Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 5516646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga frá 10-18, lau. 11-15
Vetur 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
F
yrstu viðbrögð skipta
öllu máli þegar einhver
fær hjartastopp. Að
átta sig á einkennum,
hringja strax í sjúkra-
bíl og hnoða þar til aðstoð berst og
hjartastuðtæki kemur, því það þarf
alltaf að gefa fólki hjartastuð ef
koma á því aftur af stað,“ segir
Gunnhildur Sveinsdóttir, verkefn-
isstjóri skyndihjálpar hjá Rauða
krossinum. Hún er í Endurlífg-
unarráði Íslands, sem er fagráð um
þessi málefni á Íslandi, en það er
hluti af samnefndu evrópsku ráði.
„Endurlífgunardagur Evrópu var
haldinn í fyrsta skipti í fyrra og þá
var gefin út ályktun um að aðild-
arlönd gerðu sitt til að fræða al-
menning og heilbrigðisstarfsfólk
um endurlífgun. Þannig aukum við
líkur á að fólk lifi af hjartastopp.
Slagorð Evrópska endurlífgunar-
dagsins þetta árið er „You can save
a loved one“.
Nauðsyn að þekkja einkenni
Gunnhildur segir að hjarta-
stopp sé gríðarlega stórt heilbrigð-
isvandamál, því á hverjum degi fara
þúsund manns í hjartastopp í Evr-
ópu og einungis tíu prósent þeirra
lifa af. „Tölurnar á Íslandi eru að-
eins betri, hér lifa af um tuttugu
prósent þeirra sem fara í hjarta-
stopp, en um 250 manns fara í
hjartastopp hér á landi á hverju ári.
Ef allir myndu kunna endurlífgun
og ef hjartastuðtæki væru víðar, þá
væri hægt að bjarga miklu fleiri
mannslífum.“
Gunnhildur segir að þegar fólk
fari í hjartastopp þá séu einkennin
þau að fólk missi meðvitund, það
bregðist ekki við neinu áreiti og það
hættir að anda. „Það er nauðsyn-
legt að þekkja þessi einkenni, því
oft heldur fólk að þetta sé flog,
vegna þess að fólk kippist við líkt
og í krampa og það virðist anda
óreglulega þó það andi ekki, það
eru ósjálfráð viðbrögð. Ef engin
svörun er við áreiti og öndun er
óeðlileg, þá er viðkomandi líklega í
hjartastoppi.“
Heima, í ræktinni og vinnu
Gunnhildur segir að fólk geti
farið í hjartastopp hvar sem er,
heima við, í ræktinni, í vinnunni, og
sumir inni á spítala. Eðli málsins
samkvæmt verða flest tilvikin á höf-
uðborgarsvæðinu en þar er við-
bragðstími sjúkrabíla um sex mín-
útur. „Með því að fræða almenning
um endurlífgun viljum við auka lík-
urnar á að fólk lifi af hjartastopp.
Allir liðirnir skipta máli, að fólkið
heima sem er hjá þeim sem fær
hjartastopp viti hvað eigi að gera og
að sjúkraflutningsmenn sem koma
á staðinn kunni það sem þeir eiga
að gera. Það er nauðsynlegt að við-
halda þekkingu hjá fagfólkinu, því í
Hver sem er getur
bjargað mannslífi
Á hverjum degi fara þúsund manns í hjartastopp í Evrópu og einungis tíu prósent
þeirra lifa af. Á Íslandi fara um 250 manns í hjartastopp á ári. Evrópski endur-
lífgunardagurinn verður á morgun en Rauði krossinn kynnir nú í öllum grunn-
skólum landsins skyndihjálp fyrir nemendum með áherslu á endurlífgun. Því fleiri
sem kunna að beita endurlífgun, því meiri líkur eru á að fólk lifi af hjartastopp.
Friðsemd, illska, stríð og friður eru
meðal þess sem rætt verður á
heimspekikaffi Gerðubergs í Breið-
holti í kvöld kl. 20, en yfirskrift
þess er mannúð og harðúð. Þar ætl-
ar Gunnar Hersveinn heimspekingur
meðal annars að velta upp spurn-
ingunni hvers vegna samfélög
mannréttinda og mannúðar gera
loftárásir. Hann mun einnig ræða
um styrkleika mjúklyndis og veik-
leika harðlyndis.
Inga Dóra Pétursdóttir, fram-
kvæmdastýra UN Women á Íslandi,
mun líka tala um birtingarmyndir
ófriðar fyrir konur og börn í Afgan-
istan, en hún er nýkomin heim eftir
hálfs árs vinnu í Afganistan á veg-
um friðargæslunnar sem kynja-
sérfræðingur hjá NATO.
Ókeypis aðgangur er að heim-
spekikaffinu eins og endranær og
allir eru hjartanlega velkomnir.
Vefsíðan www.gerduberg.is
AFP
Styrjaldir Hvers vegna gera samfélög mannréttinda og mannúðar loftárásir?
Veikleikar harðlyndis
Að ganga Jakobsveginn, svokallaða
pílagrímsleið, er draumur margra.
Þær konur sem eru 45 ára eða eldri
geta nú látið drauminn rætast, því
Margrét Jónsdóttir, eigandi ferða-
skrifstofunnar Mundo, ætlar að vera
með kynningarfund um gönguferð
um Pílagrímsstíginn á kvennaheim-
ilinu Hallveigarstöðum við Túngötu í
Reykjavík í kvöld kl. 20. Margrét hef-
ur áður farið með íslenskar konur
þennan veg og tekist vel. Gengnir
verða síðustu 300 km á stígnum í
góðum félagsskap kvenna. Ferða-
tilhögun og undirbúningur fyrir ferð-
ina verður kynnt á fundinum. Allir
velkomnir og endilega takið með ykk-
ur gesti sem gætu verið áhugasamir.
Endilega …
… kynnið ykkur göngu um
Jakobsveginn með konum 45+
Kátar Íslenskar konur hvíla sig á göngu sinni um Jakobsveginn með Margréti.
Dagurinn í dag er alþjóðlegur dagur
tileinkaður missi á meðgöngu og
barnsmissi. Af því tilefni verður
minningarstund í Bústaðakirkju kl. 21
í kvöld. Fólk er hvatt til þess að koma
og kveikja á kerti fyrir litla engla og
eiga saman hugljúfa stund. Lista-
mennirnir Valdimar og Reggie Óðins
taka þátt í minningarstundinni ásamt
prestunum sr. Pálma Matthíassyni og
sr. Hans Guðbergi Alfreðssyni.
Missir á meðgöngu
Minningar-
stund í kvöld
Morgunblaðið/Valdís Thor
Sorg Missir á meðgöngu er erfiður.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Morgunblaðið/Kristinn
Gunnhildur Starfar stundum sem
sjálfboðaliði og kennir endurlífgun.
Ljósmynd/Kristinn Pétursson
Réttu handtökin Þessir krakkar á Akranesi vönduðu sig við æfingarnar.