Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D
✆ 565 6050 ✆ 565 6070
ÚTSKRIFTARGJÖFIN HENNAR FÆST HJÁ OKKUR
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs
telja að ósigur Erics Cantor, leið-
toga repúblikana í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings, fyrir nánast
óþekktum frambjóðanda Teboðs-
hreyfingarinnar í forkosningum
flokksins í Virginíuríki séu óvænt-
ustu kosningaúrslit í landinu í
manna minnum.
Hagfræðiprófessorinn David
Brat, sem hafði umtalsvert minni
fjárráð í kosningabaráttu sinni en
Cantor, hafði á endanum öruggan
sigur og hlaut 56% atkvæða á móti
44% andstæðings síns. Cantor hafði
af mörgum verið talinn líklegur til að
taka við af John Boehner sem forseti
fulltrúadeildarinnar, þar sem
repúblikanar hafa meirihluta.
Sjálfur sagðist Brat hafa fengið
áfall þegar hann sá fyrstu tölur úr
kosningunum. „Þetta er augljóslega
hamingjusamasta stund lífs míns,“
sagði hann þegar úrslitin voru ljós.
Sigur hinnar öfgahægrisinnuðu
Teboðshreyfingar er talinn vera
tvíeggjað sverð fyrir Barack Obama
forseta og Demókrataflokkinn. Ann-
ars vegar er talið að frambjóðendur
úr röðum teboðsins sem eru á hægri
jaðrinum höfði síður til hófsamari
kjósenda en hefðbundnari frambjóð-
endur repúblikana. Hins vegar er nú
talið líklegt að erfiðara verði fyrir
forsetann að ná fram stefnumálum
eins og umbótum á innflytjenda-
löggjöfinni.
Eitt af því sem Brat notaði gegn
Cantor í kosningabaráttunni var að
hann hefði ekki staðið nógu einarð-
lega gegn fyrirhuguðum umbótum í
innflytjendamálum. Því er líklegt að
aðrir repúblikanar í fulltrúadeildinni
herði andstöðu sína við þær til þess
að gefa ekki íhaldssamari mótfram-
bjóðendum sínum færi á sér þegar
kemur að forkosningum í þeirra
kjördæmum.
Óvæntustu úrslit
í manna minnum
AFP
Áfall Ósigur Cantor kom stjórn-
málaskýrendum í opna skjöldu.
Leiðtogi repú-
blikana tapaði
Leigubílstjórar í Hamborg í Þýskalandi lögðu niður
störf ásamt starfsbræðrum sínum í nokkrum evrópsk-
um stórborgum í gær. Sumstaðar lokuðu leigubíl-
stjórar vegum að flugvöllum svo að umferðaröngþveiti
skapaðist. Ekki bætti úr skák að lestarstarfsmenn voru
einnig víða í verkfalli. Leigubílstjórarnir mótmæltu
þannig aðgerðaleysi stjórnvalda vegna smáforritsins
Uber sem hefur náð útbreiðslu undanfarið, t.d. hjá leyf-
islausum bílstjórum. Þeir telja forritið jafngilda gjald-
mæli sem aðeins leigubílar með leyfi megi nota.
Verkfall leigubílstjóra og lestarstarfsmanna í evrópskum stórborgum
AFP
Samgöngurnar lentu í lamasessi
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Uppreisnarmenn súnníta í Írak hafa
hafið leiftursókn í átt að höfuðborg-
inni Bagdad. Á þriðjudag náðu þeir
Mosul, annarri stærstu borg landsins
á sitt vald, og í gær féll Tíkrit, fæð-
ingarborg Sadams Hussein, þeim í
hendur. Tíkrit er aðeins 150 kíló-
metra fyrir norðan höfuðborgina.
Fréttir af frekari bardögum sunnar,
við borgina Samarra, bárust einnig í
gær.
Mannúðarsamtök telja að allt að
hálf milljón af tveimur milljónum
íbúa Mosul hafi flúið borgina vegna
átakanna þar. Yfirmaður sendinefnd-
ar Tyrkja í borginni og um fimmtíu
starfsmenn hennar eru í haldi íslam-
istanna.
Uppreisnarmennirnir koma úr
röðum samtakanna Íslamskt ríki í
Írak og löndum fyrir botni Miðjarð-
arhafs (ISIS). Samtökin hafa stund-
að skærur bæði í Sýrlandi og í Írak.
