Morgunblaðið - 27.09.2014, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
aði upphaflega árið 1994. Eru vonir
bundnar við að í kringum hana geti
orðið til tvö föst stöðugildi. Smíðuð
eru fjölbreytt tréleikföng, svo sem ís-
lensk húsdýr, bílar, bátar, dúkku-
vagnar og rólur. Efnið kemur úr
Hallormsstaðarskógi. Eru leikföngin
til sölu í verslunum víða um land og á
netinu.
Þá er á staðnum boðið upp á
vinnustofudvöl gegn hóflegu gjaldi og
hafa tvær útlendar listakonur, Sus-
annah Bolton frá Skotlandi og Am-
anda Wieczorek frá Bandaríkjunum,
dvalið þar að undanförnu. Í gær opn-
uðu þær sýningu á staðnum, innsetn-
ingu og teikningar sem unnar hafa
verið meðan þær dvöldu í miðstöð-
inni.
Sjö til níu manna kjarni
Í Sköpunarmiðstöðinni er alhliða
vinnuaðstaða, trésmíðaverkstæði,
rafmagnsverkstæði, hönnunarverk-
stæði og önnur sú aðstaða sem skap-
andi greinar þurfa á að halda.
Kjarninn í Sköpunarmiðstöðinni
er að sögn Unu sjö til níu manna hóp-
ur sem fundar vikulega yfir hádeg-
isverði á mánudögum, ber saman
bækur sínar, skipuleggur vinnuna og
leysir þau mál sem þarf að leysa.
Stemningin er góð og bjartsýni
ríkjandi um framtíðina. „Allir eru vel-
komnir hingað,“ segir Una Björk,
„sérstaklega mundum við fagna því
að fá í heimsókn laghenta sjálf-
boðaliða.“
Ljósmyndir/Sköpunarmiðstöðin
Leikföng úr tré Leikfangasmiðjan Stubbur er til húsa í Sköpunarmiðstöðinni. Þar eru tveir starfsmenn.
Nýtt hlutverk Gamla frystihúsið hýsir nú Sköpunarmiðstöðina.
ið í meirihluta
hingað til, en
karlarnir eru að
sækja í sig veðr-
ið,“ segir Anna
Þóra.
Í meðferð-
inni sem er fjór-
ar vikur er lögð
áhersla á breyt-
ingar á lífsstíl,
bætt mataræði
og aukna hreyfingu samkvæmt
leiðbeiningum Lýðheilsustofnunar.
Flestir af Austurlandi
Fræðsla er stór hluti meðferð-
arinnar og sálfræðiaðstoð er veitt
þeim sem á þurfa að halda. Með-
ferðin er áþekk þeirri sem boðið er
upp á á Reykjalundi og sumir
þeirra sem fara í meðferðina fara í
skurðaðgerð að henni lokinni. Þeir
sem taka þátt í meðferðinni liggja á
sjúkrahúsinu meðan á henni stend-
ur, en fara heim til sín um helgar.
Til að eiga kost á þessu úrræði þarf
tilvísun frá lækni. Flestir koma af
Austurlandi, en einstaka koma ann-
ars staðar að af landinu. Að með-
ferðinni starfar þverfaglegt teymi
sem í eru m.a. læknar, sjúkraþjálf-
arar, iðjuþjálfar, sjúkraliðar,
hjúkrunarfræðingar og sálfræð-
ingar.
Langtímabreyting
á lífsgæðum
Talsverð eftirfylgni er að með-
ferð lokinni. Fylgst er með fólki í
tvö ár eftir hana, m.a. með sam-
tölum og innan árs eftir meðferð
eru tvær endurkomur.
Árangurinn hefur verið mæld-
ur og Anna Þóra segir hann vera
umtalsverðan. „Meðferðin virðist
bera árangur til langs tíma fyrir
50-60% þeirra sem fara í hana.
Nánast allir léttast bæði og styrkj-
ast á þessum fjórum vikum. Ekki ná
allir þeim árangri sem þeir þyrftu,
en það sem við sjáum er lang-
tímabreyting á lífsgæðum margra.
