Morgunblaðið - 12.06.2014, Síða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
Það er veisla í dag, það þýðir bara einn kaldur og HM,“ segirMagni Sigurðsson, nemandi við Flensborgarskólann íHafnarfirði og sumarstarfsmaður hjá vinnuskóla Hafnar-
fjarðar. Magni er mjög ánægður að heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu sé flautað af stað í dag en í dag eru 20 ár liðin frá því að hann
kom í heiminn. Hann er mikill ræðumaður og gegndi hlutverki með-
mælanda í ræðuliði Flensborgarskólans í vetur, þegar liðið sigraði
ræðulið Menntaskólans við Sund í úrslitum MORFÍS 2014, sem fóru
fram í Háskólabíói síðastliðinn apríl á móti Menntaskólanum við
Sund í Háskólabíói. Hann segir afmælið sitt ekki snúast um gjafir og
að hann kjósi frekar að eiga notalega stund.
„Ég er ekkert búinn að pæla í gjöfunum, þetta snýst fyrst og
fremst um að vera í kringum vini og fjölskyldu á afmælisdeginum,“
segir Magni þegar hann er spurður hvaða gjafir séu á óskalistanum
hans í dag. Hann á ekki í neinum vandræðum með að rifja upp hvaða
afmælisdagur sé honum minnisstæðastur.
„Þegar ég var 7 ára gamall þá fór ég á vormót skáta. Þar sungu
300 skátar fyrir mig afmælissönginn. Það þótti mér ekkert smá fal-
legt,“ segir Magni. Aðspurður hvað hann ætli sér að gera þegar
hann lýkur stúdentsprófi segir hann það hafa blundað lengi í sér að
læra líffræði í Háskóla Íslands og halda út til Noregs í framhaldi af
því. „Þar langar mig að læra fiskifræði,“ segir Magni. ash@mbl.is
Magni Sigurðsson er tvítugur í dag
Ljósmynd/Magni Sigurðsson
Ræðumaður Magni Sigurðsson er mikill ræðumaður og var hann í
ræðuliði Flensborgarskólans. Liðið sigraði MORFÍS í ár.
Ætlar að horfa á
HM í fótbolta í dag
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í dag, 12. júní, eiga 60
ára brúðkaupsafmæli
hjónin Elísabet Kemp
Guðmundsdóttir og
Haraldur Sigurðsson,
fyrrum bankafulltrúar á
Akureyri.
Árnað heilla
Demants-
brúðkaup
J
akob Smári Magnússon
fæddist á Akranesi 12.6.
1964 en flutti fjögurra ára
til Reykjavíkur, í Breiðholt
nánar tiltekið. Hann gekk í
Breiðholtsskóla og tók lokavetur
grunnskóla í Hólabrekkuskóla.
Jakob fór að vinna ýmis störf fljót-
lega eftir grunnskóla. Hann byrjaði
að spila á bassa 15 ára og gerðist at-
vinnumaður í tónlist árið 1984. Hann
hefur síðan þá unnið ýmis störf með
tónlistinni, aðallega sölustörf. Hann
starfaði til dæmis á auglýsingadeild
RÚV í nokkur ár og einnig sem
klippari á RÚV. Hann starfaði í þrjú
ár sem tónmenntakennari í Varmár-
skóla í Mosfellsbæ og var sölumaður
hjá heildversluninni Ásbirni Ólafs-
syni.
Jakob var tilnefndur sem bassa-
leikari ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum nokkur ár í röð og
fékk verðlaunin árið 1997. Hann hef-
ur verið í mörgum af frægustu
Jakob Smári Magnússon tónlistarmaður – 50 ára
Fjölskyldan Sonja Líf, Jökull Smári, Ragna, Ari, Lárus og Jakob í fermingu Lárusar árið 2011.
Ætlaði að hætta að spila
þegar nýtt tækifæri bauðst
Bassaskáld Jakob hefur verið meðal fremstu bassaleikara þjóðarinnar í
meira en 30 ár og leikið með Tappa tíkarrassi, SSSÓL og nú John Grant.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.