Morgunblaðið - 12.06.2014, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn@heyrn.isHEYRNARÞJÓNUSTA
Pantaðu tíma í
heyrnargreiningu og fáðu
heyrnartæki til reynslu
ReSound LiNXTM eru fyrstu heyrn-
artækin sem tengjast þráðlaust beint
við snjalltæki s.s. síma, spjaldtölvur
og spilara.
Auk þess að vera mjög fullkomin
heyrnartæki eru þau heyrnartól fyrir
snjalltæki. Með þeim opnast endalausir
möguleikar að streyma samtölum úr
síma og tónlist eða öðrum tegundum
hágæðahljóða beint í heyrnartækin úr
snjalltækjunum.
Ný hönnun gerir þér kleift að fela
ReSound LiNXTM ef þú vilt, eða
monta þig af þeim ef þú vilt það frekar.
Þau eru fíngerð, þunn og fást í
10 mismunandi litum og tveimur
gæðaflokkum.
Fyrstu snjallheyrnartækin
Tímapantanir 534-9600
Heimasíða www.heyrn.is
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Alvöru blandarar
fyrir veitingastaðinn
kaffihúsið, ísbúðina
& booztbarinn
Ýmsir ánægðir viðskiptavinir
• World Class & flestir líkamsræktarstaðir íslands
• Kaffi Tár & Te & Kaffi
• Heilsuhúsið & Lifandi Markaður
• Ýmsir veitingastaðir s.s. Vox, Perlan, Ruby Tuesday ofl.
Fullveldisprangarar,
heittrúaðir ESB-
trúboðar, hafa fundið
aðalóvin íslensku þjóð-
arinnar, hinn mikli og
hættulegi þjóðaróvinur
er nær aldar gamalt
fullveldi íslenskrar þjóð-
ar.
Prangarar hafa með
sinni víðkunnu greind
og vizku skilgreint óvin-
inn sem „fullveldisgildru“ sem heftir
þroska alþjóðahyggju þjóðarinnar og
hamlar öllum framförum í menning-
ar-, atvinnu- og efnahagslífi á Íslandi.
Lausn prangara á vandamálinu er að
fullveldinu verði skilað, ekki til kóngs-
ins Köbenhavn, nei til Brussel verði
farið með óvininn og honum eytt þar.
Sambandslagasamningurinn (Lög)
frá 1918 gilti til 1. des. 1943. Vegna
styrjaldarinnar var ekki hægt að fara
eftir ákvæðum samningsins um end-
urskoðun sambandslaga. Alþingi
ákvað þá að Ísland yrði lýðveldi, kon-
ungssambandi við Danmörk væri lok-
ið. Fámennur, hávær hópur spratt þá
fram og krafðist þess að beðið væri
með allar ákvarðanir í málinu þar til
stríðinu væri lokið, hernámi Danmerk-
ur aflétt og hægt væri að framfylgja
endurskoðunarákvæðum samnings-
ins, vildu víst að gömlu herraþjóðinni
og kóngi yrði sýnd auðmýkt. Núna
snýr auðmýktin að Brusselbákninu,
þar bíði ESB-alsæluríkið villuráfandi
þjóðar, þjóðar sem ekki hafi pólitískan
þroska til þess að vera fullvalda og
þurfi hjálp, handleiðslu og leiðsögn
gamalla nýlenduvelda til þess að taka
á réttan hátt á móti framtíðinni. Krafa
fámenna, háværa hópsins, var vegin
og léttvæg fundin. Kjósendur sam-
þykktu með yfirgæfandi meirihluta
ákvörðun Alþingis um stofnun ís-
lenska lýðveldisins.
Ólíklegt að landhelgin væri 200 míl-
ur, ef Danir væru með utanríkismál að
endurnýjuðum sambandssamningi,
líklega 10-12 mílur. Verði Ísland ESB-
land verður fiskveiðilandhelgin á því
bili hvað sem líður fölsku þrastatísti og
svardögum ESB-agenta. Íslandsmið
glötuð Íslendingum. Í samningum við
Breta og Þjóðverja hefðu egg og beik-
on vísast haft meira vægi en þorskur á
Íslandsmiðum.
