Morgunblaðið - 12.06.2014, Síða 8

Morgunblaðið - 12.06.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Metal kertahús 32cm Vegghorn Púði 50 x 50 cm Viðarbakkar Rugguhestur 38cm Veggmynd 93 cm Kertaglös m. texta Buddha höfuð 20 x 30 cm www.danco.is Heildsöludreifing Viðarklukka „Home“ 120 x 59 x 4 cm Fyrirtæki og verslanir Við eigum mikið úrval af fallegri gjafavöru Viðarlugt 31 x 37 cm Guðlaugur Þór Þórðarson alþing-ismaður fékk fjármálaráðu- neytið til að taka saman tölur um ólíka stöðu lífeyrismála OECD- ríkjanna og í samantektinni koma fram umhugsunar- verðar staðreyndir.    Athyglisvert erhve Ísland, ásamt fáeinum öðr- um ríkjum, stendur vel að vígi í þessum efnum. Hér hefur verið sýnd fyrir- hyggja og safnað í sjóði svo að inni- stæða væri fyrir þeirri velferð sem vesturlandabúar líta orðið á sem sjálfsagt mál.    Eignir íslensku lífeyrissjóðannaeru tæplega 130% af lands- framleiðslu, sem er langt umfram það sem þekkist víðast hvar í þeim löndum sem við berum okkur saman við.    Annað, sem athygli vekur ogmætti verða til umræðu í tengslum við aðildarumsóknina sem enn hangir illu heilli yfir höfðum Ís- lendinga, er að ríki Evrópusam- bandsins standa almennt mjög illa hvað lífeyrisskuldbindingar snertir.    Í Frakklandi eru eignir lífeyris-sjóða 0,3% af landsframleiðslu, í Þýskalandi 5,5%, á Ítalíu 4,9%, á Spáni 7,8%, í Belgíu 4,2%, í Portúgal 7,7% og á Grikklandi 0,0%, svo dæmi séu tekin.    Eins og Guðlaugur Þór bendir áer vandséð hvernig þessar þjóðir ætla að vinna sig út úr vand- anum.    Ekki er síður vandséð hversvegna „viðræðusinnar“, sem segjast jafnan vilja ræða kosti og galla aðildar, hafa ekki tekið þessa alvarlegu stöðu til umræðu. Guðlaugur Þór Þórðarson Lífeyrisvandi margra ríkja ESB STAKSTEINAR Veður víða um heim 11.6., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 12 skýjað Akureyri 13 alskýjað Nuuk 7 léttskýjað Þórshöfn 11 skúrir Ósló 22 léttskýjað Kaupmannahöfn 17 skúrir Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 21 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 18 léttskýjað London 22 heiðskírt París 23 heiðskírt Amsterdam 18 heiðskírt Hamborg 22 heiðskírt Berlín 21 skúrir Vín 32 léttskýjað Moskva 17 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 21 þrumuveður Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 30 léttskýjað Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 16 skýjað Montreal 22 alskýjað New York 17 alskýjað Chicago 18 alskýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:00 23:56 ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33 SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16 DJÚPIVOGUR 2:16 23:39 Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, lýsti yfir sakleysi sínu þegar þingfest- ing í svonefndu Chesterfield-máli fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Hann var einn þriggja sakborninga sem mættu fyrir dómn- um í gær og var málinu frestað fram í júlí. „Háttvirtur dómari. Ég get upplýst dóminn um það að ég starfaði í fimmtán ár hjá Kaupþingi, þar af tíu sem forstjóri eða aðstoðarforstjóri. Ég tók á þessum tíma aldrei ákvörðun gegn hagsmunum Kaupþings. Þessi ákæra er röng og ég er saklaus,“ sagði Hreiðar Már þegar hann var spurður um af- stöðu sína til ákærunnar. Í Chesterfieldmálinu er ákært fyrir lán til Ches- terfield United Inc., Partridge Management Gro- up S.A. og eignarhaldsfélaga þeirra, samanlagt 150 milljónir evra haustið 2008. Það jafngilti nærri 70 milljörðum króna miðað við gengi evru 7. októ- ber 2008. Sérstakur saksóknari telur að féð sé allt tapað Kaupþingi. Að baki lánveitingunum lágu viðskipti með svo- nefnd lánshæfistengd skuldabréf eða CLN (e. Credit Linked Notes) sem tengd voru skulda- tryggingarálagi eða CDS (e. Credit Default Swap) Kaupþings. Sérstakur saksóknari ákærði vegna lánveiting- anna þá Hreiðar Má, Sigurð Einarsson, fyrrver- andi stjórnarformann Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, forstjóra Kaupþings í Lúxemborg. Hreiðar og Sigurður eru ákærðir fyrir umboðs- svik og Magnús fyrir hlutdeild í brotum þeirra tveggja. andrikarl@mbl.is Hreiðar Már lýsti yfir sakleysi sínu Morgunblaðið/Þórður Í dómsal Hreiðar Már Sigurðsson og lögmenn- irnir Hörður Felix Harðarson og Gestur Jónsson. Framkvæmdaleyfi var í gær sam- þykkt á 21.000 fermetra lóð undir þriðja rafræna gagnaverið í Reykja- nesbæ og hefjast framkvæmdir strax í dag. Er það fyrirtækið Borealis Data Center sem að verkefninu stend- ur en lóðin, sem er sunnan við lóð- ir Advania í Reykjanesbæ, er á við þrjá knatt- spyrnuvelli. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir þetta vera mjög ánægjulega þróun fyrir at- vinnulíf staðarins. „Svæðið sem við höfum skipulagt sunnan Fitja er nærri tengivirki HS orku og hentar einkar vel til framtíðaruppbygg- ingar gagnavera og tölvu- og hug- búnaðarfyrirtækja þeim tengdra,“ er haft eftir Árna í fréttatilkynningu, en mikil gróska hefur verið í upp- byggingu gagnavera í Reykjanesbæ. Í febrúar 2012 var gagnaver Verne Global að Ásbrú opnað og hýsir nú gögn m.a. fyrir BMW, Opin kerfi, CCP, Colt o.fl. Þá hefur Ad- vania byggt og sett af stað 2.500 fer- metra gagnaver sunnan Fitja í Reykjanesbæ. Nýtt gagna- ver mun rísa á næstunni Árni Sigfússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.