Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 2. J Ú N Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 136. tölublað 102. árgangur
HEFUR HUGSAÐ
UM ÞETTA VERK
Í FIMMTÁN ÁR
SEGJA ÓSKILVIRK-
UM FUNDUM
STRÍÐ Á HENDUR
DIMMA ÆTLAR AÐ
TAKA SUMARIÐ
MEÐ TROMPI
VIÐSKIPTAMOGGINN ÚTGÁFUTÓNLEIKAR 35VÍKINGUR HEIÐAR 34
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Björgunarsveitir á Suðurlandi leit-
uðu í allan gærdag og fram á nótt
án árangurs að íslenskri konu á
fertugsaldri sem saknað hefur ver-
ið frá því að hún fór með erlendri
vinkonu sinni í gönguferð frá sum-
arbústað í Fljótshlíð á laugardag.
Erlenda konan fannst látin í
Bleiksárgljúfri skömmu eftir að
leit að konunum hófst í fyrrakvöld.
Föt kvennanna beggja fundust við
hyl í gljúfrinu. Þykir sennilegt að
þær hafi ætlað að synda þarna.
Ekki er talin ástæða til að ætla
að andlát erlendu konunnar hafi
borið að með saknæmum hætti.
Dánarorsök hennar er ekki þekkt.
Leitað var í Bleiksárgljúfri, í
Fljótshlíðinni, á vatnasvæði Mark-
arfljóts og víðar í nágrenninu, m.a.
í sumarbústöðum. Leitarhundar
voru notaðir og þyrla Landhelgis-
gæslunnar var við leit úr lofti í
gær og fyrradag. Á annað hundrað
manns hefur tekið þátt í leitinni.
Vinsæll göngustaður
Í gærkvöldi var leitarsvæðið
stækkað og náði að sögn Sveins K.
Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á
Hvolsvelli, um 6,5 km frá gljúfr-
inu.
Bleiksárgljúfur er í Fljótshlíð,
um 25 km frá Hvolsvelli. Það er
kjarri vaxið. Eftir því rennur
Bleiksá og er í henni hár foss inni
í gljúfrinu. Hægt er að ganga upp
með því bæði að austan og vestan.
Vestari leiðin er mun algengari.
Þegar ofar kemur er gljúfrið þver-
hnípt, hyldjúpt en örmjótt. Enn
ofar í gilinu er það fallið saman og
þar er hægt að fara yfir og niður
hinum megin við það. Svæðið er
vinsæll göngustaður.
Leitað
fram
á nótt
Erlend kona
fannst látin við
Bleiksárgljúfur
Morgunblaðið/RAX
Bleiksárgljúfur Björgunarsveitarmenn að störfum í gær. Lík erlendu konunnar fannst í hyl í gljúfrinu í fyrrakvöld.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Samstarfssáttmáli Samfylkingar, Bjartrar fram-
tíðar, Vinstri grænna og Pírata var formlega
kynntur á blaðamannafundi síðdegis í gær. Dagur
B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri í Reykjavík,
segir það merki um styrk að flokkarnir fjórir geri
með sér samkomulag um meirihlutasamstarf í
borginni.
„Þegar maður er að stjórna borg, sem er fjöl-
breytt í eðli sínu, tel ég það vera gott að breiður
hópur fólks úr ólíkum áttum komi að þeirri vinnu.
Ég tel okkur þurfa að stjórna með fólki en ekki
með einstefnu úr ráðhúsinu og því er það einungis
styrkur að meirihlutinn sé fjölbreytilegur,“ segir
Dagur.
Aðspurður segir hann fyrstu verkefni nýrrar
borgarstjórnar vera húsnæðis- og lýðræðismál,
barnafjölskyldur og hina almennu borgarþróun.
„Við förum ekki af stað með stórum yfirlýsingum
heldur ætlum við að vinna vel jafnt og þétt út allt
kjörtímabilið.“
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna og
verðandi forseti borgarstjórnar, segir fjármagn til
skóla- og frístundasviðs verða aukið um 100 m.kr.
2015 og 200 m.kr. 2016 en í kosningabaráttunni
setti VG gjaldfrjálsa leikskóla í höfuðborginni á
oddinn. „Á þessum tveimur árum munum við von-
andi ná að lækka námsgjöldin í leikskólum um
30%. [...] Þetta er skref í átt að því sem við viljum
gera en við erum náttúrlega í fjögurra flokka sam-
starfi og gerum eðlilega málamiðlanir,“ segir Sól-
ey.
Styrkur í fjölbreytilegum meirihluta
Oddviti VG segir námsgjöld í leikskólum vonandi lækka um 30% fyrstu tvö árin
MÁlögur munu ekki hækka »2
„Fólkið hafði bara gaman af þessu.
Það var enginn hræddur,“ sagði Að-
algeir Bjarnason skipstjóri í samtali
við Morgunblaðið, en í gærkvöldi rak
steypireyður sig í skutinn á skonn-
ortunni Hildi sem var við hvala-
skoðun á miðjum Skjálfandaflóa á
vegum Norðursiglingar á Húsavík.
Ekkert tjón varð, hvalinum virtist
ekki verða meint af og enginn var í
hættu að sögn Aðalgeirs.
Um þrjátíu erlendir ferðamenn
voru um borð í skonnortunni þegar
atvikið varð. Aðalgeir sagði að
steypireyðurin hefði verið ein á ferð.
Hún hringsólaði í grennd við bátinn
og gaf frá sér nokkra myndarlega
blástursstróka. Var Hildur látin
reka á meðan ferðamennirnir tóku
ljósmyndir. Steypireyður er stærsta
spendýr jarðar. Fullvaxin getur hún
orðið rúmlega 30 metrar að lengd.
Steypireyð-
ur rakst í
skonnortu
Hvalaskoðun Skonnortan Hildur
siglir með ferðamenn um Skjálf-
anda í leit að hvölum.
Nýstofnað félag, Ægisíða ehf, hefur
fest kaup á lóð og fasteignum N1 við
Ægisíðu 102, þar sem um árabil hef-
ur verið rekin bensínstöð og dekkja-
verkstæði. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er Ægisíða ehf. í
eigu einkafjárfesta.
N1 bókfærði í árshlutauppgjöri
sínu fyrir fyrsta ársfjórðung þessa
árs söluhagnað af Ægisíðu 102 að
lágmarki 260 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
áforma forsvarsmenn Ægisíðu að
reisa lágreista íbúðabyggð á lóðinni.
Rætt hefur verið um blokk, sem að
hámarki yrði tvær hæðir, en for-
svarsmenn félagsins hafa enn ekki
hafið viðræður um byggingaráform
sín við skipulagsyfirvöld í Reykjavík.
Hjálmar Sveinsson, varaformaður
skipulagsnefndar Reykjavíkur-
borgar, kvaðst í samtali við Morgun-
blaðið í gær fagna þessum fréttum.
Borgin hefði það á stefnuskrá að
fækka bensínstöðvum í Reykjavík og
bensínstöð N1 við Ægisíðu væri á
frábærum stað undir íbúðabyggð og
tæki fáránlega mikið pláss.
Hjálmar telur vel koma til greina
að reisa tvílyft raðhús á reitnum.
agnes@mbl.is »12
Ægisíða ehf
kaupir Ægi-
síðu 102