Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.06.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Hljóðlát og endingargóð jeppadekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Öryggissveitir Íraka reyna nú að ná tökum á borginni Tíkrit í norðurhluta landsins. Árásin hófst á laugardag- inn og fylgdu mikil átök í kjölfarið þar sem tugir létu lífið beggja vegna víglínunnar. Átök hafa breiðst hratt út um hverfi borgarinnar, en öryggissveitir Íraka sækja að borginni úr öllum áttum. Vitni að átökunum segja að heimatilbúnar sprengjur hamli sókn öryggissveitanna, en slíkar sprengjur liggja á víð og dreif um borgina. Ríkisstjórn Íraks tilkynnti á laugardagskvöld að hún hefði náð yfirráðum yfir borginni, en uppreisnarmenn þræta fyrir það. Heimildir herma að Írakar hafi beitt flugárásum í baráttunni um borgina. Flugher Íraka hef- ur átt í erfiðleikum með að beita sér af fullu afli gegn upp- reisninni, og segja kunnugir að flugherinn skorti mikil- væg flugskeyti. Ríkisstjórn Íraks fékk í gær fyrstu sendingu herþotna frá Rússum sem eiga að aðstoða yfir- völd í baráttunni gegn uppreisnarmönnum. Írakar njóta einnig aðstoðar Bandaríkjanna, en árásin á Tíkrit er skipulögð í samstarfi við bandaríska hern- aðarráðgjafa, sem komu til landsins fyrr í mánuðinum. Þá hafa stjórnvöld Bandaríkjanna sent þrjú hundruð hermenn til hjálpar ríkisstjórninni, ásamt árásarflygild- um til að verja mannskap sinn. Þvertaka þau þó fyrir að herlið þeirra eigi hlut í átökum síðustu daga. ISIS-samtökin stjórna nú stórum landsvæðum í norð- ur- og vesturhluta landsins eftir linnulausar árásir síð- ustu þrjár vikur. Uppreisnin mætir andstöðu  Herlið Íraka ræðst til varnar borginni Tíkrit  Rússneskar herþotur til hjálpar Fyrsta gagnárásin » Þetta er fyrsta gagnárás yfirvalda í Írak, sem skort hef- ur skipulag og samstöðu. » Írak hefur gert samning við Rússa og Hvít-Rússa um kaup á herþotum. » Forsætisráðherra Íraks vinn- ur að gerð nýrrar ríkisstjórnar undir miklum þrýstingi. Múslimar safnast saman í mosku í Indónesíu. Biðja þeir bænir sínar sem marka upphaf hins heilaga mánaðar ramadan. Múslimar um allan heim halda nú heilagan þennan mánuð með því að neyta hvorki matar né drykkjar frá sólarupprás til sólseturs. Fleiri múslimar búa í Indónesíu en í nokkru öðru landi í heiminum. AFP Hinn heilagi mánuður ramadan gengur nú í garð Múslimar fasta á meðan sólarinnar gætir Helstu leiðtogar ríkja Evrópusam- bandsins efndu í gær til viðræðna á milli forseta Úkraínu og Rúss- lands. Er unnið að því að framlengja vopnahléið sem ríkir nú í Úkraínu en það var fram- lengt um þrjá daga á föstudaginn. Að öllu óbreyttu mun því ljúka klukkan átta í kvöld að íslenskum tíma. Nokkrir leiðtogar aðskiln- aðarsinna hafa þó neitað að virða vopnahléið og hafa einhverjar skær- ur átt sér stað um helgina. Petro Porosénkó, forseti Úkraínu, hefur undanfarna daga þurft að þola mót- mæli íbúa í Kænugarði gegn vopna- hléinu. Fullyrða mótmælendur að aðskilnaðarsinnar séu þeir einu sem hagnist á áframhaldandi vopnahléi. Evrópusambandið hefur hótað frekari efnahagsþvingunum gegn stjórnvöldum í Rússlandi, þrýsti þau ekki á afvopnun skæruliða á landa- mærum landanna. Friðarviðræðum haldið áfram Petro Porosénkó Samningur Sam- einuðu þjóðanna mun fela í sér frekari friðun skipsflaka frá fyrri heims- styrjöld. Samn- ingurinn var