Morgunblaðið - 12.06.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/Hallbjörn Hjartarson hefur ákveðiðað áfrýja dómi Héraðsdóms Norður-
lands vestra til Hæstaréttar. Hall-
björn var dæmdur í þriggja ára
fangelsi í síðasta mánuði fyrir kyn-
ferðisbrot gagnvart tveimur drengj-
um. Talið var hafið yfir allan vafa að
Hallbjörn hefði framið brotin og
þótti framburður hans vera ótrú-
verðugur.
Stefán Þórarinn Ólafsson, lög-
maður Hallbjörns, sagði í samtali við
mbl.is í gær að ákvörðun um áfrýjun
hefði verið tekin á föstudaginn. Bréf
um áfrýjunina verður sent til ríkis-
saksóknara ekki seinna en í lok þess-
arar viku.
Dómurinn í héraði féll 20. maí sl.
en búast má við að málið verði tekið
fyrir hjá Hæstarétti í haust.
Hallbjörn
áfrýjar til
Hæstaréttar
Kringlunni 4 | Sími 568 4900
Kjólar fyrir veisluna
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Ný sending af
aðhaldskjólum
Póstsendum
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs,
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
Sumargleði
litadýrð
Bolir - Jakkar - Buxur
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra tók í gær á móti skýrslu
sænska stjórnmálamannsins Bos
Könberg þar sem er að finna til-
lögur til norrænna félags- og heil-
brigðisráðherra um framtíðarsýn
og brýnustu verkefni norræns
samstarfs á sviði heilbrigðismála.
Skýrslan inniheldur 14 tillögur
sem eiga að vera framkvæmanleg-
ar á 5–10 ára tímabili. Brýnasta
málefnið varðar baráttuna gegn
sýklalyfjaþoli.
Kristján Þór tók við skýrslunni
fyrir hönd Íslands sem gegnir nú
formennsku í norrænu ráðherra-
nefndinni og munu norrænu fé-
lags- og heilbrigðisráðherrarnir
ræða tillögurnar nánar í framhald-
inu. Dagfinn Høybråten, fram-
kvæmdastjóri norrænu ráðherra-
nefndarinnar, var einnig
viðstaddur afhendingu skýrslunnar
sem fram fór í Ráðherrabústaðn-
um við Tjarnargötu í Reykjavík.
Norræna ráðherranefndin á
sviði félags- og heilbrigðismála
ásamt framkvæmdastjóra nefndar-
innar fólu Bo Könberg að kanna
hvernig auka mætti norrænt sam-
starf um heilbrigðismál. Tillögurn-
ar 14 fjalla um uppáskriftir fyrir
sýklalyfjum, mjög sérhæfðar með-
ferðir, sjaldgæfa sjúkdóma, rann-
sóknir byggðar á gögnum úr
sjúkraskrám, lýðheilsu, misrétti í
heilbrigðismálum, hreyfanleika
sjúklinga, rafræna heilbrigðisþjón-
ustu og tæknimál, geðlækningar,
viðbúnað í heilbrigðismálum, lyf,
starfsmannaskipti og sérfræðinga í
löndum ESB.
Barátta gegn sýkla-
lyfjaóþoli brýnust
Nýrri norrænni
skýrslu skilað
Heilbrigði Kristján Þór Júlíusson
tekur við skýrslu Bos Könberg. Með
þeim er Dagfinn Høybråten.
- með morgunkaffinu