Morgunblaðið - 08.07.2014, Síða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2014
aldrei að vita hvað gerist.
Eftir að amma lést leit ég
reglulega út um eldhúsgluggann
til að athuga hvar ljós væri í
glugga hjá þér. Oftast var ljós í
eldhúsinu og þú við eldhúsborðið
eitthvað að bralla. Ég var alltaf
öruggari með að vita hvað þú
værir að gera og einnig má telja
að þetta hafi líka verið örlítil for-
vitni. Ég mun halda áfram að líta
reglulega yfir og athuga hver
staðan er hinum megin eins og
ég orðaði það. Þó svo að þið
amma séuð nú komin í annan
heim get ég lofað því að það
verður áfram líf og fjör í Víðidal
og ég veit að þið munuð halda
áfram að líta eftir okkur.
Þótt höggið sé mikið og þú
sért farinn frá okkur án nokkurs
aðdraganda er ég mjög þakklát
fyrir að þú skyldir fá að fara eins
og þú vildir sjálfur; heima, í hey-
skapnum að garða á Deutzinum
þínum með Aron og pabba þér
við hlið.
Ég kveð þig í bili, elsku afi
minn, og þakka fyrir allar stund-
irnar sem við áttum saman og
vísurnar sem þú hefur ort til
okkar, þær munu varðveitast vel.
Ég bið kærlega að heilsa ömmu,
þú knúsar hana frá mér, eigið
góðar stundir saman.
Þín
Helga Sjöfn.
Elskulegur afi minn. Nú er
samleið okkar á þessari jörð á
enda og er ég mjög þakklátur
fyrir þann tíma sem við fengum
saman. Þú varst góður vinur og
fyrirmynd mín í einu og öllu. Allt
frá því að ég var smápolli var ég
mikið með þér í búskapnum og
lærði flestalla þá búskaparhætti
sem ég kann af þér og munu þeir
nýtast mér vel í náinni framtíð.
Við stóðum ævinlega saman í
öllu og gerðum fram á síðasta
dag. Ekki hefur alltaf verið öf-
undsvert fyrir pabba að þurfa að
eiga við okkur báða í búskapnum
því að við gátum verið þrjóskir
og höfðum okkar skoðun á hlut-
unum. Þegar ég hugsa til baka
er það fyrsta sem kemur í hug-
ann söngurinn og gleðin sem ein-
kenndi þig og er það mér mikill
heiður að hafa náð nokkrum ár-
um með þér í Karlakórnum
Heimi. Ég þakka fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig og mun
halda upp á allar vísurnar og
heilræðin sem þú gafst mér. Ég
er viss um að hvar sem þú ert
ertu á hestbaki á honum Mósa
þínum og syngjandi í góðra vina
hópi.
Farðu í friði, farðu hljótt
færðu kveðju mína.
Þig drottinn leiði dag sem nótt
í dýrðarljóma sína.
Þinn
Aron.
Þá ertu farinn elsku afi minn.
Ég bjóst ekki við því að þurfa að
kveðja þig alveg strax og er það
því erfiðara en ella að sitja hérna
og skrifa minningarorð til þín.
Þú varst svo mikill vinur sem
hægt var að spjalla við um allt á
milli himins og jarðar. Aldrei
vottaði fyrir dómhörku heldur
varstu umfram allt umburðar-
lyndur og komst fram við alla
sem jafningja. Þú varst alltaf svo
hlýr og tilfinningin sem fylgdi
því að koma og vera hjá þér í
Víðidal er ólýsanleg. Alltaf
stóðstu á tröppunum með út-
breiddan faðminn þegar rennt
var í hlað. Ég er svo ótrúlega
þakklát fyrir öll árin sem ég fékk
að hafa þig hjá mér og allar góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Þegar ég hugsa til baka geri ég
mér grein fyrir því að allar
minningarnar eru góðar minn-
ingar, hvergi hefur fallið á
skuggi. Sérstaklega er ég glöð
yfir því að hafa fengið að vera
hjá ykkur ömmu heilu sumrin á
unglingsárunum. Það var alveg
sérstakt andrúmsloft á heim-
ilinu. Gífurlegur hressleiki og fé-
lagslyndi hefur alla tíð einkennt
þig og hlátur og gleði sem smita
út frá sér. Það er sjaldan jafn-
gaman og þegar við afkomendur
ykkar ömmu komum saman, þá
er heldur betur hlegið, sungið og
spjallað. Við frændsystkinin eru
gífurlega náin og auðvitað er það
ykkur að þakka. Það hefur alla
tíð verið haldið þétt um hópinn
og er vináttan, virðingin og um-
hyggjan sem ríkir okkar á milli
bein afleiðing þess. Síðasta árið
var auðvitað mjög frábrugðið
þeim sem á undan voru. Þú tókst
því að verða einn í kotinu með
mikilli ró. Þú lærðir að elda og
búa einn en varst samt duglegur
við að sækja þér félagsskap. Þú
varst vinmargur og áttir því létt
með að skella þér í heimsóknir
þegar þannig stóð á. Það er
huggun harmi gegn að hugsa til
þess að nú eruð þið amma sam-
einuð á ný og haldið hönd í hönd
saman út í eilífðina.
