Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.07.2014, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014 ✝ Stefán GunnarHaraldsson fæddist í Braut- arholti í Skagafirði 12. september 1930. Hann lést á heimili sínu í Víði- dal 24. júní 2014. Foreldrar hans voru hjónin Jó- hanna Gunn- arsdóttir frá Keflavík í Hegra- nesi og Haraldur Bjarni Stef- ánsson frá Brautarholti, Stefán var næstelstur barna foreldra sinna. Systkini hans eru: Hauk- ur, f. 5.7. 1927, d. 9.9. 2013, giftur Erlu Guðjónsdóttur f. 3.9. 1932; Sigurður, f. 7.2. 1936, giftur Þóru Ingimarsdóttur, f. 21.3. 1936; Bragi, f. 27.4. 1942, giftur Eygló Jónsdóttur, f. 18.12. 1939; stúlkubarn, fætt andvana 1946. Þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn og búa á Víðimýri. 4) Margrét Sigurlaug, f. 11.12. 1968, tónlistarkennari, gift Ólafi Hafsteini Einarssyni, f. 25.3. 1961. Þau eiga þrjú börn og búa á Hvoli í Ölfusi. Áður en Stefán festi ráð sitt vann hann ýmis störf, m.a. hjá byggingarverktökum, í vega- vinnuflokki, við mjólkurflutn- inga og nokkur sumur hjá Bún- aðarsambandinu á jarðýtu. Stefán og Marta stofnuðu ný- býli út úr landi Víðimýrar sem þau nefndu Víðidal. Þar hófu þau búskap árið 1954. Stefán vann við búskap alla sína tíð auk þess sem hann var vörubíl- stjóri og vann því utan heimilis, einkum yfir sumartímann. Hann var einn af stofnendum Lionsklúbbs Skagafjarðar og vörubílstjórafélagsins Fjarðar. Hann söng með Karlakórnum Heimi og kirkjukór Víðimýrar- kirkju í 60 ár og nú síðustu ár var hann í Kór eldri borgara. Útför Stefáns verður gerð frá Víðimýrarkirkju í dag, 8. júlí 2014, og hefst athöfnin klukkan 14. Á gamlársdag 1954 giftist Stefán Gunnar Mörtu Fanneyju Svavars- dóttur, f. 8.11. 1931, d. 15.5. 2013. Þau eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Svavar Har- aldur, f. 22.2. 1952, bóndi í Braut- arholti, giftur Ragnheiði G. Kol- beins, f. 18.8. 1957. Þau eiga sex börn og fjögur barnabörn og búa í Brautarholti. 2) Pétur Helgi, f. 12.7. 1954, útibússtjóri Kaupfélags Skagfirðinga í Varmahlíð og bóndi, giftur Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, f. 11.6. 1961. Þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn og búa í Víðidal II. 3) Jóhanna Sigríður, f. 2.1. 1961, kennari, gift Einari Erni Einarssyni, f. 18.8. 1960. Elsku pabbi minn. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Elsku pabbi, góða ferð í sum- arlandið, ég veit að mamma tek- ur vel á móti þér. Þín dóttir Jóhanna Sigríður (Sigga). Elsku pabbi minn. Dagurinn sem ég hef kviðið alla ævi er runninn upp, þú ert farinn frá mér. Það eru bara örfáir dagar síðan við sátum við eldhúsborðið hér heima í Víðidal og áttum góðar stundir saman, en nú sit ég hér ein og skrifa minning- arorð um þig. Já, tilveran breytist á einu augabragði. Við áttum fullt af frábærum stundum og alltaf glatt á hjalla og stutt í grín. Þau voru ófá símtölin á milli okkar. Morgunspjall milli tíu og ellefu og svo líka heyrst eftir hádegi. Oftar en ekki að velta fyrir okk- ur einhverri tónlist, sungnar lín- ur og spilað á píanóið. Tónlistin tengdi okkur svo þykkum þræði. Þú varst svo mikill tónlistarunn- andi og hafðir fallegustu tenór- röddina. Yndislegan blæ sem ylj- aði hjartarótum þess sem hlýddi. Þú varst minn sterki bakhjarl í tónlistarnáminu frá því að ég var sjö ára. Hvattir, leiðbeindir og sagðir hvað þér fannst. Það var best í heimi að hafa þig í salnum á tónleikum og fá álit þitt. Þitt álit skipti mig mestu. Þú komst alltaf á alla tónleika sem ég hélt