Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 11

Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 11
endurlífgun eru settar fram nýjar leiðbeiningar á fimm ára fresti. Alla þessa viku hafa til dæmis verið námskeið á vegum Endurlífg- unarráðs fyrir heilbrigðisstarfsfólk á Landspítalanum með erlendum leiðbeinendum þar sem er farið yfir endurlífgun barna.“ Gerðu eitthvað Gunnhildur segir að allir þurfi að rifja kunnáttu sína um endur- lífgun upp reglulega í gegnum lífið. „Því dæmin sanna að ef stutt er síð- an fólk fór á námskeið í endurlífgun þá eru miklu meiri líkur á að það treysti sér til að bregðast við. Við segjum alltaf: Gerðu eitthvað frekar en ekki neitt, það er alltaf betra. Þó það sé ekki nema hringja strax í neyðarlínuna. En auk þess getur viðbragðsþjónustan leiðbeint í gegnum síma. Einnig ættu sem flestir að vera með skyndihjálpar- app Rauða krossins í símanum, því þar er sýnt myndrænt hvernig skuli bera sig að.“ Hjartahnoð er vissu- lega ekki eins auðvelt og það sýnist, það krefst afls og úthald. „En reynslan sýnir að fólk sem lendir í þessum aðstæðum á vettvangi fyll- ist oft ótrúlegum krafti og fram- kvæmir þetta, en finnur svo kannski eftir á hversu mikil átökin voru.“ Bjargráður hjálpar til Í tilefni af 90 ára afmæli Rauðakrossins í ár, er lögð sérstök áhersla á skyndihjálp. „Rauði krossinn vill efla fólk í skyndihjálp, þar með endurlífgun, og stærsta og metnaðarfyllsta verkefnið er að fara í alla grunnskóla í landinu og tala við nemendur og kynna þeim skyndihjálp, ekki síst endurlífgun. Þetta hefur gengið vel og við höfum verið heppin í Reykjavík, því við höfum verið í góðu samstarfi við fé- lag innan læknadeildarinnar sem kallar sig Bjargráð. Þau fara í heimsóknir í grunnskóla og fyrir vikið gera þau okkur kleift að sinna öllum þessum fjölda. Bjargráður fer þess utan í heimsóknir, einkum í framhaldsskóla. Læknanemarnir í Bjargráði eru hluti af okkar sjálf- boðaliðum og við erum þeim gríð- arlega þakklát.“ Einhver gæti hald- ið að til lítils sé að kenna yngstu börnum í grunnskóla endurlífgun, en Gunnhildur segir að efnið sé sett fram á einfaldan hátt. „Yngstu krakkarnir þurfa líka að læra að þekkja einkennin. Þótt þau hjarta- hnoði kannski ekki, þá geta þau til dæmis lært nauðsyn þess að hringja strax í 112.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 E N N E M M / S ÍA / N M 6 4 0 7 1 Ef hjartastopp verður utan sjúkrahúss skiptir meginmáli að hefja endurlífgun sem allra fyrst.  Hvað sérðu? Ef um skyndilegt meðvitund- arleysi er að ræða skaltu hringja strax í Neyðarlínuna 112 áður en farið er út í frekari aðgerðir. Athugaðu viðbrögð við áreiti. Ef einstaklingurinn bregst ekki við skaltu kanna öndun. Opnaðu öndunarveg og kann- aðu hvort öndun er eðlileg. Leggðu vangann við andlitið og horfðu á hvort brjóstkassinn hreyfist, hlustaðu eftir öndun- arhljóðum og reyndu að finna hvort viðkomandi andar frá sér. Byrjaðu strax endurlífgun með hjartahnoði og blæstri ef engin viðbrögð eru til staðar og öndun er óeðlileg.  Hjartahnoð Hnoðaðu 30 sinnum á takt- inum 100 hnoð á mínútu á miðj- an brjóstkassann með beinum handleggjum, úlnliðir og oln- bogar eiga að vera læstir og axl- ir beint yfir hnoðstað. Léttu öllum þunga af brjóst- kassanum eftir hvert hnoð.  Blástur Opnaðu öndunarveginn með því að setja aðra höndina á enn- ið og ýttu höfðinu aftur, lyftu samtímis undir hökuna með hinni hendinni. Dragðu eðlilega að þér andann og blástu 2 sinn- um þannig að þú sjáir brjóst- kassann lyftast aðeins. Haltu áfram að hnoða 30 sinnum og blása 2 sinnum til skiptis. (Af vefsíðu Rauða krossins) Endurlífgun BREGÐIST STRAX VIÐ Ljósmynd/Kristinn Pétursson Læra Sjálfboðaliðarnir Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir og Klara Gunnarsdóttir leiðbeina nemendum í Brekkubæj- arskóla á Akranesi á námskeiði um skyndihjálp. Krakkarnir sem standa í röðinni bíða spenntir að fá að hnoða. Þeir sem vilja sækja skyndi- hjálparnámskeið sem og þeir vinnustaðir sem vilja bjóða sínu starfsfólki upp á námskeið, geta skoðað hvaða námskeið eru í boði á slóðinni raudikrossinn.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.