Morgunblaðið - 27.09.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjölmennt var í bílabíó á kvikmyndina Dumb and
Dumber á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík, á annarri hæð bílaplansins í Smára-
lind í gær. Þetta var í þriðja skipti sem bílabíó
var á hátíðinni. RIFF lýkur 5. október en þar
gefur á að líta það besta í alþjóðlegri kvik-
myndagerð. Gestum gefst kostur á að spjalla við
leikstjóra um verk þeirra, sækja málþing og fyr-
irlestra, tónleika og ljósmyndasýningar, og að
sjá kvikmyndir við óhefðbundin skilyrði. Að-
alverðlaun hátíðarinnar, Gullni lundinn, verða
veitt mynd úr flokknum Vitranir.
Morgunblaðið/Golli
Klassískt grín stendur alltaf fyrir sínu
Bílabíó á RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, á bílaplaninu við Smáralind
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þyngri fangelsisrefsingar og fjölgun
dómþola eftir hrun samhliða niður-
skurði fjárveitinga til fangelsa sem
voru þegar full hefur leitt til þess að
tugir refsinga hafa fyrnst á síðustu
árum.
Jafnmargar refsingar hafa fyrnst
það sem af er þessu ári og á öllu síð-
asta ári. Tíu dómar til viðbótar gætu
fyrnst áður en árið er úti, samkvæmt
upplýsingum frá Fangelsismála-
stofnun. Til samanburðar má geta
þess að á tímabilinu 2000-2008 fyrnd-
ust aðeins þrjár refsingar. Um 450
einstaklingar bíða nú afplánunar.
Þá hefur heildartíminn sem ís-
lenskir dómstólar dæma einstak-
linga til að afplána nær tvöfaldast frá
því fyrir hrun og
dómþolum fjölgað
um rúman helm-
ing. Á sama tíma
hefur verið skorið
niður um fjórð-
ung til Fangelsis-
málastofnunar.
Páll Winkel,
fangelsismála-
stjóri, segir að
nýting fangelsa hafi verið um 100%
fyrir hrun. Það segi sig sjálft að þeg-
ar refsingar þyngjast um nær 100%
á sama tíma og gerð er krafa um 25%
niðurskurð í rekstri láti eitthvað
undan.
„Það er ekki hægt að fullnusta alla
dóma á réttum tíma við þær aðstæð-
ur,“ segir hann og bendir á að áfram
eigi að skera niður til stofnunarinnar
samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi.
Dómþolar sem eru dæmdir fyrir
alvarleg brot og þeir sem brjóta aft-
ur af sér eftir að dómur hefur verið
kveðinn upp eru settir í forgang um
að hefja afplánun, að sögn Páls.
„Þeir sem eru dæmdir til vægari
refsingar og hegða sér vel eftir dóm
þurfa að bíða. Það hefur þýtt, að við
boðum fólk inn eftir nokkur ár í
styttri fangelsisrefsingar þegar það
er búið að eignast fjölskyldu, mennta
sig og er komið í vinnu. Þetta er
raunveruleikinn í dag og við höfum
gert grein fyrir þessu í mörg ár.“
Með nýju fangelsi á Hólmsheiði
sér fyrir endann á þessu ástandi en
til stendur að taka það í notkun ára-
mótin 2015-2016. Þangað til segir
Páll hins vegar alveg ljóst að fleiri
fangelsisrefsingar eigi eftir að fyrn-
ast.
Fleiri refsingar munu fyrnast
Jafnmargar fangelsisrefsingar hafa fyrnst það sem af er ári og allt síðasta ár Refsitími hefur tvöfald-
ast og dómþolum fjölgað um helming frá 2006 Skorið niður um fjórðung til fangelsismála á sama tíma
Páll Winkel
Fyrning fangelsisrefsinga 2009-2014
2009 2010 2011 2012 2013 2014*
Fyrnt
Dagar alls
2
240
3
203
6
277
9
759
20
1.325
20
1.615
Heimild: Fangelsismálastofnun*Það sem af er ári
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Félag tónlistarskólakennara hefur
ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu
um verkfallsboðun ef ekki verður
gengið að launakröfum félagsmanna.
