Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 20

Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Léleg kjör-sókn í síð-ustu sveitarstjórnar- kosningum olli mönnum áhyggjum hér. Í fyrradag var prófkjör í flokki Repúblikana í Bandaríkjunum vegna kosninga til full- trúadeildarinnar í einu kjör- dæmi af mörgum í einu ríki Bandaríkjanna af 50. Slíkur atburður er smáfrétt innan- lands þar vestra. En ekki í gær. Ástæðurnar fyrir storm- inum sem brast á upp úr fréttalogninu voru tvær. Sú fyrri var að þingmaður- inn, sem féll óvænt, var Eric Cantor, sjálfur leiðtogi Repú- blikana í fulltrúadeildinni, næstur þingforsetanum. Flokkurinn hefur meirihluta í þingdeildinni. Hin var sigurvegari próf- kjörsins, sem var lítt þekktur hagfræðiprófessor, Dave Brat að nafni, sagður gerður út af Te-hreyfingunni. Hún sótti fast að „miðjumoðsmönnum“ flokksins fyrir fáeinum árum. Hafa fréttaskýrendur vestra talið að fyrirferð Te-hreyfing- arinnar hafi fælt jaðarfylgi frá Repúblikanaflokknum og orð- ið til þess að hann náði ekki meirihluta í öldungadeild þingsins. Hefur „flokkseigendafélag“ Repúblikana haft uppi við- búnað til að draga úr áhrifum hreyfingarinnar í kosningunum í nóvember nk. og einkum þó á for- setakosningaárinu 2016. Sú skýring er gefin nú á hinum óvæntu úrslitum að mikið votviðri á kjördag hafi leitt til óvenjudræmrar kjör- sóknar og þá fái áhugasöm- ustu kjósendurnir að njóta sín. Einnig hafi hist svo á að inn- flytjendamál hafi verið ofar- lega í opinberri umræðu í Bandaríkjunum vikuna fyrir prófkjörið. Miklar fréttir voru af þúsundum barna sem komið hafi ólöglega og óvænt yfir landamærin frá Mexíkó og höfðust við í móttökubúðum við heldur nöturlegar að- stæður. Yfirvöld í Washington virtust ekki vita sitt rjúkandi ráð og er hugmyndum forset- ans um allsherjarnáðun ólög- legra flóttamanna kennt um komu barnanna. En hvað kemur það Cantor við? Jú hann er sakaður um að hafa verið að bralla við Obama um þau mál á bak við tjöldin. Þær ásakanir eru sennilega ýktar mjög. En ásamt rigning- unni dugðu þær þó til þess að Dave Bratt prófessor með að- eins 25 milljóna (í krónum tal- ið) framboðssjóð sigraði hinn landsþekkta Eric Cantor sem varið hafði 300 milljónum í baráttuna og bandarísk stjórnmál komust í uppnám. Lítil kjörsókn leiddi til stórrar fréttar}Kjörsóknarskortur enn Nokkrum sinn-um á ári eru fluttar fréttir af banaslysum í um- ferðinni hér á landi og alltaf er það jafn sorglegt og hörmulegt að ekki skuli hægt að koma að fullu í veg fyrir slík slys. Þegar tölur yfir síðustu tvo áratugi eru skoð- aðar má sjá að banaslysum fækkar, sem er vissulega já- kvæð þróun, en hjálpar lítið þeim sem missa ástvini. Og þeir eru enn allt of margir. Í fyrra létust fimmtán í um- ferðinni og tólf að meðaltali síðastliðin fimm ár. Á fyrstu fimm árum aldarinnar létust að meðaltali tvöfalt fleiri í um- ferðarslysum þannig að árang- urinn er augljós og ánægju- legur. Í fyrradag sagði Morgun- blaðið frá því að á liðnum ára- tug hefði ekkert banaslys orð- ið á Reykjanesbrautinni eftir að hún var tvöfölduð, en árin þar á undan hafði hún verið ein mesta slysagildra landsins. Tvöföldun brautarinnar hefur því reynst bylting í umferðar- öryggi og sjálfsagt er að draga lærdóm af þessari reynslu og nýta hana á hættu- legustu vegarköfl- unum sem eftir eru á þjóðvegum landsins. Vegarkaflinn austur yfir Hellis- heiði frá Reykjavík og að Þrengslum hefur á síðustu ár- um verið sá hættulegasti á landinu mældur í fjölda bana- slysa og annarra alvarlegra slysa, og þegar litið er til slysa og óhappa almennt er vegar- kaflinn fyrir sunnan Hval- fjarðargöng verstur. Á þess- um tveimur vegarköflum er oft mikill umferðarþungi og þó að búið sé að bæta hluta af Suður- landsveginum á milli Reykja- víkur og Selfoss töluvert er enn langt í land að hann verði sambærilegur við