Morgunblaðið - 22.08.2014, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 234. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Með skotleyfi í skjóli nafnleyndar
2. Berggangur að myndast undir jökli
3. Skjálftinn vegna sigs í öskjunni
4. Tveimur stjórnendum WOW sagt upp
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Einleikarar úr Toronto Symphony
Orchestra (TSO) koma fram víðs veg-
ar um borgina á Menningarnótt á
morgun og bjóða gestum síðan að
hlýða á kafla úr uppáhaldsverkum í
mikilli nálægð í Norðurljósum Hörpu
kl. 19.30. Þar koma fram leiðandi tón-
listarmenn úr hljómsveitinni undir
stjórn einleikarans James Ehnes
fiðluleikara, sem leikur hinn þekkta
fiðlukonsert eftir Tsjaíkovskíj á tón-
leikunum í Eldborg nk. sunnudag
undir stjórn Peters Oundjian.
Einleikararnir sveitarinnar leika á
fjórum stöðum samtímis kl. 19 annað
kvöld, en það er í Geysi á Skólavörðu-
stíg, Iðnó, í Fógetagarðinum og loks í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Tónleikarnir eru
öllum opnir og án endurgjalds.
Ljósmynd/Benjamin Ealovega
Einleikarar TSO víðs
vegar um borgina
Tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í Royal Albert Hall í Lundúnum í
kvöld verður útvarpað beint á Rás 1
og hefst útsendingin kl. 18.20. Tón-
leikarnir eru hluti af hinni virtu,
bresku tónlistarhátíð BBC Proms. Á
efnisskránni eru Magma eftir Hauk
Tómasson, Píanókonsert í a-moll op.
54 eftir Robert Schumann, Geysir
eftir Jón Leifs og Sinfónía nr. 5 í c-
moll op. 67 eftir Ludwig van
Beethoven. Einleikari er
Jonatan Biss og stjórn-
andi Ilan Volkov, sem
með tónleikunum kveður
hljómsveitina sem
aðalstjórnandi
hennar og listrænn
stjórnandi.
Sinfónían á BBC
Proms í beinni á Rás 1
Á laugardag Fremur hæg, suðvestlæg eða breytileg átt. Skýjað
með köflum vestanlands og dálítil væta norðvestantil með kvöld-
inu, en annars bjartviðri að mestu. Hiti 9 til 15 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt 1-8 m/s. Víða
léttskýjað, en þykknar upp við sjávarsíðuna norðaustantil. Hiti 8
til 17 stig, hlýjast suðvestanlands.
VEÐUR
Draumur íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu
um að komast í úr-
slitakeppni heimsmeist-
aramótsins í Kanada á
næsta ári varð að engu á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöld. Íslenska liðið varð að
sætta sig við 1:0 tap á móti
Dönum og með þeim úrslit-
um er ljóst að Ísland á ekki
lengur möguleika á að kom-
ast í umspil um sæti í loka-
keppninni. »2
Stelpurnar okkar
komast ekki á HM
„Ætli við þurfum
ekki að ná í svona
þrjá sigra í viðbót til
að vera alveg
öruggir,“ segir
Andri Ólafs-
son, leikmaður
ÍBV, en hann
er leikmaður
16. umferðar í
Pepsi-deild
karla í knatt-
spyrnu, að
mati
Morgun-
blaðsins,
fyrir
frammistöð-
una á móti
Víkingi. »2
Þurfum þrjá sigra
til viðbótar
„Það er löngu kominn tími til að ríkis-
valdið styðji betur við íslenska
íþróttahreyfingu og ég treysti því að
körfuboltasambandið fái sitt, því við
eigum kröfu til þess eftir þann árang-
ur sem við höfum náð,“ segir Hannes
Jónsson, formaður Körfuknattleiks-
sambands Íslands, en hann er í skýj-
unum eftir frábæran árangur lands-
liðsins í undankeppni EM. »4
Eigum kröfu eftir árang-
urinn sem hefur náðst
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég hef öðlast reynslu fyrir lífstíð og
viðhorf mín hafa breyst,“ segir Krist-
ján Sævald Pétursson eftir að hafa
tekið þátt í Snorraverkefninu í Vest-
urheimi fyrir skömmu.
