Morgunblaðið - 27.09.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Bólgur eða
verkir?
www.annarosa.is
Tinktúran túrmerik og engifer
bæði bólgu- og verkjastillandi og hefur
gefist afar vel við slitgigt, liðagigt og
álagsmeiðslum. Túrmerik og engifer er
hvort tveggja einnig þekkt fyrir að lækka
blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitu.
Inniheldur svartan pipar
sem eykur upptöku túrmeriks.
þykir
Í samantekt Más segir að forstjóri
Fjármálaeftirlitsins hafi lækkað í
launum um 166.867 krónur, eða um
13,3%. Ekki var unnið lögfræðiálit
vegna þessarar ráðstöfunar.
Þá hafi kjararáð úrskurðað að laun
forstjóra Landsnets skyldu lækka
um 604.726 krónur, eða um 37,5%.
Unnið var lögfræðiálit og var niður-
staðan sú að segja bæri upp launalið
og virða uppsagnarfrest. Með hlið-
sjón af uppsagnarfresti voru for-
stjóra eingreiddar 8.506.575 krónur.
Fékk 3,9 milljónir greiddar
Næst er tekið dæmi af fram-
kvæmdastjóra Orkubús Vestfjarða
sem lækkaði í launum um 418.706
krónur, eða um 30,4%. Unnið var
lögfræðiálit og var niðurstaðan að
gildandi ráðningarsamningi var sagt
upp. Samkvæmt lögfræðiáliti var
framkvæmd frestað í samræmi við
uppsagnarfrest. Mismunur greiðslna
á uppsagnartíma ráðningarsamnings
og úrskurðar kjararáðs nam 3,9
milljónum króna.
Þá er úrskurður ráðsins vegna for-
stjóra Isavia ekki sagður eiga við,
enda hafi staðan verið sameinuð í
embætti forstjóra Keflavíkur-
flugvallar 1. mars 2010.
Fjórða dæmið er forstjóri Matís
en launakjör hans skertust um
460.944 krónur, eða um 33%. Unnið
var lögfræðiálit og var niðurstaðan
tillaga til stjórnar um að launalið
ráðningarsamnings yrði sagt
upp og tæki uppsögnin gildi
sama dag og úrskurður kjara-
ráðs var dagsettur. Fram-
kvæmd lækkunar var frestað
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ríkisstofnanir brugðust misjafnlega
við úrskurði kjararáðs varðandi laun
og starfskjör forstjóra og forstöðu-
manna. Sumar lækkuðu laun strax
en aðrar leituðu lögfræðiálits og
greiddu í kjölfarið bætur til forstöðu-
manna sinna.
Þetta má lesa úr samantekt sem
fylgir með nýbirtu bréfi Más Guð-
mundssonar seðlabankastjóra til
bankaráðs Seðlabankans 11. júlí sl.
Forsaga málsins er sú að 16. júní
2009 var lagt fram frumvarp á Al-
þingi um að laun forstöðumanna
ríkisstofnana yrðu ekki hærri en
laun forsætisráðherra. Varð frum-
varpið að lögum í ágúst 2009.
Áður, eða 26. júní 2009, hafði Jó-
hanna Sigurðardóttir, þáverandi for-
sætisráðherra, skipað Má í embætti
seðlabankastjóra.
Fram kemur í svari Ríkisendur-
skoðunar til bankaráðs 30. júní sl. að
launakjör Más hefðu skerst um u.þ.b.
þriðjung við úrskurð kjararáðs um
laun seðlabankastjóra í febrúar 2010.
Frá og með 1. mars 2010 skyldu
mánaðarlaun seðlabankastjóra vera
862.207 krónur, auk 404.640 króna
vegna 80 eininga.
Þessi lækkun varð tilefni launa-
deilu Más við Seðlabankann. Rifjað
er upp í svari Ríkisendurskoðunar að
það varð niðurstaða Andra Árnason-
ar hrl., sem vann lögfræðiálit vegna
máls Más, að ekki væri unnt að
skerða kjör skipaðs embættismanns
meðan á skipunartíma hans stæði.
