Morgunblaðið - 27.09.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Læknanemar sem útskrifast frá
læknadeild Háskóla Íslands næsta
vor hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki
að sækja um eða ráða sig í stöðu að-
stoðarlæknis eða í aðrar sambæri-
legar stöður á Íslandi frá og með 1.
júní 2015, hafi nýr kjarasamningur
lækna ekki náðst fyrir þann tíma.
Yfirlýsing þess efnis, undirrituð
af 42 læknanemum á 6. ári, var af-
hent heilbrigðisráðherra, Kristjáni
Þór Júlíussyni, á aðalfundi Lækna-
félags Íslands í fyrradag. Með þessu
vilja læknanemarnir sýna kröfum
samninganefndar Læknafélags Ís-
lands stuðning í yfirstandandi kjara-
samningsviðræðum.
„Við ætlum ekki að sækja um
stöður á kandídatsárinu eða aðrar
aðstoðalæknastöður á Íslandi fyrr
en samningar nást. Kjarasamningar
lækna hafa nú verið opnir í átta mán-
uði og þetta er okkar framlag til
kjarabaráttunnar,“ segir Daði
Helgason læknanemi á lokaári. „Við
sjáum fram á að útskrifast í vor eftir
sex ára háskólanám með einungis
um 340.000 kr. í grunnlaun. Það eru
kjör sem við erum ekki tilbúin að
láta bjóða okkur og þess vegna höf-
um við gripið til þessara aðgerða.
Við viljum gera þetta núna til þess
að gefa ríkisstjórninni og rík-
issáttasemjara tækifæri til þess að
bregðast við þessu áður en til að-
gerða kemur.“
Til þess að útskrifaður lækna-
nemi geti fengið lækningaleyfi þarf
hann að taka svokallað kandídatsár
eftir 6. árið. Þá þarf hann að vinna
aðstoðalæknisstörf í tólf mánuði á
viðurkenndum heilbrigðisstofn-
unum.
Á að líta alvarlegum augum
Daði segir að yfirlýsingin nái
ekki bara til Landspítalans, þar sem
flestir taki stærsta hlutann af sínu
kandídatsári, heldur líka til heilsu-
gæslunnar og annarra sjúkrahúsa
og spítala hér á landi.
Ef ekki nást samningar fyrir
næsta vor ætla þau, að sögn Daða, að
fresta því að hefja kandídatsárið og
fá sér vinnu við eitthvað annað. „Við
viljum auðvitað helst geta starfað
hérna og fá læknaréttindi á Íslandi
en við viljum líka gera það á kjörum
sem eru ásættanleg og endurspegla
lengd námsins og ábyrgðina í starfi.“
Læknanemarnir vinna nú að því
að safna undirskriftum við yfirlýs-
inguna frá íslenskum læknanemum í
Danmörku og Ungverjalandi ásamt
4.-5. árs læknanemum hér heima.
Daði segir það ganga vel, enda lítist
læknanemum ekkert á framtíð-
arhorfur sínar hér heima. ,,Við telj-
um að ríkisstjórn landsins ætti að
líta það mjög alvarlegum augum að
hér sé rekið heilbrigðiskerfi þar sem
laun lækna eru það lág að sérfræð-
ingar flýja land eða vilja ekki snúa
heim að loknu sérnámi og nýútskrif-
aðir læknanemar sækjast ekki eftir
læknaréttindum á núverandi kjör-
um.“
Læknanemar þrýsta á samninga
Læknanemar á lokaári ætla ekki að ráða sig í stöður aðstoðarlæknis eða í aðrar sambærilegar
stöður á Íslandi í vor hafi nýr kjarasamningur lækna ekki náðst Með ósæmandi grunnlaun
Morgunblaðið/Golli
Læknar Kjarasamningslausir.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Kona á fimmtugsaldri slasaðist al-
varlega þegar hún féll ásamt banda-
rískum ferðamanni ofan í sprungu
nærri Þríhnúkagíg á Bláfjallasvæð-
inu í gær.
Konan er leiðsögumaður og var
þarna með 13 manna hóp ferða-
manna sem hugðist fara ofan í Þrí-
hnúkagíg þegar slysið varð. Hún
gekkst undir aðgerðir á Landspít-
alanum í gær og er haldið sofandi á
gjörgæsludeild. Ferðamaðurinn,
sem er bandarískur, slasaðist minna.
Féll hljóðlaust ofan í sprunguna
Að sögn Björns Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra 3 H travel, sem sér
um ferðir ofan í Þríhnúkagíg, stóð
konan um 4-5 metra frá hengibrú,
sem liggur yfir sprunguna, þegar
óhappið varð. Hann segir margt
óljóst um orsakir.
