Morgunblaðið - 27.09.2014, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
VITINN
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Frumkvöðlarnir Rósa Valtingojer
og maðurinn hennar Zdenek Patak
hafa unnið afrek hérna. Þau hafa lyft
grettistaki,“ segir Una Björk Sigurð-
ardóttir listakona í samtali við Morg-
unblaðið. Hún er að tala um Sköp-
unarmiðstöðina í gamla frystihúsinu
á Stöðvarfirði. Hópur af rösku fram-
taksfólki eignaðist húsið fyrir þremur
árum með aðstoð bæjarfélagsins eftir
að útgerðin og fiskvinnslan á staðn-
um flutti á brott. Húsið er rúmlega
tvö þúsund fermetrar að stærð. Hef-
ur hópurinn unnið að því síðan að
byggja þar upp aðstöðu fyrir skap-
andi greinar af öllu tagi. Liggur gíf-
urleg vinna að baki hreinsun og end-
urbyggingu hússins fyrir hina nýju
starfsemi. Verkið er vel á veg komið,
en talsverð vinna þó enn framundan.
Markmiðið er að þarna geti þrifist til
frambúðar öflug starfsemi sem verði
sjálfbær, afli tekna og skapi vinnu
fyrir samfélagið.
„Við erum bjartsýn á að þetta
muni ganga upp. Viðtökurnar hér á
staðnum eru frábærar, enda
var skellurinn fyrir tíu ár-
um þegar öll landvinnsla
lagðist af mikið áfall
fyrir fólkið hér,“ seg-
ir Una Björk. Það
var ekki aðeins aðal-
atvinnugreinin sem
hrundi í þessu blóm-
lega sjávarplássi
heldur var í kjölfarið
bankanum, kaupfélag-
inu og pósthúsinu lokað.
Hljóðver næsta sumar
Sjálf vinnur Una að því að koma
upp hljóðveri í húsinu með kærasta
sínum, írska tónlistarmanninum
Vinny Vamos. Gengur það undir
nafninu Studio Silo. Markmiðið er að
skapa aðstöðu fyrir tónlistarfólk þar
sem það getur lokið sköpunarferlinu
við útgáfu á tónlist. Hægt verður að
taka upp efni á plötu og vinna að og
prenta út umslög og umbúðir um
verkin á staðnum. Þau hafa verið svo
heppin að fá til liðs við sig Banda-
ríkjamanninn John H. Brandt
sem er þekktur hönnuður
og ráðgjafi og hefur átt
þátt í byggingu hljóð-
upptökuvera í mörg-
um löndum. Vonast
er til að hljóðverið og
aðstaðan í kringum
það verði að fullu
tilbúin næsta sumar.
Margir hafa liðsinnt
verkefninu, svo sem
Íspan sem gefið hefur
allt gler og Húsasmiðjan
sem veitti ríflegan afslátt af
timbrinu. Þá tókst að afla fjár í verk-
efnið á söfnunarsíðunni Karolina
Fund.
Leikfangasmiðja
Í Sköpunarmiðstöðinni er nú
starfandi leikfangasmiðjan Stubbur
sem George heitinn Hollanders stofn-
Frystihúsið í endur-
nýjun lífdaganna
Öflugur hópur virkjar sköpunarkraftinn á Stöðvarfirði
Starfsgleði Gott andrúmsloft og lífsgleði einkennir samfélagið í Sköpunarmiðstöðinni. Fremst er Zdenek Patak.
VI
TINN
2014
Jónas og Jón Múli frá Kirkjubóli
Gaman er að koma í Múlastofu í Kaupvangi á Vopnafirði. Á sýningu þar er
haldið á lofti minningu bræðranna Jóns Múla og Jónasar Árnasona, sem fædd-
ir voru á Kirkjubóli í Vopnafirði. Faðir þeirra, Árni frá Múla, var forstjóri Hinna
sameinuðu verslana á Vopnafirði um skeið, en síðar ritstjóri, blaðamaður og al-
þingismaður. Móðir þeirra var Ragnheiður Jónasdóttir.