tvöföldu Reykjanesbrautina. Fækkun banaslysa og ann- arra alvarlegra umferðarslysa hlýtur alltaf að vera eitt helsta forgangsmálið þegar kemur að vegabótum. Á næstu árum ætti að stefna að því að lag- færa hættulegustu vegarkafla landsins og fækka þannig eins og unnt er þeim hörmungum sem fylgja alvarlegum slysum á vegum landsins. Með markvissum að- gerðum er hægt að draga enn frekar úr alvarlegum slysum} Bylting í umferðaröryggi Þ að er ástæða til að óska borgar- búum til hamingju með nýja borgarstjórn og nýjan borgar- stjóra. Það er einkar forvitnilegt að hafa orðið vitni að þeim um- breytingum sem Dagur B. Eggertsson hefur tekið síðustu mánuði. Maður sem greinilega var vel meinandi en svo langorður að fólk missti áhugann á málflutningi hans löngu áður en hann hafði lokið máli sínu. Nú hefur Dagur lært að vera stuttorður og það fer honum vel. Dagur hefur sýnt að úthald getur skilað sér margfalt ef viðkomandi stjórnmálamaður hefur skynsemi til að rýna í veikleika sína og losa sig við þá. Á tímabili virtist sem tími Dags í pólitík væri liðinn. Hann var að verða fyrrverandi vonarstjarna. Nú, eftir snögga og vel heppnaða umbreytingu, virðast honum allir vegir færir. Það sama verður hins vegar ekki sagt um flokk hans, Sam- fylkinguna. Nýir flokkar spretta upp og taka fylgi frá Samfylking- unni sem virðist fullkomlega ráðlaus. Björt framtíð hefur stimplað sig sem miðjuflokk og er reiðubúin að vinna jafnt til vinstri sem hægri. Á meðan heldur Samfylkingin sig þvermóðskulega á vinstri vængnum og virðist líta á smá- flokkinn Vinstri græna sem eftirsóknarverða fyrirmynd. Þetta er nánast óskiljanlegt. Ótíðindin dynja á Samfylkingunni, nú síðast boðun nýs stjórnmálaafls, evrópusinnaðs hægri flokks. Verði sá flokkur að raunveruleika mun hann örugglega sækja nokkurt fylgi til kratanna og óánægðra sjálf- stæðismanna sem létu sig hafa það að kjósa Samfylkinguna vegna stefnu hennar í Evrópu- málum en eru afar ósáttir við vinstrisinnaðar áherslur hennar. Þannig þrengir mjög að Sam- fylkingunni þegar hinn nýi flokkur ásamt Bjartri framtíð og Pírötum mun halda áfram að hirða af henni fylgi. Flokkur sem ætlaði sér að verða stórveldi í íslenskri pólitík er í graf- alvarlegri stöðu. Flokkurinn getur haldið áfram að láta eins og ekkert sé og lifað í þeirri von að kjósendur muni sjá að sér. Ekki er þó sérlega líklegt að það gerist. Ýmsir horfa örugglega vonar- augum til formannsskipta, en það er ekki sjálf- gefið að Dagur fiski betur sem formaður en Árni Páll, þótt sá fyrrnefndi hafi náð góðu gengi í borginni og skorað hátt í vinsældakosn- ingum. Þegar Jón Gnarr kvaddi var Dagur sá frambjóð- andi í borginni sem kjósendur þekktu meðan oddvitar flestra annarra flokka voru í hugum borgarbúa nánast eins og ókunnugt fólk. Sóley Tómasdóttir er reyndar nokkuð þekkt, en sú vinstri pólitík sem hún stundar, og Samfylkingin virðist dá næsta takmarkalaust, fellur ekki í kramið hjá kjósendum. Samfylkingin ætti að horfa til þess hversu fáa fylgjendur hörð vinstri pólitík á og koma sér upp almennilegri stefnu sem höfðar til kjósenda. Þar hent- ar frjálslynd jafnaðarstefna ágætlega, en Samfylkingunni tókst á einhvern furðulegan hátt að týna henni. Það væri kannski ráð að hefja leit. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Umbreytingin og týnda stefnan STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon halda áfram í sambandi með ofbeldis- manninum því þær telja sig vera að gera ófædda barninu greiða. Það eru til rannsóknir fyrir því að konur sem verða fyrir heimilisofbeldi fæði oftar fyrir settan tíma heldur en þær sem ekki lenda í heimilisofbeldi og að börn þeirra verði minni enda eru þær undir miklu stressi alla meðgönguna vegna heimilisofbeldisins. Þetta hef- ur rosaleg áhrif á flæði blóðs og nær- ingar frá móður til fósturs. Svo ekki sé talað um hvaða áhrif