kynntur árið 2001 og nær aðeins til skipa sem sukku fyrir meira en hundrað árum. Nú fer brátt í hönd aldarafmæli fyrri heimsstyrjaldar og þá mun samningurinn ná til allra þeirra skipa sem sukku í stríðinu. Þrátt fyr- ir að sjóbardagar hafi ekki verið jafn tíðir og raunin varð í seinni heimsstyrjöld voru nokkrar mark- verðar orrustur, svo sem orrusta Breta og Þjóðverja undan vestur- strönd Jótlands árið 1916, sem er mesta sjóorrusta allra tíma. Mörg skipsflök þurfa að þola grip- deildir og vísvitandi skemmdarverk og er samningnum ætlað að koma í veg fyrir það. Skip fyrri heims- styrjaldar friðuð Eftir að Bretar skoruðu á leiðtoga ríkja ESB að kjósa um næsta forseta framkvæmdastjórnar sambandsins hefur David Cameron, forsætisráð- herra Bretlands, þurft að sæta mik- illi gagnrýni heima fyrir. Leiðtogi breska Verkamannaflokksins, Ed Miliband, segir að með þessu hafi Bretland færst mun nær útgöngu- dyrum sambandsins, sem ógni efna- hag landsins. Þá segir leiðtogi Breska sjálfstæðisflokksins, Nigel Farage, að forsætisráðherrann hafi orðið sér til mikillar skammar. David Cameron hefur lengi sýnt opinbera andstöðu gegn frekari sam- runa ríkja Evrópusambandsins, en slík afstaða þykir líkleg til vinsælda meðal almennings í Bretlandi. Engin hefð fyrir kosningu Jean-Claude Juncker, fyrrverandi forsætisráðherra Lúxemborgar, er leiðtogaefni Evrópska þjóðarflokks- ins sem var sigurvegari þingkosn- inganna fyrr á árinu. Varaði Came- ron við því að tilnefning Junckers myndi framselja enn meiri völd í hendur Evrópuþingsins úr höndum leiðtoga aðildarríkjanna. Tilnefning forseta framkvæmda- stjórnar sambandsins hefur venju- lega farið fram í hljóði, en Cameron mótmælti því fyrirkomulagi og krafðist atkvæðagreiðslu. Svo fór að Juncker hlaut 26 af 28 atkvæðum, en Bretland og Ungverjaland greiddu atkvæði gegn tilnefningunni. Leiðtogar Svíþjóðar og Þýska- lands, Fredrik Reinfeldt og Angela Merkel, hafa komið Cameron til varnar. Reinfeldt segist vita að það sé ekki vilji allra aðildarríkja að sam- einast enn frekar. Þá segir Merkel að hún sé tilbúin að endurskoða til- nefningarferlið. sh@mbl.is Cameron sætir nú gagnrýni  Áskorun Came- rons um forsetakjör skilaði afar litlu AFP Mistókst David Cameron á blaða- mannafundi eftir kosninguna. Fjöldi þorpa í Norðaustur-Nígeríu sætti árásum í gær. Vitni segja að ráðist hafi verið á kirkjur á meðan á messu stóð og viðstaddir drepnir. Talið er að tugir hafi látið lífið, en ísl- ömsku hryðjuverkasamtökin Boko Haram eru talin standa að baki árás- unum. Neyðarástand hefur ríkt í Norður-Nígeríu síðustu misseri vegna linnulausra árása samtakanna. Boko Haram voru stofnuð árið 2002 og var markmið þeirra í upphafi að stríða gegn vestrænni menntun í landinu. Árið 2009 fóru samtökin þó að hervæðast til að sækja að nýju markmiði sínu; að stofna nýtt ísl- amskt ríki. Þúsundir hafa látið lífið vegna árása samtakanna, sem einnig hafa ráðist á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í landinu. Her Nígeríu er illa í stakk búinn til að verjast sam- tökunum og hafa Bandaríkin og Bret- land boðið fram aðstoð sína í barátt- unni gegn Boko Haram. Samtökin rændu rúmlega 200 skólastúlkum í apríl síðastliðnum og hafa þær enn ekki fundist. Tugir kirkjugesta drepnir  Íslamistar sækja í sig veðrið í Nígeríu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.