Jón Múli var einn kunnasti útvarpsmaður landsins til fjölda ára og auk þess
tónskáld. Jónas fetaði í fótspor föður síns; varð blaðamaður, ritstjóri og al-
þingismaður, var að auki afbragðs skáld og saman sömdu bræðurnir fjölda
söng- og gamanleikja sem urðu mjög vinsælir. Deleríum Búbónis var sá fyrsti
og margir kannast við. Fjöldi mynda prýðir veggi Múlastofu og ýmsir munir
liggja frammi. Síðast en ekki síst er vert að benda á að hægt er að hlýða á
raddir bræðranna, tal og söng, og horfa á myndbönd úr safni Ríkissjónvarps-
ins. Það var Björn G. Björnsson sem hannaði sýninguna, sem opnuð var í ágúst
árið 2008. Múlastofa er lokuð yfir vetrartímann, frá 20. ágúst, en hægt er að
fá hana opnaða fyrir hópa með stuttum fyrirvara. skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Múlastofa Sýning um líf og list Kirkjubólsbræðranna, Jónasar og Jóns Múla.
Þriggja ára starfi ferðaþjónustu,
sveitarfélaga og fleiri á Austurlandi
var ýtt úr vör á dögunum. Er ætlunin
að skilgreina Austurland sem
áfangastað. Starfið leiða menn sem
eru sérfræðingar í þróun svæða og
áfangastaða í ferðaþjónustu. Þeir
vinna með Austurbrú og ferðamála-
samtökum eystra. Markmiðið er að
fjórðungurinn standi upp úr sem
áfangastaður fyrir ferðamenn og
ákjósanlegur staður til búsetu.
Þessi vinna er í samræmi við
áherslur sveitarfélaga á Austurlandi
um að Egilsstaðaflugvöllur verði
nýtt hlið inn á svæðið og alþjóðleg samgöngumiðstöð. Meðal Austlendinga er
litið svo á að fjöldi ferðamanna á sunnanverðu landinu hafi náð þolmörkum og
því verði að róa á ný mið. sbs@mbl.is
Austurland sé áfangastaður
Morgunblaðið/Golli
Egilsstaðir Höfuðstaður á Héraði.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Mörgum líður svo miklu, miklu
betur eftir meðferðina hjá okkur.
Það er gaman að sjá árangurinn
sem fólk hefur náð hjá okkur,“ seg-
ir Anna Þóra Árnadóttir, yf-
irsjúkraþjálfari á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað, en þar er
boðið upp á meðferð fyrir offitu-
sjúklinga. Byrjað var að bjóða upp
á slíka meðferð á endurhæfing-
arsviði sjúkrahússins árið 2007 og
síðan þá hafa á annað hundrað
manns notið hennar.
Anna Þóra segir hópinn fjöl-
breyttan og koma úr ýmsum áttum,
en eitt eiga allir sameiginlegt og
það er BMI-líkamsmassastuðull
sem er hærri en 35. Það er skil-
greint sem alvarleg offita. „Hingað
hefur komið fólk á öllum aldri; allt
frá fólki undir tvítugu og upp í fólk
sem er yfir sjötugt. Konur hafa ver-
Margir sem til okkar leita
verða hreinlega að nýju fólki
Meðferð við offitu
er í boði á sjúkrahús-
inu á Neskaupstað
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjórðungssjúkrahúsið Meðferðin er fjórar vikur og flestir sem hana sækja
eru búsettir á Austurlandi. Vel er fylgst með fólkinu að meðferð lokinni.
SPARAÐU
25-50%
AF ÖLLUM LJÓSUM
OG PERUM*
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
*Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði og merktum
Everyday low price. Afsláttur reiknast á kassa.
LJÓSADAGAR
LOKADAGUR 28. SEPTEMBER
AUSTURLAND2014Á FERÐ UMÍSLAND