Morgunblaðið - 30.06.2014, Síða 21

Morgunblaðið - 30.06.2014, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2014 Smáauglýsingar 569 1100 Sumarhús Rotþrær – vatnsgeymar – lindarbrunnar Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir – réttar lausnir. Heitir pottar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt TILBOÐ – TILBOÐ – TILBOÐ Vandaðir dömuskór úr leðri. Stakar stærðir. Tilboðsverð: 5.500. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Ný sending af slæðum á 2990 kr. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Sumar og sól Blómahárbönd 1500 kr. Innitreflar 2990 kr. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. GLÆSILEGIR LITIR, GÓÐ SNIÐ Teg.21323 – alveg frábært snið í 75- 95C og 80-95D á kr. 5.800, buxur við á kr. 1.995. Teg. 21323 – mjúkur og þægilegur í stærðum 75-95C og 80-95D á kr. 5.800, buxur við á kr. 1.995. Teg. 52021 – mjög mjúkur bolur í S,M,L,XL á kr. 2.500, og teg. 52016: boxer-buxur í S,M,L,XL á kr. 1.995, fæst líka í svörtu. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.–föst. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Teg. 779-01 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir 36- 40. Verð: 16.500. Teg. 204-05 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36- 40. Verð: 13.885. Teg. 232-06 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36- 40. Verð: 16.885. Teg. 1100-02 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36- 40. Verð: 12.800. Teg. 226-21 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36- 40. Verð: 10.885. Teg. 144-01 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36- 40. Verð: 14.800. Teg. 327-08 Ótrúlega mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 37- 40. Verð: 15.885. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.– föst. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald         Hreinsa ryð af þökum, hreinsa þakrennur, laga veggjakrot. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara                                      !        "        # $ %  &      '  (!       )    !"  #   $    *   & '+ ,        "  # $ % & ''  -*     $ ./  %   0 1 $ %  2 %!     3*  /   2 % !     .   $    4  5%    ( '  6 ,   /  &  3   /   3   %    3        ()  *+ *    *   4'+     / '     & "             / *            %   ($    .   !    4 "    &               " 7  $  ')8&) ,  %'   9    4  9     & "      ')  -  .    * .   *  8       '   :   %        ) 1/ $       )4 1/$ AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 úð, sem aldrei bar skugga á. Það verður vel tekið á móti henni fyrir handan. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðbjörg Stella Guðmunds- dóttir og fjölskylda. Til elsku langömmu. Sólin brennir nóttina, og nóttin slökkvir dag; þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag. Þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís, svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís. Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt, þögn í seiðandi solli og syngur, ef allt er hljótt. Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn, þú gafst mér jörðina og grasið og Guð á himnum að vin. Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig. Ég fann ei, hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér, og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér. Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið; það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, Guð – og við. Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig. Ég fann ei, hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér, og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfum mér. (Sigurður Nordal) Takk fyrir allt elsku langamma. Þín langömmubörn, Pétur, Sædís, Aþena og Sylvía. Nú er komið að kveðjustund, elsku amma mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið með þér þína síðustu daga, þær minningar eru mér dýrmætar. Raunum þínum er lokið og veit ég að afi bíður eftir þér og tekur vel á móti þér ásamt Bangsa þínum og Patta, sem ætla að fylgja þér í þessa langferð. Takk fyrir allt, elsku amma. