Morgunblaðið - 22.08.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
STUTTAR FRÉTTIR
● Hugbúnaðarfyrirtækið Vettvangur
og vefstofan Sendiráðið hafa samein-
ast undir merkjum Sendiráðsins. Alls
verða starfsmenn Sendiráðsins þá sjö
talsins og er fyrirtækið í eigu starfs-
manna.
Í fréttatilkynningu segir að með sam-
einingunni verði til eitt öflugasta fyrir-
tæki landsins á sviði vefhönnunar og
opinna hugbúnaðarlausna.
Skrifstofur Sendiráðsins eru á tólftu
hæð í Turninum í Kópavogi. Fram-
kvæmdastjóri Sendiráðsins er Rósa
Stefánsdóttir, en hún er jafnframt for-
maður Samtaka vefiðnaðarins (SVEF).
Sendiráðið var stofnað síðasta haust
af reynslumiklu fólki í vefhönnun og
markaðssetningu.
Veffyrirtæki sameinast
● Farþegum um Keflavíkurflugvöll
gæti fjölgað um 14,3% á milli ára á
tímabilinu 26. október 2014 til 25. mars
á næsta ári, samkvæmt gögnum Isavia
yfir úthlutuð stæði á flugvellinum.
Þetta kemur fram í umfjöllun
greiningardeildar Íslandsbanka.
Þar segir að ef litið sé á aukninguna
hlutfallslega á milli mánaða komi í ljóst
að hún verði mest í nóvember, um
21,5%. Yfir aðra mánuði nemi aukn-
ingin hins vegar 11–13%.
Flugfarþegum gæti
fjölgað um 14,3%
Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands-
bankans, í afkomutilkynningu.
Arðsemi eigin fjár eftir skatta
lækkaði lítillega á milli ára og nam
12,8%. Hreinar vaxtatekjur bankans
lækkuðu um tæplega tvo milljarða
króna og voru samtals 15,2 milljarðar
á fyrri helmingi ársins.
Eigið fé bankans nam í lok júní 236
milljörðum króna og hefur það lækk-
að um 2,3% frá áramótum. Sú lækkun
skýrist af arðgreiðslu til hluthafa –
ríkið á um 98% hlut – að fjárhæð tæp-
Hagnaður Landsbankans á fyrstu
sex mánuðum ársins nam 14,9 millj-
örðum króna samanborið við 15,5
milljarða hagnað á sama tíma fyrir
ári.
Á öðrum ársfjórðungi var bókfærð-
ur 4,9 milljarða hagnaður vegna sölu
Landsbankans á 9,9% eignarhlut í
Framtakssjóði Íslands og öllum hlut
bankans í IEI slhf.
Vaxtatekjur bankans lækkuðu um
10% frá fyrra ári og hreinar þjónustu-
tekjur stóðu í stað. Rekstrarkostnað-
ur hélst nánast óbreyttur að raungildi
milli tímabilanna þegar tekið hefur
verið tillit til hlutabréfatengdra
greiðslna til starfsmanna á fyrra ári.
„Rekstrarafkoma og fjárhagsstaða
Landsbankans er með ágætum. Virð-
isaukning eigna hefur staðið undir
óvenjulega stórum hluta tekna á
árinu, en á móti er vaxtamunur tölu-
vert lægri en á fyrra ári. Samanlagt
hefur frá stofnun bankans orðið virð-
isrýrnun á útlánum hans,“ segir
lega 20 milljarða króna á fyrsta árs-
fjórðungi.
Kostnaðarhlutfall fyrstu sex mán-
uði ársins var 54,9%, en það var
42,1% á sama tíma í fyrra. Rekstr-
arkostnaður bankans hefur lítið
breyst, en lægri tekjur á fyrsta árs-
fjórðungi 2014 skýra hærra kostnað-
arhlutfall á fyrri helmingi ársins, seg-
ir í tilkynningu bankans.
Heildarvanskil hjá fyrirtækjum og
heimilum stóðu í 4,0% í lok júní 2014,
en voru 5,3% í lok árs 2013.
Afkoma Hreinar vaxtatekjur Landsbankans lækkuðu um 1,8 milljarða á
fyrri helmingi ársins og voru samtals 15,2 milljarðar króna á þeim tíma.
Landsbankinn hagnast
um 14,9 milljarða króna
Virðisaukning
eigna skýrir stóran
hlut hagnaðar
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Kauphöll Íslands hefur heimilað Jóni
Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra
FL Group, að sitja í stjórn N1 sem
skráð er á markað. Hann tók sæti í
stjórn þess á miðvikudaginn. Jón dró
framboð sitt til stjórnarsetu í N1 til
baka í lok mars eftir að Kauphöllin
gerði alvarlegar athugasemdir við
hæfi hans til að sitja í stjórn skráðs fé-
lags í ljósi þess að hún hafði áminnt
FL Group/Stoðir á þeim tíma sem
Jón var forstjóri félagsins. Hann vildi
ekki tjá sig um málið þegar eftir því
var leitað.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að Kauphöllin hafi vísað til
þess að mikilvægt væri að stjórnend-
ur ættu ekki feril að baki sem gæti
stefnt í hættu orðstír félagsins og
dregið úr trausti á markaðnum.
Verklag miðast við fimm ár
Páll Harðarson, forstjóri Kauphall-
arinnar, segir að verklag Kauphallar-
innar miðist við að þegar fimm ár séu
liðin frá þeim atburðum sem urðu til-
efni til athugasemda geti viðkomandi
farið fram á endurmat. Jón hafi óskað
eftir því þegar tímamörkin voru liðin
og þetta sé niðurstaðan.
