Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 FYLGIFISKAR með gott á grillið Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30 Laugardaga frá 11.00-14.00 (Kópavogur) Pakki 1 - spjót Kryddlegið fiskispjót Fyllt kartafla Grískt salat Grillsósa 1.495 kr/manninn · Náðu upp mesta mögulega hita á grillinu þínu. · Gættu þess að grillið sé hreint og berðu á það olíu. · Lækkaðu hitann og settu fiskinn á grillið. · Gott er að nota fiskiklemmu eða fiskigrind. · Mundu að fiskurinn læsir sig fyrst á grillinu en losar sig um leið og hann eldast, því er mikilvægt að láta fiskinn vera á meðan hann er fastur við grillið. FISK ÞEGAR GRILLA Á Íslands og komum þangað iðulega færandi hendi á miðvikudagsmorgnum.“ Með í öskjunni fylgja uppskriftarspjöld og segir Valur gætt vandlega að því að elda- mennskan sé ekki tímafrek eða flókin en mat- urinn um leið áhugaverður, fjölbreyttur og bragðgóður. Lýsir Valur áherslunum í matseðl- inum þannig að útkoman eigi að vera yfir með- allagi góður heimilismatur. „Og ef áskrifanda líst ekki á matseðilinn eins og hann er auglýstur þá vikuna er sjálfsagt að sleppa að vera með í það skiptið.“ Eins og stjörnumáltíð Segir Valur að þrátt fyrir vinnuna sem fer í að undirbúa matarpakkann og koma í hendur viðskiptavinarins hafi tekist að stilla verðinu mjög í hóf. Þegar pantaður er matarskammtur fyrir tvo kostar hver kvöldmáltíð 1.165 kr. á mann en 940 kr. ef fjögurra manna pakkinn er pantaður. Hann ber þetta saman við verðið á máltíð á skyndibitastað, þar sem reikna má með að borga jafnmikið eða meira fyrir borgara og franskar. „Og skammtarnir okkar eru nokkuð ríflegir þannig að tveggja manna pakkinn á oft að duga fyrir tvo fullorðna og eitt barn,“ út- skýrir hann. „Það gæti mögulega verið ódýrara að kaupa hráefnið úti í búð en þá fer tími til spillis vegna búðarferðarinnar, þarf líka að verja tíma í að ákveða matseðilinn og svo er borin von að finna allt það hráefni sem þarf í nákvæmlega réttu magni. Hver kannast ekki við að hafa t.d. þurft að henda megninu af ferskri kryddjurt eftir að hafa eldað uppskrift heima sem kallaði bara á eina teskeið.“ Fólkið á bak við Eldum rétt hefur engan bak- grunn í rekstri matvöruverslana, heimsending- um eða eldamennsku. Segir Valur að þau eigi það hins vegar sameiginlegt að vera miklir áhugamenn um matargerð. „Við urðum svolítið að finna upp hjólið í byrjun enda engan að finna hér á landi með reynslu af einhverju svipuðu. Þetta var heilmikil vinna í fyrstu en er núna léttara og gengur bara nokkuð vel. Viðtökurnar hafa verið ákaflega góðar á þetta stuttum tíma og í dag erum við að afgreiða um 400-600 mál- tíðir á viku.“ Eins og stendur dreifir Eldum rétt eingöngu á höfuðborgarsvæðinu, að undanskildu Álfta- nesi og Mosfellsbæ. „Vonandi getum við stækk- að dreifisvæðið eftir því sem viðskiptavinum fjölgar og þar með náð meiri hagkvæmni í út- akstri. Erum við samt nú þegar með við- skiptavini búsetta utan þessa svæðis, t.d. úti í Keflavík, sem fá matinn sendan til sín í vinnuna á höfuðborgarsvæðinu og aka svo sjálfir með hann heim.“ Láta ekkert fara til spillis  Nýstofnað fyrirtæki færir pakka heim að dyrum vikulega, með nákvæmt skömmtuðu hráefni fyrir þrjár kvöldmáltíðir  Sambærilega þjónustu má finna í stórborgum víða á Vesturlöndum Morgunblaðið/Styrmir Kári Þægindi Valur Hermannsson með meðeigendum sínum Hrafnhildi Hermannsdóttur og Krist- ófer Leifssyni. Hönnu Maríu Hermannsdóttur vantar. Nú þegar útbýr Eldum rétt allt að 600 máltíðir vikulega og sendir heim að dyrum viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu. BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Með fyrirtækinu Eldum rétt má segja að fram- tíðin í matarinnkaupum sé loksins komin til landsins. Viðskiptavinir Eldum rétt