Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
36% þeirra sem beita drengi
kynferðislegu ofbeldi
eru ókunnugir karlar.
Gagnaílát
fyrir örugga eyðingu gagna
Þú setur gögnin í læst ílátið og hringir í okkur þegar
þarf að tæma. Við komum, skiptum um ílát og
eyðum gögnunum
PDC / 32 lítra
Tekur allt að 10 kg af pappír
S-76 / 76 lítra
Tekur allt að 30 kg af pappír
Mál: 70 (h) x 28 (b) x 51 (d)
E-120 / 120 lítra
Tekur allt að 55 kg af pappír
Mál: 93 (h) x 48 (b) x 56 (d)
E-240 / 240 lítra
Tekur allt að 120 kg af pappír
Mál: 107 (h) x 58 (b) x 74 (d)
Bæjarflöt 4 / 112 Reykjavík / Sími 568 9095/www.gagnaeyding.is
Örugg eyðing gagna yfir 20 ár
STUTTAR FRÉTTIR
● Hagnaður lögmannsstofunnar BBA
Legal nam 134 milljónum króna á liðnu
ár samanborið við 162 milljóna króna
hagnað á árinu 2012. Tekjur BBA Legal
námu samtals 524 milljónum króna og
drógust lítillega saman á milli ára.
Greiddur arður til eigenda lög-
mannsstofunar var 154 milljónir króna
borið saman við 259 milljóna arð-
greiðslu árið áður. Hluthafar BBA Legal
voru sex í árslok 2013 og nam hlutur
þeirra á bilinu 10-20%.
Á meðal eigenda BBA Legal eru lög-
mennirnir Baldvin Björn Haraldsson,
Einar Baldvin Árnason, Katrín Helga
Hallgrímsdóttir og Bjarki H. Diego.
Hagnaður BBA minnkar
● Farþegum Icelandair fjölgaði um 15%
í júní miðað við sama tíma í fyrra og
voru þeir 309 þúsund talsins. Nam
framboðsaukning á milli ára 16%.
Sætanýting var 82,5% og jókst um 0,4
prósentustig á milli ára. Fella þurfti nið-
ur 65 flugferðir og breyta 10 þúsund
bókunum vegna verkfallsaðgerða flug-
virkja í mánuðinum. Þetta kemur fram í
tilkynningu til Kauphallarinnar.
Herbergjanýting á hótelum Iceland-
air var 77,8% og jókst um 4,3 pró-
sentustig frá því í júní 2013.
Farþegum Icelandair
fjölgaði um 15% í júní
Íslenska ríkið undirbýr nú í fyrsta
skipti í tvö ár að sækja sér lánsfé á
erlendum mörkuðum. Hafa stjórn-
völd í þessu skyni ráðið bankana
Barclays, Citi, Deutsche Bank og
JPMorgan til að hafa umsjón með
skuldabréfaútboðinu.
Fram kemur í frétt Financial
Times að áformað sé að gefa út
skuldabréf í evrum til sex ára.
Ríkissjóður Íslands gaf út
skuldabréf að fjárhæð milljarður
Bandaríkjadala, jafnvirði 115 millj-
arða króna, í maímánuði árið 2012.
Eru bréfin til tíu ára og bera
5,875% fasta vexti. Ávöxtunarkraf-
an á tíu ára bréfunum hefur lækkað
talsvert og er komin niður í 4,3%,
að því er segir í frétt Financial
Times.
Morgunblaðið/Jim Smart
Lánsfé Fyrsta erlenda skuldabréfa-
útgáfan í tvö ár er í pípunum.
Ríkið undirbýr
skuldabréfaútgáfu
Áformar að gefa út evrubréf til sex ára
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Tap Rio Tinto Alcan á Íslandi rúm-
lega tvöfaldaðist í fyrra og nam 31,8
milljónum Bandaríkjadala. Það jafn-
gildir um 3,6 milljörðum íslenskra
króna. Árið 2012 nam það hins vegar
15,4 milljónum Bandaríkjadala, eða
um 1,7 milljörðum króna.
Tap félagsins fyrir skatta var 41,3
milljónir Bandaríkjadala, 4,7 millj-
arðar króna, á árinu samanborið við
tap upp á 18,4 milljónir Bandaríkja-
dala árið 2012.
Alls hefur því tap félagsins fyrir
skatta á undanförnum tveimur árum
numið tæpum sjö milljörðum króna.
Árið 2012 var félagið í fyrsta sinn
rekið með tapi frá því að Rannveig
Rist tók við sem forstjóri þess í byrj-
un árs 1997. Þess má geta að saman-
lagður hagnaður félagsins á árunum
2007 til 2012 var um 150 milljónir
Bandaríkjadala, eða um sautján
milljarðar króna á núverandi gengi.
Félagið rekur álverið í Straums-
vík.
