Morgunblaðið - 12.06.2014, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.06.2014, Qupperneq 12
BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Í maílok var gerður opinber árs- hlutareikningur N1 fyrir 1. janúar til 31. mars á þessu ári. Þar kemur fram að félagið hafi selt fasteign- ina við Ægisíðu 102, sem er við gatnamót Ægi- síðu og Hofs- vallagötu, en þar hefur félagið rek- ið bensínstöð í áratugi. Í skýringum með árshluta- reikningi N1 um atburði eftir reikningsskiladag segir orðrétt: „Í maí tók félagið kaup- tilboði í fasteignina að Ægisíðu 102 og er áætlaður söluhagnaður að lág- marki 260 m.kr. Áætlað er að starfsemi að Ægisíðu verði hætt á haustmánuðum þegar gengið hefur verið frá kaupsamningi en ekki er talið að lokunin muni hafa veruleg áhrif á EBITDA félagsins.“ Morgunblaðið leitaði eftir því hjá Eggert Benedikt Guðmundssyni, forstjóra N1, hver hefði keypt fast- eignina og lóðina við Ægisíðu 102, en hann sagði ekki hægt að upplýsa það að svo stöddu, þar sem ekki væri bú- ið að ganga frá kaupsamningi. Í maí- lok sagði Eggert Benedikt að verk- stæði fyrirtækisins við Ægisíðu yrði sameinað verkstæði N1 í Fellsmúla. Ægisíða ehf. keypti lóðina Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins keypti félagið Ægisíða ehf. fasteignina og lóðina af N1. Hjá Rík- isskattstjóra er félagið gefið upp með heimilisfang að Laugarársvegi 69 og í atvinnugreinaflokkun er fé- lagið sagt byggja íbúðar- og atvinnu- húsnæði. Félagið var stofnað þann 15. apríl síðastliðinn. Þegar Morgun- blaðið náði í gær í einn af forsvars- mönnum Ægisíðu ehf. sagði hann að áform um uppbyggingu á lóðinni væru ekki komin vel á veg, enda yrði ekkert ákveðið nema í samráði og samstarfi við ríki og borg. „Það hefur verið stefnan í aðal- skipulagi borgarinnar að fækka bensínstöðvum og þarna er visst tækifæri til þess, enda bensínstöð á þessum frábæra stað barn síns tíma. Hugmyndir okkar í Ægisíðu ehf. ganga út á það að breyta þessari lóð í íbúðalóð eða íbúðalóðir,“ sagði heim- ildarmaður Morgunblaðsins og benti á að bensínstöð og dekkjaverkstæði væru ekki endilega heppilegustu ná- grannar við leikskóla og íbúðabyggð. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að eigendur Ægisíðu ehf. hyggist byggja lágreista blokk eða blokkir á lóðinni við Ægisíðu 102, ekki hærri en tveggja hæða. Mér þykja þetta frábærar fréttir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsnefndar Reykjavíkur kvaðst í samtali við Morgunblaðið í gær, fagna því ef bensínstöðin við Ægisíðu væri að fara. Hún væri á frábærum stað undir íbúðabyggð og tæki fáránlega mikið pláss. „Við í skipulagsnefnd höfum ekki fengið erindi um þetta inn á borð til okkar. Ef ég man rétt þá var það Júl- íus Vífill sem kom fram með þá til- lögu í borgarstjórn á síðasta kjör- tímabili að fækka bensínstöðvum í borginni. Við fögnum því ef þarna verður byggt íbúðarhúsnæði. Auðvitað þarf það að vera í samræmi við næstliggj- andi umhverfi,“ sagði Hjálmar. Hann kvaðst telja upplagt að þarna risu tvílyft raðhús, svokölluð „townhouses“ sem hann kvaðst telja að myndu falla vel að umhverfinu. „Við fögnum þessu. Mér þykja þetta frábærar fréttir,“ sagði Hjálm- ar og bætti við að þegar skipulags- nefnd fengi