„Endurmatið fór fram með samtöl-
um við Jón og að þeim loknum skrif-
aði hann okkur bréf. Okkur fannst í
ljósi þessara samtala og yfirlýsinga
Jóns ekki ástæða til að gera athuga-
semdir við hæfi hans,“ segir Páll í
samtali við Morgunblaðið. Aðspurður
hvort margir hafi farið á sama lista og
Jón sagðist Páll ekki geta tjáð sig um
það.
Heimildir herma að Jón hafi ekki
verið upplýstur um að hann væri á
listanum fyrr en hann hugðist taka
sæti í stjórn N1. „Það skýtur skökku
við,“ sagði Jón í opnu bréfi í mars, „að
kauphöllin ætli að leggja til grund-
vallar í afgreiðslu sinna mála að það
sé réttlætanlegt að áminning kaup-
hallarinnar sem er orðin nánast 5 ára
gömul, og í tveimur tilvikum 6 ára
gömul, geti leitt til þess að vafi leiki
um hæfi einstaklings til að sitja í
stjórn skráðs hlutafélags.“
Jón sóttist eftir að sitja í stjórn N1
eftir að fjárfestingarfélag á vegum
eiginkonu hans og fjölskyldu hennar
festi kaup á bréfum í félaginu í hluta-
fjárútboði í aðdraganda skráningar á
markað. Jón er framkvæmdastjóri
Helgafells sem á 4% hlut í N1, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Á
hluthafalista er félagið skráð með
2,6% hlut og stafar mismunurinn af
því að kaupin eru að hluta fjármögnuð
með framvirkum samningum. Slík
eign er skráð á þann sem lánar fyrir
viðskiptunum. Helgafell er stærsti
einkafjárfestirinn í N1 en lífeyrissjóð-
ir eru áberandi á hluthafalistanum.
Fyrirtækið er í eigu eigenda fjöl-
skyldufyrirtækisins Nathan & Olsen
sem m.a. flytur inn Cheerios. Jón er
eiginmaður Bjargar Fenger sem á
heildverslunina og fleiri fyrirtæki
ásamt bróður sínum og móður.
Athugasemdirnar þrjár
Líkt og fram hefur komið voru at-
hugasemdir Kauphallarinnar þrjár.
Jón upplýsti um það í bréfi, sem birt
var í Kauphöllinni og er öllum að-
gengilegt, þegar hann dró framboð
sitt til baka í mars. Þar sagði hann að
tvær áminningar sneru að skráningu
nýrra hluta í kjölfar hlutafjárhækk-
unar hjá FL Group í desember 2007
og hvenær upplýsingaskylda hefði
orðið virk gagnvart markaði vegna
sölu á eignarhlutum í Commerzbank í
janúar 2008.
Síðasta tilvikið varðaði birtingu
ársreiknings vegna ársins 2008, sem
Kauphöllin taldi að hefði verið of sein.
Jón sagði að vegna þeirrar óvissu sem
skapast hefði eftir bankahrunið hefði
verið ógerlegt að birta ársreikning
fyrir apríllok 2009, eins og reglur
Kauphallarinnar gerðu ráð fyrir.
Jón Sigurðsson fær heimild
til að sitja í stjórn N1
Kauphöllin heimilar Jóni að sitja í stjórn N1 og vísar í fimm ára reglu
Hluthafar Fjölskylda Jóns Sigurðssonar fjárfesti í N1 í hlutafjárútboði.
Morgunblaðið/Þórður
Dró framboð
til baka í mars
» Jón Sigurðsson dró framboð
sitt til stjórnarsetu í N1 til baka
í lok mars.
» Þá hafði Kauphöllin gert at-
hugasemdir við hæfi hans til
að sitja í stjórn skráðs félags.
» Var vísað til þess að hún
hafði áminnt FL Group/Stoðir
á þeim tíma sem Jón var for-
stjóri félagsins.
» Fjölskylda Jóns á 4% hlut í
N1 og er stærsti einkafjárfest-
irinn á hluthafalista.
Páll
Harðarson
Jón
Sigurðsson
!
"#!
!"
$
"!
!
!%
%#$$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
#
!$
"%$
!"%
$$%
$"#
!$
$%
%
%#"!
#!
%
"
!"
$
$%
!%#
!$
$
%##%
!"#!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Jón Hólm Stefánsson
Lögg. fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali
www.gljufurfasteign.is
Í Brekkuskógi, Biskupstungum, eru til ráðstöfunar nokkrar fallegar,
kjarri vaxnar, sumarhúsalóðir á skipulögðu svæði. Rafmagn, heitt
og kalt vatn að lóðarmörkum og gott vegakerfi. Um er að ræða eitt
vinsælasta sumarhúsasvæði landsins.
Á morgun, laugardag 23. ágúst,
verða lóðirnar til sýnis frá kl. 13:00–18:00
Allar frekari upplýsingar verða á staðnum. Sjón er sögu ríkari.
Athygli verðar sumarhúsalóðir
– Opið hús
Gljúfur fasteignasala hefur til sölumeðferðar góð skógræktarsvæði.
Fjárfesting til framtíðar. Nánari upplýsingar eingöngu veittar hjá
fasteignasala með tölvupósti: jonholm@gljufur.is.