Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
Sérsmíðaðar baðlausnir
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
• Einangrunargler
• Gluggar (Ál og PVC-plast)
• Hurðir (Ál og PVC-plast)
• Speglar
• Gler
• Hert gler
• Lagskipt öryggisgler
• Litað gler
• Sandblástur
• Álprófílar
• Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-
skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af
ljósaspeglunum okkar vinsælu.
Á heimasíðu okkar glerborg.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Mörkina þar sem fagfólk veitir góða
þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf.
Tapashúsið | Ægisgarður 2, 101 Reykjavík | info@tapashusið.is
NÝR OG SPENNANDI
MATSEÐILL
TAPASHÚSID BORDPANTANIR
Í SÍMA 512-8181
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Neðri deild spænska þingsins sam-
þykkti í gær lög sem staðfesta
valdaafsal Jóhannesar Karls
Spánarkonungs. Lögin fela jafn-
framt í sér að sonur hans, Filippus,
taki við krúnunni. Öldungadeild
þingsins á þó enn eftir að sam-
þykkja lögin. Hún mun fjalla um
frumvarpið á þriðjudag. Búist er við
því að Filippus verði svarinn í emb-
ætti tveimur dögum síðar, 19. júní.
Þrátt fyrir að frumvarpið hafi
verið samþykkt með afgerandi
meirihluta voru mótmæli gegn
konungsveldinu áberandi í þinginu.
Andstæðingar þess höfðu hvatt til
mótmæla gegn konungsveldinu fyr-
ir utan þinghúsið líkt og hafa átt sér
stað í stærri borgum Spánar frá því
að Jóhannes Karl tilkynnti að hann
hygðist afsala sér völdum.
Breytingartillögu hafnað
Inni í þingsalnum stóðu allir ell-
efu þingmenn Sameinaðs vinstris
upp á meðan umræðurnar fóru fram
og héldu uppi blöðum sem á stóð
„Þjóðaratkvæði núna“. Margir þing-
menn skörtuðu einnig barm-
merkjum með rauðum, fjólubláum
og gulum fána annars lýðveldisins á
Spáni, tákni spænskra lýðveldis-
sinna.
Þeir lögðu jafnframt fram
breytingartillögu við frumvarpið
sem fól í sér að þjóðaratkvæða-
greiðsla yrði haldin um framtíð
konungsveldisins. Henni var hins
vegar hafnað.
Tveir stærstu flokkarnir á þingi,
Lýðflokkur forsætisráðherrans
Mariano Rajoy og sósíalistar, voru
fylgjandi afsalsfrumvarpinu. Á end-
anum greiddu því 299 þingmenn at-
kvæði með frumvarpinu, nítján
höfnuðu því og 23 sátu hjá eða voru
ekki viðstaddir atkvæðagreiðsluna.
Á meðal þeirra sem voru ekki við-
staddir voru tveir þingmenn sósíal-
ista sem höfðu farið fram á að þing-
menn gætu greitt atkvæði um
frumvarpið óbundnir flokkunum.
Þeir verða sektaðir fyrir að mæta
ekki.
Flestir vilja fá að kjósa
Skoðanakönnun sem dagblaðið El
País birti á sunnudag sýnir að um
62% Spánverja vilja kjósa um fram-
tíð konungsveldisins. Kæmi til slíkr-
ar þjóðaratkvæðagreiðslu vildu 49%
hafa konungsveldi með Filippus
sem konung en 36% myndu styðja
stofnun lýðveldis, samkvæmt könn-
uninni.
Mariano Rajoy forsætisráðherra
tók hins vegar allan vafa af um að
þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram.
Stjórnarform landsins væri ekki til
umræðu að þessu sinni.
„Við erum ekki hér til að breyta
staðreyndum heldur til að undir-
strika með frumvarpi okkar að á
Spáni reiðum við okkur á staðfast
lýðræðislegt þingbundið konungs-
veldi,“ sagði Rajoy í umræðunum.