og varst svo stoltur af litlu stelpunni þinni. Einnig komstu oft til okkar fjölskyld- unnar á Hvoli og þar áttum við góðar stundir. Þú naust þess að vera með Óla í hestastússinu enda þið miklir vinir. Að hafa þig hjá okkur um síðustu jól var ómetanlegt. Þú naust þess að ferðast og oft skruppum við í stutta bíltúra, síðasti bíltúrinn okkar var svo hinn 11. júní þegar við fórum Sæmundarhlíðina. Síðasta heim- sóknin mín til þín er dýrmæt í minningasjóðinn. Við sátum á bekknum í sólinni og nutum lífs- ins saman eins og við gerðum alltaf. Síðasta ferðin þín á Suðurland var svo laugardaginn 21. júní þegar þú komst til að vera við útskrift hjá Helgu Sjöfn. Þú varst svo ánægður með þennan dag. Hittir Óla í Borgarnesi og fórst með honum upp á Snæfells- nes, komst svo í síðasta sinn til mín og fórst auðvitað í hesthúsið. Síðan áttum við dýrmætan dag á Freyjugötunni í veislunni hennar Helgu Sjafnar. Já pabbi minn, þú kunnir að hafa lífið skemmtilegt. Þú varst alltaf glaður og eins og þú sagðir svo oft „alltaf eitthvað til að hlakka til“. Þú sást nefnilega alltaf það bjarta í tilverunni. Nú er allt breytt og dagarnir langir. Síminn hljóður og enginn sem bíður á tröppunum í Víðidal þegar við rennum í hlað. Ekki hægt að hringja í þig en símtölin voru mörg á hverjum degi. Ég fæ aldrei aftur að heyra þig svara „sæl elskan mín“ og ekki kveðjuna þína „bless elskan mín og Guð veri með þér“. Söknuður- inn er sár. Þú varst nefnilega ekki bara besti pabbinn í öllum heiminum heldur varstu stór hluti af mér. Tenging okkar sterk. Nú þakka ég allar dásemd- arstundirnar og allar minning- arnar sem við fjölskyldan mun- um ylja okkur við. Ég veit að þú ert kominn til mömmu og ert í góðra vina hópi syngjandi og ríð- andi um blómaengið á Mósa. Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer. En ég vona bara að hann hugsi svolít- ið hlýlega til mín og leiði mig á endanum aftur til þín. (Megas) Elsku pabbi, Guð veri með þér, við hittumst síðar. Þín dóttir, Margrét Sigurlaug (Magga). Kæri tengdafaðir, ég man það sem gerst hefði í gær þegar ég sá þig fyrst. Vorið 1987, sólríkan fallegan vordag, mætti ég þér á afleggjaranum rétt fyrir neðan Víðimýri, þið Marta komuð út af- leggjarann, ég var að koma mína fyrstu ferð í Víðidal með henni Möggu þinni. Auðvitað varst þú tortrygginn, gat það verið að ör- verpið þitt hún Magga væri komin með kærasta? Það reynd- ist svo vera og síðan þá hafa fundir okkar verið ófáir og sím- tölin mörg. Þú varst magnaður maður og miklum kostum búinn. Oft rædd- um við um hross og gátum létti- lega haft sterkar skoðanir og verið með myndrænar lýsingar á kostum þeirra og göllum. Núna geri ég tilraun til að koma þeirri mynd sem ég hef af þér til skila, það reynist mér líklega ekki eins létt og þegar ég lýsti fyrir þér hrossum. Bráðgreindur, andans maður, teinréttur, bjartur yfirlitum, ávallt glaður, húmoristi, afburða- söngmaður og hagyrðingur af bestu gerð. Þú vildir alltaf vera þar sem fjörið og fólkið var en varst einn þeirra sem kunna að hætta leiknum þá hæst hann ber. Þú naust þess að ferðast um landið, enda gerðuð þið Marta mikið af því og á þeim nærri 30 árum sem við áttum saman slóg- umst við Magga og börnin stundum með í för. Úr þeim ferðum eigum við margar góðar minningar. Síðustu ferðina sem við fórum saman vorum við tveir einir, nokkrum dögum áður en þú kvaddir fórum við vestur í Hrísdal á Snæfellsnesi að sækja hryssu, nema hvað. Maður var ekki einn á ferð með þig sem ferðafélaga; þekktir landið og söguna þannig að