fá sent heim til sín hráefni til að elda þrjár máltíðir í viku, þar sem vandlega er gætt að næringarinnihaldi, bragðgæðum, einfaldleika eldamennskunnar og skammtastærðum. Valur Hermannsson er framleiðslustjóri Eld- um rétt og einn eigenda þessa litla og nýstofn- aða fjölskydufyrirtækis. Með honum eiga rekst- urinn þau Kristófer Júlíus Leifsson, Hanna María Hermannsdóttir og Hrafnhildur Her- mannsdóttir. „Mér skilst að heimsendingarþjónusta af þessu tagi hafi fyrst orðið til í Svíþjóð en í dag má finna sambærileg fyrirtæki í flestum stór- borgum á Vesturlöndum. Hugmyndin er að spara fólki þann tíma og fyrirhöfn sem annars færi í innkaup og matseld og bjóða upp á þægi- legan matarkost sem er heilsusamlegri en skyndibiti,“ útskýrir Valur. Nákvæmlega skammtað Uppskriftir hverrar viku eru hannaðar í sam- vinnu við Freydísi Hjálmarsdóttur næring- arfræðing og alla jafna blandað saman kjöt- og fiskréttum. Valur segir boðið upp á tvær stærðir af matarpökkum: annars vegar fyrir tvo og hins vegar fyrir fjóra. „Er allt hráefnið skammtað með nákvæmum hætti svo ekkert á að vanta og lítið sem ekkert að ganga af við eldamennskuna. Allt kemur þetta heim að dyrum í hitaeinangr- andi boxi með kælipokum svo að jafnvel ef fólk er ekki á staðnum þegar við sendum út er óhætt að láta matinn bíða í nokkrar klukkustundir.“ Boxið er svo endurnotað, tómt boxið skilið eft- ir fyrir sendla Eldum rétt til að taka með sér í næstu ferð. „Við náum að nota hverja öskju í 4-5 skipti en matnum er vitaskuld pakkað í nýjar umbúðir og haganlega raðað inni í boxinu. Áherslan á góða nýtni endar ekki þar, því ef eitt- hvað gengur af við vinnslu matarpakkanna þá gefum við afgangshráefni til Fjölskylduhjálpar Heimildarmenn herma að alþjóðlegi franski bankinn BNP Paribas SA muni á mánudag játa sök í refsimáli sem rekið verður fyrir dómstólum í Manhattan. Málið varðar peninga- færslur sem brutu gegn bandarísk- um lögum um viðskiptabann á Súd- an, Íran og Kúbu. Er BNP Paribas gefið að sök að hafa leynt peninga- færslum til þessara landa að upphæð samtals um 30 milljarðar dala á tímabilinu 2002 til 2011. Fréttastofa Bloomberg segir bankann eiga í samningaviðræðum við stjórnvöld um greiðslu sektar sem muni nema 9 milljörðum dala, jafnvirði rösklega 1.000 milljarða króna. Bæði bandaríska dómsmála- ráðuneytið og fjármálaráðuneyti New York-ríkis koma að málinu. Myndi trufla dollaraviðskipti Sektin er svimandi há en ekki síð- ur alvarlegt fyrir BNP er að dóms- málið gæti endað með íþyngjandi höftum á ýmis viðskipti bankans. Greinir Bloomberg frá að svo geti farið að bankinn missi í eitt ár leyfi til greiðslujöfnunarviðskipta í bandaríkjadal, og glati þar með möguleikanum á að annast peninga- sendingar til og frá Bandaríkjunum. Slíkt bann myndi m.a. trufla við- skipti BNP Paribas fyrir olíu- og gasiðnað, en sú deild bankans á að hafa haft aðkomu að hinum meintu brotum. Myndi bannið líka bitna harkalega á útibúum bankans í Par- ís, Singapúr og Genf, en í síðast- nefndu borginni er talið að brotin hafi verið framin. MarketWatch bendir á að þetta myndi að öllum líkindum kosta bank- ann stóra alþjóðlega viðskiptavini og keppinautarnir séu vísir til að sæta lagi. Alþjóðlegir bankar hafa þurft að greiða bandarískum stjórnvöldum háar sektir á þessu ári. JPMorgan Chase reiddi fram 1,7 milljarða í jan- úar vegna áskana um að hafa átt þátt í svikamyllu Bernards Madoffs og Credit Suisse greiddi 2,6 milljarða dala í maí fyrir að hafa aðstoðað bandaríska viðskiptavini við að fela fjármuni sína á aflandsreikningum. ai@mbl.is BNP hyggst játa sök  Búist við að bankinn greiði níu milljarða dala sekt AFP Fúlgur Það er ekkert grín að brjóta viðskiptabann. Skilti við útibú BNP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.