Þjóðræknisfélag Íslendinga í
Vesturheimi í samvinnu við Þjóð-
ræknisfélag Íslendinga hefur skipu-
lagt Snorraverkefnið vestra árlega
frá 2001. Rúmlega 60 íslensk ung-
menni hafa tekið þátt í því frá 2001.
Að þessu sinni voru fjórir þátttak-
endur. Auk Kristjáns voru það Anna
Guðrún Ragnarsdóttir, Hilmar Páll
Hannesson og Signý Æsa Káradótt-
ir. Venjulega hefur Manitoba verið
helsti viðkomustaðurinn en nú var
dagskráin bundin við austurhluta
Bandaríkjanna og Kanada.
Kristján segir að þegar hann hafi
rekist á upplýsingar um verkefnið
hafi hann ákveðið að sækja um. „Ég
hafði heyrt um þetta áður en aldrei
gert neitt í því,“ bætir hann við.
„Dagskráin heillaði mig strax og að
fá tækifæri til að fara til staða eins og
Washington DC, Toronto, L’Ans
Aux Meadows og Halifax í fjögurra
vikna ferð togaði mikið í mig.“
Mesta upplifunin
Verkefnið bauð upp á enn meira
en Kristján hafði látið sig dreyma
um. „Ég bjóst við skemmtilegri ferð
en hún var annað og meira. Móttök-
urnar voru hreint út sagt frábærar
og fólkið hlýtt og skemmtilegt. Allir
voru svo almennilegir og vildu allt
fyrir okkur gera.“
Margir Íslendingar eiga ættingja í
Vesturheimi án þess endilega að vita
af þeim. Kristján á frænku í Texas en
hann segir að fjölskyldan hafi að
öðru leyti talið að engir aðrir ætt-
ingjar væru vestan hafs. Ættfræð-
ingar á vegum ÞFÍ hafi leitt annað í
ljós. „Af okkur fjórum, sem tókum
þátt í verkefninu að þessu sinni, átti
ég flesta ættingja vestra. Flestir eru
í Utah en þau fundu ættingja í To-
ronto sem ég hitti. Hann heitir Jeff
Peterson og við erum því með sama
eftirnafn en það er reyndar tilviljun.“
Að sögn Kristjáns var ferðin mikil
upplifun. „Aksturinn frá St. Johns á
Nýfundnalandi norður til L’Ans Aux
Meadows tók um fimm tíma en var
vel þess virði. Það var hápunktur
ferðarinnar að stíga þar í fótspor for-
feðranna og sjá hvar þeir höfðu verið
með Leifsbúðir.“
Kristján segir að þátttaka í verk-
efni skilji eftir djúp spor í sálinni.
„Ég lærði hvað það þýðir að vera Ís-
lendingur. Í þjóðræknisfélögunum
úti er ekki bara fólk af íslenskum
ættum heldur óskyldir Bandaríkja-
menn og Kanadamenn, sem hafa
áhuga á Íslandi, eru að læra íslensku
og elska landið okkar. Það snerti mig
mjög djúpt. Þetta var bara fjögurra
vikna ferð en samt er þetta besta
ferð sem ég hef farið í. Þetta er ekki
væmni. Ég meina þetta.“
Ný sýn með Vesturheimi
Þátttaka í Snorraverkefninu vestra
veitir ungmennum mikla reynslu
Ljósmynd/Kristján Sævald
Við Niagara-fossa Frá vinstri: Hilmar Páll Hannesson, Kristján Sævald Pétursson, Signý Æsa Káradóttir og Anna Guðrún Ragnarsdóttir.
Þjóðræknisþing Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga verður á
Hótel Natura klukkan 14-16.30
á sunnudag. Auk kynningar
þátttakenda í Snorra- verkefn-
inu segir Fred E. Woods frá und-
irbúningi hátíðarhalda í Utah
2015 í tilefni 160 ára landnáms
Íslendinga þar, Kristín M. Jó-
hannsdóttir fjallar um rann-
sóknir á vestur-íslensku, Þór-
arinn Eldjárn greinir frá
ræktarsemi Vestur-Íslendinga,
Sunna Pam Furstenau skýrir
hvernig nýta má ættfræðina til
þess að finna ættingja, Egill
Helgason kynnir þættina Vest-
urfara, flutt verða ávörp og
Björn Thoroddsen spilar á gítar.
Fjölbreytt
dagskrá
ÞJÓÐRÆKNISÞING