Morgunblaðið - 12.06.2014, Síða 21

Morgunblaðið - 12.06.2014, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014 Sumargleði Það var mikið um dýrðir í leikskólanum Fögrubrekku í Kópavogi í gær þegar þar var haldin sumarhátíð. Börnin fengu andlitsmálun og skemmtu sér konunglega. RAX Í gær var undirritaður samningur innanríkisráðu- neytisins og Rauða krossins um þjónustu við hælisleit- endur. Aðkoma Rauða kross- ins að þessum verkefnum hef- ur mikla þýðingu, ekki aðeins vegna þeirrar þekkingar og reynslu sem samtökin hafa af málefnum tengdum innflytj- endum, heldur einnig vegna þeirrar gilda og fagmennsku sem einkenna störf samtak- anna. Sú pólitíska samstaða sem ríkti þegar Al- þingi samþykkti breytingar á lögum um út- lendinga á síðasta starfsdegi sínum í vor skipti líka miklu máli. Meðal breytinga er að almenn kæruleið vegna ákvarðana um útlendingamál verður færð til óháðrar úrskurðarnefndar auk þess sem innleiddar voru breytingar sem munu gera stjórnsýsluna skilvirkari, tryggja enn frekar mannréttindi hælisleitenda og stytta málsmeðferðartíma. Reynsla Norðmanna Þetta og fleira sem snýr að málefnum hælis- leitenda og erlendra aðila sem sækjast eftir því að búa hér á landi hefur verið eitt af helstu verkefnum mínum frá því að ég tók við emb- ætti innanríkisráðherra. Hér er um viðkvæman málaflokk að ræða, þá sérstaklega það sem snýr að mál- efnum hælisleitenda. Það er verkefni okkar að tryggja mannúðlega og örugga meðferð, gera það sem við getum til að hjálpa þeim sem þurfa á hjálp að halda, tryggja það að stjórn- sýslan ráði við verkefnið og tryggja sem besta nýtingu fjármagns. Í byrjun ágúst sl. átti ég fund með Grete Faremo, þáv. dómsmálaráð- herra Noregs. Megintilefni fundar- ins var að fræðast um löggjöf þar í landi á sviði útlendingamála og það skipulag og verklag sem Norðmenn hafa komið sér upp í málaflokknum, ekki síst þann árangur sem Norðmenn hafa náð varð- andi málsmeðferðartíma hælisumsókna. Þá þegar var hafin átaksvinna í innanríkisráðu- neytinu sem sneri að því að stytta málsmeð- ferðartíma hælisumsókna, skýra og einfalda verklagsreglur, reglugerðir og eftir atvikum lög. Málsmeðferð stytt í 90 daga Það er full ástæða til að koma sjálfstæðri úr- skurðarnefnd á fót eins og ný lög gera ráð fyr- ir. Núverandi fyrirkomulag er með þeim hætti að innanríkisráðuneytið endurskoðar ákvarð- anir stofnunarinnar. Sú framkvæmd hefur verið gagnrýnd, m.a. af umdæmisskrifstofu Flóttamannastofnunar SÞ og öðrum fag- aðilum, á þeim forsendum að ráðuneytið geti ekki talist óháður og óhlutdrægur úrskurðar- aðili í málum þar sem undirstofnun þess tekur hina kæranlegu ákvörðun. Ég tel mikilvægt að taka mið af þessari gagnrýni og brýnt er að úr- skurðarnefndin starfi óháð innanríkisráðu- neytinu. Þá tel ég jafnframt mikilvægt að mannréttindasamtök eigi aðild að nefndinni til að tryggja enn frekar sjálfstæði hennar. Verulegur árangur hefur náðst í að auka skilvirkni við afgreiðslu hælismála. Með fyrr- nefndum samningi við Rauða krossinn og öðr- um breytingum sem gerðar hafa verið á verk- lagi er gert ráð fyrir að frá og með 25. ágúst 2014 verði málsmeðferðartími hælisumsókna hér á landi að meðaltali ekki lengri en 90 dag- ar. Ljóst er að margir hælisleitendur hafa beð- ið lengi eftir niðurstöðu og verður við mat á þeim umsóknum tekið tillit til þess þar sem ábyrgð á því er stjórnvalda, sérstaklega þegar um er að ræða börn og aðra viðkvæma um- sækjendur. Í því samhengi skipta tengsl við- komandi við landið máli sem og einstaklings- bundnar aðstæður viðkomandi. Tækifæri í fjölbreytni Enn stendur yfir átak til úrbóta í mála- flokknum. Frekari tillögur þar að lútandi verða kynntar nánar á næstu vikum auk þeirra breytinga sem lagabreytingin hefur í för með sér. En markmiðin eru skýr, styttri máls- meðferðartími, betri þjónusta við hælisleit- endur og sem best nýting á þeim fjármunum sem ríkið ver í málaflokkinn. Sá kostnaður minnkar í samræmi við styttri og faglegri málsmeðferðartíma. Í byrjun þessa árs skipaði ég þverpólitíska þingmannanefnd til að meta hvort og þá með hvaða hætti þörf sé á heildarendurskoðun á löggjöf um málefni útlendinga á Íslandi. Störf nefndarinnar hafa gengið vel og þess má vænta að næsta vetur liggi fyrir frumvarp um heildarendurskoðun útlendingalaga. Ég vil að lokum ítreka það sem ég hef áður sagt og skrifað um þessi mál. Við eigum að líta á það sem tækifæri þegar erlendir ríkisborg- arar vilja koma hingað til lands til að stunda nám eða starfa. Við eigum að búa land okkar og samfélag þannig í haginn að við séum opin fyrir því að útlendingar setjist hér að. Við vilj- um vera land tækifæra, umburðarlyndis og fjölbreytni. Öll viljum við nýta þau tækifæri sem okkur gefast. Það að opna Ísland fyrir fjölbreyttari hópi Íslendinga er eitt af þeim tækifærum. Eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur » Gert er ráð fyrir að frá og með 25. ágúst 2014 verði málsmeðferðartími hælisum- sókna hér á landi að meðaltali ekki lengri en 90 dagar. Hanna Birna Kristjánsdóttir Tímamót í málefnum hælisleitenda Höfundur er innanríkisráðherra og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.