Takk fyrir allt og allt elsku
afi. Ég sakna þín.
Marta Rut Ólafsdóttir.
Kæri Stefán föðurbróðir
minn. Ég vil þakka fyrir alla
hlýjuna og góðvildina alla tíð.
Mig langar að kveðja þig með
þessum sígilda og fallega sálmi:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Hvíldu í friði, kæri frændi.
Elsku frændfólk, Haddi, Pétur,
Sigga, Magga og fjölskyldur.
Minningin um yndislegan föður,
tengdaföður, afa og langafa mun
styrkja ykkur í sorginni.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Ég vil minnast hér með
nokkrum orðum hjónanna frá
Víðidal, Stefáns Gunnars Har-
aldssonar, sem lést 24. júní síð-
astliðinn, og Mörtu Fanneyjar
Svavarsdóttur, sem lést á síðasta
ári. Í Víðidal hef ég komið svo
lengi sem ég man enda ríkti mik-
il vinátta á milli Mörtu frænku
minnar og móður minnar. Víði-
dalur iðaði af vinnusemi, gleði,
gestrisni og tónlist. Þangað var
gott að koma og tóku hjónin mér
alltaf fagnandi og af kærleika.
Eftir að fjölskylda mín flutti til
Akureyrar dvaldi ég í Skagafirði
flest skólafrí og kom það þá oft í
hlut þeirra Stebba og Mörtu að
keyra mig í rútuna eða sækja
mig í Varmahlíð.
Á unglingsárunum þegar
tjaldútilegurnar tóku við var
gott að koma í Víðidal og fá að
strauja dressið og njóta samveru
við heimilisfólkið. Síðar mætti ég
með Tedda minn og börnin í ára-
raðir þar sem okkur var fagnað
og við umvafin. Þar höfum við
átt margar gleðistundir í gegn-
um tíðina sem við erum þakklát
fyrir. Auk þess var ómetanlegt
að fá sent jólatré úr firðinum
fagra árum saman.
Ég vil þakka Stebba og Mörtu
fyrir kærleika og vináttu sem
þau sýndu mér og mínum alla
tíð.
Elsku Haddi, Pétur, Sigga,
Magga og fjölskyldur. Ég og
fjölskylda mín sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hjónanna frá
Víðidal.
Helga Pálmadóttir.
Í dag fylgjum við Stefáni föð-
urbróður mínum hinsta spölinn.
Ég minnist Stebba frænda
míns með virðingu. Hann var
maður sem bar höfuðið hátt, var
hreinskiptinn, hjartahlýr og
glaðlyndur. Það var alltaf gaman
að hitta Stebba, spjalla, gantast
og hlæja. Stebbi var söngelskur
og tónelskur og hafði unun af því
að spila á píanó og syngja. Hann
var einnig hagmæltur og til eru
fjölmörg ljóð eftir hann, mörg
ort til ástvina hans. Hann var fé-
lagslyndur og duglegur allt til
hinstu stundar að sækja
skemmtanir heima og að heim-
an.
Allt frá fyrstu stundu til hinn-
ar síðustu, í næstum átta ára-
tugi, ræktuðu þeir með sér náið
bræðrasamband hann og faðir
minn, tæplega sex ára aldurs-
munur, Stebbi stóri bróðirinn
sem alltaf var til staðar. Sam-
band þeirra einkenndist af
trausti og kærleika.
Nú eru þau bæði horfin á
braut, sómahjónin Marta og
Stebbi í Víðidal, en hópurinn
þeirra mun halda uppi heiðri
þeirra og minningu.
Elsku Stebbi. Þú varst föður
mínum traustur og kærleiksrík-
ur bróðir. Það var gott að eiga
þig að. Hjartans þakkir fyrir allt.
Hafðu Guðs blessun. Elsku
frændsystkini mín Magga,
Sigga, Pétur, Haddi og fjölskyld-
an öll, hugur okkar Óla er hjá
ykkur.
Helga Sigurðardóttir.
Í dag kveðja vörubílstjórar í
Skagafirði einn af félögum sínum
og samstarfsmann um áratuga
skeið, Stefán Haraldsson í Víði-
dal. Stefán gekk til liðs við Vöru-
bílstjórafélag Skagafjarðar árið
1960 og starfaði þar á eigin vöru-
bifreið í hátt í fjóra áratugi, mest
við vegagerð og flutninga af
ýmsu tagi. Hann byrjaði með
litla 5-6 tonna bensínvörubíla
eins og flestir á þessum tíma en
fljótt stækkuðu bílarnir hjá hon-
um og sá síðasti sem hann keypti
var stærsta gerð af Scania, sem
fékk nafnið Stóri Super. Á þess-
um tímum voru vinnuflokkar að
störfum í vegagerð og haldið var
til í skúrum á vinnusvæðinu.