Konungsveldið væri til staðar því
það væri vilji Spánverja sjálfra, sem
litu á það sem bestu trygginguna
fyrir pólitískum stöðugleika.
Cayo Lara, leiðtogi vinstriflokks-
ins Sameinaðs vinstris, harmaði
hins vegar að næsti konungur
landsins erfði krúnu eins og hún
væri einkaeign. Málsmeðferðin við
valdaskiptin væri einnig ógegnsæ.
„Þetta er nýtt blóð fyrir konunga-
ætt sem er komin að fótum fram,“
sagði Lara.
Tekist á um framtíð
konungsveldisins á Spáni
Valdaafsal konungsins samþykkt í fulltrúadeild þingsins
AFP
Lýðveldi Mótmælendur sveipaðir fánum annars lýðveldisins komu saman
fyrir utan þinghúsið í Madríd til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu.
Konungsveldið
» Stjórnarskrá Spánar frá
1978 kvað á um þingbundið
konungsveldi. Þá hafði ekki
verið konungur í landinu frá
árinu 1931.
» Könnun sem hægriblaðið El
Mundo birti á mánudag sýndi
að stuðningur Spánverja við
krúnuna hefði aukist nokkuð
eftir að tilkynnt var um valda-
afsal Jóhannesar Karls.
Herforingja-
stjórnin í Taí-
landi sem rændi
völdum þar í síð-
asta mánuði hef-
ur nú gripið til
þess ráðs að
gefa bíómiða um
helgina til þess
að stuðla að „ást
og samhljómi“.
Fljótlega eftir
að herinn hrifsaði völdin hóf hann
herferð til þess að vinna fólk á sitt
band og bauð meðal annars til
ókeypis tónleika og matarhátíða.
Bíómiðarnir eru á myndina „Goð-
sögnin um Naresuan konung, 5.
hluti“. Hún fjallar um konung Sí-
ams, forvera Taílands, í kringum
aldamótin 1500-1600. Andi þjóð-
ernishyggju svífur yfir vötnum í
myndinni en sjálfsfórn og föður-
landsást eru áberandi þemu.
„Við þurfum að fá Taílendinga
til að skilja fórnir sem konungar
og Taílendingar færðu áður og
einingu Taílendinga í fortíðinni
svo að þeir fái aftur ást og sam-
hljóm eftir mörg ár af pólitískum
klofningi,“ segir talsmaður hers-
ins.
Herinn býður landsmönnum í bíó
TAÍLAND
Mótmæli gegn
herstjórninni.
Spenna íbúa heims fyrir heims-
meistaramótinu í knattspyrnu í
Brasilíu á sér ýmsar birting-
armyndir. Í Kína hefur til dæmis
orðið til markaður á netinu með
læknisvottorð fyrir þá sem ætla
hringja sig inn „veika“ í vinnu til að
geta fylgst með keppninni.
Leikirnir eru spilaðir frá því á
miðnætti til um kl. 6 um morgun að
kínverskum tíma og það fer ekki
vel saman við vinnutíma knatt-
spyrnuáhugamanna.
„Við seldum tíu læknisvottorð í
dag og um hundrað frá því að við
byrjuðum að selja þau í síðasta
mánuði,“ segir Zhang, einn selj-
anda á vefsíðunni
Taobao, stærstu
netverslun Kína,
við NBC-
fréttastofuna.
Á meðal vott-
orðanna sem
Zhang hefur selt
er bréf frá lækni
vegna „viðvar-
andi botnlanga-
bólgu“ sem gildir
í þrjá daga. Því fylgir innsigli Þjóð-
arháskólasjúkrahússins í Beijing.
Verðið á vottorðunum er allt frá
200-300 krónum upp í á sjötta þús-
und eftir því hversu lengi þau gilda.
Kaupa sér læknisvottorð á netinu fyrir HM
KÍNA
Kínverji virðir fyrir
sér HM-bikarinn.