Kjósendur höfnuðu í
Alþingiskosningunum
27. apríl 2013 blekking-
arspuna ESB-agenta
um lokalausn allra
vandamála þjóðarinnar
með innlimun Íslands í
ESB. Þeir stjórn-
málaflokkar sem kjós-
endur trúðu að mundu
ógilda þingsályktun um
ESB-aðildarumsókn
unnu góðan kosninga-
sigur. Núna virðist vera
að koma í ljós að engin alvara fylgdi
þeim orðum þingmanna í ræðustól Al-
þingis, að Íslandi væri betur borgið ut-
an ESB. Ákvarðana- og aðgerðaleysi
hefur tekið við af hástemmdum yf-
irlýsingum. Hefur fámennur, hávær
hópur forustumanna ESB-aðild-
arsinna meiri áhrif á forustu stjórn-
arflokkanna en tugir þúsunda kjós-
enda þeirra? Getur verið að þúsundir
kjósenda hafi verið að lýsa vantrausti
á aðgerðaleysið, með því að nýta ekki
atkvæðisréttinn í sveitarstjórnarkosn-
ingunum?
Níuhundruð ár eru liðin sumarið
2018 frá þeirri tímamótaákvörðun Al-
þingis á Þingvöllum að samþykkja og
löggilda fyrstu lögbók Íslendinga
(Hafliðaskrá). Ákvörðun Alþingis 1117
að lög skuli skrifa á bók, ásamt
ákvörðuninni um stofnun Alþingis og
síðar um kristnitökuna eru mikilvæg-
ustu ákvarðanir þinga þeirrar full-
valda þjóðar, sem byggði Ísland á
þjóðveldistímanum.
Vegna aðgerðaleysis og/eða ákvarð-
anafælni og hiks þingflokka stjórn-
arflokkanna þokast ESB-agentar nær
því markmiði þeirra, að afhenda
Brussel-bákninu, ESB-valdhöfum,
fullveldi Íslands, auðlindaforræði og
lagasetningarvald Alþingis á fyrr-
nefndu afmælisári og aldarafmæli full-
veldis Íslands.
Höfnum öllum stjórnarskrárbreyt-
ingum sem eiga að auðvelda alþing-
ismönnum að afsala fullveldi Íslands
til ríkja eða ríkjasambanda. Fullvalda
ríki nær á jafnréttisgrundvelli þeim
samningum við önnur ríki fullvalda,
sem vilji er til án þess að því fylgi afsal
fullveldis.
Ekkert var því til fyrirstöðu að
ESB-skýrsla Hagfræðistofnunar yrði
gerð þó að meirihluti Alþingis hefði á
sl. haustþingi slitið ESB-aðlög-
unarferli og ógilt þingsályktun þar
um. Hagfræðistofnun hefði átt að fá
lengri tíma til verksins, t.d. til hausts
2015, þá verður ár frá því að Lissabon-
samningurinn komst í framkvæmd og
áhrif hans að skýrast. Þjóðin hefði þá
ítarlegri upplýsingar um áhrif ESB-
aðildar Íslands á íslensk málefni, al-
þingismenn, frambjóðendur kæmust
ekki upp með blekkingar og rang-
færslur fyrir þingkosningarnar 2017.
Rauðgræn sauðargæra verður til-
gangslaus.
Síbyljuáróður ESB-aðildarforingja
um eitthvað sem þeir kalla ótta lands-
manna við hið óþekkta er ekkert ann-
að en froðusnakk fullyrðingarvaðalsk-
jaftaska og lýðskrumara, sem reyna
að leika óttalausar, víðsýnar lýðræð-
ishetjur og réttlætisriddara, en virðast
í raun þjakaðir af fordómum og þröng-
sýni.
Þykjast vera útvaldir handhafar
sannleikans í öllum þjóðmálum og einu
sönnu túlkendur þjóðarviljans.
Lýðveldið Ísland er 70 ára 17. júní.
