Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 18
FRÉTTASKÝRING Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Náðst hefur samkomulag, eftir tveggja ára deilur, um innleiðingu sameiginlegra reglna um evrópskar eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði. Samkomulagið byggist á svokallaðri tveggja stoða lausn milli ESB og EFTA og þýðir að ekki verður þörf á að breyta íslensku stjórnarskránni, eins og talið var í fyrstu. Að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra sem sótti fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og ESB í Lúxemborg í gær, hefði stefnt í óefni um framtíð EES- samstarfsins, hefði samkomulagið ekki náðst. Samkomulagið felur í sér að allar bindandi ákvarðanir evrópskra eftir- litsstofnana á fjármálamarkaði gagnvart EFTA-ríkjunum í EES- samstarfinu, þ.e. Íslandi, Noregi og Liechtenstein, verða teknar af Eft- irlitsstofnun EFTA (ESA) og að hægt verði að bera þær undir EFTA-dómstólinn. Þrjár nýjar eft- irlitsstofnanir á fjármálamarkaði innan ESB tóku til starfa árið 2011 og þeim hefur verið veitt vald til að taka bindandi ákvarðanir gagnvart aðildarríkjum ESB. Með samkomu- laginu mun ESA fara með sömu valdheimildir og eftirlitsstofnanir á vettvangi ESB. Málið lengi í miklum hnút „Tekist hefur samkomulag á milli EFTA-ríkjanna og ESB um innleið- ingu þriggja reglugerða um evr- ópskar eftirlitsstofnanir á fjármála- markaði,“ segir Bjarni Benediktsson. „Um þetta hefur verið ágreiningur í um tvö ár og lítið geng- ið fyrr en skriður komst á lausn á þessu máli á grundvelli tveggja stoða kerfisins. Það hefði stefnt í mikið óefni með EES-samstarfið ef ekki hefði fundist flötur á því með hvaða hætti við innleiddum gerðirn- ar. Þetta mál hefur verið í miklum hnút og það var erfitt að sjá hvernig sameiginlegur fjármálamarkaður hefði þróast innan EES-samstarfs- ins án þess að lausn fengist á þessu máli.“ Önnur niðurstaða óhugsandi Aðspurður hvort hann hefði átt von á að lausnin yrði með þessum hætti, svarar hann: „Við höfum treyst á að það myndi finnast farsæl lausn á málinu. Í mínum huga var það óhugsandi að það yrði önnur nið- urstaða en sú að byggt yrði á tveggja stoða kerfinu. Enda hefði annað kallað á stjórnarskrárbreyt- ingu hjá okkur og hefði farið gegn grunnhugsuninni með EES-sam- starfinu.“ Að sögn Bjarna er aðalatriði sam- komulagsins að allar bindandi ákvarðanir gagnvart EFTA-ríkjun- um í EES-samstarfinu verði teknar af þeim eftirlitsstofnunum sem þau eiga aðild að, svo sem Eftirlitsstofn- un EFTA. Hægt sé að bera þær ákvarðanir undir dómstól EFTA. Þetta hafi það í för með sér að Ís- land geti lögfest þá löggjöf sem byggist á viðbrögðum við alþjóðlegu fjármálakreppunni og þannig sam- ræmt umhverfi fjármálastarfsemi á Íslandi við það sem gerist í Evrópu, sem sé mjög mikilvægt fyrir virkni innri markaðarins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur unnið mikið af innleiðingar- vinnunni fyrirfram, með því að skrifa drög að innleiðingarlögum. Að sögn Bjarna mun fjármála- og efnahags- ráðuneytið nota næsta árið í að vinna að og klára útfærslu reglugerðanna. Þrjár nýjar eftirlitsstofnanir Í ársbyrjun 2011 tóku til starfa þrjár nýjar eftirlitsstofnanir á evr- ópskum fjármálamarkaði. Voru þær mikilvægur liður í umbótum á um- gjörð og regluverki evrópsks fjár- málamarkaðar í kjölfar fjármála- kreppunnar. Stofnanirnar þrjár eru Bankastofnun Evrópu (e. European Banking Authority), Verðbréfa- markaðsstofnun Evrópu (e. Euro- pean Securities and Markets Autho- rity (ESMA)) og Vátrygginga- stofnun Evrópu (e. European Insurance and Occupational Pen- sions Authority). Til viðbótar starfar kerfisáhætturáð (e. European Syste- mic Risk Board (ESRB)). Stofnununum er ætlað að tryggja nánara samstarf fjármálaeftirlita að- ildarríkjanna, auðvelda beitingu evr- ópskra lausna vegna fjölþjóðlegra vandamála og styðja við einsleita beitingu og túlkun reglna. Daglegt eftirlit með fjármálafyrirtækjum og mörkuðum verði áfram í höndum einstakra ríkja, að undanskildu eft- irliti með lánshæfismatsfyrirtækjum og miðlægum mótaðilum. Stofnunum ESB ekki veitt eftirlitsvald hér Morgunblaðið/Ómar Fjármálareglur Bjarni Benediktsson segir innleiðinguna taka um það bil ár. Eftirlitsstofnanir ESB » EFTA-ríkin og ESB hafa sam- ið um innleiðingu reglna um þrjár evrópskar eftirlitsstofn- anir á fjármálamarkaði. » Samkomulagið byggist á svokallaðri tveggja stoða lausn, þannig að allar bindandi ákvarðanir gagnvart EFTA- ríkjunum verða teknar af Eftirlitsstofnun EFTA. » Því verður ekki þörf á að breyta íslensku stjórnar- skránni og EES-samstarfinu verður ekki teflt í tvísýnu.  