Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 189. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. „Ég fór bara að vinna“ 2. Eldsvoðinn úr öryggismyndavél 3. Ekkert annað en kraftaverk 4. Engin skýring á brunaboðum … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndaritið Variety segir frá því að kvikmyndaleikstjórinn Haf- steinn Gunnar Sigurðsson sé farinn að undirbúa næstu kvikmynd sína, Kanarí, og stefni að því að hefja tökur á henni á næsta ári. Hafsteinn segir í samtali við blaðamann Variety á kvik- myndahátíðinni Karlovy Vary í Tékk- landi, þar sem nýjasta kvikmynd hans, París norðursins, verður heims- frumsýnd í dag, að Kanarí fjalli um mann sem þurfi að yfirstíga flug- hræðslu eftir að unnusta hans heldur utan í nám. Hann sæki námskeið til að vinna bug á hræðslunni og til að útskrifast þurfi hann að fljúga með hópi flughræddra til Þýskalands. Sú ferð endar illa. Hafsteinn segir að myndin verði meiri gamanmynd en París norðursins sem sé öllu drama- tískari. Hann leitar nú þýskra með- framleiðenda að Kanarí á Karlovy Vary, skv. Variety. Ljósmynd/Mummi Lú Flughræðsla í næstu kvikmynd Hafsteins  Fyrsta skemmtikvöld leikkonunnar Ólafíu Hrannar Jónsdóttur og leik- arans Þorsteins Guðmundssonar verð- ur haldið á fimmtudaginn í Bæjarbíói kl. 21. Lolla og Steini ætla að skemmta íbúum höfuðborgarsvæðisins og ná- grannabæja höfuðborgarinnar í sumar með uppistandi, upplestri, leikþáttum, tónlist, gríni og bjóða upp á bingó en bingóspjöld fylgja að- göngu- miðum, skv. Midi- .is. Gamanmál og bingó með Lollu og Steina Á miðvikudag og fimmtudag Suðaustlæg og síðan suðvestlæg átt, 5-10 m/s. Rigning með köflum S- og V-lands en annars þurrt og bjartviðri NA-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast um landið NA-vert. Á föstudag Gengur í suðaustan og austan 8-13 m/s með rigningu. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestlæg átt, 3-8 m/s, og rigning um tíma á Vestfjörðum. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast fyrir austan. VEÐUR Víkingur Reykjavík og ÍBV tryggðu sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum Borgunarbikars- ins í knattspyrnu karla. Víkingur vann BÍ/Bolungarvík 3:0 á Torf- nesvelli á Ísafirði þar sem Ívar Örn Jónsson skoraði tvö mörk. ÍBV átti hins vegar í basli með Þrótt en náði að knýja fram sig- ur í framlengingu með marki Gunn- ars Þorsteins- sonar. »2 Víkingur og ÍBV í undanúrslit Hvað verður um sóknarleik Bras- ilíumanna án Neymars þegar þeir mæta Þjóðverjum í undanúrslitum HM í kvöld? Spilamennska Bras- ilíumanna í keppninni hefur ekki ver- ið neitt sérstök. Þeir eru vissulega ósigraðir en dómarinn var þeim hlið- hollur gegn Króötum í opnunarleik mótsins, þeir gerðu jafntefli við Mexíkó og vítaspyrnukeppni þurfti til að útkljá slag liðsins gegn Síle. »4 Gengur sóknarleikur Brasilíu án Neymars? