Morgunblaðið - 27.09.2014, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2014
Handunnir íslenskir skartgripir úr silfri
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Verð 25.500,- Verð 25.600,-Verð 14.800,-
Verð 34.900,-
Verð 29.900,- Verð 25.700,-
Verð 25.700,-
Verð 17.900,-
Verð 17.900,-
Verð 18.900,-
Verð 17.900,-
Verð 25.700,-
Verð 19.900,-
Verð 14.800,-
Árni Jónsson tók við starfi framkvæmdastjóra Fylkis í vor eftirað hafa verið á Dalvík í tvö ár og hálft ár. Þar var hanníþrótta- og æskulýðsfulltrúi. „Það var frábært á Dalvík og
þetta er dásamlegt sveitarfélag. Ég eignaðist fullt af vinum þar en
einhverra hluta vegna kallaði borgin á mig.“
Þótt Árni sé Breiðhyltingur og Valsari var ekki erfitt fyrir hann
að taka við starfinu hjá Fylki. „Það er mjög auðvelt að laðast að
þessari stemningu sem er hér í Árbænum. Allir fylkja sér um félag-
ið, ég bý sjálfur í Norðlingaholti og er einn af frumbyggjunum þar,
en við leigðum íbúðina okkar meðan við vorum á Dalvík. Í Fylki er
stundaður fótbolti, handbolti, fimleikar, karate og blak, og við erum
að reyna að ýta við að stofnuð verði almenningsdeild eins og hjól-
reiðar. Það mun koma.“
Árni er uppeldisfræðimenntaður frá Danmörku og hefur ávallt
unnið að félagsmálum. Hann var forstöðumaður félagsmiðstöðva
hjá ÍTR og strandvörður í Nauthólsvík.
Árni stundar hjólreiðar og safnar vínylplötum en meðal gersema í
safninu eru plötur með Ham, S.H. Draumi og Tappa tíkarrassi.
Hann fylgist einnig með stórveldinu úr Bítlaborginni í enska
boltanum.
Sambýliskona Árna er Hlín Ólafsdóttir, grafískur hönnuður og
mastersnemi í kennsluréttindum í Listaháskólanum. Börn þeirra
eru Hörður Þór 14 ára, Matthildur Freyja, 7 ára, Fannar Elís, 3 ára.
Árni Jónsson er 42 ára í dag
Við Brjánslæk Árni að líkja eftir Georg Bjarnfreðarsyni en elsta
syninum fannst á tímabili þeir vera líkir. Sá yngsti fylgist með.
Góður andi í Fylki
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hlutavelta
Þau Bjartur Einar
Jónsson og Ástrós
Inga Jónsdóttir
bökuðu muffins og
bjuggu til límonaði
með hjálp mömmu
sinnar og seldu.
Þau létu ágóðann,
5.464 kr., renna til
Rauða krossins.
T
ómas Guðni fæddist í
Reykjavík 27.9. 1974 og
ólst þar upp: „Ég átti
fyrst heima á Seltjarn-
arnesinu og man lítið eft-
ir mér þar, átti síðan heima í Norð-
urmýrinni til átta ára aldurs og loks í
Sólheimunum.“
Þróttari í Sólheimunum
„Þar varð maður snemma Þróttari
enda æfði ég og keppti með Þrótti í
knattspyrnu og blaki til 17 ára ald-
urs. Maður fór nú ekki alltaf kátur af
velli en við vorum líklega oftar en
ekki ofurliði bornir. Þetta voru samt
skemmtilegir tímar með góðum fé-
lögum. Um 17 ára aldur sagði ég skil-
ið við íþróttirnar og snéri mér meira
að tónlistinni.
Tónlistina hef ég líklega úr móð-
urættinni, en mamma, móðursystir
mín og amma og ömmusystir spiluðu
allar á píanó.
Í öllum boðum settust þær við pí-
anóið og síðan var spilað og sungið,
allt frá gömlu „fjárlögunum“ og upp í
eldri dægurlögin eftir Fúsa, Oddgeir
og Jón Múla.
Ég byrjaði píanónám hjá Hönnu
Guðjónsdóttur þegar ég var sex ára
en hún kenndi mömmu á sama tíma.
Hún kunni að vekja áhugann og
halda sex ára snáða við nótnaborðið.
Í Nýja Tónlistarskólanum var aðal
píanókennari minn hins vegar Vil-
helmína Ólafsdóttir.
Auk þess lærði ég á baritonhorn,
lék í skólahljómsveit Laugarnesskóla
hjá Stefáni Þ. Stephensen en minn
helsti blásturskennari var Björn R.
Einarsson heitinn, hljómsveitar-
Tómas Guðni Eggertsson, tónlistarstjóri og organisti – 40 ára
Feðgarnir Tómas Guðni með sonum sínum, þeim knattspyrnuköppum, Hrafni Abraham og Eggerti Georg.
Með tónlist úr móðurætt
Músíkfélagar Tómas Guðni, Davíð Þór Jónsson og Björn Hlynur Haralds-
son, fyrir tónleikana „Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?“ árið 2009.
Guðrún Kristín
Magnúsdóttir,
rithöfundur og
myndlistar-
maður, er 75 ára
í dag. Hún rekur
bókaútgáfuna
Freyjuketti sem
hefur gefið út um 200 barna- og ung-
lingabækur (fást á Amazon) og 300
fræðslumyndbönd (á Youtube). Síðan
1990 hefur Guðrún stundað rann-
sóknir á forna sið og gefur út undir
heitinu Óðsmál.
75 ára
Árnað heilla
Hannes Ólafsson
verður 70 ára
sunnudaginn 28.
september. Hann
býr ásamt konu
sinni, Þórdísi
Torfadóttur, í
Mosfellsbæ. Hann
mun eyða deginum að heiman í faðmi
fjölskyldunnar.
Árnað heilla
70 ára
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is