Morgunblaðið - 27.09.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
Listakonan Ragnheiður Rut Georgsdóttir segist vera með kollinn fullan af litum og þá liti málar hún eftir kúnst-
arinnar reglum á strigann. Striginn tekur jafnframt við tilfinningum listakonunnar og hún málar tilfinningarnar.
oft er yfir þeim töfrablær. „Ég hef
alltaf verið rosalega hrifin af himn-
inum og sjóndeildarhringurinn er
eitthvað sem ég get horft á í marga
klukkutíma. Sjórinn, sjóndeildar-
hringurinn og himinninn mynda
sjónarspil sem er mér afar dýr-
mætt,“ segir hún.
Ragga býr í Vesturbænum og
að vinnudegi loknum ekur hún sem
leið liggur út að Gróttu og er þar
með tónlistina sína í hálftíma eða svo
og nýtur þess að virða hina undur-
samlegu náttúru fyrir sér. „Það er
sjóndeildarhringur í öllum mynd-
unum mínum og ég legg mikla
áherslu á að hann sé kristaltær því í
mínum augum er hann heilagur. Þó
að hann sé alltaf skýr getur hann
verið mystískur inn á milli. Svo er ég
ofboðslega upptekin af beinum lín-
um. En sjóndeildarhringurinn er
uppáhaldið mitt í sjálfu málverkinu,“
segir Ragga.
Á síðastliðnum tveimur árum
hefur hún einbeitt sér að fjöllum og
eyjum sem dvelja við sjóndeild-
arhringinn í verkunum. „Þetta eru
ekki Vestmannaeyjar eins og þær
líta út í raun og veru heldur eru
þetta mínar eyjar og ég skapaði
þær. Svona sé ég þær þegar ég
hugsa um þær,“ segir hún og við-
urkennir að oft sé hún með heimþrá.
Það tekur olíumálninguna
nokkurn tíma að þorna og þegar lit-
irnir eru þurrrir kemur að því að
skapa eyjarnar. En það sem Röggu
þykir flóknast í öllu ferlinu er þó
hvorki að blanda litina, mála sjón-
deildarhringinn né heldur að skapa
eyjarnar.
„Það erfiðasta í þessu ferli, eins
furðulegt og það kann að hljóma, er
að mála kantana á striganum. Að
taka upp pensil og fara að mála
kanta er bara það erfiðasta sem ég
veit!“ Sem betur fer á hún góða að
og þeir Rútur Örn Birgisson og Þór-
arinn Ingi Valdimarsson hafa tekið
það verk að sér. Það er spaugilegt að
það einfaldasta sé þessari stór-
skemmtilegu og drífandi listakonu
ofviða en lýsir henni þó á sinn hátt.
Myndlistarsýning Röggu
Gogga er sem fyrr segir á Café Mil-
anó og stendur til 9. nóvember.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Þrjár íbúðir lausar
Við Suðurlandsbraut 58 - 62 eru sjötíu og átta glæsilegar
þjónustuíbúðir fyrir sextíu ára og eldri í eigu Grundar og
leigðar með íbúðarréttarfyrirkomulagi.
Nú er einungis þremur tveggja og þriggja herbergja
íbúðum óráðstafað og eru þær rúmlega 100 m2 að stærð.
Íbúðirnar eru á fyrstu, þriðju og fjórðu hæð.
Íbúar geta m.a. fengið heitan mat í hádegi, læknis- og
hjúkrunarþjónustu, tekið þátt í félagsstarfi, íþróttum og
sjúkraþjálfun. Þá er verið að byggja innisundlaug og
heilsuræktarstöð. Einnig er góður átján holu púttvöllur í
garðinum.
Áhugasamir hafi samband við Gísla Pál Pálsson með
tölvupósti á gisli@grund.is eða í síma 896 4126, en einnig
má sjá nánari upplýsingar á www.mörkin.is
Verkefni sem gengið hefur undir nafn-
inu Bókabæirnir austanfjalls lýtur að
því að gera Eyrarbakka, Hveragerði,
Selfoss, Stokkseyri og Þorlákshöfn að
bókabæjum líkt og þekkist víða er-
lendis. Í dag, laugardaginn 27. sept-
ember, er merkisdagur í því mikla ferli
sem það er að koma bókabæjunum á
kortið. Formlegur stofnfundur verður
haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands
klukkan 14 og er sá fundur öllum op-
inn.
Dagskrá fundarins er með líflegasta
og fjölbreyttasta móti. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, flytur ávarp
og því næst mun sjálfur konungur
Hay-On-Wye, Richard Booth, halda
tölu. Booth átti hugmyndina að stofn-
un eins frægasta bókabæjar heims,
Hay-On-Wye, og er fyrir vikið kallaður
konungur bæjarins. Ýmis skemmti-
atriði verða og bjóða Bókabæirnir upp
á veitingar í tilefni dagsins.
Anna Jónsdóttir, forstöðumaður
Konubókastofu, er ein þeirra sem sæti
eiga í undirbúningsnefnd Bókabæj-
anna austanfjalls og segir hún að allur
undirbúningur hafi gengið með ein-
dæmum vel og margar góðar fréttir
sem gaman er að greina frá. „Við erum
til dæmis komin með lagerhúsnæði á
Eyrarbakka fyrir næstu tvö til þrjú ár-
in,“ segir Anna. „Svo er kona á Sel-
fossi búin að byggja eins konar fugla-
hús þar sem hægt er að skiptast á
bókum,“ segir hún og vísar þar til sér-
staks staðar utandyra sem ætlaður er
til bókaskipta. „Þangað getur fólk
komið og tekið bækur sem það langar
til að lesa og sett aðra bók í staðinn.“
Íbúar bókabæjanna eru hvattir til að
sýna frumkvæði og framkvæma hug-
myndir sem þeir fá tengdar bókabæj-
unum og gefa svæðinu skemmtilega
ásýnd. Til að mynda stendur til að
„klæða“ tvö hús í bókarkápur og svo
mætti áfram telja. Til stendur að kort-
leggja svæðið út frá bókmenntasög-
unni, hvar rithöfundar hafa fæðst,
sögusviði bóka og fleira í þeim dúr.
Framundan er eitt og annað sem
fylgjast má með á Facebook-síðu bæj-
anna með því að slá þar inn Bókabæ-
irnir austanfjalls.
Stofnfundur Bókabæjanna haldinn í dag
Hópurinn Undirbúningshópurinn hefur haft í nógu að snúast að undanförnu.
Merkisdagur austanfjalls