Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 16
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Nýr meirihluti í bæjarstjórn Akur- eyrar var kynntur til leiks í fyrra- dag, við menningarhúsið Hof. Drep- ið var á málið í frétt í blaði gær- dagsins. L-listinn, Framsóknar- flokkurinn og Samfylkingin fengu öll tvö menn kjörna í bæjarstjórn og mynda meirihlutann.    Matthías Rögnvaldsson frá L- lista verður forseti bæjarstjórnar og formaður nýs atvinnu- og nýsköp- unarráðs, en hann lagði mikla áherslu á þá málaflokka í aðdrag- anda kosninga. Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti Framsóknar, verður formaður bæjarráðs og Logi Már Einarsson, oddviti Samfylk- ingar, formaður Akureyrarstofu sem fær víðtækara hlutverk en til þessa.    Hóparnir þrír ákváðu strax á kosninganótt að freista þess að ná meirihluta og talaði Logi þá um „draumaliðið“ í samtali við ofanrit- aðan. Sú nafnbót virðist hafa fest við meirihlutann og fróðlegt að sjá hvort hann stendur undir nafni.    Brýnasta málið sem bíður nýs meirihluta er að koma heilsugæslu- málum í viðunandi horf. Um það ræddu allir fyrir kosningar. Akur- eyringar hafa lengi þurft að bíða óratíma, allt að þremur vikum, eftir tíma hjá heimilislækni sé allt að þremur vikum og fullyrða bæjaryfir- völd að fjármagn frá ríkinu sé mun minna en samningur segi til um. Því þurfi að kippa snarlega í liðinn svo ekki hafi verið hægt að fjölga starfs- fólki undanfarin misseri.    Akureyrarbær hefur í nokkur ár rekið heilsugæslustöðina skv. þjónustusamningi, fyrst sem reynslusveitarfélag. Allar leiðir verða skoðaðar til að breyta ástand- inu til batnaðar, en fulltrúar meiri- hlutans nýja sögðu þó að það yrði al- gert neyðarúrræði að segja upp samningnum við ríkisvaldið.    Logi Már og samherjar hans í meirihlutanum lögðu áherslu á það að ekki hefði verið barist um titla í viðræðum að þessu sinni, heldur leit- ast við að finna sem hæfastan mann í hvert hlutverk. Þess vegna væri hægt að tala um draumalið. „Ég held að okkur hafi tekist það,“ sagði Logi.    Einhverjir hafa velt vöngum yfir og gagnrýnt hvers vegna sjálfstæð- ismönnum, helstu sigurvegurum kosninganna, var ekki verið boðið til viðræðna um meirihluta, og að L- listinn sem tapaði miklu fylgi skuli í raun leiða „draumaliðið“ til valda.    Logi Már, oddviti Samfylkingar- innar, afgreiddi slíkt tal á snöggu augabragði sunnanundir Hofi. „Slík- ar vangaveltur eru til einskis. Það sem skiptir máli er hverjir treysta sér til að vinna með hverjum. Ég minni á að þrátt fyrir allt er L- listinn næststærsta stjórnmálaaflið í bæjarstjórn.“    Logi Már nefndi að sá hugsanlegi meirihluti sem sjálfstæðismenn hefðu helst rætt um á kosninganótt: samstarf við Framsóknarflokk og Bjarta framtíð, hefði ekki haft meiri- hluta atkvæða en það hefði flokk- arnir þrír hins vegar, sem nú hefðu tekið saman höndum um stjórn bæj- arins næstu fjögur árin.    Eiríkur Björn Björgvinsson verður áfram bæjarstjóri á Akureyri og lýstu oddvitar meirihlutaflokk- anna yfir að hann yrði sterkari tals- maður bæjarins út á við en hingað til. Það hefði þegar verið ákveðið en sjálfstæðismenn gagnrýndu það ein- mitt í aðdraganda kosninga að „rödd Akureyrar“ þyrfti að heyrast betur.    Í yfirlýsingu frá framboðunum þremur segir meðal annars, og vek- ur nokkra athygli í ljósi umræðu hér á landi að undanförnu: „Við leggjum áherslu á félagslegt réttlæti og vilj- um berjast fyrir því allir njóti mann- réttinda án tillits til kynferðis, trúar- bragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Þetta ætlum við að hafa að leiðar- ljósi í öllum okkar störfum.“ Túlki þetta hver sem vill …    Hljómsveitin Dimma heldur út- gáfutónleika á Græna hattinum á morgun, föstudagskvöld. Sveitin hefur nýverið gefið út plötina Vélráð sem afar gott orð fer af.    Leið 2 hjá Strætisvögnum Akur- eyrar verður ekki ekin í sumar. Sá vagn hefur farið úr miðbænum upp á brekku, þaðan út í þorp og aftur inn í miðbæ. Meginástæðan fyrir því að gripið er til þessara aðgerða er að ekki hefur fengist nægur mann- skapur í sumarafleysingar hjá SVA.    Eitt af því sem fulltrúar Sam- fylkingarinnar ræddu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna voru bættar almenningssamgöngur, m.a. að strætó gengi örar en áður. Fróð- legt verður að sjá hvort sú hugmynd verður að veruleika.    