upplifunin af umhverfinu varð fyrir vikið sterk. Stefán, þú varst mér meira en tengdafaðir, þú varst minn besti vinur. Við heyrðumst daglega og stundum oft á dag, þess sakna ég. Ég kveð þig, Stefán, með söknuði og virðingu. Þinn tengdasonur, Ólafur H. Einarsson (Óli Haddi). Þegar gróðurangan og lit- skrúð jarðar var að komast í há- mark kvaddi Stefán í Víðidal, í túninu heima með ástvini sína sér við hlið. Það var aldrei hljótt um tengdapabba og var hann ávallt hrókur alls fagnaðar hvar sem hann fór, mannvinur mikill og tryggur sínum en þó með sterkar skoðanir á málefnum lífsins. Hann var ættarhöfðingi mikill og hélt vel utan um fjöl- skyldu og vini og gaf sér tíma til að fylgjast vel með öllum barna- og barnabörnum sínum og skilur hann eftir sig stóran hóp af föngulegu fólki sem hann var af- ar stoltur af. Söngur og tónlist var ástríða Stefáns og ófáar stundirnar sem sungið var í Víði- dal og líf og fjör í bænum. Þá var eins gott fyrir söngfuglana í fjöl- skyldunni að syngja rétt og fara vel með, því tengdapabbi gerði kröfur til sín og annarra þegar tónlist var annars vegar. Þegar við lítum yfir líf og starf Stefáns í Víðidal getum við með sanni sagt: Sjá það er harla gott, – það sem þú hefur unnið fyrir fjöl- skyldu þína, sveit þína og sam- félag. Minning þín mun lifa. Þakka þér fyrir 32 ára kraft- mikla og góða samfylgd, kæri tengdapabbi. Nú húmi slær á hópinn þinn, nú hljóðnar allur dalurinn og það, sem greri á þinni leið um því nær heillar aldar skeið. Vor héraðsprýði horfin er: öll heiðríkjan, sem fylgdi þér. Og allt er grárra en áður var og opnar vakir hér og þar. Þér kær var þessi bændabyggð, þú bast við hana ævitryggð. Til árs og friðar – ekki í stríð – á undan gekkstu í háa tíð. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir. Mig langar að minnast míns kæra bróður með nokkrum orð- um. Bikar minninganna er barmafullur. Stefán varð bráð- kvaddur á Jónsmessu, 24. júní sl., í túninu heima. Engan stað hefði hann fremur kosið til að enda sína ævi en í túninu þar sem þau Marta hófu sitt land- námsstarf fyrir rúmum 60 árum. Á frumbýlisárum þeirra féllu margir svitadropar til jarðar, það er mér vel kunnugt um. Ég kom mjög oft til þeirra á fyrstu árum þeirra í Víðidal, þá ungur og ólofaður maður. Við bræður vorum mjög samrýndir frá fyrstu tíð, ég fór bara til þeirra til að hitta þau, hlæja og spauga saman, stundum var sest við orgelið og tekið lag eða við fór- um í eina bröndótta, en kannski stundum til að rétta örlitla hjálp- arhönd við búskapinn. Alltaf átti Marta súkkulaðitertu og fleira gott með kaffinu. Minningarnar eru bjartar þegar litið er til baka er við vor- um litlir drengir að alast upp í Brautarholti. Þá lékum við okk- ur t.d. oft suður við læk á sumrin eða á sleðanum á vetrum. Fór- um svo að hjálpa til við búskap- inn þegar geta og kraftar leyfðu. Snemma varð Stebbi mjög lið- tækur í umgengni og notkun hesta og áhugamaður um hesta- mennsku sem fylgdi honum til æviloka; átti og ræktaði lands- frægt hestakyn. Söngurinn var Stebba í blóð borinn og snemma fór hann að syngja, hafði ágæta tenórrödd. Í miklu uppáhaldi hjá Stebba voru Sólsetursljóðin sem þeir sungu saman, Stefán Ís- landi, frændi okkar, og Guð- mundur Jónsson. Gekk það svo langt að hann ákvað að kenna mér lagið og æfingin fór fram í gamla skálanum í Brautarholti. Þá var ég níu ára og Stebbi á fimmtánda ári. Þetta gekk ekki nógu vel, ég var ekki nógu snöggur að koma inn á réttum stöðum og Stebbi varð hálfargur við mig. En er árin liðu tókst