þessum
undarlegu bílum sem voru á göt-
um Reykjavíkur, svokölluðum
Willys-jeppum með kassayfir-
byggingu. Afi minn átti einnig
einn slíkan, módel 1942. Átti ég
eftir að eignast þann bíl þegar ég
fékk bílprófið og var það hinn
bezti gripur. Egill Vilhjálmsson
Erlendur
Björnsson
✝ ErlendurBjörnsson
fæddist 27. mars
1935. Hann lést 5.
júní 2014.
Útför Erlends
fór fram 18. júní
2014.
var mikill vinur Sig-
urðar afa míns og
kom ég oft á skrif-
stofu Egils við
Hlemm með afa. Á
meðan vinirnir töl-
uðu saman fékk ég
leyfi til að skoða mig
um í fyrirtækinu, á
lagernum og inni á
verkstæðinu þar
sem vaskir menn
unnu við að gera við
þessa skrýtnu Willys-jeppa og
smíða á þá hús sem kölluð voru
Egils hús. Lagerinn var stórkost-
legur og afgreiðslan átti sér stað
yfir borð og afgreiðslumenn sér-
fræðingar á sínu sviði og er ómet-
anlegt að hafa fengið að upplifa
andrúmsloftið þarna og annars
staðar í gömlum rótgrónum fyr-
irtækjum landsins. Inni á verk-
stæðinu unnu vaskir menn og þar
hef ég eflaust hitt Linda í fyrsta
sinn án þess að vita hver hann væri
né vitaskuld að leiðir okkar ættu
eftir að liggja saman alloft aftur.
Hóf störf í „ferðabransanum“ 14
ára gamall og sýndi kvikmyndir í
Tjarnarbúð fyrir gesti af skemmti-
ferðaskipum og var það mikil
ábyrgð. Síðar upp úr 1975 man ég
eftir fyrstu ferðunum með Linda út
á land og var alltaf mikil ánægja að
vera með honum enda bæði húmor
og skap svipað hjá báðum.
Það eru ekki margir í þjóðfélag-
inu sem gera sér grein fyrir hversu
mikil vinna það var og er að vera
rútubílstjóri á Íslandi. Langur er
vinnudagurinn og strangur og
álagið oft ofurmannlegt. Ég hef
alltaf sagt að ferðaþjónusta á Ís-
landi byggist á tveimur meginstoð-
um og þær eru „hundaheppni“ og
ósérhlífni íslenzkra rútubílstjóra,
sem eru alla daga að passa upp á að
rekast ekki hver utan í annan á
mjóum vegum, sneiða hjá gangandi
og hjólandi fólki og varast slæmar
vegaxlir. Að loknum akstursdegi
með ferðamenn hefst mikið starf
rútubílstjóra því þá taka við þrif og
frágangur bifreiða og komast bíl-
stjórar oft ekki í kvöldmat fyrr en
seint að kvöldi. Töluvert álag er við
að hlaða töskum alla daga og af-
hlaða ef skipt er daglega um næt-
urstað. Álagið er mikið og svo ég
tali nú ekki um álagið sem fylgir því
að hafa alls kyns sérvitringa sem
leiðsögumenn og hópstjóra frá öll-
um hugsanlegum bakgrunni og
löndum. En Lindi tók þessu öllu
með sinni stóísku ró og drakk í sig
áhrifin og naut þess með sínum
hljóðláta hætti að hlusta á blessaða
leiðsögumennina blása út um allt
og alla. Lindi var búinn að sjá þetta
allt saman áður og þurfti ekkert að
æsa sig yfir neinu sérstöku. Hann
hélt sinni ró og var kletturinn sem
allir dáðu og litu til enda vinmarg-
ur.
Ég er afar þakklátur fyrir öll
þau skipti sem ég hafði tækifæri til
að ferðast með Linda vítt og breitt
um okkar fagra land og get auð-
veldlega sagt að ég sakna hans
mjög sem og fjölmargir aðrir leið-
sögumenn. Blessuð sé minning
Linda og sendi ég fjölskyldu hans
og vinum sterkar samúðarkveðjur.
Friðrik Ásmundsson
Brekkan.
Kæra amma okkar, núna ertu
farin frá okkur og við sitjum eft-
ir og skiljum ekki neitt. Mikið er
tilveran undarleg án þín. Við
viljum þakka þér fyrir allt sem
þú gerðir fyrir okkur. Allt sem
þú gafst okkur og það að vera
alltaf tilbúin að styðja okkur í
öllu sem við tökum okkur fyrir
Kristrún Ingi-
björg Fanney
Þórhallsdóttir
✝ Kristrún Ingi-björg Fanney
Þórhallsdóttir
fæddist á Lang-
húsum í Fljótsdal 4.
apríl 1939. Hún lést
á heimili sínu, Ár-
skógum 34, Egils-
stöðum, 21. júní
2014.
Útför Ingibjarg-
ar fór fram frá Val-
þjófsstaðarkirkju
28. júní 2014.
hendur. Þú gerðir
líf okkar auðugra
og munum við halda
minningu þinni á
lofti.
Þegar þú hefur vind í
fang,
þá haltu höfðinu hátt.
Hræðstu ei myrkrið,
það mun birta til.
Því að ljós heimsins
mun þér lýsa
í gegnum dauðans dimman dal.
Hann fer á undan
í gegnum storm og regn.
Þú munt aldrei ganga einn,
munt aldrei ganga einn.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Hvíl í friði, elsku amma okkar.
Emil Atli og
Erla Björg
Fanney.
Við vorum þeirr-
ar gæfu aðnjótandi
að þekkja Ernu
Bryndísi í nokkur
ár. Hún hafði ný-
lega greinst með þann sjúkdóm,
sem síðar bar hana ofurliði.
Þrátt fyrir það var hún full af
fjöri, atorku, með áhuga á sínum
nánustu, vinum, félögum, sam-
félaginu og umheiminum.
Erna Bryndís var pólitísk í
bestu merkingu þessa orðs. Hún
var heimskona með sýn úr
austri og vestri en hún vann í
mörg ár sem endurskoðandi í
Bandaríkjunum og Danmörku.
Hún vildi skapa samfélag sem
skapaði öllum tækifæri. Hún
Erna Bryndís
Halldórsdóttir
✝ Erna BryndísHalldórsdóttir
fæddist 3. ágúst
1951. Hún lést 17.
júní 2014. Útför
Ernu Bryndísar fór
fram 25. júní 2014.
studdi þá sem áttu
undir högg að
sækja bæði hér-
lendis og erlendis.
Erna Bryndís hafði
opinn hug og nægi-
legt sjálfstraust til
að berjast fyrir því
að Ísland kannaði
möguleika á nánara
samstarfi við aðrar
Evrópuþjóðir. Erna
Bryndís var örlát,
gestrisin og mikill og góður fé-
lagi. Hún var á fullri ferð að
skipuleggja næstu ferðir af út-
sjónarsemi og áhuga.
Erna Bryndís varð loks að
játa sig sigraða. Dauðinn kemur
oft á óvart, ekki síst þegar hann
leggur að velli fólk í blóma lífs-
ins. Erna Bryndís var kona sem
margir munu sakna. Við sendum
dætrum hennar og fjölskyldu
innilegustu samúðarkveðjur.
Fríða Bjarnadóttir
og Tómas Zoëga.
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR
AF FAGMÖNNUM