Stebbi var skemmtilegur vinnu-
félagi og gott að vera með hon-
um í þessum úthöldum. Oft var
slegið á létta strengi á kvöldin,
sagðar gamlar sögur af svaðil-
förum vörubílstjóra í hópnum
eða einhverju öðru og mikið
hlegið. Einstaka sinnum kom
fyrir að teknar voru rispur með
stóru R, til að hreinsa hugann og
létta lundina, og þá var oft sung-
ið mikið og munaði þar um söng-
manninn Stebba í Víðidal. Nú
þegar leiðir skilja og þú, Stebbi
minn, hefur lagt í þá ferð sem
allra bíður, viljum við þakka þér
samstarfið og samveruna í gegn-
um tíðina. Við fráfall góðs vinar
lítur maður gjarnan um öxl og
hugsar til baka. Það hefur verið
gott að eiga þig að vini og sam-
starfsmanni bæði í vinnu og í
Karlakórnum Heimi, en þar átt-
um við samleið í 15 ár af þeim 60
sem þú varðir í þeim ágæta
félagsskap. Minningin um góðan
samferðamann mun lifa í hjört-
um okkar.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Kæru vinir, Haddi, Pétur,
Sigga, Magga og fjölskyldur.
Við Sigurbjörg sendum inni-
legar samúðarkveðjur til ykkar
allra.
Jón Sigurðsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, tengdadóttir,
systir, móðir, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR ELÍSABET JÓNSDÓTTIR
frá Litlu-Reykjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
hinn 3. júlí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
miðvikudaginn 9. júlí kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorvaldur Þórarinsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR GUÐNASON,
Herjólfsgötu 15,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
aðfaranótt sunnudagsins 6. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá Landakirkju
laugardaginn 12. júlí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast Sigurðar er bent á Landssamtökin
Þroskahjálp.
Lilja Ársælsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir, Gunnar Einarsson,
Lovísa Sigurðardóttir, Guðmundur Sv. Hermannsson,
Guðni Sigurðsson, Olga Sædís Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
EÐVAR Ó. ÓLAFSSON,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
laugardaginn 5. júlí.
Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju mánu-
daginn 14. júlí og hefst athöfnin kl. 15.00.
Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Ólöf Eva Eðvarsdóttir, Trausti Jóhannsson,
Hrund Eðvarsdóttir, Þorsteinn G. Aðalsteinsson,
Gerður Eðvarsdóttir, Gísli Halldór Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR KRISTINSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
sunnudaginn 6. júlí.
Ásta Úlfarsdóttir, Kristinn Þórir Sigurðsson,
Þórunn Úlfarsdóttir, Haraldur Þór Ólason,
Ásgeir Úlfarsson, Ína Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN GUNNLAUGUR
BERGJÓNSSON (DIDDI)
trésmiður,
Dalsmynni, Dalbraut 6, Búðardal,
andaðist föstudaginn 4. júlí á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Silfurtúni.
Útförin verður haldin í kyrrþey en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Minningarsjóð Silfurtúns.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki Silfurtúns fyrir góða umönnun
og mikla alúð.
Guðbjörg Margrét Jónsdóttir (Bigga),
Magnína Guðbjörg Kristjánsdóttir, Sigurður Ingvason,
Ásthildur Kristjánsdóttir, Jóhann Þór Baldursson,
Jónheiður Berglind Kristjánsdóttir, Pétur Ó. Pétursson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN INGVI SÆMUNDSSON
frá Borðeyrarbæ,
Kveldúlfsgötu 24,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju
í Hrútafirði fimmtudaginn 10. júlí kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Sigurrós Jóhanna Sigurðardóttir,
Sæmundur Ingvason, Valdís Vilhjálmsdóttir,
Sigurður Ingvason, Magnína Kristjánsdóttir,
Guðný Ingvadóttir, Gunnar Gunnarsson,
Eiríkur Ingvason, Elísabet H. Haraldsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERLA B. VIGNISDÓTTIR
félagsliði,
lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn
30. júní.
Jónas Þór Arthúrsson,
Ester Sigurðardóttir,
Jónína Kristín Arnarsdóttir,
Pétur Ragnar Arnarsson,
tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
✝
Sonur minn og bróðir okkar,
EIRÍKUR BECK STEINGRÍMSSON,
Hamraborg 16,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum, Hringbraut, sunnu-
daginn 6. júlí.
Ingibjörg Beck,
Bjarni Steingrímsson,
Páll Steingrímsson.