Slit ESB-viðræðna og ógilding þings-
ályktunar frá 2009 á sumarþingi núna
í júní yrði verðug og verðskulduð þjóð-
argjöf, þakkargjörð til þeirra kynslóða
sem um aldir byggðu landið við erfið
kjör og endurheimtu að lokum full-
veldi og frelsi íslenskrar þjóðar og Ís-
lands. Við sem nú lifum fleytum
rjómann af árangursríkri bar-
áttuþrautseigju, framfara- og viðreisn-
arhug genginna kynslóða forfeðra
okkar og -mæðra.
Ísland ættarland Íslendinga
Eftir Hafstein
Hjaltason
» Verði Ísland ESB-
land verður fisk-
veiðilandhelgin á því bili
hvað sem líður fölsku
þrastatísti og svardög-
um ESB-agenta.
Hafsteinn Hjaltason
Höfundur er vélfræðingur.
Í byrjun júní skrifaði
Bjarni Benediktsson
fjármála- og efnahags-
ráðherra undir samn-
inga við 11 hjúkr-
unarheimili sem eiga
aðild að Samtökum fyr-
irtækja í velferðar-
þjónustu (SFV). Með
undirskriftinni tekur
ríkið yfir nær allar
lífeyrisskuldbindingar
hjúkrunarheimilanna við B – deild
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins
(LSR) og Lífeyrissjóð hjúkrunar-
fræðinga (LH). Með yfirtöku skuld-
bindinganna, sem nema tæplega sex
milljörðum króna, styrkist eiginfjár-
staða hjúkrunarheimilanna verulega.
Og það er fyrst og fremst ástæðan
fyrir þessari yfirtöku ríkisins.
Undirritaður hefur unnið að lausn
málsins í rúm sex ár sem formaður
SFV. Allnokkrir fjármálaráðherrar
hafa komið og farið en hingað til hef-
ur enginn þeirra haft vilja eða kjark
til að ljúka þessu mjög svo mikilvæga
máli. Það var ekki fyrr en á fundi for-
svarsmanna SFV með Bjarna Bene-
diktssyni í byrjun febrúar sl. að skrið-
ur komst á málið. Á þeim fundi fól
ráðherra embættismönnum sínum að
semja við okkur hjá SFV um lífeyr-
isskuldbindingarnar og gera það
hratt og vel. Ég hafði áður heyrt fög-
ur fyrirheit um úrlausn og var því
mátulega bjartsýnn á að lausn feng-
ist. En viti menn. Fjórða samn-
ingalotan á sex árum fór af stað og nú
voru engin vettlingatök. Skrifað var
undir rammasamkomulag 11. apríl sl.
og eins og áður sagði var skrifað und-
ir endanlega samninga í byrjun júní.
Fyrir hjúkr-
unarheimilin 11 skiptir
þessi aðgerð mjög
miklu máli því auk þess
að losna við fyrrnefnda
milljarða skuldamegin
úr efnahagsreikningi
sínum þá lækka mán-
aðarlegar iðgjalda-
greiðslur þeirra tals-
vert.
Í rammasam-
komulaginu er kveðið á
um frekari vinnu við úr-
lausn sömu mála hjá Heilsustofnun
NLFÍ, Krabbameinsfélags Íslands,
SÁÁ og Sjálfsbjörgu en þau eiga öll
aðild að SFV. Farið verður í þá vinnu
af fullum krafti í sumar og haust. Þá
er ályktað um að gengið verði frá
samkomulagi á milli öldrunarstofn-
ana sem reknar eru á ábyrgð sveitar-
félaga og ríkisins um sömu mál.
Með greinarkorni þessu vil ég
þakka Bjarna Benediktssyni fjár-
mála- og efnahagsráðherra kærlega
fyrir vasklega framgöngu og að hafa
beitt sér af einurð fyrir lausn þessa
erfiða máls sem þvælst hefur fyrir
fyrirrennurum hans undanfarin sex
ár.
Þökk sé Bjarna Ben.
Eftir Gísla Pál
Pálsson
Gísli Páll Pálsson
»Með yfirtöku skuld-
bindinganna, sem
nema tæplega sex millj-
örðum króna, styrkist
eiginfjárstaða hjúkr-
unarheimilanna veru-
lega.
Höfundur er formaður Samtaka fyrir-
tækja í velferðarþjónustu.