Morgunblaðið - 12.06.2014, Page 31
hljómsveitum landsins; hann var í
pönkbylgjunni með hljómsveitinni
Tappa tíkarrassi og í Síðan skein sól
(SSSÓL), einni af aðalsveitunum
þegar frægðarsól sveitaballa-
hljómsveitanna skein sem skærast.
Aðrar hljómsveitir sem Jakob hefur
verið í eru Das Kapital, Grafík,
MX-21, Pláhnetan, Bong, Snigla-
bandið, Reiðmenn vindanna og Egó.
Jakob hefur einnig spilað inn á plöt-
ur með Bubba Morthens, Todmobile,
Gus Gus, Láru Rúnars og John
Grant.
Á ferð og flugi með John Grant
Fyrir tveimur árum ætlaði Jakob
að hætta í tónlistarbransanum.
Hann hafði spilað með SSSÓL og
Reiðmönnum vindanna undanfarin
misseri en var búinn að fá nóg. „Ég
sá ekki fyrir mér að þetta væri það
sem ég vildi gera, að harka á böllum.
Ég vildi fara að lifa venjulegu lífi. Þá
kom hins vegar tækifæri sem ég gat
ekki sleppt en það var að spila með
John Grant. Ég hafði lengi vonast til
að fá að spila erlendis en var hættur
að búast við að það yrði nokkurn tím-
ann.“ Jakob spilaði inn á seinni plötu
Johns Grants og hefur síðan túrað
með honum víða um heim í sex
manna bandi. „Það hefur verið nóg
að gera í bandinu, aðalkeyrslan var
náttúrlega fyrst þegar platan var ný-
komin út en það eru margar tónlist-
arhátíðir fram undan, til að mynda
Glastonbury.
Það eina sem ég hafði spilað er-
lendis var með Láru Rúnars og svo
þreifuðum við í SSSÓL líka fyrir
okkur erlendis á sínum tíma. Feng-
um umboðsmann og tókum upp
plötu með nýju efni á ensku. Við spil-
uðum nokkrum sinnum erlendis en
fylgdum því ekki eftir. Platan kom
aldrei út og nú eru upptökurnar
týndar og enginn veit hvað varð um
þær.“
Jakob hefur gefið út tvær jólaplöt-
ur, Bassajól og annar í bassajólum.
„Þar með er minn sólóferill upptal-
inn. Fyrri platan fékk mun betri við-
tökur en ég átti von á og því gaf ég út
aðra plötu sem gekk líka ágætlega.
Sú fyrri er uppseld en það eru nokk-
ur eintök eftir af hinni.“
Fjölskylda
Eiginkona Jakobs er Ragna
Sveinbjörnsdóttir, f. 10.6. 1971, við-
skipta- og verkefnastjóri. Foreldrar
hennar eru Sveinbjörn Ragnarsson,
f. 24.8. 1944, prentari í Hafnarfirði,
og Gréta Sigurðardóttir, f. 8.11.
1946, bókari í Mosfellsbæ.
Fyrri maki Jakobs er Áslaug Pét-
ursdóttir, f. 2.6. 1967, skólastjóri.
Synir Jakobs og Áslaugar eru
Jökull Smári, f. 21.5. 1995, mennta-
skólanemi í Reykjavík, og Lárus, f.
30.1. 1997, menntaskólanemi í
Reykjavík. Sonur Jakobs og Rögnu
er Ari, f. 3.7. 2004. Stjúpdóttir Jak-
obs er Sonja Líf Svavarsdóttir, f.
25.6. 1990, hárgreiðslunemi í Mos-
fellsbæ.
Systkini Jakobs eru Sigurbjörn
Helgi Magnússon, f. 15.9. 1950, raf-
eindavirki í Hafnarfirði; Þorsteinn
Magnússon, f. 3.10. 1955, tónlistar-
maður í Reykjavík, og Hafdís Magn-
úsdóttir, f. 24.10. 1961, verslunar-
kona í Mosfellsbæ.
Foreldrar Jakobs eru Magnús
Þorsteinsson, f. 23.5. 1924, d. 11.9.
1998, bifreiðastjóri á Akranesi og í
Reykjavík, og María Jakobsdóttir, f.
