Morgunblaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
5
5
5
SUBARU XV
FJÓRHJÓLADRIFINN – SJÁLFSKIPTUR
Subaru XV 2.0i, sjálfskiptur
Verð: 5.290.000 kr.
6,6 l/100 km
í blönduðum akstri
Ný LINEARTRONIC stiglaus sjálfskipting
með þrepastillingum í stýri.
SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL
SEM ÞÚ GETUR KEYPT
Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp
í hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif
með tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi. Allir Subaru eru
með 5 stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP.
GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
NÝR LÁNAMÖGULEIKI
ÚTBORGUN / 529.000 KR.10%
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kröfur um orkunýtni blöndunar-
tækja sem seld eru á Íslandi verða að
óbreyttu senn hertar vegna krafna
ESB um visthönnun. Fyrir vikið
verður aðeins heimilt að selja sturtu-
hausa sem uppfylla kröfur um vist-
hönnun. Þá verður aðeins leyft að
selja blöndunartæki sem hita vatnið
upp að hámarki 41 gráðu á Celsíus.
Breytingarnar eru hluti af útvíkk-
un á tilskipun ESB um visthönnun,
þannig að hún varði framvegis vörur
„sem tengjast orkunotkun“.
Söluaðili pípulagningarvara á
höfuðborgarsvæðinu, sem vildi ekki
láta nafns síns getið, sagði að innan
skamms yrði óheimilt að selja aðra
sturtuhausa og önnur blöndunar-
tæki en þau sem tilskipunin leyfir.
„Að hluta til erum við farnir að
vinna samkvæmt nýrri byggingar-
reglugerð frá Evrópusambandinu.
Hitastig á vatni á almenningssalern-
um má í mesta lagi vera 41 gráða,“
segir söluaðilinn.
Byrjaðir að selja nýju hausana
Spurður hvort kröfurnar séu farn-
ar að takmarka framboð á sturtu-
hausum og blöndunartækjum til al-
mennings segir söluaðilinn að
reglurnar hafi áhrif á framboðið.
„Auðvitað sogumst við inn í það. Við
kaupum þessa sturtuhausa og erum
byrjaðir að selja hausa sem spara
vatn. Þetta verða einu vörurnar sem
verða til sölu. Það gerist mjög bráð-
lega að við fáum ekki aðrar vörur.
Við getum ekki flutt annað inn
nema láta búa það til í Kína og það er
ekki eftirsóknarvert. Það verða því
sömu vörunúmerin og eru t.d. til sölu
í Þýskalandi. Við eigum í raun engan
annan kost. Síðustu árin höfum við
reyndar ekki haft aðrar vörur í
boði,“ segir söluaðilinn.
Reglugerð um ryksugur
Meðal reglugerða sem þetta varð-
ar og bíða þess að verða teknar inn í
EES-samninginn og þar með inn í ís-
lenska löggjöf má nefna reglugerð
um orkumerkingar vatnshitara,
reglugerð er varðar kröfur varðandi
visthönnun raf- og rafeindatækja til
heimilis- og skrifstofunota og reglu-
gerð varðandi visthönnun ryksuga.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um
útvíkkun á innleiðingu á tilskipun
Evrópuþingsins og ráðsins um vist-
hönnun (2009/125/EB) þannig að
hún taki til allra orkutengdra vara í
stað þess að ná eingöngu til vara sem
nota orku. Í frumvarpi til laga um
breytingu á lögum nr. 42/2009 um
visthönnun vöru sem notar orku seg-
ir í athugasemdum um tilefni, nauð-
syn og meginefni lagasetningarinn-
ar: „Undir tilskipunina og efni
frumvarpsins falla ekki einvörðungu
vörur sem nota, framleiða, flytja eða
mæla orku heldur gætu ákveðnar
orkutengdar vörur fallið þar undir,
þ.m.t. vörur sem notaðar eru í bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð,
eins og gluggar, einangrunarefni eða
tilteknar vörur sem ætlaðar eru fyrir
vatnsnotkun, t.d. sturtuhausar eða
kranar,“ segir þar orðrétt.