þetta betur. Stebbi fór í orgel- nám eftir fermingu og eignaðist þá orgel. Þá söng hann í kirkju- kór alla sína tíð. Stebbi var mik- ill trúmaður og var ekki í vafa um líf eftir dauðann. Hann varð- veitti sína barnatrú vel, sem móðir okkar blessuð lagði ríka áherslu á að kenna sonum sínum í bernsku. Snemma eignaðist Stebbi vörubíl og stundaði vöru- bílaakstur á sumrin með bú- skapnum. Árið 1978 eignaðist hann nýjan vörubíl sem lengi hafði verið draumur hans, al- vörubíl sem vinnufélagar hans sögðu að væri með „stóru vél- inni“. Margra ánægjustunda minn- ist ég í tengslum við karlakórinn svo og daglegra samskipta sem með árunum fóru vaxandi, ekki síst eftir að hann missti Mörtu sína. Hann var alltaf svo hress og kátur og upplífgandi að hitta hann. Stebbi var gæfumaður í lífinu, eignaðist góða konu og fjögur mannvænleg börn og afkomend- ur þeirra Mörtu, sem eru komnir á þriðja tug, veittu þeim ánægju og gleði sem hann kunni svo vel að meta. Elsku Haddi, Pétur, Sigga og Magga og fjölskyldur ykkar. Við Þóra og fjölskylda sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Minningin er björt. Megi góður Guð styrkja okkur öll. Kæri bróðir minn. Að lokum langar mig að þakka þér sam- fylgdina nú er leiðir skilur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Þinn bróðir, Sigurður. Glaður og reifur skyli gumna hver, uns sinn bíður bana. (Úr Hávamálum) Í dag er Stefán frá Víðidal kvaddur. Lagður til hinstu hvílu í Víðimýrarkirkjugarði. Glaður og reifur, mínar minningar um Stebba bróður eru einmitt þann- ig. Í Brautarholti, æskuheimili okkar, var líka oft glatt á hjalla. Allt frá því að ég, krakkinn, byrjaði að létta undir með full- orðna fólkinu var gáski og létt- leiki, stundum stríðni sem ein- kennir minningarnar frá æsku minni með Stebba bróður. Að loknum vinnudegi í sveitinni var stundum brugðið á leik í túninu heima, nýbúið að setja hey í bólstra (galta) og kjörið fyrir feluleik. En svo leið tíminn fljótt, er lit- ið er til baka, ég smápolli og Stebbi ungi töffarinn í blóma lífsins. Skemmtanir og böll voru í boði um helgar eins og vera bar og stundum langur vinnudagur í búskapnum, og þurfti því að hafa hraðann á að gera sig kláran til að fara á ball. Oft var ég búinn að bursta skóna hans Stebba til að flýta fyrir þegar svo bar undir og bíllinn beið á veginum. Þá var líka sett brilljantín í hárið og mér fannst hann flottur. Ekki fannst mér þó alltaf skemmtilegt að bursta og faldi mig stundum, en Stebbi hafði lag á litla bróður. Fyrr en varði var Stebbi búinn að stofna sitt eigið heimili með Mörtu eiginkonu sinni, blessuð sé minning hennar, fyrst í Laug- arbrekku og síðan í Víðidal. Oft kom ég til þeirra og þar naut ég mikilla og góðra veitinga og gleðistunda sem ég geymi í minningunni. Nú á seinni árum urðu heimsóknirnar strjálli en alltaf er við hittumst var stutt í hláturinn og slegið á létta strengi sem Stebba var svo eig- inlegt. Einnig minnist ég frá yngri árum þegar Stebbi hafði hafið vörubílaakstur að ég fékk að fara með honum í nokkra túra, bæði í vegavinnu og við annan flutning. Hafði gaman af að skoða tæki og tól og það sem fyrir augu bar og ræða um mál- efni líðandi stundar í gamni og alvöru. Og eftir að Stebbi hóf einnig búskap í Víðidal átti ég þangað margar heimsóknir og á stundum tók ég þátt í heyskap, sló með dráttarvél og þess hátt- ar. Og alltaf beið mín veisluborð í mat og drykk hjá þeim hjónum í Víðidal. Allar þessar stundir rifjast upp og margar fleiri þeg- ar leiðir skiljast og fyrir þær þakka