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Orðin „útfararkaffi“ og „burðarbiti“ hafa fengið nýtt hlutverk í íslenskri tungu ásamt fjölda annarra orða sem hægt er að finna í slangurorðabók íslenskufræðing- anna Einars Björns Magnússonar og Guðlaugs Jóns Árnasonar. Slangur- orðabókina hefur verið að finna á netinu frá árinu 2010 en að sögn Einars, annars ritstjóra bókarinnar, stendur til að gefa hana út á prenti. „Þetta byrjaði árið 2004 þegar ég fékk styrk frá nýsköpunarsjóði námsmanna til að gera slangurorðabók á netinu. Í fram- haldi af því langaði mig að gefa út bók svo ég fékk Guðlaug með mér í þetta,“ segir Einar, en þeir kynntust þegar þeir voru báðir við nám í íslensku við Háskóla Ís- lands. Þeir töluðu við Forlagið vegna út- gáfu orðabókarinnar og þar var vel tekið í hugmyndina. „Við höfum nú verið að safna orðum í nokkur ár og stefnum á að gefa bókina út á næsta ári. Það er hægt að safna enda- laust af orðum, það þarf bara að láta verða af þessu,“ segir Einar. Þúsundir orða hafa borist Allir geta sett nýyrði eða slangur inn á síðuna og hafa landsmenn verið duglegir að bæta við slanguryrðum í orðabókina að sögn Einars. „Við fórum af stað með þessa vefsíðu og báðum fólk að senda inn orð og hafa bor- ist þúsundir orða síðan þá. Við förum yfir orðin, finnum skýringar og dæmi og könnum hvort orðin séu í notkun,“ segir Einar. Hann segir margt af því sem sent er inn vera einkahúmor og bull sem þeir hendi út jafnóðum. Aðspurður hvaða orð séu í uppáhaldi hjá honum segir hann þau vera mörg og hann geti ekki gert upp á milli orða. Af nýyrðum nefnir hann orðin ellinaðra og smúðingur. Samkvæmt orðabókinni er ellinaðra rafskutla fyrir gamalt fólk eða þá sem eiga erfitt með gang og smúðingur er þykkur drykkur t.d. úr ávöxtum og skyri og er myndað af enska orðinu smoothie og íslenska orðinu búðingur. Nammviskubit og spjallsími  Vinir safna saman slanguryrðum Morgunblaðið/Þórður Slangurorðasafnarar Íslenskufræðingarnir Einar Björn, til hægri, og Guðlaugur Jón, til vinstri, eru ritstjórar íslensku slangurorðabókarinnar. Allir áhugasamir geta sett nýyrði eða slangur inn á vefsíðu bókarinnar. Guðlaugur Jón Arason, annar ritsjóri slangurorða- bókarinnar, setti saman stórskemmtilega vísu þar sem hann notaði slanguryrði úr orðabókinni: Þér skilmysdu klofklaufa skinkur sem horkókið súpið hvar skyldi vor æska í lífinu leita sér fanga? Er helköttuð kremfressin hauslaus um göturnar ganga vort hellaða land sekkur dýpra í algleymisdjúpið Eflaust skilur fólk vísuna misjafnlega vel enda er fjölda nýyrða og slanguryrða að finna í textanum. Þeir sem vilja átta sig betur á innihaldi vísunnar geta farið inn á heimasíðu slangurorðabókarinnar þar sem skýringar er að finna. Slóðin á síðuna er: www.slangur.snara.is. Notaði slangur í vísugerð HELKÖTTUÐ KREMFRESS Dæmi úr slangurorðabókinni Drekasvæðið sn. hk. svæðið í nágrenni söluturnsins Drekans við Njálsgötu lúxusvandamál no. hk. vandamál sem helgast oftast af offramboði af einhverju sem er ekki slæmt í sjálfu sér minnispinni no. kk. minnislykill, usb-lykill nammviskubit no. hk. samviskubit yfir að hafa borðað of mikið nammi skrúðkrimmi no.kk. útrásarvíkingur spjallsími no. kk. einfaldur farsími sem notaður er til að tala og senda skilaboð en ræður ekki við flóknari viðfangsefni eins og snjallsími Þrjú íslensk landslið í golfi, karla-, kvenna- og piltalandsliðið, hefja í dag keppni á Evrópumótunum í þremur mismunandi löndum. Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari segir að sett hafi verið krefjandi markmið fyrir öll liðin, boginn sé spenntur hátt, en samt sé full trú á því að þeim mark- miðum verði náð. »4 Krefjandi markmið sett fyrir öll golflandsliðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.