Morgunblaðið - 22.08.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
Styrmir Gunnarsson var á sinnivakt í gær og vitnar til fróð-
leiks úr The Guardian:
Í 3 mánuði í röðhefur aukning í
smásölu í Bretlandi
farið minnkandi.
Það hefur ekki
gerzt frá árinu
2009.
Þetta gerist þráttfyrir að stór-
markaðir hafi lækk-
að verð í harðri bar-
áttu um
viðskiptavini. Tölur
sýna að Bretar eyða
1,3% minna í mat en fyrir ári.
Umsvif einkafyrirtækja á evru-svæðinu fara minnkandi, en
undantekningin er Þýzkaland.
Frakkland er í stöðnun. Atvinnu-
ástand í Frakklandi fer versnandi.
Gullverð fer lækkandi.
Nýjar tölur frá Kína benda til aðefnahagskerfið þar sé að
hiksta.
Ofangreint er byggt á brezkablaðinu Guardian í morgun.
Dettur einhverjum í hug að Ís-land eitt muni blómstra??“
Því má svara eins og meistariMegas þegar hann var spurður
hvort hann hefði vænst þeirra verð-
launa sem ráðherra hafði þá nýver-
ið rétt honum: „Það er alltaf von,“
sagði söngvaskáldið.
Þar með lauk viðtalinu.
Styrmir
Gunnarsson
Við höldum í hana
STAKSTEINAR
Megas
Veður víða um heim 21.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 heiðskírt
Bolungarvík 12 heiðskírt
Akureyri 12 heiðskírt
Nuuk 10 skúrir
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Stokkhólmur 17 skýjað
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 13 skúrir
Glasgow 13 skúrir
London 17 skýjað
París 18 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 17 léttskýjað
Vín 20 léttskýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 22 skýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 21 skúrir
Montreal 22 alskýjað
New York 26 léttskýjað
Chicago 24 alskýjað
Orlando 33 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:41 21:21
ÍSAFJÖRÐUR 5:35 21:37
SIGLUFJÖRÐUR 5:18 21:20
DJÚPIVOGUR 5:08 20:53
Íbúar nýrra sveitarfélaga sem orðið
hafa til á síðustu árum með samein-
ingu eru ósammála þeirri fullyrð-
ingu að þjónusta sveitarfélagsins
hafi almennt batnað eftir að hið sam-
einaða sveitarfélag varð til. Ekki er
heldur að sjá á skoðanakönnun sem
gerð hefur verið að sameiningin hafi
aukið fólki bjartsýni á framtíð sam-
félagsins. Þá finnst íbúunum ekki að
sameiningin hafi aukið samheldni
meðal íbúa sveitarfélagsins.
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi vinna að skýrslu um samein-
ingu sveitarfélaga þar. Gerð var
skoðanakönnun meðal íbúa nokk-
urra sveitarfélaga sem orðið hafa til
við sameiningar á síðustu árum og
spurt um áhrif sameiningar á gæði
þjónustu við íbúa. Niðurstaðan er
heldur neikvæð, sérstaklega hjá íbú-
um úr fámennari sveitarfélögunum.
Aðeins annað yfirbragð var á
svörum þátttakenda þegar þeir voru
spurðir um einstaka þjónustuliði.
Þeir töldu að þjónustan hefði í fæst-
um tilvikum versnað. Það á þó við
um refa- og minkaeyðingu, félags-
heimili, áhaldahús, félagslegar leigu-
íbúðir og afrétta- og fjallskilamál.
Þjónustan er hins vegar talin hafa
batnað við liðveislu, slökkvilið,
gámastöðvar, málefni fatlaðra og fé-
lagsstarf aldraðra. helgi@mbl.is
Telja þjónustuna ekki hafa batnað
Samheldni sameinaðra sveitarfélaga
á Vesturlandi ekki talin hafa aukist
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Nokkur sveitarfélög
sameinuðust í Borgarbyggð.
Íbúar í Úlfarsárdal og Umhverfis- og
skipulagsráð Reykjavíkurborgar
hafa deilt um staðsetningu fjar-
skiptaturns í Úlfarsfelli. Gert var ráð
fyrir í deiliskipulagi að svæðið þar
sem fjarskiptaturninn er staðsettur
yrði svokallað „óbyggt svæði“.
Byggingarleyfið úrskurðað ógilt
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála úrskurðaði bygging-
arleyfið ógilt, þar sem ekki var óskað
meðmæla Skipulagsstofnunar fyrir
leyfisveitingunni. Var þá krafist þess
að fjarskiptaturninn yrði fjarlægður
en Reykjavíkurborg varð ekki við
þeirri bón og vísaði Umhverfis- og
skipulagsráð til þess að byggingafull-
trúa Reykjavíkurborgar væri heimilt
að fjarlægja turninn en bæri þó ekki
skylda til þess, þótt byggingarleyfið
hafi verið fellt úr gildi. Þá var einnig
vísað til þess að sett var ný reglugerð
eftir byggingu fjarskiptaturnsins
sem heimilar minniháttar fram-
kvæmdir á svæðum sem eru skil-
greind í deiliskipulögum sem
„óbyggð svæði“.
Málið bíður nú efnisúrlausnar hjá
úrskurðarnefnd Umhverfis- og auð-
lindamála.
Deila um
mannvirki
í Úlfarsfelli
Íbúum í Úlfársdal
finnst brotið á sér