Ólafur Teitur Guðnason, upplýs-
ingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Ís-
landi, segir að þegar tekjurnar reyn-
ist vera minni en gjöldin beinist
sjónir snemma að heimsmarkaðs-
verðinu á áli. „Það hefur verið og er
ennþá mjög lágt,“ segir hann í sam-
tali við Morgunblaðið.
Álverð þokast upp á við
Í byrjun árs 2013 var álverðið um
2.075 Bandaríkjadalir á tonnið en í
lok árs hafði það lækkað umtalsvert
og nam 1.784 Bandaríkjadölum. Ál-
iðnaðurinn hefur um nokkurt skeið
staðið frammi fyrir vanda vegna um-
frambirgða af áli. Þó hefur álverðið
aðeins þokast upp á við það sem af er
ári og nam það í lok júnímánaðar
1.838 Bandaríkjadölum. Með aukinni
eftispurn á heimsvísu og minnkandi
birgðum reikna sérfræðingar með að
þessi þróun haldi áfram og álverðið
hækki á næstu árum.
Ólafur Teitur bendir enn fremur á
að með nýjum raforkusamningi, sem
gerður var við Landsvirkjun árið
2010, hafi tenging raforkuverðs við
álverð verið afnumin. „Ef sá samn-
ingur væri enn í gildi er óhætt að
segja að við værum að borga umtals-
vert minna fyrir orkuna en við erum
að gera í dag,“ segir hann.
Hann nefnir einnig að afskriftir
vegna mikilla fjárfestinga félagsins á
undanförnum árum hafi skipt miklu
máli. „Við erum núna á lokametrun-
um í rúmlega sextíu milljarða króna
fjárfestingarverkefni og eftir því
sem sá búnaður sem við fjárfestum í
er tekinn í notkun verður hann af-
skrifaður. Þetta eru allt þættir sem
vega mjög þungt.“
„Róðurinn er áfram þungur“
Spurður um horfurnar fyrir þetta
ár segir Ólafur Teitur að umtalsvert
tap hafi verið á rekstri félagsins það
sem af er ári. „Þannig að róðurinn er
áfram þungur,“ segir hann.
Fram kemur í ársreikningi félags-
ins að salan hafi aukist um 4,6% í
fyrra og verið 41,3 milljónir Banda-
ríkjadala.
Þá jukust eignir félagsins um
rúmar þrjátíu milljónir Bandaríkja-
dala í fyrra og námu rúmum 726
milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði
um 82,4 milljarða króna, í árslok
2013. Skuldir félagsins drógust sam-
an á milli ára og námu í árslok 144,5
milljónum Bandaríkjadala og þá
jókst eigið fé þess um rúmar fjörutíu
milljónir Bandaríkjadala. Nam það
581,6 milljónum Bandaríkjadala í lok
árs 2013. Skuldir félagsins við
móðurfélagið, Rio Tinto Alcan Gro-
up, námu um 85 milljónum Banda-
ríkjadala og jukust örlítið milli ára.
Skera niður á öllum sviðum
Í ársskýrslu Rio Tinto kemur
fram að félagið hafi fækkað starfs-
mönnum um 61 í fyrra. Starfsmenn
hafi verið 462 talsins í byrjun árs en
401 í árslok. Þrátt fyrir þessar
aðhaldsaðgerðir var félagið áfram
rekið með tapi.
Ólafur Teitur bendir á að félagið
hafi þurft að skera niður og gæta að-
halds á öllum sviðum þess. Aðspurð-
ur segir hann hins vegar að nú sé
komið að ákveðinni endastöð í þeim
efnum, að minnsta kosti ef ástandið
versni ekki frekar.
3,6 milljarða króna tap
á rekstri Rio Tinto Alcan
Tapið tvöfaldaðist milli ára „Róðurinn þungur“ og útlit fyrir umtalsvert tap í ár
Straumsvík Árið 2012 var Rio Tinto Alcan á Íslandi í fyrsta sinn rekið með
tapi frá því að Rannveig Rist tók við sem forstjóri þess í byrjun árs 1997.
Morgunblaðið/Ómar
Auka framleiðsluna
» Áform voru uppi um að auka
framleiðslu álversins í
Straumsvík úr 190 þúsund
tonnum á ári í 230 þúsund.
» Félagið samdi við Lands-
virkjun árið 2010 um kaup á
raforku vegna stækkunarinnar.
» Í fyrra tilkynnti félagið að
það myndi aðeins auka fram-
leiðslugetuna um 15 þúsund
tonn í stað þeirra 40 þúsund
tonna sem áformað var.
» Það svarar til 8% aukningar.
» Samningurinn við Lands-
virkjun gildir til 2036.
!
"#$!
%"$
#
##
%$"
!
$!!
!!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"#%
%"
%!
#!
%#
"!
$!!
$
!"#
"#!
%"#
"%
#
%##
#
$! %
!
%"! $%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á