ég af alhug. Nú hefur þú lagt upp í lang- ferðina sem allra bíður og stund- um þarf engan undirbúning, bara lagt af stað. Þannig fannst mér þú fara, veifaðir hendi er við kvöddumst á stéttinni fyrir örfá- um dögum. Ég veit að söngur ómar og ljós skín þar sem tekið hefur verið á móti þér í öðrum heimi. Öllum fjölskyldunum frá Víði- dal bið ég allrar blessunar og styrk frá almættinu. Við hjónin og okkar fjölskyldur sendum öll- um innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín, elsku bróðir, hvíl í friði. Bragi Haraldsson. Elsku afi minn, laugardaginn 21. maí stóðum við í eldhúsinu á Freyjugötunni og föðmuðumst. Þú stóðst andspænis mér, horfð- ir beint í augun á mér og sagðir: „Mikið óskaplega hlakka ég til að sjá þig næst.“ Ekki hvarflaði að mér að þetta væri í síðasta skipti sem þínar sterku og miklu hendur héldu þéttingsfast utan um mig. Þegar ég hugsa til baka er mér efst í huga þakklæti fyrir allar þær frábæru stundir sem við eyddum saman. Allar sam- verustundirnar á Hvoli, veislurn- ar, hestamótin, þorrablótin eða hvað sem það var, alltaf varst þú fyrstur á staðinn. Í kringum þig var ávallt mikil gleði, mikið sungið og mikið gaman. Að koma til ykkar ömmu í Víðidal var engu líkt. Oftar en ekki stóðst þú úti á stétt, brostir út að eyrum og tókst á móti okkur með faðm- lögum og kossum. Þú varst alltaf svo stoltur af þínu fólki og elskaðir þegar öll fjölskyldan kom saman. Sam- band okkar var mjög sterkt og er ég mjög þakklátur fyrir það. Sama hvar í heiminum ég bjó; alltaf varst þú með puttann á púlsinum og fylgdist með mér. Við töluðum mikið saman, hvort sem það var í síma, gegnum net- ið eða í bréfum. Minnisstæð eru mér síðustu jól hérna heima á Hvoli þar sem þú varst hjá okk- ur. Þú sast í stofunni og horfðir stoltur á Ingibjörgu litlu systur opna pakkana. Ingibjörg er mjög mikil afastelpa og sagði oft að ef hún flytti frá Hvoli myndi hún flytja til afa. Þó svo að ég hefði viljað hafa þig hjá mér miklu lengur veit ég að ykkur ömmu líður vel saman núna. Þó sorgin sé mikil þá kvöldsólin sest, með tárum en gleði er kveðjan jú best. Ég hugsa til baka, mikið var nú gaman, því elskuðum við öll að vera hér saman. Dagarnir líða, ég sakna þín svo, smá spjall um hrossin myndi gleðj’okkur tvo. Við hlógum og sungum, þú gladdir mitt hjarta, um ókomin ár lifir minning þín bjarta. Ég sakna þín og elska þig óendanlega mikið, elsku afi minn. Mikið óskaplega hlakka ég til að sjá þig næst. Þinn afadrengur, Oddur. Elsku afi minn, takk fyrir all- ar þær stundir sem við höfum átt saman, þær voru margar og munu lifa í minningunni. Það var yndisleg stund sem við áttum saman laugardaginn 21. júní sl. þegar ég útskrifaðist úr Háskól- anum. Mamma, pabbi og Aron komu suður til að fagna með mér og auðvitað óskaði ég þess að þú gætir verið með okkur. Þú ákvaðst að koma með sem leyni- gestur í óvæntri veislu sem þið og fjölskyldan á Hvoli hélduð mér. Þessi dagur er mér ógleym- anlegur og er þetta besta gjöf sem ég gat fengið frá þér, að hafa þig með á þessum stóra degi. Þú hafðir alltaf áhuga á því sem ég var að gera, spurðir mig út í námið og hvattir mig til dáða að verða skólastjóri í framtíðinni því þú taldir mig hafa alla eig- inleika til þess. Ég mun hafa þetta bak við eyrað, afi minn, og Stefán Gunnar Haraldsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Takk fyrir allar stund- irnar okkar saman. Þú varst besti afi í öllum heim- inum. Ég sakna þín. Þín afastelpa, Ingibjörg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.