Morgunblaðið - 22.08.2014, Síða 27
sé saman komið á einum stað efni
sem veitir jafn ríkulega innsýn í trú-
ar- og kirkjulist hins kaþólska siðar á
Íslandi.“ Rannsóknirnar vann Guð-
björg við Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum. Meðfram þeim
kenndi hún almenna listasögu við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands á
árunum 1976-1991 og var deildar-
stjóri listfræðsludeildar skólans frá
1983.
Í Gerðarsafni
Árið 1994 var Guðbjörg ráðin for-
stöðumaður hins nýstofnaða Lista-
safns Kópavogs – Gerðarsafns. „Það
var stofnað utan um gjöf, um 1.400
verk eftir Gerði Helgadóttur, mynd-
höggvara og glerlistamanns, sem erf-
ingjar hennar færðu Kópavogsbæ ár-
ið 1977 með því skilyrði að reist
skyldi listasafn sem bæri nafn henn-
ar. Starfið felur í sér stjórnun, skrán-
ingu á safneign, innkaup listaverka,
skipulagningu og uppsetningu sýn-
inga og útgáfu sýningarskráa og
bóka í tengslum við þær.“ Á þeim
tveimur áratugum sem Guðbjörg
hefur verið forstöðumaður í Gerð-
arsafni hafa tugir íslenskra og er-
lendra myndlistamanna sýnt í safn-
inu. Þar hafa einnig verið settar upp
sýningar í samvinnu við erlend söfn.
Á nokkrum þeirra voru dýrmætir
fornmunir og listaverk.
Á 350 ára afmæli Árna Magnús-
sonar handritasafnara 13. nóvember
2013 var opnuð í Gerðarsafni sýn-
ingin Íslenska teiknibókin. Hún var
unnin í samvinnu Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum og
Gerðarsafns. Guðbjörg var sýningar-
stjóri. Í tengslum við sýninguna kom
rit hennar um Teiknibókina út hjá
bókaútgáfunni Crymogeu. Íslenska
teiknibókin hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin í flokki fræðirita
og bóka almenns efnis árið 2013.
Bókin var einnig tilnefnd til viður-
kenningar Hagþenkis 2013 og til
verðlauna starfsfólks bókaverslana
sama ár í flokknum besta handbókin/
fræðibókin. Guðbjörg var einnig til-
nefnd til Menningarverðlauna DV
2013 fyrir rannsóknir sínar á Ís-
lensku teiknibókinni.
Guðbjörg var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu hinn 17.
júní 2005 fyrir störf að menningar-
málum.
„Ég mun láta af störfum sem for-
stöðumaður Gerðarsafns 1. septem-
ber næstkomandi og get þá sinnt
meira áhugamálum mínum, sem eru
ferðalög og heimsóknir á söfn og í
merkar byggingar. Svo les ég mikið
og stunda útivist og skíði.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðbjargar er Benja-
mín Magnússon, f. 18.8. 1944, arki-
tekt. Foreldrar hans: Magnús Bald-
vinsson, f. 4.1. 1913, d. 4.9. 2011,
múrarameistari, og Bjarney Jóna
Finnbogadóttir, f. 12.8. 1922, d. 26.1.
2004, húsfreyja.
Börn Guðbjargar og Benjamíns:
Kristján Benjamínsson, f. 9.2. 1971,
múrari í Reykjavík, maki: Guðmunda
Kristjánsdóttir, viðskiptafræðingur
og MPM í verkefnastjórnun. Sonur
þeirra: Benjamín Kristjánsson, f. 1. 4.
2009; Bjarni Benjamínsson, f. 14.9.
1975, efnaverkfræðingur í Seattle í
Bandaríkjunum.
Systkini Guðbjargar: Ingólfur
Kristjánsson, f. 13.3. 1940, d. 28.11.
2001, verslunarmaður í Reykjavík;
Karítas Kristjánsdóttir, f. 30.5. 1941,
d. 6.12. 2013, hjúkrunarfræðingur á
Reykjalundi; Karl Kristjánsson, f.
18.7. 1942, fyrrv. kennari og deildar-
stjóri í Menntamálaráðuneytinu.
Fóstursystir: Freyja Fanndal
Sigurðardóttir, f. 10. 11. 1936, fyrrv.
húsfreyja á Gljúfri í Ölfusi.
Foreldrar Guðbjargar: Kristján
Jóhann Karlsson, f. 27.5. 1908, d.
26.11. 1968, búfræðingur og skóla-
stjóri Bændaskólans á Hólum í
Hjaltadal, og Sigrún Ingólfsdóttir, f.
14.5. 1907, d. 1.4. 1997, vefnaðar-
kennari og skólastjórafrú á Hólum í
Hjaltadal.
