Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Innigallar fyrir konur á öllum aldri Margir litir Stærðir S-XXXXL Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Velúrgallar Ný sending Tax free af öllum snyrtivörum í október Þessi „frétt“ var flutt í Ríkis-útvarpinu í gær:    Samkomulag hefur náðst um inn-leiðingu reglna um samevr- ópskt fjármálaeftirlit í EFTA- ríkjunum þremur, Íslandi, Noregi og Lúxemborg. Með því verður tryggt að Evrópulöggjöf sem bygg- ir á viðbrögðum við alþjóðlegu fjármálakreppunni taki gildi í ríkj- unum þremur, þar á meðal löggjöf um þrjár evrópskar eftirlitsstofn- anir á fjármálamarkaði.    Þar sem stofn-anirnar hafa meðal annars vald til að grípa inn í rekstur fjármála- fyrirtækja fela reglurnar í sér framsal fram- kvæmdavalds sem stjórnarskrá Ís- lands heimilar ekki.    Fjármálaþjónusta er mikilvægfyrir efnahag Lúxemborgar sem þar af leiðandi hefur þrýst mjög á um að reglurnar verði inn- leiddar. Samkomulagið felur í sér að Eftirlitsstofnun EFTA tekur all- ar bindandi ákvarðanir gagnvart EFTA-ríkjunum og hægt verður að bera þær undir EFTA-dómstólinn. Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra staðfesti samkomulagið fyrir Íslands hönd en reglurnar verða lögfestar hér á landi á næstunni.“    Þessi frétt „RÚV“ er stór-merkileg. Annars vegar felur hún í sér að Lúxemborg sé gengið úr ESB yfir í EFTA, sem eru stór- tíðindi. Og hins vegar að núverandi ríkisstjórn ráðgeri að fara með brögðum í kringum Stjórnarskrá Íslands.    Hvorugu verður trúað. „RÚV“ segir fréttir STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.10., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík 2 léttskýjað Akureyri 2 skýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 8 léttskýjað Ósló 7 skúrir Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 10 skýjað Helsinki 7 skýjað Lúxemborg 15 léttskýjað Brussel 15 skýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 12 skýjað London 13 skýjað París 17 heiðskírt Amsterdam 13 súld Hamborg 16 léttskýjað Berlín 17 léttskýjað Vín 20 léttskýjað Moskva 8 heiðskírt Algarve 20 léttskýjað Madríd 16 skýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 21 heiðskírt Winnipeg 7 léttskýjað Montreal 20 skýjað New York 23 léttskýjað Chicago 17 alskýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:19 18:09 ÍSAFJÖRÐUR 8:30 18:08 SIGLUFJÖRÐUR 8:13 17:51 DJÚPIVOGUR 7:50 17:37 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur lagt fyrir sýslumanninn í Reykja- vík að leggja lögbann við þeirri at- höfn fjarskiptafyrirtækjanna Vodafone og Hringdu að veita við- skiptavinum sínum aðgang að vef- síðunum deildu.net, deildu.com, thepiratebay.se, thepiratebay.sx og thepiratebay.org. Dómar féllu í málum STEF – Sambands tón- skálda og eigenda flutningsréttar gegn Fjarskiptum hf. og Hringdu ehf. í gær, þar sem STEF fór fram á að fjarskiptafyrirtækjunum yrði gert að loka fyrir aðgang að fyrr- nefndum síðum. Í dómnum kemur m.a. fram að starfsemi umræddra vefsvæða vegi gegn grundvallarrétti höfund- ar til að gera eintök af verki sínu og birta það, en vefsvæðin eigi það sameiginlegt að gera notendum þeirra kleift að gera öðrum not- endum aðgengileg eintök af hug- verkum. Þá fellst dómurinn á að brot gegn fyrrnefndum rétti séu yfirvofandi og hætta sé á að rétt- indin muni fara forgörðum eða verða fyrir teljandi spjöllum verði sóknaraðili knúinn til að bíða dóms um þau. Dómurinn fellst ekki á þau rök fjarskiptafyrirtækjanna að STEF hafi takmarkaða hagsmuni af því að fá sett á lögbann, en þótt við- skiptavinir fyrirtækjanna kunni að geta farið fram hjá lokun á vef- svæðunum hafi ekki verði sýnt fram á að lögbann sé tilgangslaust. Í yfirlýsingu frá Vodafone sagði að jákvætt væri að niðurstaða væri fengin í málið en hún yrði skoðuð áður en ákvörðun um næstu skref yrði tekin. Vodafone hafði ekki lokað á umræddar vefsíður í gær- kvöldi, enda hefði sýslumaður enn ekki lagt á lögbann í samræmi við niðurstöðu dómsins. Verða að loka á deildu.net  Héraðsdómur samþykkir kröfur STEF um lögbann  Nær líka til Pirate Bay Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu rannsakar nú hnífstunguárás sem átti sér stað á Stuðlum, með- ferðarstöð ríkis- ins fyrir ung- linga, síðdegis á mánudag. Sam- kvæmt upplýs- ingum frá lögreglu veitti 15 ára ung- lingspiltur starfsmanni Stuðla áverka á kvið með hnífi. Pilturinn hefur verið yfirheyrður og er hann kominn aftur í meðferð á Stuðlum. Starfsmaðurinn fékk að fara heim eftir skoðun og aðhlynningu á slysa- deild. Lögregla rannsakar málið sem hættulega atlögu. „Þetta kallar á endurskoðun á verkferlum og það þarf að fara yfir þetta mjög vel og reyna að læra af þessu. Við verðum að tryggja öryggi starfsfólks og annarra barna,“ sagði Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, í samtali við mbl.is í gær. Að sögn Þórarins Viðars Hjaltasonar, forstöðumanns Stuðla, er talið að pilturinn hafi smyglað hnífnum inn í húsnæði með- ferðarstöðvarinnar. „Við höfum ekki heimild til líkamsleitar en við höfum heimild til leitar,“ benti hann á í samtali við mbl.is. Verkferlar verða endur- skoðaðir Málið er litið alvar- legum augum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.