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð varðveiti þig, elsku amma mín. Þín ömmustelpa, Margrét María. og enn meiri gleði. Tímunum saman spilaði hún ólsen-ólsen við Arnór Borg „blómadrenginn“ sinn og Kjartan Borg „Bondinn“ sinn og í hvert skipti sem hún vann sagði hún „já aaammma kannettta“. Hún spjallaði við þá um lífið og tilveruna og á góðum degi var jafnvel stiginn dans. Það var unun að fylgjast með henni tala við börnin og hvernig hún fór inn í þeirra heim og náði þannig fram einlægum trúnaði og trausti. Já, ég á margar fallegar minn- ingar af tengdamóður minni Arn- rúnu, en það sem er mér nú efst í huga í dag eru þær dýrmætu stundir sem ég fékk að upplifa síðustu dagana og stundirnar í hennar lífi á spítalanum. Krabba- meinið var búið að ná yfirhönd- inni eftir 10 mánaða baráttu. Hún var mjög lasin og krafturinn nánast enginn en hvernig hún, í gegnum kvalirnar, ljómaði upp eins og sólin þegar hún sá börnin sem hún elskaði er eitt það fal- legasta sem ég hef séð og mun sitja í minningunni um ókomna tíð. Elsku Arnrún mín, ég er enda- laust þakklát fyrir að þú komst inn í líf mitt. Ferðalagi þínu er kannski lokið hér á jörðu en þú munt halda áfram ferðinni á betri stað umvafin englum og fólkinu þínu sem fór á undan. Hér munt þú lifa áfram í hjarta okkar og huga. Hvíl í friði elsku hjartans Arnrún mín. Anna Borg. Elsku amma Arnrún, ég kveð þig með miklum sökn- uði og sé ekki fyrir mér hvernig lífið verður án þín. Þú varst svo frábær í alla staði, falleg að innan sem utan og með hjarta úr gulli. Nú þegar ég sit og skrifa þessa minningargrein um þig, elsku amma mín, alltof snemma, hrannast upp allar þær dýrmætu og góðu minningar sem ég á um þig. Ég á erfitt með að sætta mig við það að minningarnar munu ekki verða fleiri og finnst mér sú staðreynd ólýsanlega sár. Á sama tíma er ég afar þakklát fyr- ir þær minningar sem ég á. Ég gæti skrifað heila bók um allt það góða sem þú hefur gefið mér og allar þær fjölmörgu og góðu stundir sem við höfum átt saman, enda eru þær óteljandi. Þess vegna þakka ég þér fyrir allt, elsku hjartans amma mín, ég mun vera þér ævinlega þakklát. Betri ömmu er vart hægt að finna og finnst mér mjög erfitt að þurfa að kveðja þig. Ég sakna þín svo mikið, elsku besta amma mín, tíminn framundan er erfiður fyr- ir okkur alla fjölskylduna og sér- staklega fyrir afa. Við fjölskyldan munum leiða hvert annað í gegn- um þennan mikla sorgartíma og hafa minningu þína okkur að leið- arljósi. Elsku afi Eiður, megi al- máttugur góði guð styrkja þig í þessari miklu sorg. Góða ferð, elsku hjartans amma mín, megir þú hvíla í friði í faðmi guðs. Ég elska þig. Þín Sandra Dögg. Elsku fallega amma mín, þín er sárt saknað. Ég velti fyrir mér dag eftir dag hver ástæðan er fyrir því að hann þurfti á þér að halda strax. Vonandi ertu komin á betri stað og hefur hitt alla þá ættingja og vini sem hafa farið frá okkur. Ég mun aldrei gleyma þeim minningum sem við áttum saman, bæði grát og hlátur. Þú hefur stutt mig í öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur, svo dæmi séu nefnd: skólanum og í skautunum og öllu öðru. Þú hefur alltaf verið svo blíð og góð við alla og viljað öllum það allra besta. Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Hvíldu friði. Elska þig endalaust, elsku amma mín. Þín, Þuríður Björg. Elsku amma mín kvaddi okkur þann 19. júní. Hún hafði alltaf trú á manni og sagði „þú getur allt“ og þessu ætla ég að lifa á það sem eftir er. Þú ert mín mesta fyr- irmynd og munt alltaf vera það. Ég get ekki lýst því í orðum hversu mikið ég elska þig, amma. Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði, elsku fallega amma mín, þín verður sárt saknað. Guðrún Elísabet (Tunna).  Fleiri minningargreinar um Arnrúnu S. Sigfúsdótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.