Þau ráða nú yfir umtalsverðu svæði í
austurhluta Sýrlands og vestur- og
miðhluta Íraks.
Krossfestingar og limlestingar
ISIS var stofnað sem sella hryðju-
verkasamtakanna al-Qaeda í Írak.
Þau hófu síðan að skipta sér af átök-
unum í Sýrlandi en í kjölfar valdabar-
áttu á milli hópa uppreisnarmanna
afneitaði Ayman al-Zawahiri, leiðtogi
al-Qaeda, samtökunum á þeim for-
sendum að þau væru of öfgafull.
Í Sýrlandi hefur ISIS verið sakað
um að bera ábyrgð á fjölda morða og
að beita grimmilegum aðferðum í
baráttu sinni. Þau hafi fyrirskipað að
maður sem sakaður var um morð
yrði krossfestur auk þess að beita
refsingum á borð við afhöfðanir og
aflimanir.
Talið er að samtökin hafi á um tíu
þúsund manna liði að skipa en þeim
hefur meðal annars borist liðsauki
frá Evrópu og Bandaríkjunum, að
því er kemur fram í fréttaskýringu
breska blaðsins The Guardian.
Á þeim landsvæðum sem ISIS
ræður yfir stjórna þau eins og rík-
isstjórn. Þau halda úti dómstólum,
skólum og þjónustu. Í borginni
Raqqa í Sýrlandi komu þau jafnvel á
neytendaverndarstofnun vegna mat-
vælagæða.
Þegar ISIS náðu Mosul á sitt vald
á þriðjudag óx þeim enn ásmegin því
þá féllu ýmis vopn, skotfæri og bún-
aður sem bandarísk stjórnvöld höfðu
fengið íröskum öryggissveitum þeim
í hendur. Það mun að líkindum gera
samtökin enn skæðari, bæði í Írak og
í Sýrlandi.
Íslamistar mjaka sér nær Bagdad
Tíkrit fallin í hendur uppreisnarmanna súnníta sem sækja suður á bóginn Samtökin þóttu of öfga-
full fyrir leiðtoga al-Qaeda Komin með bandarísk vopn í hendur eftir fall Mosul á þriðjudaginn
AFP
Stríð Svartklæddir vígamenn í
áróðsmyndbandi ISIS-samtakanna.
Ekki náðist samkomulag milli Rússa
og Úkraínumanna um verð á gasi á
sáttafundi sem Evrópusambandið
kom á í Brussel í gær. Úkraínumenn
höfnuðu tilboði
Rússa um verð á
gasi á þeim for-
sendum að verðið
væri of háð duttl-
ungum stjórn-
valda í Moskvu.
Löndin tvö
hafa um mánaða
skeið deilt um
verð sem Úkra-
ínumenn greiða
fyrir rússneskt
gas og skuld þeirra við Rússa vegna
þess.
Rússar buðu Úkraínumönnum að
fá gasið á sama verði og þeim bauðst
áður en Viktor Jústsjenkó hraktist
frá völdum. Úkraínumenn vilja hins
vegar betri kjör á gasinu og að deilan
verði leidd fyrir gerðardóm.
„Við teljum að tilboð okkar sé
meira en í anda samstarfs og það
miði að því að hjálpa úkraínska hag-
kerfinu á nokkuð erfiðum tíma. Ef
tilboði okkar er hafnað þýðir það að
við færumst á annað stig. Það er ekki
okkar val. Það viljum við ekki,“ sagði
Vladimír Pútín, forseti Rússlands í
gær.
Þokast áfram
Júrí Prodan, orkumálaráðherra
Úkraínu, var á móti ósáttur við fram-
ferði Rússa. Úkraínumenn hefðu
viljað að verðið yrði í samræmi við
markaðsverð.
„Því miður lögðu Rússar til leið til
að ákvarða verðið sem ég myndi
kalla pólitíska,“ sagði Prodan.
Þrátt fyrir þetta telur Guenther
Oettinger, orkumálastjóri ESB, að
viðræðunum hafi miðað eitthvað
áfram. Hann vonast til þess að þeim
muni þoka í samkomulagsátt á
næstu dögum.
Höfnuðu tilboði
Rússa um gasverð
Viðræður í Brussel halda áfram
Júrí Prodan í
Brussel.