erindið inn á borð til sín, yrði tekin afstaða til þess hversu mikið byggingarmagn yrði leyft á lóðinni og hversu há hús. „Þá ætlum við vitanlega að taka mið af okkar eigin samþykktum um verndun byggðamynsturs í miðborginni og jaðri hennar,“ sagði Hjálmar Sveins- son, varaformaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, að lokum. Hyggjast reisa blokk við Ægisíðu  Ægisíða ehf. keypti lóðina við Ægisíðu 102 af N1 Áformin gera ráð fyrir lágreistri byggð á reitn- um  „Mér þykja þetta frábærar fréttir,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsnefndar 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Undanfarið hafa rottur verið töluvert í fréttum, til dæmis varð vart við rottu í Vesturbæjarlaug á sunnudag- inn. Þá var telpa bitin af rottu í Hlíð- unum síðar sama dag. Ómar F. Dabney, rekstrarfulltrúi hjá Meindýravörnum Reykjavíkur- borgar, vill þó ekki kannast við að rottum hafi fjölgað í borginni. „Þetta eru bara einstök tilfelli,“ segir Ómar. „Í nær öllum tilfellum er um að ræða bilanir í lögnum. Stundum er um að ræða byggingaraðila sem skilja skólplagnir eftir opnar. Í slíkum til- fellum förum við á staðinn og krefj- umst úrbóta.“ Ómar segir starf Meindýravarna Reykjavíkurborgar snúast að mestu um fyrirbyggjandi aðgerðir.„Við reynum eftir bestu getu að herja á þær ofan í holræsabrunnunum og starfrækjum hópa yfir sumartímann sem sjá um að dreifa eitri í holræsin.“ Steinar Smári Guðbergsson mein- dýraeyðir í Reykjavík segir tilfellum ekki fara fjölgandi. „Mín tilfinning er að tilfellum fari í raun örlítið fækk- andi. Oft er þetta tengt framkvæmd- um þar sem lagnir eru opnar.“ Axel Valgeirsson meindýraeyðir á Akureyri segir það undantekningu að eiga þurfi við rottur á Akureyri. „Við erum bara í músum hérna,“ seg- ir Axel kíminn. sh@mbl.is Morgunblaðið/Arnaldur Óvelkominn borgarbúi Rottur eru ekki velkomnar á götum borgarinnar. Rottum ekki fjölg- að í höfuðborginni  Eitri dreift í holræsi borgarinnar Eins og fram kemur í árshluta- reikningnum fyrir 1. janúar sl. til 31. mars sl. voru hluthafar N1 í lok mars á þessu ári 3.751 en þeir voru 5.164 í upphafi árs og hafði þeim því fækkað um 1431 frá áramótum.. Tíu stærstu hlut- hafarnir eru: FSÍ (Framtaks- sjóður Íslands) með 20,9% hlut, Lífeyrissjóður verslunarmanna með 10% hlut, Stafir lífeyris- sjóður með 6% hlut, Almenni líf- eyrissjóðurinn með 5% hlut, Ís- landsbanki með 4,4% hlut, Sameinaði lífeyrissjóðurinn með 4,3% hlut, Helgafell með 4,2% hlut, Gildi - lífeyrissjóður með 4% hlut, Júpíter - innlend hluta- bréf með 2,8% hlut og Stapi líf- eyrissjóður með 2,5% hlut. FSÍ er lang- stærstur TÍU STÆRSTU HLUTHAFAR Í N1 EIGA SAMTALS 64,1% Morgunblaðið/Þórður Ægisíða 102 Bensínstöð N1 er á „frábærum stað undir íbúðabyggð og tekur fáránlega mikið pláss,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsnefndar Reykjavíkur. Hann fagnar áformum um íbúðabyggð á reitnum. Hjálmar Sveinsson Ægisíða 102 Loftmyndir ehf. Lóðarmörk Ho fsv alla gat a Æ gisíða Sörlaskjól Einimelur Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Lauf Fjölnota skeljastóll Sturla Már Jónsson Húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði LAUF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.