þetta hefur á sálina, en það er ekki nægilega vel rannsakað. Þetta er mjög erfitt upp- haf fyrir börnin,“ segir Hafrún. „Þeir sem ættu að skammast sín eru of- beldismennirnir“. Breyttir tímar og ný nálgun Hafrún útskrifaðist sem ljós- móðir árið 1989 og segir hún öðruvísi hafa verið farið að hlutunum þá. „Það var ekki minnst einu orði á að konur gætu orðið fyrir heimilis- ofbeldi á meðan meðgöngu stæði og hvaða afleiðingar það gæti haft fyrir barn og móður, líkamlega og andlega,“ segir Hafrún. Hún segir að í dag sé öldin önnur og að ljósmæður og aðrir sem vinni með þungaðar konur búi nú yfir meiri þekkingu. „Samt sem áður kom það fram í viðtölum að ljósmæður sakni þekkingar og stuðn- ings frá vinnuveit- endum sínum.“ Þungaðar konur verða of oft fyrir heimilisofbeldi Heimilisofbeldi Konur sem verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni eru líklegri til að verða fyrir heimilisofbeldi meðan á meðgöngu stendur en aðrar konur. FRÉTTASKÝRING Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Sterkt samband er milli þeirrakvenna sem finna fyrirþunglyndiseinkennum íupphafi meðgöngunnar og þeirra sem verða fyrir heimilis- ofbeldi. Í flestum tilfellum eru það sambýlismenn eða eiginmenn þung- uðu kvennanna sem eru ofbeldis- mennirnir. Þetta kemur fram í doktorsritgerð Hafrúnar Finn- bogadóttur í ljósmóðurfræðum. Ný- verið varði Hafrún ritgerðina í Sví- þjóð, en hún stundaði doktorsnám við Háskólann í Malmö. Mikilvægar upplýsingar til að koma í veg fyrir heimilisofbeldi Í ritgerðinni kemur fram að ár- lega séu í það minnsta 90 konur beitt- ar heimilisofbeldi meðan á meðgöngu stendur á svæðinu í kringum Malmö og Lund í Svíþjóð, þar sem úrtakið fór fram meðal 1939 þungaðra kvenna. Ár hvert eru um það bil 9000 fæðingar á svæðinu og þýðir það að um 1% þungaðra kvenna verða fyrir heimilisofbeldi á meðan á meðgöngu- tímanum stendur. Einnig kemur fram að þær kon- ur sem hafa orðið fyrir ofbeldi ein- hvern tíman á lífsleiðinni séu mun líklegri en aðrar til að verða fyrir heimilisofbeldi yfir meðgönguna. „Nú getum við ljósmæður nýtt okkur þessar upplýsingar þegar við hittum konurnar í fyrsta skipti og tökum upp sjúkdómssögu þeirra,“ segir Hafrún og bætir við að þetta sé mikilvægt svo að hægt sé að spyrja konur um heimilisofbeldi. „Það eru ekki til örugg vísindi fyrir því að hægt sé að spyrja allar konur. Einnig er þetta erfitt sið- fræðilegt mál. Spurningin getur virk- að móðgandi fyrir parið og konurnar geta tekið þetta mjög nærri sér ef þær eru í góðu sambandi við manninn sinn,“ segir Hafrún Finnbogadóttir. Finna fyrir mikilli skömm Konur sem verða fyrir heimilis- ofbeldi finna fyrir mjög mikilli skömm og sektarkennd að sögn Haf- rúnar og segir hún margar þeirra lifa tvöföldu lífi. Þetta er vandamál í þjóðfélaginu og sakhæft samkvæmt sænskum lögum. „Það kom mjög skýrt fram í við- tölum við konur, sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi á meðgöngu, að þær Hafrún Finnbogadóttir, doktor í ljósmóðurfræðum, segir mikil- vægt að ljósmæður kunni að bregðast rétt við svo hægt sé að fyrirbyggja heimilisofbeldi. „Ef einhvern grunar, að verið sé að beita þungaða konu of- beldi, eða ef þunguð kona biður um hjálp þá verða allir að kunna að bregðast rétt við og þá sér- staklega ljósmæður,“ segir Haf- rún. Hún segir að háskólar í Svíþjóð kenni ljósmæðrum að bregðast við heimilisofbeldi. „Í Malmö erum við meira að segja byrjuð að gefa hjúkr- unarnemendum fyrirlestra um þessi mál. Ég tel best að byrja á að fræða fólk um þetta áð- ur en hægt er að vinna af al- vöru með þetta,“ segir Hug- rún. Hún segir að ekki sé hægt að heimfæra rannsókn sína yfir á Ísland í blindni en telur fulla ástæðu til að kanna stöðu mála hér á landi. Kunna að bregðast við ÞEKKJA RÉTTU HANDTÖKIN Hafrún Finnbogadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.