Morgunblaðið - 15.10.2014, Page 17

Morgunblaðið - 15.10.2014, Page 17
VITINN 2014 Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu- lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is. Á Ásbrú Myndin er frá tilraunaverksmiðju Arctic Sea Minerals á Reykjanesi. Tæki Arctic Sea Minerals hefur komið sér upp margs konar tækjabúnaði. reynslu sinni og hvöttu þær til dáða. Þá voru þar útsendarar há- skóla í grenndinni í leit að efni- legum leikmönnum. „Það átti reyndar ekki við um þessar stelp- ur. Það er ekki tímabært, þær eru það ungar,“ segir Atli. Hann segist vita til þess að núna í haust hafi fjórir ungir ís- lenskir körfuboltamenn fengið háskólastyrki vestanhafs, þar af tveir frá Grindavík. Að auki séu allnokkrir slíkir við nám ytra á körfuboltastyrk. Ferð sem þessi kostar sitt og segir Atli að stúlkurnar hafi gengið skipulega til verks, hafið söfnun fyrir tveimur árum og náð að safna fyrir öllum kostnaði við ferðina. „Þær áttu meira að segja afgang til að kaupa sér treyjur til að vera í úti,“ segir hann. Merktar Stelpurnar í Sixers-bolum, sem er gælunafn Philadelphia 76ers. Liðið var stofnað árið 1946 og er meðal þeirra elstu í NBA-deildinni. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Guðmundur Rúnar Lúðvíksson hefur frá barnsaldri haft mikið dá- læti á norðurljósunum og það kveikti hugmyndina að norður- ljósaturnunum, fimm átta metra háum turnum, eða rörum. Með því að horfa í gegnum þau fæst sjónarhorn á himininn og norðurljósin, ósnortið af ljós- mengun. Hug- myndin er að turnarnir verði úr krómuðu stáli og að þeim verði þannig komið fyrir að þeir myndi stjörnu. Guðmundur hefur undanfarna mánuði unnið að fjármögnun turn- anna og hefur hún að mestu farið fram á vefsíðu verkefnisins; northernlighttower.com. Áætlað er að smíði og uppsetning turn- anna muni kosta um fjórar millj- ónir, nú hefur tæp ein og hálf safn- ast og því er nokkuð í land. Guðmundur segir viðtökur al- mennings hafa verið góðar og að fjölmargir einstaklingar hafi gefið fé til verkefnisins, en hann hafi átt von á meiri undirtektum hjá fyr- irtækjum á svæðinu, einkum ferðaþjónustufyrirtækjum. Heldur ótrauður áfram Hann segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð bæj- aryfirvalda í Reykjanesbæ við beiðni hans um styrk. „Þetta yrði atvinnuskapandi, myndi vekja verulega athygli á svæðinu og skila sér margfalt til bæjarfélags- ins. Ég hefði viljað sjá aðra nið- urstöðu,“ segir Guðmundur. gengið eins og vonir Guðmundar stóðu til segist hann síður en svo ætla að leggja árar í bát. „Ég ætla að koma turnunum upp og ég vil fá þá hingað á Reykjanesið. Þeir myndu draga fjölda fólks inn á þetta svæði, fólk í ferðaþjónust- unni segir að eitthvað þessu líkt vanti hérna. Ég sé fyrir mér að Reykjanes eigni sér norðurljósin, þannig að hérna verði vettvangur fyrir þá sem vilja sjá þau. En til þess að það megi verða þurfum við að spýta í lófana.“ annalilja@mbl.is Ekki hefur verið sótt um stað- setningu fyrir turnanna og Guð- mundur segir það ekki tímabært fyrr en allt fé sé í höfn. „En ég hef augastað á þremur stöðum sem allir koma jafnt til greina. Einn þeirra er uppi á berginu við Kefla- víkurhöfn, þar sem ljósanóttin er haldin og það myndi t.d. sjást úr Reykjavík og víðar. Annar er í miðbænum í Keflavík og sá þriðji er á lítilli hæð rétt við Reykjanes- braut, þar sem ekið er inn í Innri- Njarðvík.“ Þrátt fyrir að söfnunin hafi ekki Guðmundur safnar fyrir fimm átta metra háum turnum á Suðurnesjum Verði miðstöð norðurljósanna Ljósmynd/ludviksson.com Turna ber við himin Myndin er tölvuteiknuð og sýnir turnana eins og þeir gætu komið til með að líta út. Þrjár staðsetningar koma til greina. Guðmundur Rúnar Lúðvíksson Stækka fyrirtækið í þrepum HYGGJAST FRAMLEIÐA ÝMSAR TEGUNDIR AF SÖLTUM „Við hyggjumst stækka fyrirtækið í þrep- um. Við erum í dag að tala um litla verk- smiðju, en hún verður stækkuð í þrepum,“ segir Egill Þórir Einarsson hjá Arctic Sea Minerals í kynningarmyndbandi fyrirtæk- isins. Stefnt er að verksmiðju sem fram- leiðir um 1.000 tonn af heilsusalti, 4.000 tonn af fiskisalti eða öðrum natríum- klóríð-söltum, 600 tonn af kalíumklóríði og 1.000 tonn af kalsíumklóríði og snef- ilefni.“ Egill Þórir Einarsson Ármúla 24 • S: 585 2800 EOS fjaðurljósin frá Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.