Úr frændgarði Guðbjargar Kristjánsdóttur
Guðbjörg
Kristjánsdóttir
Guðfinna Elíasdóttir
vinnukona á Reykjum
Guðmundur Davíðsson
bóndi á Reykjum í Fnjóskadal
Guðbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja í Fjósatungu
Ingólfur Bjarnarson
alþingismaður og bóndi í
Fjósatungu í Fnjóskadal
Sigrún Ingólfsdóttir
skólastjórafrú á Hólum
Ingibjörg Jónsdóttir
f. á Fornastöðum í Fnjóskadal
Björn Guðmundsson
f. í Fagranesi í Aðaldal
Helga Sigurðardóttir
húsfreyja á Draflastöðum
Sigurður Jónsson
bóndi á Draflastöðum í Fnjóskadal
Karítas Sigurðardóttir
húsfreyja á Veisu
Jónína Sigurðardóttir
húsmæðrakennari,
höfundur matreiðslubóka
og hótelstjóri á Hótel
Goðafossi á Akureyri
Sigurður Sigurðsson
búnaðarmálastjóri
Kristján Jóhann Karlsson
skólastjóri Bændaskólans á
Hólum í Hjaltadal
Karl Kristján Arngrímsson
bóndi á Veisu í Fnjóskadal
Karítas Sigurðardóttir
húsfreyja á Þóroddsstað í Kinn
Arngrímur Einarsson
bóndi á Ljósavatni í Ljósavatnsskarði
Helga Sigurðardóttir
skólastýra Húsmæðrakennara-
skóla Íslands í Rvík og höfundur
matreiðslubóka
Páll Sigurðsson
hótelstjóri í Fornahvammi í
Norðurárdal í Borgarfirði
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2014
Doktor
90 ára
Vilborg Guðjónsdóttir
85 ára
Gréta Friðriksdóttir
Jóhanna Pétursdóttir
María Hallgrímsdóttir
80 ára
Árni Sigurðsson
Sigurlaug Stefánsdóttir
Þorbjörn Bjarnason
75 ára
Arnfinnur Friðriksson
Ágústa Margrét
Jónasdóttir
Guðbjörg
Guðmundsdóttir
Guðrún Eyberg
Ketilsdóttir
Jón Andrésson
Lovísa Gunnarsdóttir
70 ára
Elín Jóhannsdóttir
Hildigunnur Hlíðar
Margrét Guðlaug
Þórhallsdóttir
Ragnar Valsson
Violeta Soffía Smid
60 ára
Einar Þórðarson
Elín Anna Ellertsdóttir
Helgi Rúnar Rafnsson
Jason Steinþórsson
Jón Dagsson
Jón Marinó
Guðbrandsson
Lilja Árnadóttir
Sigurður Árni
Magnússon
Soffía Halldórsdóttir
Sveinn Kristján
Pétursson
Þór Ægisson
50 ára
Arnar Jónsson
Edit Anna Molnár
Friðrik Örn Andersen
Gestur Ragnar Davíðsson
Guðrún Kristmannsdóttir
Guðrún Petra Trampe
Gunnar Guðnason
Inga Ingólfsdóttir
Jónína Salóme Jónsdóttir
Júlíus Jónasson
Karl Þór Baldvinsson
Kristín Sigurlaug
Brandsdóttir
Þórunn Elfa Guðnadóttir
40 ára
Anna Ólafsdóttir
Áslaug Dögg Martin
David Christian Finger
Drífa Huld Jóhannsdóttir
Guðmundur Þorkell
Þórðarson
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Jónína Þorkelsdóttir
Marcin Artur Drozdz
Margrét Einarsdóttir
María Sigurðardóttir
Rúnar Þór Snorrason
Sigríður Fjóla
Benónýsdóttir
Þorsteinn Gunnlaugsson
Þórsteinn Ágústsson
30 ára
Benedikt Björnsson
Daníel Leó Ólason
Einar Steinn Valgarðsson
Eiríkur Arnar Björgvinsson
Hrólfur Magni Gíslason
Hörður Helgason
Jan-Fredrik Winter
Óskar Örn Hauksson
Rögnvaldur Sturluson
Sunna Þórsdóttir
Thelma Sjöfn Hannesdóttir
Þorsteinn Ingólfsson
Til hamingju með daginn
40 ára Freydís er Dalvík-
ingur en býr á Akureyri og
er grunnskólakennari í
Oddeyrarskóla.
Maki: Steingrímur Frið-
riksson, f. 1969, sjómaður
á Kleifabergi.
Börn: Friðrik, f. 2000,
Hafrún, f. 2005, og Þórir,
f. 2009.
Foreldrar: Þorvaldur
Baldursson, f. 1940, og
Ingigerður Lilja Jóns-
dóttir, f. 1943. Þau eru
bús. á Dalvík.
Jóhanna Frey-
dís Þorvaldsd.
30 ára Ásdís er jarðeðlis-
fræðingur og er í dokt-
orsnámi við Háskóla
Íslands.