Ekkert ákveðið með einangrun
Björn Karlsson, forstjóri Mann-
virkjastofnunar, var á fundi með
norrænum samstarfsmönnum sínum
í Kaupmannahöfn þegar hann gaf
kost á símaviðtali um visthönnun.
Spurður hvenær áhrifa í þessa
veru muni gæta á Íslandi segir Björn
að það hafi ekki verið tekin nein
ákvörðun um hvernig einangrunar-
gildi verður þróað fyrir byggingar á
Íslandi. Umhverfisráðuneytið taki
slíka ákvörðun. Þá sé heldur ekki bú-
ið að taka ákvörðun um að skerpa á
kröfum um glugga í byggingarreglu-
gerð. Hitt sé ljóst að áhersla á vist-
væna hönnun aukist stöðugt.
Spurður hvort kröfur um vist-
hönnun séu lengra komnar varðandi
vatnsnotkun, þ.e. sturtuhausa og
krana, vísar Björn til áðurnefnds
frumvarps. Mannvirkjastofnun muni
fá það hlutverk að fylgjast með
markaðssetningu slíkrar vöru.
„Það verður meiri áhersla á notk-
un vistvænnar vöru þegar það frum-
varp er komið í gegn. Við munum
fylgjast með markaðnum,“ segir
Björn og svarar því játandi að fyrri
búnaður sem sóaði vatni sé á útleið.
„Það verður ekki leyft að selja hann.
Það er eins og hið fræga dæmi um
ryksugurnar. Það verður ekki hægt
að fá ryksugur með meiri krafti en
1.600 wött. Það verður bannað að
selja þær,“ segir Björn en þess má
geta að hámarkið innan EES verður
að óbreyttu 900 wött árið 2017.
Óhagkvæmt fyrir Ísland
Frosti Sigurjónsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar, telur
að breytingar á lögum um visthönn-
un þjóni ekki íslenskum hagsmunum
og nái ekki tilgangi sínum í landi sem
hefur endurnýjanlega raforku og
kyndir með hitaveituvatni.
Hinar nýju kröfur ESB um vöru-
merkingar séu íþyngjandi og geti því
dregið úr úrvali vara frá framleið-
endum utan ESB. Þá muni auknar
kröfur um einangrun húsa fela í sér
aukinn kostnað en skila litlum ábata
fyrir þá sem hafa hitaveitu. Einnig
sé líklegt að kröfurnar muni gera
rafbíla dýrari. Sturtuhausar muni
skammta dropana og heitavatns-
kranar verða þrengdir.
„Við búum við allt annan veruleika
en ESB-ríkin. Við erum að gera stór-
kostleg mistök með því að undan-
skilja okkur ekki frá þessum kafla
EES-samningsins. Þau mistök verða
dýrkeyptari eftir því sem frá líður.
Við flytjum inn vörur fyrir hundruð
milljarða á næstu áratugum. Sá inn-
flutningur verður líklega einhverjum
milljörðum dýrari vegna þessa og þá
getum við ekki notað þá milljarða í
þarfari hluti. Mér finnst ástæða til að
staldra við og að þingmenn íhugi
þessi mál betur. Það er margt gott
sem kemur frá Evrópska efnahags-
svæðinu en þetta er ekki eitt af því,
Maður sér ekki fyrir endann á
þessu. Það er stöðugt verið að víkka
þetta út. Við gengum inn í EES til
þess að njóta viðskiptafrelsis en nú
er kominn sá pólitíski vinkill að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Það er góðra gjalda vert. Sá
vinkill á hins vegar ekki erindi hing-
að vegna þess að hér er orkan sjálf-
bær,“ segir Frosti Sigurjónsson.
Sturtur verði
eins og í ESB
Reuters
Höfuðstöðvar ESB í Brussel Tilskipuninni um visthönnun er ætlað að
tryggja samræmdar reglur og frjálst flæði slíkra vara á innri markaði ESB.
Ný tilskipun um visthönnun á Íslandi