Sigrún Grendal, formaður félagsins,
segir að samningamenn skynji lítinn
vilja hjá Launanefnd sveitarfélaga til
að ganga til samninga. Viðræðuáætl-
un var undirrituð fyrir 10 mánuðum.
Síðan hafa verið undirritaðir samn-
ingar við kennara og stjórnendur í
leik-, grunn- og framhaldsskólum en
í Félagi tónlistarskólakennara eru
rúmlega 500 manns eða um 5% fé-
laga í kennarasambandinu.
„Það eru sömu megin-samnings-
markmið sem liggja til grundvallar
fyrir þennan hóp eins og hjá leik- og
grunnskólakennurum. Við skynjum
það að framganga samninganefndar
sveitarfélaganna á þessum tíu mán-
uðum sé óvenjuleg. Okkur finnst við
ekki vera í eiginlegum samningavið-
ræðum,“ segir Sigrún. „Það sem
kennurum og stjórnendum hefur
verið boðið myndi þýða allt að 30-
40% lægri laun en leik og grunn-
skólakennarar hefðu í maí 2015,“
segir Sigrún.
Fimm fundir voru haldnir áður en
kjaradeilan var send til ríkissátta-
semjara 12. júní sl. Að sögn Sigrúnar
hafa síðan verið haldnir tíu fundir en
ekkert hefur þokast. „Menn leggja
eiginlega engin gögn fram og hafna
faglegum viðræðum. Þess vegna
upplifum við þetta sem mjög óvenju-
legar viðræður og því er ekkert ann-
að að gera en að vísa þessu til fé-
lagsmanna,“ segir Sigrún. Ef að
líkum lætur hefst atkvæðagreiðsla
um boðun verkfalls þann 30. septem-
ber og lýkur 6. október. Fái tillagan
samþykki mun vinnustöðvun hefjast
þann 22. október.
Skynja ekki samningsvilja
Tónlistarskólakennarar efna til atkvæðagreiðslu
Vinnustöðvun 22. október fái verkfallsboðunin samþykki
Morgunblaðið/Ómar
Tónlist Atkvæðagreiðsla boðuð.
Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson,
forsætisráð-
herra, hefur
skipað Pál Þór-
hallsson, skrif-
stofustjóra í for-
sætisráðuneyti,
nýjan formann
stjórnarskrár-
nefndar. Páll
tekur við for-
mennsku af Sigurði Líndal, prófess-
or emeritus, sem nýlega fékk lausn
frá störfum að eigin ósk.
Stjórnarskrárnefnd var skipuð af
forsætisráðherra 6. nóvember í
fyrra í samræmi við samkomulag
allra þingflokka. Hlutverk nefnd-
arinnar er að leggja til breytingar á
stjórnarskránni, með hliðsjón af
þeirri vinnu sem farið hefur fram á
undanförnum árum og annarri þró-
un í stjórnarskrármálum. Stefnt er
að því að vinnu nefndarinnar ljúki
tímanlega svo hægt sé að sam-
þykkja frumvarp til breytinga á
stjórnarskránni á yfirstandandi
kjörtímabili
Páll Þórhallsson hefur starfað í
forsætisráðuneytinu frá árinu 2005
og þar áður hjá mannréttindadeild
Evrópuráðsins. Hann lauk embætt-
isprófi í lögfræði frá Háskóla Ís-
lands 1995 og framhaldsnámi í
stjórnskipunarrétti frá háskólanum
í Strassborg 1998.
Páll skipaður
formaður stjórn-
arskrárnefndar
Páll
Þórhallsson
Samkvæmt ákvæðum almennra
hegningarlaga falla fangels-
isdómar niður ef fullnusta
þeirra hefst ekki innan ákveðins
tíma. Fyrir dóma sem eru ár eða
styttri er fyrningarfresturinn
fimm ár.
Lengri fyrningartími er fyrir
lengri fangelsisrefsingar, allt að
tuttugu ár fyrir átta ára refs-
ingu eða lengri.
Fimm ár fyrir
styttri dóma
REFSINGAR FALLA NIÐUR
KEMUR HEILSUNNI Í LAG