Morgunblaðið - 27.09.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Fé er af skornum skammti víðahjá hinu opinbera en einn þátt-
ur er þó að mestu laus við skort og
það eru þýðingar á regluverki ESB
vegna EES-samningsins. Á næsta
ári verður 280
milljónum króna
af skattfé eytt í
þessar þýðingar,
sem er nær tvö-
földun frá fyrra
ári, þegar „ein-
ungis“ rúmum tíu
milljónum var eytt í þetta á mánuði.
Ætlunin er að bæta 8 þúsundnýjum blaðsíðum við þann
bunka sem þegar hefur verið þýdd-
ur, en sá góði bunki er um 80 þús-
und síður og dugar ekki minna til
að liðka fyrir viðskiptum á innri
markaðnum.
Allar eru þessar síður brýnt les-efni sem fáir hafa látið
framhjá sér fara, til að mynda þær
sex síður sem kveða á um „viðmið-
anir til að ákvarða hvenær glerbrot
hætta að vera úrgangur samkvæmt
tilskipun Evrópuþingsins og ráðs-
ins“.
Í þessum reglum er að finna skil-greiningu á „eiganda“, sem er
sá „einstaklingur eða lögaðili sem
hefur glerbrot í vörslu sinni“.
Þar er einnig kveðið á um hvað sé„sjónræn skoðun“, en það er
„skoðun á öllum hlutum sendingar
af glerbrotum með mannlegum
skynfærum eða ósérhæfðum bún-
aði“.
Margt fleira gagnlegt er í þess-um brýnu glerbrotareglum
sem ekki er rými til að fara út í hér,
en lesendum sem kunna að hafa
misst af einhverjum þessara
ákvæða er bent á að kynna sér
vandlega fyrrnefndar 80 þúsund
síður áður en lengra er haldið.
Reglur um glerbrot
og fleira gagnlegt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.9., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri 5 alskýjað
Nuuk 2 heiðskírt
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 13 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Helsinki 12 skýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 17 skýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 21 léttskýjað
París 21 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 17 skýjað
Vín 15 skýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 22 heiðskírt
Mallorca 22 skúrir
Róm 25 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 22 heiðskírt
Montreal 21 léttskýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:26 19:13
ÍSAFJÖRÐUR 7:31 19:17
SIGLUFJÖRÐUR 7:14 18:59
DJÚPIVOGUR 6:55 18:42
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Orka náttúrunnar, dótturfélag
Orkuveitu Reykjavíkur, hefur óskað
eftir framkvæmdaleyfi til að reisa
tuttugu metra háan gufuháf í til-
raunaskyni við skiljustöð ofan við
Hellisskarð. Tilgangur hans er að
freista þess að dreifa brennisteins-
vetnismengun frá Hellisheið-
arvirkjun betur en nú er og draga úr
líkum á því að styrkur hennar fari
upp fyrir viðmiðunarmörk í byggð.
Háfurinn yrði nýttur samhliða nið-
urdælingu í berglög.
Að sögn Hólmfríðar Sigurð-
ardóttur, umhverfisstjóra OR,
kynnti fyrirtækið verkefnisáætlun
um niðurdælingu á brennisteins-
vetni niður í berglög fyrir um ári. Þá
átti að reisa lofthreinsistöð við virkj-
unina, sem tekin var í notkun fyrir
þremur mánuðum, en einnig kanna
fleiri lausnir, þar á meðal gufuháf.
„Síðan þá höfum við hannað og
skoðað möguleika á að reisa í til-
raunaskyni háf ofan við Hellisskarð
á Hellisheiði. Tilgangurinn væri að
draga úr líkum á því að styrkur
brennisteinsvetnisins færi upp fyrir
viðmiðunarmörk í byggð á sama
tíma og við dælum því ofan í berg-
lög,“ segir hún.
Umsagna beðið
Eins og áður segir á háfurinn að
vera 20-30 metra hár og þrjátíu
sentimetrar að þvermáli. Athuganir
hafa verið gerðar á veðurfari í kring-
um virkjunina. Þær benda til þess að
háfur af þessu tagi geti dreift út-
blæstrinum betur með því að dæla
honum upp fyrir svonefnd hitahvörf.
Þannig haldist gufan í efri loftlögum.
Hólmfríður segir að í kjölfarið verði
virkni háfsins sannreynd með því að
mæla styrk brennisteinsvetnis í
nærumhverfi hans og í nærliggjandi
byggðarlögum.
Umsóknin um framkvæmdaleyfi
er nú í vinnslu hjá skipulagsráði Ölf-
uss. Beðið er umsagna Umhverf-
isstofnunar og Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands vegna þeirra áhrifa sem
framkvæmdin hefði í för með sér áð-
ur en umsóknin verður afgreidd.
Gufan sé lítið þynnt og styrkur
brennisteinsvetnis sé afar hár í
miðju stróksins. Hólmfríður segir að
fáist framkvæmdaleyfi geti bygging
háfsins hafist strax nú í haust.
Strompur Tölvumynd sem sýnir gufuháfinn við borholu við Hellisskarð.
Vilja reisa gufu-
háf á Hellisheiði
Dæli mengun upp í efri loftlögin
Fleiri gistingar á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Úrvalsfólksferð
til Kanarí
21 nótt
28. Okt. – 18. nóv.
HH
Las Arenas
Stúdíóíbúð.
158.100 kr.
á mann miðað við
tvo fullorðna.
20 nætur
29. Okt. – 18. nóv.
HH
Jardin del Atlantico
Íbúð með einu svefnherb.
156.700 kr.
á mann miðað við
tvo fullorðna.
Kristín Tryggvadóttir,
fararstjóri, er Reykvíkingur
og hefur starfað sem farar-
stjóri síðan 1998.
Svandís Guðmundsdóttir,
skemmtanastjóri, er hress
Skagfirðingur en bjó lengst af á
Akureyri og sl. 13 ár á Kanarí.