Morgunblaðið - 27.09.2014, Síða 52
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 270. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Féllu í sprungu við Þríhnjúkagíg
2. Standandi fæðing á …
3. Vita hver böðullinn er
4. Hinir slösuðu komnir á sjúkrahús
Leikstjórinn Guðmundur Arnar
Guðmundsson frumsýnir nýjustu
stuttmynd sína, Ártún, á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF,
í næstu viku og hefur honum verið
boðið að sýna myndina á tíu alþjóð-
legum kvikmyndahátíðum í haust,
m.a. í Varsjá og Chicago. Fyrri stutt-
mynd Guðmundar, Hvalfjörður, vann
til 15 alþjóðlegra verðlauna á síðasta
ári og þá m.a. á hinni virtu kvik-
myndahátíð í Cannes. Myndin er til-
nefnd til Evrópsku kvikmyndaverð-
launanna 2014 sem veitt verða í
desember. Guðmundur vinnur nú að
sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd,
Hjartasteinn, sem hann þróaði fyrr á
þesu ári í leikstjórnarsmiðju Cannes-
kvikmyndahátíðarinnar.
Morgunblaðið/Golli
Ártún sýnd á tíu
kvikmyndahátíðum
Listin að skrifa gagnrýni er yfir-
skrift málþings á vegum RIFF sem
haldið verður í Norræna húsinu 3.
október kl. 14.30. Málþingið sækja
erlendir kvikmyndagagnrýnendur,
Peter Debruge frá tímaritinu Variety,
John DeFore frá The Hollywood Re-
porter og Pamela Pianezza sem skrif-
ar fyrir tímaritið Dazed and Confused
og stjórnandi verður Bergsteinn Sig-
urðsson útvarpsmaður. Á málþinginu
verða skoðuð störf þeirra sem fjalla
um kvikmyndalistina. „Ódýrara er en
áður að gera kvikmyndir, en ef til vill
erfiðara en nokkurn
tímann að vekja at-
hygli og því skiptir
gagnrýni enn máli. En
hvað fær hjarta gagn-
rýnandans til að slá?“
segir um þingið á
vef RIFF.
Erlendir kvikmynda-
rýnar á málþingi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 3-10 m/s og dálítil rigning, fyrst fyrir sunnan. Hvass-
ara og úrkomumeira á Suður- og Austurlandi. Hiti 3 til 10 stig að deginum.
Á sunnudag Suðlæg átt 3-8 m/s um landið sunnanvert og smáskúrir. Norðlægari norð-
antil og lítilsháttar væta við sjóinn, en yfirleitt þurrt síðdegis og rofar til. Hiti frá 2 stigum
í innsveitum fyrir norðan, upp í 9 stig syðst. Á mánudag Suðaustan 15-23 m/s og rign-
ing, talsverð úrkoma sunnantil á landinu. Heldur hægari um kvöldið. Hiti 7 til 13 stig.
Auk fjölda af leikjunum í handbolta
hefst keppnistímabil körfuboltafólks
innan skamms. Leiktíð blakara er
hafin, svo og í íshokkíi. Talsverður
áhugi er fyrir hendi á báðum greinum
og á bak við þær stendur þakklátur
lesendahópur. Það er alveg ljóst að
fjölmiðlar senda aldrei menn á alla
þessa leiki, segir Ívar Benediktsson í
viðhorfspistli á laugardegi. »4
Ekki verður allur fjöldi
kappleikja mannaður
Lið Evrópu hefur tveggja
vinninga forskot á sveit
Bandaríkjanna eftir fyrsta
keppnisdag af þremur í
keppninni um Ryder-
bikarinn í golfi sem leikinn
er á Gleneagles-vellinum í
Skotlandi. Evrópa hefur
fimm vinninga gegn þremur
Bandaríkjanna eftir að um-
skipti urðu þegar leið á
keppnina í gær. Keppni
hófst snemma í morgun. »1
Lið Evrópu stend-
ur vel að vígi
FH-ingar gætu tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn í knattspyrnu karla á
morgun en þá fer fram næstsíðasti
leikur Pepsi-deildar karla. Þeir eru
tveimur stigum á undan Stjörnunni
og með mun betri
markatölu, þannig
að ef þeir gera
betur gegn Val en
Stjarnan gerir
gegn Fram er tit-
illinn nánast
örugglega
þeirra.