Hefði stefnt í óefni með EES-samstarfið ef samkomulag hefði ekki náðst 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Handunnir íslenskir skartgripir úr silfri LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Verð 25.500,- Verð 25.600,-Verð 14.800,- Verð 34.900,- Verð 29.900,- Verð 25.700,- Verð 25.700,- Verð 17.900,- Verð 17.900,- Verð 18.900,- Verð 17.900,- Verð 25.700,- Verð 19.900,- Verð 14.800,-                                     ! "#$ "% $! %#!! #"# ! $"# !! &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 "# ! "# "!" $ % %%!# %# $ # !%! " $ "#! "!% $ # %#"% %# # ## !"$ "#"  Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Samkvæmt talningu Ferða- mannastofu í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar fóru um 88 þúsund erlendir ferðamenn frá landinu í september síðastliðnum eða 15.100 fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 20,6% milli ára. Ferðamenn hafa aldrei mælst fleiri í september frá því mælingar hófust. Frá áramót- um hafa 788.099 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 148 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 23,1% fjölgun ferðamanna milli ára frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í greiningu IFS frá því í gær. 88 þúsund ferðamenn frá Íslandi í september ● Dagana 3. október til og með 9. október 2014 var 132 kaupsamn- ingum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu. Þar af voru 99 samningar um eignir í fjölbýli, 20 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.186 milljónir króna og meðalupphæð á samning 31,7 milljónir króna. Þetta er aðeins yfir meðalveltu síðustu 12 vikna. Hún var 4.168 milljónir króna á viku en meðalvelta á samning er undir meðal- veltu síðustu 12 vikna sem nam 34,6 milljónum króna. Þetta kemur fram í tölum sem Þjóðskrá birti í gær. 132 kaupsamningum þinglýst á viku STUTTAR FRÉTTIR ... Skammtímaáhrif af byggingu virkj- ana vegna lagningar sæstrengs milli Íslands og Bretlands yrðu líkast til töluvert minni en í tilfelli Kára- hnjúkavirkjunar, en fjárfesting í henni nam 272 milljörðum á verðlagi síðasta árs. Til samanburðar hefur Hagfræðistofnun áætlað að fjárfest- ing í virkjunum – jarðvarmavirkjun- um, vatnsafli og vindorku – yrði um 132 milljarðar ef slíkur sæstrengur verður að veruleika. Þetta kemur fram í Hagsjá Hag- fræðideildar Landsbankans en þar er fjallað um þau efnahagslegu áhrif sem verkefnið myndi hafa. Grein- endur bankans benda á að skamm- tímaáhrifin fælust fyrst og fremst í þeim fjárfestingum sem farið yrði í innanlands, en langtímaáhrifin í þeim nettó gjaldeyristekjum sem myndu streyma til landsins eftir að strengurinn yrði tekinn í notkun. Í umfjöllun Hagfræðideildar segir að þensluáhrif af lagningu strengs- ins yrðu væntanlega eitthvað minni en við byggingu Kárahnjúkavirkjun- ar og álvers Alcoa þar sem lagning hans er ekki jafn vinnuaflsfrek, og framkvæmdir færu fram á sjó. Í skýrslu Hagfræðistofnunar, sem var unnin í samvinnu við Landsvirkj- un og birtist í fyrra, er gert ráð fyrir kostnaði og fjárfestingu upp á 455 milljarða við lagningu strengsins. Verkefnið ætti að taka átta ár og fjárfesting í strengnum, sem áætlað er að yrði í eigu erlendra aðila, myndi nema um 248 milljörðum, að mati Hagfræðistofnunar. Morgunblaðið/Ómar Virkjun Fjárfesting yrði helmingi minni en í Kárahnjúkavirkjun. Minni áhrif en Kárahnjúkavirkjun  Lagning sæ- strengs hefði tals- verð þensluáhrif

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.