Már var skipaður til fimm ára og var
hann endurráðinn í ágúst sl.
Þrjár neituðu að svara
Í samantekt Más um úrskurði
kjararáðs er vikið að 16 for-
stöðumönnum og er þar að finna
upplýsingar um launaskerðingu hjá
12 forstöðumönnum, að Má með-
töldum. Um hinar fjórar stofn-
anirnar skrifar Már orðrétt: „Þar af
neita þrjár stofnanir að svara með
tilvísun til undanþágu frá upplýs-
ingalögum vegna samkeppnissjón-
armiða, þ.e. Landsbankinn, Lands-
virkjun og Landsvirkjun Power ehf.,
og ein forstjórastaðan er ekki lengur
til,“ skrifar Már og vísar til stöðu for-
stjóra Isavia. „Af þeim tólf sem eftir
eru fengu átta aðilar lögfræðiálit og
var niðurstaða þeirra í öllum til-
fellum efnislega samhljóða þeirri nið-
urstöðu Andra Árnasonar að ekki
væri heimilt þrátt fyrir úrskurð kjar-
aráðs að breyta launum á uppsagn-
artíma, sem í tilfelli seðlabankastjóra
er til loka skipunartíma.“
í níu mánuði, sem var uppsagnar-
frestur þáverandi forstjóra, enda
hafi það verið „skýr ráðlegging lög-
manna að haga málum með slíkum
hætti“. Greiddur mismunur var
4.148.496 krónur.
Laun forstjóra Landspítalans
lækkuðu um 53.464 krónur, eða um
3,8%, og kom úrskurður til fram-
kvæmda strax. Ekki var aflað lög-
fræðiálits.
Útvarpsstjóri fékk 4,6 milljónir
Laun útvarpsstjóra lækkuðu um
386.270 krónur eða um 26,3%. Aflað
var lögfræðiálits í nóvember 2011 og
var niðurstaðan sú að útvarpsstjóri
ætti kröfu um leiðréttingu, í sam-
ræmi við uppsagnarfrest.
„Úrskurðurinn kom til fram-
kvæmda strax, 1. mars 2010, en á
grundvelli lögfræðiálits voru út-
varpsstjóra eingreiddar 4.635.240
kr., með hliðsjón af 12 mánaða upp-
sagnarfresti.“
Laun forstjóra Samkeppniseftir-
litsins lækkuðu um 189.897 krónur,
eða um 15,5%, og var ekki aflað
lögfræðiálits.
Einnig lækkuðu laun forstjóra Ís-
landspósts um 460.494 krónur, eða
um 35,1%. Aflað var lögfræðiálits og
var niðurstaðan sú að 12 mánaða
uppsagnarfrest bæri að virða.
Greiddur mismunur var 5.525.928 kr.
Loks voru laun forstjóra Kefla-
víkurflugvallar lækkuð um 234.843
krónur, eða um 17,4%. Ekki var aflað
lögfræðiálits. Framkvæmd var frest-
að um þrjá mánuði með hliðsjón af
uppsagnarfresti. Greiddur mis-
munur var 675.825 krónur.
Morgunblaðið/Kristinn
RÚV Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri, fékk 4,6 milljónir í launabætur eftir úrskurð kjararáðs.
Forstjórar nokkurra ríkis-
stofnana fengu milljónabætur
Seðlabankastjóri kannaði áhrif af úrskurði kjararáðs á kjör forstöðumanna
DHL varð í gær fyrsta flutningafyr-
irtækið í Evrópu sem gerir út dróna
til að koma sendingum á áfangastað
en svokölluð DHL Parcelcopter 2.0-
loftför munu flytja lyf og aðrar nauð-
synjavörur til eyjarinnar Juist í
Þýskalandi. Bögglaþyrlurnar ná allt
að 65 kílómetra hraða, vega um 5
kíló og geta borið allt að 1,2 kíló. Þær
eru sjálfvirkar og fara hina 12 kíló-
metra löngu leið á um 15 mínútum.
