Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Byltingarkennd vetrar- og heilsársdekk UMBOÐSMENNUMLANDALLT Mikil gæði á afar sanngjörnu verði! Margir af þekktustu bílaframleiðendum í heimi kjósa að búa nýja bíla sína dekkjum frá Hankook. Ástæðurnar eru mikil gæði, frábært verð og öryggi. Meðal þeirra eru BMW, Audi, VW og Ford. Nýjasta kynslóð korna- dekksins frá Hankook. Frábært heilsárs dekk. Dekkið er með sérstaklega hertum trefjanálum í gúmmí- blöndunni sem grípa í svellið og gefa aukið grip í hálku. Mjúkt dekk sem endist gríðalega vel og vetrargripið er framúrskarandi 12 mánaða V A XT ALAUSA R A F B O R G A N I R Korna dekk Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Self. solning.is W419 W606 – Síðan 1941 – Skútuvogi 2 Sími 568 3080 www.bardinn.is 544-5000 Til að auka fjárfestingar í nýsköpun mætti koma á fót skattalegum hvöt- um á þeim forsendum að markaðs- brestur sé til staðar. Þeir sem fjár- festa í nýsköpunarfyrirtækjum njóta ekki ávinningsins af þeim þjóðfélags- legu verðmætum sem eru sköpuð. Þetta kemur fram í umsögn Við- skiptaráðs Íslands til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna til- lögu til þingsályktunar um aðgerðir til að efla lítil og meðalstór fyrirtæki og fyrirtæki í tækn- og hugverkaiðn- aði. Viðskiptaráð fagnar því að gert sé ráð fyrir því að skattalegir hvatar nái einnig til þeirra sem fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum í gegnum fjárfestingarsjóði. Það leggst hins vegar gegn skattaívilnunum vegna fjárfestinga í litlum og meðalstórum fyrirtækjum enda sé framleiðni þeirra að meðaltali minni en stærri fyrirtækja. Í umsögn Viðskiptaráðs segir hækkun á heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í óskráðum verðbréfum upp í 25% vera til bóta. Slík hækkun kunni að vera til þess fallin að auka aðgengi nýsköpunar- og sprotafyr- irtækja að fjármagni. Styður skattalega hvata til fjárfestinga í nýsköpun Morgunblaðið/Eggert Nýsköpun Frosti Ólafsson er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs en það styð- ur hækkun á heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í óskráðum verðbréfum. Á fyrstu níu mánuðum ársins nam kortavelta erlendra ferðamanna á Íslandi 93,3 milljörðum króna. Það er ríflega tveimur milljörðum meiri kortavelta en allt árið í fyrra, að því er fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Alls nam kortavelta útlendinga hér á landi 10,1 milljarði króna í september síðastliðnum. Það er aukning upp á 21% í krónum talið frá því á sama tíma fyrir ári, sam- kvæmt tölum sem Seðlabankinn birti um greiðslumiðlun í fyrradag. Er þessi aukning á milli ára í sam- ræmi við fjölgun ferðamanna. Í samanburði við kortaveltu Ís- lendinga erlendis þá hefur korta- velta útlendinga hérlendis verið tals- vert meiri það sem af er ári. Þannig er kortaveltujöfnuður orðinn já- kvæður um 28,8 milljarða eftir fyrstu níu mánuði ársins sem er 10 milljörðum betri útkoma en í fyrra. Morgunblaðið/Kristinn Neysla Ferðamenn hafa straujað kortin fyrir 93,3 milljarða króna. Kortavelta ferðamanna eykst enn Alþjóðlega mats- fyrirtækið Stand- ard and Poor’s hefur breytt horf- um Landsbank- ans, Arion banka og Íslandsbanka úr stöðugum í já- kvæðar. Láns- hæfiseinkunn allra bankanna er nú BB+/B. Þetta kemur fram í tilkynningum sem bankarnir sendu frá sér í gær. Í fréttatilkynningu segist S&P búast við traustum hagvexti á Ís- landi næstu tvö árin og að áfram muni draga úr ójafnvægi í þjóð- arbúskapnum. S&P breytir einnig horfum um þróun efnahagsáhættu á Íslandi úr stöðugum í jákvæðar og býst við að gæði eigna í bankakerf- inu haldi áfram að aukast. Það er þó skoðun S&P að lánshæfiseinkunn ríkisins, og mat fyrirtækisins á bankakerfinu, líði enn fyrir þá áhættu sem fylgja muni afnámi fjár- magnshafta. Í júlí breytti S&P horf- um ríkissjóðs í jákvæðar vegna auk- ins hagvaxtar og lækkandi opinberra skulda. Langtímaeinkunn Íslands, „BBB-“, er skör hærra en einkunn bankanna. Lánshæfis- horfur batna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.