Morgunblaðið - 22.08.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þ
egar ég var 10 ára gamall
fór ég með frænda mín-
um út í skóg og átti að
drepa kanínu – sem ég
gerði. Mér leið alveg
hrikalega eftir það en fjölskyldan
mín var mjög ánægð með að fá kan-
ínu í kvöldmatinn. Eftir það hefur
þessi kanína ásótt mig og er ein-
kennismerki mitt í dag,“ sagði vegg-
listamaðurinn Pure Evil um leið og
hann rétti blaðamanni auglýsingu
um listaverkasýningu sem hann
heldur í Gallerí Fold í tengslum við
Menningarnótt.
Borðar ekki dýr
Eftir þessa lífsreynslu er hann
„animisti“ og trúir því að andi búi í
öllum hlutum náttúrunnar, jafnt
dýrum sem steinum og stokkum, auk
þess er hann grænmetisæta. Lista-
mannsnafnið er langt frá því að vera
lýsandi fyrir þennan geðþekka lista-
mann sem á og rekur tvö gallerí í
London og í ofanálag er ábyrgur fað-
ir.
Ekki samur eftir að
hafa drepið kanínu
Vegglistamaðurinn Pure Evil heldur sýningu á verkum sínum í Gallerí Fold á
Menningarnótt. Hann mun gefa 30 listaverk sem hann hefur komið fyrir víðs-
vegar um borgarlandið en vísbendingar um hvar þau er að finna birtast á sam-
félagsmiðlum. Mikil gróska í vegglistinni hér á landi kemur honum á óvart.
Hann á og rekur tvö gallerí í London. Honum hefur verið líkt við Banksy.
List Eitt af 23 verkum sem eru á sýningunni Martröð í Gallerí Fold.
Á umræddri vefsíðu er sýnt á stór-
kostlega einfaldan hátt hvernig hægt
er að búa til ljósakrónu úr dekki af
reiðhjóli. Ekki er hægt að segja annað
en að hugmyndin sé býsna góð og
komi nokkuð vel út eins og sjá má.
Sýndar eru myndir af hverju skrefi
fyrir sig, alls 11, hvernig eigi að búa
ljósakrónuna til. Ef gamalt reiðhjól er
til í geymslunni og til stendur að
farga því er allt eins gott að gefa því
örlítið framhaldslíf með því að búa til
prýðilega ljósakrónu. Stöngin sem
nær úr ljósakrónunni og upp í loft er
stöng sem alla jafna er notuð til að
hengja upp sturtuhengi. Þetta er því
einföld og ekki kostnaðarsöm lausn
sem kemur hreint ekki svo illa út.
Á þessari síðu, wikiHow.com, er
hægt að leita að ótal ráðum um
hvernig eigi að búa til hitt og þetta,
allt frá frumlegum hugmyndum til
þeirra einfaldari.
Vefsíðan http://www.wikihow.com/Make-a-Bike-Wheel-
Chandelier
Ljósakróna Ef þig vantar töff ljósakrónu þá er þessi alveg málið.
Nýttu hjól sem ljósakrónu
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Bílamenning í Porsche salnum!
Porsche hefur haft mótandi áhrif á bílamenningu heimsins með einstakri
hönnun, tækninýjungum og framúrskarandi gæðum. Komdu í heimsókn
og sjáðu glæsileikann sem Porsche hefur upp á að bjóða.
• Porsche Boxster - verð frá 10.950 þús. kr.
• Porsche 911 - verð frá 19.900 þús. kr.
• Porsche Panamera - verð frá 15.900 þús. kr.
• Porsche Cayenne - verð frá 13.950 þús. kr.