Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.07.2014, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.7. 2014
Mér finnst þessi sumarrigning ekkert sérstök
en ætla ekki að fara til útlanda í ár.
Laufey Bjarnadóttir, 26 ára, og Jóhann Helgi.
Mér líst ágætlega á veðrið og það styttist óð-
um í að við fáum fyrsta sumardaginn og því
engin ástæða að vera að fara til útlanda.
Ólafur Örn Karlsson, 47 ára.
Ég er að fara til Frakklands en það var skipu-
lagt fyrir löngu og er því ekki að flýja rign-
inguna.
Erna Guðmundsdóttir, 56 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Nei, ég ætla ekki að fara til útlanda til að
losna við rigninguna en hún er erfið, rign-
ingin, en ég er vön þessu veðri og læt mig
hafa það.
Kristín Bjarnadóttir, 93 ára.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SPURNING DAGSINS ÆTLAR ÞÚ AÐ FLÝJA RIGNINGUNA OG FARA TIL ÚTLANDA Á NÆSTUNNI?
Í Vestmannaeyjum hafa
hjónin Berglind og Sig-
urður opnað nýjan veit-
ingastað sem býður upp á
einstaklega hollan mat sem
er unninn frá grunni upp úr
matreiðslubókum þeirra.
Matur 28
Í BLAÐINU
Ætlarðu að versla í Costco ef fyrirtækið
opnar verslun hér á landi?
Auðvitað mun ég gera mér ferð í Costco ef fyrirtækið
opnar verslun hérlendis, en hvort ég versla í Costco er
svo aftur annað mál en að sjálfsögðu ef verslunin stenst
mínar væntingar.
Þarf áfengi í verslanir?
ÁTVR hefur einkaleyfi til að selja áfengi í smásölu á Ís-
landi, það er að mínu mati tímaskekkja. Og já, auðvitað
þarf áfengi í verslanir til að bæta þjónustu og auka við-
skiptafrelsi.
Óttastu sterabætt kjöt frá Bandaríkjunum?
Nei, það geri ég ekki. Ég treysti neytendum til að velja
og hafna. Sjálfur er ég hins vegar spenntari fyrir íslensk-
um landbúnaðarafurðum en það er auðvitað bara mín
skoðun.
Ætti að banna nammibarinn í nafni
hollustu?
Nei, er ekki fínt að geta keypt grænmeti og aðra hollustu
með namminu í verslunum?
Hver er uppáhaldsvíntegundin þín
og af hverju?
Sjálfur drekk ég ekki áfengi og hef aldrei gert. Ég er því
er algjörlega ófær um að dæma víntegundir út frá
bragði.
Hvar er best að vera?
Heima með fjölskyldunni.
Rolling Stones eða Bítlarnir?
Bæði betra, erfitt að gera upp á milli þessara ólíku en
jafnframt frábæru hljómsveita.
Evra, króna eða dollari?
Króna og dollari.
Morgunblaðið/Þórður
VILHJÁLMUR ÁRNASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
SITUR FYRIR SVÖRUM
Drekkur ekki
en vill vín
í verslanir
Forsíðumyndina tók
Ómar Óskarsson
Tískuljósmyndarinn Hörður
Ingason flutti frá Íslandi til Danmerkur
fyrir að verða sjö árum þar sem hann
vinnur við tískubransann. Í dag er
hann að vinna að myndaþætti
fyrir tískutímaritið Costume en
það er eitt þriggja stóru tísku-
blaða Danmerkur. Tíska 36
Ef þú ert tryggður, færðu það bætt? Mbl.is greindi frá
tveimur einstaklingum sem lentu í því að brotist var
inn til þeirra og stolið öllu steini léttara. Ekki fengu þau
tjónið þó bætt þrátt fyrir að vera tryggð. Þjóðmál 4
Rafmagnsrusl sem
kemur frá tölvum og öðr-
um tæknibúnaði hefur
aukist töluvert en það fór
úr 1.026 tonnum í 2.475
tonn frá 2009 til 2012 en
það er flutt frá Íslandi til
Evrópu þar sem því er
fargað. Tækni 32
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leggur
til að neytendur hafi um það val hvar þeir kaupi áfengi sitt.
Tillagan kemur fram á sama tíma og bandaríska mat-
vöruverslunin Costco hyggst bjóða íslenskum neytendum
erlendar vörur á góðu verði, m.a. kjöt og kannski vín.
Litið er inn á nýja skrifstofu Sig-
rúnar Lilju Guðjónsdóttur,
eiganda vörumerkisins Gyðja,
sem er einstaklega smekklega
innréttuð. Henni þykir mikilvægt
að hafa fallegt í kringum sig í
vinnunni, sérstaklega þar sem
hún eyðir miklum tíma þar.
Innlit 26