Morgunblaðið - 08.07.2014, Síða 15

Morgunblaðið - 08.07.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Lauf Fjölnota skeljastóll Sturla Már Jónsson Húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði LAUF Guðni Einarsson gudni@mbl.is Meirihluti bæjarráðs Reykjanesbæj- ar hafnaði því að Framsóknarflokk- urinn fengi ólaunaða áheyrnarfull- trúa í nefndum bæjarins. Tillaga bæjarfulltrúa Framsóknar um það var rædd og afgreidd á fundi bæjar- ráðs 3. júlí. Samþykkt var að bæjar- fulltrúi Framsóknar yrði launaður áheyrnarfulltrúi í bæjarráði. Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði fyrst fram tillögu um launaða áheyrnar- fulltrúa Framsóknarflokksins í nefndum bæjarins. Bæjarráð hafn- aði því einróma með þeim rökum að þar eð fullnaðarafgreiðsla mála færi fram í bæjarstjórn, en ekki í nefnd- um, væri ekki talið rétt að fjölga fulltrúum með tilheyrandi kostnaði. Þá gerðu sjálfstæðismenn tillögu um að bæjarráð heimilaði Framsókn að hafa ólaunaða áheyrnarfulltrúa í nefndum. Tillagan var felld með þremur atkvæðum meirihlutans. Kristinn gerði bókun og sagði m.a. að í stefnuskrám allra framboða við síðustu kosningar hefðu komið fram áherslur á aukið lýðræði og gagnsæi. „Undirritaður telur að það yrði í fullu samræmi við þær áherslur að veita Framsókn rétt á áheyrnarfull- trúa í sex fastanefndum sveitar- félagsins. Nú kýs nýr meirihluti að ganga á bak kosningaloforða fram- boðanna sem hann mynda, um aukið íbúalýðræði, opnari og gagnsærri stjórnsýslu og aukin áhrif íbúa á nærumhverfi sitt,“ sagði m.a. í bók- uninni. Þá vitnaði hann til þess að heimilt væri samkvæmt sveitar- stjórnarlögum og samþykktum Reykjanesbæjar að hafa áheyrnar- fulltrúa, auk þess sem fordæmi fyrir slíku væri að finna í öllum stærri sveitarfélögum. Heimild en ekki skylda Gunnar Þórarinsson, varaformað- ur bæjarráðs Reykjanesbæjar, sagði að bæjarráðið hefði samþykkt ein- róma að fulltrúi Framsóknarflokks- ins yrði boðaður á fundi bæjarráðs og að honum yrði greitt fyrir fund- arsetuna þar sem áheyrnarfulltrúa. Gunnar sagði að þótt sveitar- stjórnarlög og samþykktir bæjarins heimiluðu áheyrnarfulltrúa væri það ekki skylda. Hann sagði að fordæmi væru fyrir hvoru tveggja, að áheyrnarfulltrúar væru í nefndum eða ekki. „Það var meginkrafa þeirra að fá launaða nefndarsetu sem áheyrnar- fulltrúar,“ sagði Gunnar. Hann benti á að Kristinn sæti í bæjarstjórn og þar væru fundargerðir nefnda bæj- arins lagðar fram og teknar fullnað- arákvarðanir um tillögur hinna ýmsu nefnda. „Þar hefur hann tækifæri, eins og allir bæjarfulltrúar, til að koma sínum sjónarmiðum á fram- færi og bera þau undir atkvæða- greiðslu ef því er að skipta.“ Hvað varðar gagnsæja og opna stjórnsýslu sagði Gunnar að þar væri fyrst og fremst verið að hugsa um að íbúarnir hefðu greiðan aðgang að upplýsingum. Bæjarfulltrúar hefðu fullan aðgang að öllum upplýsingum. Morgunblaðið/ÞÖK Reykjanesbær Framsóknarflokkurinn fékk 8% fylgi og einn bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjanesbæ í vor. Fær áheyrnarfull- trúa í bæjarráði  Framsókn í Reykjanesbæ vildi meira Framkvæmdir er nú í fullum gangi við byggingu varaaflsstöðvar Lands- nets í Bolungarvík. Dísilvélunum sex sem þar verða til taks var á dögunum komið fyrir í húsinu hvar þær verða settar upp og tengdar í sumar. Hver vél getur framleitt 1,8 MW og verður framleiðslugeta stöðvarinnar í Bol- ungarvík því tæplega 11 MW þegar hún verður komin í gagnið í nóv- ember næstkomandi. Með þessu á að koma í veg fyrir að Vestfirðir fari úr sambandi og þar verði altækt rafmagnsleysi, eins og gerðist í grimmu vetraráhlaupi fyrir um hálfu öðru ári. Jafnhliða byggingu varaaflsstöðvarinnar er svæðiskerfið á Vestfjörðum styrkt. Heildar- kostnaður við varaaflsstöðina er hálf- ur annar milljarður króna. „Þetta er mikilvægt verkefni því að Vestfirðir hafa verið sá landshluti þar sem afhendingaröryggi orku hefur verið hvað ótryggast,“ segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets. sbs@mbl.is Varaaflsstöð í gagnið í haust  Framkvæmt og fjárfest í Bolungarvík  1,8 MW og 1,5 milljarðar kr. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vestfirðir Öryggi í orkumálum eykst með Bolungarvíkurstöð. Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverf- is-, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, sem er og starfandi ut- anríkisráðherra, átti í gær fund með Takao Makino, aðstoðarutan- ríkisráðherra Japans. Ræddu ráð- herrarnir náin tengsl ríkjanna og með hvaða hætti mætti efla þau enn frekar. Í því sambandi voru rædd við- skipti ríkjanna og ósk Íslands um að gera samninga við Japan um við- skiptamálefni. Á dagskrá fundarins voru einnig loftslagsmál og samstarf í jarðhitamálum auk þess sem ráðherr- arnir ræddu sjávarútvegsmál. Makino lýsti sérstökum áhuga á auknu samstarfi landanna í jarðhita- málum, en jarðhiti er einn þeirra kosta í orkumálum sem Japan horfir í auknum mæli til. Voru ráðherrarnir sammála um að þau samskipti sem átt hefðu sér stað undanfarna mánuði á þessu sviði lofuðu góðu um vaxandi samstarf ríkjanna á þessu sviði, segir í tilkynningu ráðuneytisins. Einnig hitti Makino starfandi ráðu- neytisstjóra utanríkisráðuneytisins, Jón Egil Egilsson, en þeir ræddu m.a. tvíhliða samskipti ríkjanna, m.a. möguleika á samningum á sviði frí- verslunar, tvísköttunar og loftferða. Auk þess var fjallað um samstarf ríkjanna á norðurslóðum og á al- þjóðavettvangi almennt. Stuttlega var rætt um undirbúning heimsóknar Gunnars Braga Sveinssonar til Jap- ans sem áætluð er síðar á árinu. Nýr sendiherra Japans, Mitsuko Shino, kemur til starfa í Reykjavík í byrjun ágúst næstkomandi. Ræddu aukin sam- skipti við Japan  Ósk um viðskiptasamninga í Japan Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Fundur Sigurður Ingi og Takao Makini ásamt embættismönnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.