Margir eru komnir í öngstræti en
ná að snúa við blaðinu. Við erum
ekki að gera neinn galdur, áherslan
er á að fólk beri ábyrgð á sér sjálft.
Það sem við gerum er að veita
stuðning. Margir sem til okkar leita
verða hreinlega að nýju fólki. Það
er afskaplega skemmtilegt að upp-
lifa það,“ segir Anna Þóra.
Anna Þóra
Árnadóttir
Kjöt- og fiskbúð Austurlands á
Egilsstöðum er afar vinsæl, að
sögn heimamanna og kaupmað-
urinn ánægður eins og staðan er
í dag.
Hjónin Eiríkur Auðunn Auð-
unsson og Dóra Kristín Þóris-
dóttir eiga verslunina. „Við flutt-
um að sunnan í fyrra gagngert til
að opna fiskbúð upp á von og
óvon; ég átti mér þennan draum
vegna góðra minninga úr Skrið-
dal, þar sem ég var í sveit sem
strákur,“ sagði Eiríkur þegar
blaðamaður kom í heimsókn.
Kjöt- og fiskbúð í sama hús-
næði varð gjaldþrota og Eiríkur
keypti þrotabúið í félagi við tvo
aðra. Búðin fékk ótrúlega góðar
viðtökur í fyrstu að hans sögn en
svo hallaði undan fæti. Tvennt
kom til. „Ég veiktist og svo höfð-
um við ekki nægilegt fjármagn
til að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á búðinni. Í raun var því
bara eitt að gera – að loka.“
Hjónin höfðu keypt hlut hinna
eigendanna, en skelltu í lás 28.
ágúst sl. Fjallað var um málið í
Austurfrétt og viðbrögð voru
mikil. „Ég fékk fjölda hringinga,
tölvupósta og Facebook-
skilaboð, svo ég varð að opna aft-
ur. Fólk sagði að ég mætti ekki
hætta!“
Eiríkur leitaði aðstoðar Arion
banka og fékk, verslunin var
opnuð á ný eftir tæpra tveggja
vikna hlé og hann segir allt á
réttri leið; hann geti greitt
starfsfólki laun þó líklega fái
hann sjálfur ekki mikið um sinn.
Leggur áherslu á uppruna
Fjölbreytt úrval fisks er í boði,
bæði hefðbundinn, flakaður og
tilbúnir réttir. Að auki lamba- og
nautakjöt. „Ég legg mikla
áherslu á að vera með upp-
runatengdar, hreinar afurðir, án
nokkurra aukaefna. Það eru okk-
ar ær og kýr að geta sagt fólki
hvaðan kjötið kemur.“
Eiríkur samdi nýverið við Þor-
stein Bergsson, bónda á Unaósi,
um 3,5 tonn lambakjöts. „Ég verð
bara með lambakjöt frá honum í
vetur og er mjög stoltur af. Þor-
steinn er þekktur fyrir mikla
gæðaframleiðslu.“ skapti@mbl.is
Kjöt- og fiskbúð Austurlands á Egilsstöðum
Mátti ekki hætta!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nýjung Eiríkur Auðunn býður upp á fjölbreytta kjöt- og fiskrétti.
Fiskmarkaður og fiskvinnsla
ENN ER LYKT AF FISKI Í GAMLA FRYSTIHÚSINU
Enn má finna lykt af fiski í gamla frysti-
húsinu á Stöðvarfirði. Og hún er ekki frá
gamla tímanum heldur glæný! Fiskmark-
aðurinn á staðnum hefur tekið þar á
leigu rými fyrir starfsemi sína. Þá er inn-
andyra lítil fiskvinnsla sem sér bæj-
arbúum fyrir fiskmeti. „Við fögnum
þessu. Það hjálpar okkur að borga reikn-
inga fyrir rafmagn og annað,“ segir Una
Björk Sigurðardóttir, listakona í Sköp-
unarmiðstöðinni.
Sjávarfang Fiskur er enn flak-
aður og seldur í húsnæðinu.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.