16.4. 1927, d. 23.11.11. 1996, hús-
móðir og matráðskona á Akranesi og
í Reykjavík.
Úr frændgarði Jakobs Smára Magnússonar
Jakob Smári
Magnússon
María Einarsdóttir
húsfreyja í Forsæti og á Minna-Mosfelli
Kristján Jónsson
bóndi í Forsæti í Flóa og á
Minna-Mosfelli í Mosfellssveit
Margrét Kristjánsdóttir
húsfreyja í Keflavík
Jakob Adolf Sigurðsson
kaupmaður í Keflavík
María Jakobsdóttir
húsmóðir og matráðs-
kona í Reykjavík
Vilborg Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Sigurður Bjarnason
skipstjóri í Hafnarfirði
Björg Davíðsdóttir
húsfreyja í Bakkakoti
Jón Sæmundsson
bóndi í Bakkakoti í Skorradal
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Þorsteinn Magnússon
bifreiðarstjóri á Akranesi
Magnús Þorsteinsson
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Þorkatla Sigurðardóttir
húsfreyja í Borgarfirði
Magnús Þorsteinsson
húsmaður í Borgarfirði og Reykjavík
Hjónin Jakob og Ragna á leiðinni á
Bræðsluna í fyrrasumar.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2014
Doktor
95 ára
Ingigerður Magnúsdóttir
Sigrún Pálsdóttir
90 ára
Sigurgeir Ingimundarson
85 ára
Kristinn Jón Jónsson
80 ára
Haukur B. O. Schram
Helga Guðrún
Sigurðardóttir
Ingvi B. Guðmundsson
Jóhann L. Jónasson
Marie Bögeskov
María Einarsdóttir
Páll Vídalín Valdimarsson
Sigríður Margeirsdóttir
Tove Öder Hákonarson
Unnur Einarsdóttir
75 ára
Ingimar Þorbjörnsson
Jón Hilmar Stefánsson
70 ára
Adolf Ásgrímsson
Anna N. Möller
Anna Skaftadóttir
Auður Guðmundsdóttir
Baldur Árnason
Hjördís Brynleifsdóttir
Kjartan Guðjónsson
60 ára
Ágúst Oddsson
Bjarni Haraldsson
Gísli Jón Sigurðsson
Helga Bogadóttir
Sigrún Steingrímsdóttir
Sigurbjörg Olsen
Yves Francois
50 ára
Ágústa Þóra
Hjaltadóttir
Ásdís Óskarsdóttir
Finnur Hreinsson
Guðjón H. Friðgeirsson
Guðmundur Stefánsson
Guðrún Sigríður
Hilmarsdóttir
Halldór Ingi Guðmundsson
Hákon William Georgsson
Helgi Jónas Helgason
Jóhanna Halldórsdóttir
Karl Andreassen
Kristinn Már Sveinsson
Málfríður Ólafsdóttir
Ólöf Aðalsteinsdóttir
Svala Axelsdóttir
Zaki Ali Hassan
40 ára
Janusz Papiez
Nanna Viðarsdóttir
Tryggvi Sigurðsson
Unnsteinn Lár
Oddsson
Wieslaw Piotr Smuk
30 ára
Arturas Kuklis
Elín María Jónsdóttir
Hong Le Thi Nguyen
Ingvar Alfreðsson
Jóna Guðlaug
Þorvaldsdóttir
Mark Chamney Asch
Sally Ann Vokes
Salvar Þór Sigurðarson
Saranda Dyla
Selma G. Selmudóttir
Sunna Karen
Ingvarsdóttir
Vesna Jovic
Þorsteinn Gíslason
Til hamingju með daginn
40 ára Jóhannes býr á
Akranesi, er starfsmaður
Elkem á Grundartanga og
er einnig sjómaður.
Maki: Úrsúla R. Ásgríms-
dóttir, f. 1974, grunnskóla-
kennari við Grundaskóla.
Börn: Ásgrímur Óskar, f.
1998, Erla Karitas, f.
2002, og Jóhannes Kári, f.
2012.
Foreldrar: Jóhannes
Smári Guðbjartsson, f.
1953, og Erla Jóhannes-
dóttir, f. 1957.
Jóhannes H.