Sumarsýning Listasafnsins var opnuð um síðustu helgi: Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld. Þar úir og grúir af alls kyns list, en sannarlega áhugaverð sýn- ing. Ástæða til að hvetja fólk til að kíkja við á safninu enda ókeypis inn.    Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa í vikunni sett upp tré við Gler- árgötu, á milli akreina þjóðvegar 1, sem ekki hefur verið gert áður. Þar er um að ræða súlublæösp sem sögð er hentugt tré í minni garða, a.m.k. hentugra en hin plássfreka frænka hennar, alaskaöspin. Súlublæöspin er grannvaxin með súlulaga trjá- krónu sem ekki verður breiðari en einn metri en getur orðið 10–15 metrar á hæð.    Nýtt kaffihús verður opnað fljót- lega í göngugötunni, þar sem Póstur og sími voru til húsa árum saman en tískuvöruverslun síðustu ár. Nýi staðurinn veðrur kallaður Símstöðin café; nema hvað. Áhersla mun verða lögð á heilsurétti.    Í hinum enda hússins er bar, Pósthúsbarinn. Því má segja með góðri samvisku að Póstur og sími hafi báðir snúið aftur …    Í miðbænum var nýlega opnuð lítil verslun þar sem seldar eru alls kyns nauðsynjar og heitir Alaska, eins og ein matvöruverslana KEA í nágranni miðbæjarins á árum áður. Þetta er eina verslunin af þessu tagi í grenndinni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson „Draumaliðið“ Sigríður Huld Jónsdóttir og Logi Már Einarsson, Samfylkingu, Framsóknarmennirnir Ingibjörg Isaksen og Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Silja Dögg Baldursdóttir og Matthías Rögnvaldsson, L-lista. „Draumaliðið“ og súlublæöspin Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Súlublæösp Starfsmenn bæjarins gróðursettu súlublæaspir með reglu- legu bili á milli akreina við þjóðveg 1 í gegnum bæinn í vikunni. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 þjóðlegt gómsætt og gott alla daga Gríptu með úr næstu verslun www.flatkaka.is kÖku gerÐ hp Í kvöld, fimmtudag kl. 20, verður sumarganga í Hafnarfirði í leið- sögn Steinunnar Guðnadóttur þar sem sjónum verður beint að merkri sögu virkjana í Hamarskotslæk. Í Hafnarfirði var unnið frumkvöðla- starf á sviði vatnsaflsvirkjunar þeg- ar Jóhannes J. Reykdal virkjaði Hamarskotslæk á þremur stöðum. Steinunn Guðnadóttir leiðir gönguna, en hún vinnur núna að bókarskrifum og kvikmynd um Jó- hannes J. Reykdal. Gengið verður frá Hafnarborg og er reiknað með að gangan taki um klukkustund, þátttaka er ókeypis og allir vel- komnir. Fólk er hvatt til að klæða sig eftir veðri. Sumarganga um virkjunarstaði Blóðgjafafélag Íslands heldur al- þjóðadag blóðgjafa hátíðlegan í dag, fimmtudaginn 12. júní, ásamt Ungliðahreyfingu blóðgjafa, UBGFÍ. Hátíðin fer fram við Blóð- bankann á Snorrabraut í Reykjavík milli klukkan 16 og 19. Margt verður til skemmtunar á hátíðinni fyrir börn og fullorðna. Meðal annars verður bangsaspítali á vegum læknanema, tæki slökkvi- liðsins verða sýnd og einnig lög- reglubíll. Flugbjörgunarsveitin verður með kynningu og ævintýri fyrir börnin og loks verða grillaðar pylsur og boðið upp á drykki og fleira. Blöðrur verða fyrir börnin og blóðgjafar sem gefa blóð þennan dag fá rós frá garðyrkjubændum með sér heim að lokinni blóðgjöf, segir í frétt frá Blóðgjafafélaginu. Blóðbankinn var stofnaður árið 1953, og hefur æ síðan gegnt mik- ilvægu hlutverki við að tryggja ör- yggi í heilbrigðisþjónustunni Blóðgjöf Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir almenning við Blóðbankann í dag. Hátíð haldin á al- þjóðadegi blóðgjafa STUTT Leikskólinn Mýri við Skerplugötu heldur í dag sína árlegu Skerpluhá- tíð. Að þessu sinni er líka verið að fagna afmæli Mýrar, en leikskólinn er 25 ára um þessar mundir. Hátíð- in hefst kl. 15.00 og „vonast er til að sjá sem flesta foreldra, systkin, afa, ömmur, gamla Mýrara og aðra vel- unnara Mýrar,“ segir í tilkynningu. Garðurinn verður skreyttur um morguninn og boðið upp á andlits- málningu. Þá verður farið í leiki, pylsur grillaðar og fleira skemmti- legt gert. Sirkus Íslands mætir á svæðið og skemmtir gestum. Allir eru velkomnir. Afmælishátíð Mýrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.