»2-3
Verða FH-ingar
meistarar á morgun?
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við hvetjum fólk til að finna sína
uppáhaldshreyfingu. Það er ekk-
ert eitt rétt í því efni. Aðalatriðið
er að fá hjartað til að dæla dug-
lega, að lágmarki 30 mínútur á
dag,“ segir Sabína Steinunn Hall-
dórsdóttir, landsfulltrúi Ung-
mennafélags Íslands og verk-
efnastjóri Hreyfiviku sem UMFÍ
heldur utan um hér á landi.
Hreyfivikan hefst á mánudag og
eru skipulagðir fjölbreyttir við-
burðir um allt land.
Hreyfivikan er ekki keppni á
milli hópa eða sveitarfélaga. Sab-
ína leggur áherslu á að hug-
myndin sé einföld, að fá fólk til að
finna áhugaverða hreyfingu sem
það geti hugsað sér að stunda
áfram til að bæta heilsu sína til
framtíðar.
Hreyfivikan er hluti af herferð
alþjóðlegra samtaka sem vilja
stuðla að því að 100 milljónum
fleiri Evrópubúar fari að hreyfa
sig reglulega og taka þátt í íþrótt-
um fyrir árið 2020.
Margfaldast í ár
Í fyrra tóku tvö sambönd innan
UMFÍ þátt og voru þátttakendur
samtals um fjögur þúsund. Nú
verða margfalt fleiri sambönd með
auk annarra félaga, fyrirtækja
og einstaklinga og enn er tími
til að skipuleggja og skrá
viðburði. Því má búast
við að þátttakendur verði
vel á annan tug þúsunda í
ár. Finna má lista yfir við-
burði á vef UMFÍ.
Á Hreyfiviku í fyrra
sameinaðist samfélagið
á Egilsstöðum og
Fljótsdalshéraði
um myndarlega
þátttöku og fékk
viðurkenningu al-
þjóðasamtakanna
fyrir að vera með eitt besta verk-
efnið í Evrópu.
Dagskrá er að verða til í fjölda
sveitarfélaga. Sabína vekur at-
hygli á því að nokkrir nemendur
Menntaskóla Borgarfjarðar standa
fyrir margskonar viðburðum í
Borgarnesi. Á Kjalarnesi munu
leikskólabörn bjóða heldri borg-
urum upp í dans. Sem dæmi um
aðra nálgun nefnir hún að smala-
mennska sé hluti af Hreyfiviku á
Hólmavík. Grindavík kemur af
krafti inn. Þar höfðu í gær verið
skipulagðir 65 viðburðir.
„Það er reynt að höfða til allra
aldurshópa og oft myndast góð
stemning í samfélögunum í kring-
um þessa viðburði,“ segir Sabína
Steinunn.
Fólk finni uppáhaldshreyfingu
Fjöldi viðburða
um allt land í
Hreyfivikunni
Morgunblaðið/Eggert
Hreyfing Sabína St. Halldórsdóttir leiðbeinir Erni Daða Sigurðssyni og Tinnu Dögg Þórðardóttur í útileikjum.
„Ég sæki mikið út í náttúr-
una. Fæ orkuna með því,
syndi, hjóla, fer á skíði og
geng á fjöll en fer líka í rækt-
ina. Ég gríp tækifærin þegar þau
gefast, reyni til dæmis að leggja
langt frá verslunum því þar fæ ég
stæði og geng aðeins lengra,“
segir Sabína Steinunn Halldórs-
dóttir um eigin hreyfingu.
Hún segir að það skipti
öllu máli að fólk geri það
sem það hefur ánægju af. Það
auki líkurnar á því að það haldi
áfram að hreyfa sig. Hún hvetur
fólk til að gæta líkama síns ekki
síður vel en gsm-símans eða ann-
arra tækja sem það reyni að
varðveita vel.
Í nógu var að snúast hjá Sab-
ínu og samstarfsfólki í gær, með-
al annars við að koma gögnum til
boðbera Hreyfivikunnar um land
allt.
Sæki mikið út í náttúruna
STJÓRNANDI HREYFIVIKU NOTAR TÆKIFÆRIN SEM GEFAST