Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 10

Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Malín Brand malin@mbl.is Þegar tökulið koma hingað tillands fylgja þeim alls kynstæki og tól. Ferðatösk-urnar eru margar og tækjakosturinn sem ekki fæst leigð- ur hér á landi kemur hingað vel pakkaður og getur vegið fleiri hundr- uð kíló eða tonn. Ljósmyndarinn Arnaldur Halldórsson þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því heldur kemur að verkefnunum með öðrum hætti. Nú er hann að vinna við tökur á er- lendri bíómynd og stendur það verk yfir í tíu daga. Því næst fer hann í franskt verkefni og svo mætti halda áfram að telja sumarið á enda. En hvert er hlutverk Arnaldar? „Oft er ég fenginn til að fara af stað og finna skemmtilega tökustaði, eða location- ir, eins og við köllum það. Þetta geta verið staðir fyrir bílaauglýsingar eða kvikmyndir og þá er verið að nota ís- lenska landslagið: Jökla, sanda, fossa og þetta vinsælasta, bæði hér á suð- urströndinni og fyrir norðan, við Mý- vatn og víðar,“ segir Arnaldur og ját- ar að í þessu starfi sameinist áhugamálin og vinnan. Snemma beygist krókurinn Arnaldur man vart eftir sér öðruvísi en með ástríðu fyrir ljós- myndun. „Ég byrjaði sem gutti, tólf til þrettán ára. Ég hef nú alltaf haft mikinn áhuga á tækjum og græjum og byrjaði þá að fikta í ljósmynda- töskunni hans pabba. Þrettán ára var ég farinn að fá vélina lánaða og fara út með hana, taka svarthvítar filmur og framkalla þegar maður var í skóla. Þar fór ég í ljósmyndaklúbb og lærði að framkalla og stækka. Því Draumastarf ævin- týraljósmyndara Arnaldur Halldórsson ljósmyndari nýtur þess að mæta í vinnuna dagsdaglega, enda er hann í draumastarfinu. Hver dagur er ævintýri og hann hefur komið víða við. Erlendir leikstjórar og framleiðendur leita til hans þegar þeir leita að stöðum á Íslandi til að taka upp auglýsingar eða kvikmyndir. Arnaldur fer gjarn- an á fjöll í frítímanum og á sama tíma finnur hann tökustaði framtíðarinnar. Tíska Við framleiðslu á sjónvarpsþáttunum Finland’s Next Top Model. Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson Afraksturinn Hér er ljósmynd úr Mitsubishi-auglýsingu eftir Arnald. Áhugavert verkefni meistara- og BA- nema úr Listaháskóla Íslands og Land- búnaðarháskólanum stendur yfir í Laugardalnum í sumar. Um samfélags- rekinn hverfisgarð í Laugardalnum er að ræða og hafa nemarnir umsjón með honum. Hverfisgarðurinn er alls um 200 m² í upplyftum beðum. Sjálft verkefnið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og í sumar verða ýmsar uppákomur í garðinum tengdar sjálfbærni eins og bændamarkaður og skiptimarkaður. Hugsunin að baki Laugargörðum er meðal annars sú að hverfisbúar séu virkir þátttakendur í verkefninu. Næstkomandi laugardag, frá klukkan 11 til 16, verður sáningar- dagur og eru borgarbúar hvattir til að koma og vera þar virkir þátttakendur. Mold og fræ verða á staðnum og munu bændamarkaður Frú Laugu og Matar- kista Reykjavíkur bjóða gestum upp á súpu. Vefsíðan www.facebook.com/laugargardur Laugargarðar Íbúar eru hvattir til að taka þátt í samfélagslegu hverfisverkefni. Laugargarðar í Laugardalnum Í dag fer Maraþonboðhlaup Hreysti fram á tveimur stöðum á landinu, í Reykjavík og á Akureyri. Heildar- vegalengdin sem hlaupin verður er 21 kílómeter eða hálft maraþon en boð- hlaupið er byggt upp þannig að hvert lið hleypur sjö hringi sem hver um sig er þriggja kílómetra langur. Liðsmenn geta verið allt að sjö talsins en sami einstaklingur má þó hlaupa fleiri en einn hring. Um skemmtihlaup er að ræða og því ekki nauðsynlegt að vera þaulvanur hlaupari. Í Reykjavík hefst hlaupið við Fjölskyldu- og húsdýra- garðinn kl. 20 og á Akureyri hefst það á sama tíma við Leikhúsið. Endilega ... ... farið í mara- þonboðhlaup Morgunblaðið/Styrmir Kári Skemmtilegt Boðhlaup fyrir alla. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Krónan Gildir 12.- 15. júní verð nú áður mælie. verð Ungnauta innralæri erlent ................................ 1.979 3.298 1.979 kr. kg Ungnauta Roast Beef ...................................... 1.979 3.298 1.979 kr. kg Lambafile m/fiturönd ...................................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg Lambafile New York marinerað ......................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg Lambafile hvítlauks & rósmarín ........................ 3.998 4.498 3.998 kr. kg Lambafile kolagrillmarinerað ............................ 3.998 4.498 3.998 kr. kg Gríshnakki á spjóti New York............................. 1.189 1.698 1.189 kr. kg Gríshnakki á spjóti Hvítl&Rós ........................... 1.189 1.698 1.189 kr. kg Grísabógsneiðar.............................................. 798 898 798 kr. kg SS Grískar lambatvírifjur .................................. 2.878 3.198 2.878 kr. kg Kjarval Gildir 12.- 15. júní verð nú áður mælie. verð Kartöflur sætar................................................ 329 439 329 kr. kg Melónur Cantalópe.......................................... 329 439 329 kr. kg SS Kryddl. svínakótilettur ................................. 1.998 2.298 1.998 kr. kg Holta kjúklingabringur 100 % ........................... 2.698 2.998 2.698 kr. kg Goða hamborgarar 6x120 g ............................. 1.198 1.348 1.198 kr. pk. Eðalf. laxabitar hvítlauks .................................. 2.248 2.498 2.248 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 12.- 14. júní verð nú áður mælie. verð Svínakótilettur úr kjötborði ............................... 1.298 1.698 1.298 kr. kg Kindafile úr kjötborði ....................................... 2.898 3.498 2.898 kr. kg Hamborgarar 2x115g m/brauð ........................ 490 540 490 kr. pk. KF grísafile kryddað ......................................... 1.398 1.855 1.398 kr. kg SS ítalskar lambalærisneiðar............................ 3.128 3.680 3.128 kr. kg SS grískar grísasneiðar .................................... 1.998 2.379 1.998 kr. kg Coke 12x0.33ml ............................................. 998 1.548 83 kr. stk. Homeblest 300 g ............................................ 198 218 198 kr. stk. FK vanillu/súkkulaði ís 2ltr ............................... 548 0 548 kr. stk. Pepsi/pepsi max 2ltr ....................................... 198 228 198 kr. stk. Helgartilboðin KUBBAR Endalausirmöguleikar Útsölustaðir: Elko Lindum, Hagkaup, Hverablóm, Skagfirðingabúð, Verslunin Pan. nordicgames.is NÝTT Spennandi leikfang sem örvar skapandi hugsun!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.