Maki: Tryggvi Björg-
vinsson, f. 1982, verk-
efnastjóri hjá Open
Knowledge.
Börn: Aníta, f. 2012, og
Tanja, f. 2014.
Foreldrar: Benedikt
Benediktsson, f. 1958, og
Alda Kristjánsdóttir, f.
1959. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Ásdís Bene-
diktsdóttir
30 ára Auður er næring-
arfræðingur og vinnur á
gæðasviði hjá Actavis.
Maki: Jón Pétur Skúla-
son, f. 1982, lögmaður hjá
borgarlögmanni.
Dóttir: Freyja Dís, f. 2013.
Foreldrar: Benedikt
Benediktsson, f. 1958,
deildarstjóri hjá Sjúkra-
tryggingum Íslands, og
Þórný Alda Kristjáns-
dóttir, f. 1959, skrif-
stofustjóri á Land-
spítalanum.
Auður Bene-
diktsdóttir
Gunnar W. Reginsson hefur varið
doktorsritgerð sína í efnafræði við Há-
skóla Íslands og University of St. And-
rews í Skotlandi. Ritgerðin ber heitið
Notkun púlsaðrar EPR-spektróskópíu
til fjarlægðarmælinga með trítýl-
stakeindum og nítroxíð-spunamerkjum
án samgildra tengja.
Á síðasta áratug hefur púlsuð raf-
eindaspunatækni (e. pulsed electron
paramagnetic resonance, EPR), að-
allega PELDOR (e. pulsed electron-
electron double resonance), verið not-
uð í auknum mæli til rannsókna á
byggingu mikilvægra lífsameinda.
Nanómetra fjarlægðir, mældar með
púlsuðum EPR mælingum, gera kleift
að betrumbæta byggingar sem ákvarð-
aðar hafa verið með röntgen-
geislagreiningum og NMR aðferðum.
EPR veitir einnig upplýsingar um fjar-
lægðadreifingu sem má nota til að
meta hreyfingu í stellingajafnvægi
lífsameinda.
Notkun EPR til rannsókna á bygg-
ingu lífsameinda krefst í flestum til-
fellum staðbundinnar innleiðingar á
stakeindum. Betur þekkt sem stað-
bundin spunamerking (e. site directed
spin labelling). Algengustu spuna-
merkin fyrir EPR mælingar á líf-
sameindum eru
amínoxýl (nítroxíð)
stakeindir. Stað-
bundin spuna-
merking á deox-
ýríbósakjarnsýrum
(e. DNA) án sam-
gildra efnatengja
er hér notuð til að
rannsaka byggingu
og stellingajafnvægi DNA og DNA-
prótein komplexa með PELDOR. Sýnt
er fram á að ósamgild spunamerking
með stífu spunamerki getur gefið upp-
lýsingar um hreyfanleika tvíþátta DNA.
Önnur stakeind sem gæti nýst vel sem
spunamerki fyrir lífsameindir er tria-
rylmethyl (trítyl) stakeindin. Til að
meta notagildi trítyl-stakeinda sem
spunamerki fyrir nanómetra fjarlægð-
armælingar voru smíðaðar stífar sam-
eindir með trítyl og nítroxíð spuna-
merkjum. Niðurstöður úr PELDOR og
DQC (e. double quantum coherence)
mælingum sýndu að trítyl-spunamerki
gefa nákvæmar upplýsingar um fjar-
lægðir milli spunamerkja og stellinga-
jafnvægi sameinda. Trítyl-stakeindir
gætu því reynst mjög hentugar sem
spunamerki fyrir rannsóknir á bygg-
ingu og hreyfingu lífsameinda.
Gunnar W. Reginsson
Gunnar W. Reginsson er fæddur 1976 á Seyðisfirði. Hann lauk BS-gráðu í efna-
fræði við HÍ 2008 og MS-gráðu í efnafræði við HÍ 2010. Hann hóf doktorsnám
sitt við Háskólann í St. Andrews og HÍ árið 2010 og lauk því 2013. Gunnar vinnur
nú við rannsóknir í erfðafræði hjá Íslenskri erfðagreiningu. Foreldrar hans eru
Regin W. Rasmussen og Ragnheiður S. Kristjánsdóttir Gunnar á þrjú börn,
Söru, Maríu og Magnús.
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Nýtt Nýtt
Kvarna-tengi
fyrir zetur og
sakkaborð
KYNNINGAR-TILBOÐÚT ÁGÚST
CleanMaster
FM 10
Tilboðsverð
7.665 kr.
CleanMaster
CM 12
Tilboðsverð
3.321 kr.
Gloria stálúðabrúsar
fyrir mótaolíu o.fl.
Tilboðsverð 40.184 kr.
Gloria
úðabrúsar fyrir
hreingerningar
Til í þremur lengdum:
15,18 og 20 cm.
70 kr. stk.