Um er að ræða tilraunaverkefni
en Atli Freyr Einarsson, fram-
kvæmdastjóri DHL á Íslandi, segir
drónaflutninga munu verða fýsi-
legan valkost í framtíðinni. „Ef vel
gengur er áætlað að þetta gæti auk-
ist en þetta náttúrlega kemur ekki í
staðinn fyrir bílstjórann og flugvél-
arnar,“ segir hann.
Hann segist sjá fyrir sér að hægt
væri að nota flygildi af þessu tagi í
sérstökum tilvikum hérlendis. „Ef
það þyrfti t.d. nauðsynlega að koma
einhverju til vísindamanna við Bárð-
arbungu eða frá Bárðarbungu og yf-
ir á Austfirði, þá væri hægt að nota
þetta,“ segir hann.
Atli nefnir einnig flutninga til og
frá Vestmannaeyjum í þessu sam-
hengi en ítrekar þó að hann sjái ekki
að drónar muni þjóna hlutverki í
reglubundnum daglegum vöruflutn-
ingum.
Bögglaþyrl-
ur í loftið
Á flugi Flutningaloftfar DHL.
Framkvæmdastjóri Íbúðalána-
sjóðs lækkaði í launum í mars
2009 um 223.428 kr., eða um
17,7%, og í mars 2010 um
534.029 kr., eða um 28,9%
miðað við laun í febrúar 2009.
Aflað var lögfræðiálits og var
niðurstaðan að virða bæri upp-
sagnarfrest. „Stjórn ÍLS taldi
sig hins vegar bundna af úr-
skurði kjararáðs og fylgdi því
ekki lögfræðiáliti,“ skrifar Már.
Launin lækkuðu því strax.
Laun forstjóra RARIK lækk-
uðu um 311.000 kr., eða um
33%. Aflað var lögfræðiálits og
var niðurstaðan að framkvæmd
úrskurðar kjararáðs ætti að
fresta miðað við 12 mánaða
uppsagnarfrest. „Samkvæmt
lögfræðiáliti var framkvæmd
frestað í samræmi við
uppsagnarfrest. Mis-
munur greiðslna á upp-
sagnartíma ráðning-
arsamnings og
úrskurðar kjararáðs
nam 3.730.000
kr.,“ segir í
samantekt
Más Guð-
mundssonar.
ÍLS lækkaði
launin strax
MISJÖFN VIÐBRÖGÐ
Már Guð-
mundsson
Skemmdarverk hafa verið unnin
reglulega undanfarnar vikur á hús-
næði Votta Jehóva í Hraunbæ í
Reykjavík. Húsið hefur fengið að
standa óáreitt í tíu ár en samkvæmt
upplýsingum byrjuðu skemmdar-
verkin fyrir nokkrum vikum og
standa enn. Aðallega er verið að
kasta grjóti í rúður með þeim af-
leiðingum að þær brotna. Skemmd-
arverkin eru unnin í skjóli nætur og
ekki er vitað hver eða hverjir eru
þarna að verki.
Söfnuður Votta Jehóva hefur
sent fyrirspurn til Reykjavíkur-
borgar um hvort girða megi og
loka af húsnæðið vegna skemmd-
arverkanna. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vottum Jehóva er verið
að athuga hjá borginni hvort þetta
sé möguleiki því bílastæðalóðin er
sameiginleg með fleirum. Þeir telja
þó ekki líklegt að til þess komi að
húsnæðið verði girt af, fyrsta skref
verði að setja upp eftirlitsmynda-
vélar við húsnæðið með von um að
ná að stöðva skemmdarvargana.
Rúður brotnar hjá
Vottum Jehóva