„Samkvæmt lýsingum var hópur-
inn að fara yfir örsmáa brú þegar at-
vikið gerðist. Konan stóð um 4-5
metra frá brúnni á sprungubarm-
inum og var að segja frá því hvernig
slíkar sprungur myndast, á meðan
fólk gekk yfir brúna. Sá sem féll nið-
ur ásamt konunni var kominn yfir
brúna og stóð hjá henni. Hvort kon-
an rann til, missti jafnvægið eða
hreinlega fékk aðsvif er ekki vitað
en hún datt niður án þess að gefa frá
sér hljóð. Við það kom fát á þennan
mann, sem stóð næstur henni. Óljóst
er hvort hann missti jafnvægið eða
reyndi að grípa konuna en hann datt
á eftir henni,“ segir Björn.
Hann segir að konan hafi fallið um
6-7 metra niður í sprunguna. Mað-
urinn féll hins vegar um fjóra metra
og kom líklega standandi niður.
Slysið varð í um 500 metra fjar-
lægð frá búðum þar sem starfsmenn
3 H travel voru staddir. „Við höfum
áralanga reynslu úr björgunarsveit-
unum og vorum komnir á staðinn
um 7 mínútum eftir fallið,“ segir
Björn, en slysið varð skömmu fyrir
hádegi í gær. „Við fórum strax niður
í sprunguna og vorum búnir að
koma ferðamanninum í belti og und-
irbúa að hífa hann upp. Þegar þyrla
Landhelgisgæslunnar kom var hann
hífður upp. Við það skapaðist pláss
til að setja konuna á börur og hífa
hana upp,“ segir Björn. Hann segir
að konan hafi verið með skerta með-
vitund þegar að var komið en getað
tjáð sig með því að kreista hendur
björgunarmanna. Konan fór í að-
gerð á Landspítala í kjölfarið.
Ferðamaðurinn var einnig fluttur á
Landspítalanum og dvaldi þar á
spítalanum í nótt. Ekki hafði í gær-
kvöldi gefist tækifæri til að ræða við
hann um atvikið og tildrög þess sök-
um þess hve hann var illa áttaður
eftir slysið.
Morgunblaðið/Eggert
Við Þríhnúkagíg Lögreglumenn og björgunarsveitarmenn skoða aðstæður þar sem fólkið féll í sprunguna.
Margt óljóst um tildrög
slyss við Þríhnúkagíg
Kona á fimmtugsaldri alvarlega slösuð eftir 6-7 metra fall
ofan í sprungu nærri Þríhnúkagíg Ferðamaður slapp betur
Á slysstað Lögreglumenn við hraunsprunguna nálægt Þríhnúkagíg í gær.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Vegagerðin fyrir hönd íslenska rík-
isins mun formlega hefja viðræður
við Sæferðir ehf. í næstu viku um
kaup á ferjunni Baldri til að nota
sem varaferju fyrir Herjólf. Engin
tryggingargreiðsla barst Sæferð-
um frá fyrirtæki á Grænhöfðaeyj-
um vegna fyrirhugaðra kaupa þess
á ferjunni. „Við munum formlega
hefja viðræður við Sæferðir í næstu
viku,“ segir Hreinn Haraldsson,
vegamálastjóri.
Töf á gjaldeyrisútflutningsleyfi
Páll Kr. Pálsson, stjórn-
arfomaður Sæferða, segir að þær
skýringar hafi verið gefnar af fyr-
irtækinu á Grænhöfðaeyjum að töf
hefði orðið á gjaldeyrisútflutnings-
leyfi frá viðskiptabanka þess. „Þeir
sögðust vera að vinna í málinu en
við tjáðum þeim að þar með væri
málið opið og aðrir gætu lagt fram
tilboð,“ segir Páll.
Innanríkisráðherra hefur falið
Vegagerðinni að meta hagkvæmni
kaupa á Baldri sem varaferju fyrir
Herjólf. Hreinn segir að ekki hafi
verið forsenda til þess að ganga til
þeirrar vinnu fyrr en lyktir við-
ræðna Sæferða við fyrirtækið á
Grænhöfðaeyjum lágu fyrir.
„Þetta snýst ekki bara um það
hvaða verð Sæferðir sætta sig við.
Einnig þarf að fara yfir ástandið á
skipinu og hve mikið viðhald myndi
kosta. Þá á eftir að breyta skipinu
þannig að leyfi fáist til að sigla að
vetri til,“ segir Hreinn.
Breytingar og viðhald
kosta 50-100 milljónir
Hann segir að ekki sé búið að
reikna rekstrarkostnað ef Baldur
siglir samhliða Herjólfi á milli lands
og Eyja. Fyrir liggur að rekstur
Herjólfs kostar ríkið 700 milljónir á
ári. Hreinn segir að grófar áætlanir
geri ráð fyrir því að kostnaður við
viðhald og breytingar á Baldri
nemi 50-100 milljónum króna. „Við-
hald myndi kosta að lágmarki 3-4
tugi milljóna króna. Síðan hefur
verið talað um að breytingarnar
kosti frá tuttugu og upp í sextíu
milljónir króna en þessar tölur á
eftir að yfirfara betur,“ segir
Hreinn.
Viðræður um
kaup í næstu viku
Tryggingargreiðsla barst ekki frá
Grænhöfðaeyjum vegna Baldurs
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnas
Baldur Vegagerðin mun hefja við-
ræður um kaup á Baldri í næstu viku.