Smárason
40 ára Una er Kópa-
vogsbúi og er hár-
greiðslumeistari hjá Pílus.
Maki: Gísli Páll Davíðs-
son, f. 1973, húsasmiður
hjá S. Helgasyni.
Börn: Alexander Davíð, f.
1995, Þorsteinn Einar, f.
1998, og Sóley Rós, f.
2003.
Foreldrar: Þorsteinn Ein-
ar Einarsson, f. 1946, rak
bifvélaverkst. og Eygló
Bogadóttir, f. 1944, fv.
starfsm. á Hótel Hilton.
Þórey Una
Þorsteinsdóttir
40 ára Sólveig er Reyk-
víkingur, fædd þar og
uppalin, og er aðstoðar-
leikskólastjóri í Heiðar-
borg í Árbæ.
Maki: Brynjar Ágúst
Hilmarsson, f. 1970,
málari.
Börn: Axel Enok, f. 2004,
og Esther Ólöf, f. 2008.
Foreldrar: Ketill Larsen,
f. 1934, leikari, og Ólöf
Benediktsdóttir, f. 1947,
bókasafnsfræðingur, bús.
í Reykjavík.
Sólveig Dögg
Larsen
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Margrét Einarsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína við Félags- og
mannvísindadeild á Félagsvísindasviði
Háskóla Íslands.
Ritgerðin ber heitið „Paid Work of
Children and Teenagers in Iceland:
Participation and Protection“ (Launa-
vinna barna og unglinga á Íslandi: Þátt-
taka og vernd).
Andmælendur voru dr. Gestur Guð-
mundsson og dr. Madeleine Leonard.
Ritgerðin fjallar um launaða vinnu 13-
17 ára ungmenna á Íslandi og byggði
bæði á spurningakönnun og hóp-
viðtölum. Komist er að þeirri niðurstöðu
að ákveðin togstreita ríki á milli efna-
hagslegrar og líkamlegrar velferðar
ungmennanna þegar kemur að atvinnu-
þátttöku þeirra. Ungmennin leggja
áherslu á að þau vilji vinna sér inn pen-
inga, tekjurnar færa þau í átt til sjálf-
stæðis og ábyrgðar og í sumum til-
fellum þurfa þau á tekjunum að halda til
að standa straum af eigin framfærslu.
Um fimmtungur ungmennanna hafði
orðið fyrir vinnuslysum, í sumum til-
fellum alvarlegum, og þau sem vinna
mikið og reglulega með skóla eru í meiri
hættu á að finna
fyrir stoðkerfis-
verkjum, sérstak-
lega bakverkjum.
Mörg dæmi eru
um að farið sé á
svig við lögin um
vinnu barna og
unglinga. Því vekur
það athygli að ung-
mennin sýndu ekki mikinn áhuga á um-
ræðu um öryggismál á vinnustað. Þó
töldu þau stöðu sína á vinnumarkaði
veika. Sú ályktun er dregin að sátt þurfi
að nást milli þess sjónarmiðs að vernda
ungmenni frá vinnu (réttarins til að
vinna ekki) og getu þeirra og vilja til at-
vinnuþátttöku (réttarins til að vinna).
Viðurkenna þurfi börn og unglinga sem
efnahagslega þátttakendur sem engu
að síður þurfi sérstaka vernd á vinnu-
markaði.
Leiðbeinandi var dr. Guðbjörg Linda
Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði, en
auk hennar sátu dr. Jónína Einarsdóttir,
dr. Sif Einarsdóttir, dr. Guðný Björk Ey-
dal og dr. Harriet Strandell í doktors-
nefndinni.
Doktor frá Félags- og
mannvísindadeild
Margrét Einarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1963. Hún lauk BA-prófi í
mannfræði frá Háskóla Íslands árið 1989 og MA-prófi í mannfræði frá sama
skóla árið 2004. Síðustu tíu árin hefur hún unnið við rannsóknir og fræðastörf
við Háskóla Íslands og víðar. Foreldar hennar eru Sesselja Þ. Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Einar B. Ásgeirsson rafeindavirkjameistari. Sonur Mar-
grétar er Einar Óli Guðmundsson iðnaðarverkfræðingur og á hún einn sonar-
son.
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is