Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 8

Morgunblaðið - 30.06.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Björn Bjarnason fjallar um við-brögð við nýlegum samningi innanríkisráðuneytisins og Rauða krossins um málefni hælisleitenda. Í honum felist meðal annars að Rauði krossinn sjái hælisleitendum fyrir lögmönnum, en Ragnar Aðalsteins- son hæstaréttar- lögmaður hafi í við- tali lýst ótta um að lögmenn missi við þetta spón úr aski sínum.    Björn segir Ragn-ar harma að samningurinn kunni að leiða til minni ríkisútgjalda og láti að því liggja að það sé aðför að mann- réttindum hælis- leitenda.    Björn segir reynslu sína þá aðRagnar hiki ekki við að ganga of langt í yfirlýsingum um örlög þeirra sem vísað hafi verið úr landi. Viðtalið sýni að hann telji að ís- lenska ríkið eigi að standa straum af kostnaði við störf lögmanna sem taki að sér að berjast fyrir málstað hælisleitenda. Hann óttist að lög- fræðingar sem þannig hafi starfað missi spón úr aski sínum. Fé til Rauða krossins sé illa varið, ekki síst vegna þess að þar gert sé ráð fyrir hlutlausri ráðgjöf.    Þessi afstaða Ragnars Aðalsteins-sonar skýrir hvers vegna oft er engu líkara en lögmenn hælisleit- enda gangi frekar fram sem al- mannatenglar en lögmenn í hefð- bundnum samskiptum við stofnanir ríkisins í þágu skjólstæðinga sinna. Yfirlýsingar lögmannanna hafa löngum átt greiða leið inn í frétta- tíma ríkisútvarpsins og þær hafa verið gefnar til að vekja samúð með skjólstæðingum lögmannanna og ýta undir þá skoðun að yfirvöldin sýni óbilgirni,“ segir Björn Bjarna- son. Björn Bjarnason Lögmenn eða almannatenglar? STAKSTEINAR Ragnar Aðalsteinsson Veður víða um heim 29.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 14 léttskýjað Nuuk 5 skúrir Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 12 skýjað Kaupmannahöfn 16 skúrir Stokkhólmur 16 skýjað Helsinki 12 skúrir Lúxemborg 15 skýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 16 skýjað Glasgow 17 léttskýjað London 13 skúrir París 17 léttskýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 18 léttskýjað Berlín 17 alskýjað Vín 20 skúrir Moskva 18 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 27 heiðskírt Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 21 skúrir Montreal 27 alskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 25 skýjað Orlando 33 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:05 23:59 ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37 SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20 DJÚPIVOGUR 2:21 23:42 Náðu þér í aukin ökuréttindi Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi Öll kennslugöng innifalin www.bilprof.is Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga Næsta námskeið hefst 2. júlí ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku Meirapróf Þekking og reynsla í fyrrirúmi Þrjú skemmtiferðaskip með alls 3.149 farþega komu í Ísafjarðarhöfn í gær. Mikið líf var í bænum, þar sem fólksfjöldinn rúmlega tvöfald- aðist. Skipin sem um er að ræða heita Queen Victoria, en það var við akkeri í Skutulsfirði og með því komu 2.172 farþegar, Mv. Delphin sem lagðist að bryggju með 556 far- þega, og Hamburg, sem einnig lagðist við bryggju, en með því kom 421 farþegi. Laugardagurinn var einnig stór á Ísafirði, en þá var skemmtiferðaskipið Costa Pacifica við akkeri í Skutulsfirði og með því komu 3.000 farþegar. Að sögn Heimis G. Hanssonar, forstöðumanns Upplýsingamið- stöðvar ferðamála á Ísafirði, var mikið líf í bænum. „Eftir því sem ég hef heyrt hefur verið mjög margt í öllum verslunum í bænum og mikið líf. Þetta er svo sannarlega fín inn- spýting í samfélagið,“ segir hann. Spurður hvort ferðamennirnir leiti meira inn í bæinn eða út fyrir hann segir Heimir það vera mjög mis- jafnt. Ýmsar skoðunarferðir séu í boði og margir ferðamenn nýti sér þær. „Það eru tvö kerfi í gangi varðandi skoðunarferðir fyrir ferða- menn. Annars vegar eru ferðir sem eru seldar um borð í skipunum, sem eru oftast nær í kringum þriggja klukkustunda skoðunarferðir um svæðið, ýmist með rútu eða báts- ferðir. Svo eru aðrar ferðir sem fólk kaupir í landi; skoðunarferðir, hestaferðir og kajakferðir svo eitt- hvað sé nefnt. Þó eyða nánast allir hluta af deginum í bænum,“ segir hann. Margir ferðamannanna lögðu leið sína í Gamla bakaríið, en að sögn Maríu Aðalbjarnardóttur, eins eig- enda bakarísins, gekk allt vonum framar. „Við gátum mjög vel tekið á móti öllu þessu fólki og allt gekk mjög vel. Við vorum vel undir þetta búin, með nóg af bakkelsi, kaffi og starfsfólki, svo það var nóg til allan daginn hjá okkur.“ María segir ferðamennina hafa verið ánægða og það hafi komið þeim á óvart hversu hlýtt væri á Íslandi. „Margir héldu að hér væri mun kaldara, svo það kom þeim á óvart hvað veðrið var gott.“ if@mbl.is „Fín innspýting í samfélagið“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ísafjörður Fjögur skemmtiferðaskip komu í höfn á Ísafirði um helgina.  Alls komu fjögur skemmtiferðaskip í höfn á Ísafirði um helgina  Farþegar í kringum 6.149 talsins  Fólksfjöldi í bænum rúmlega tvöfaldaðist báða dagana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.